Morgunblaðið - 27.06.2001, Page 44
DAGBÓK
44 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss kemur og fer í dag.
Nordsund kemur í dag.
Goðafoss og Brand Pol-
aris fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hvítanes, Sjóli, Salleq
og Markús J. komu í
gær. Veerborg og A. B.
Bilbo fóru í gær. Polar
Siglir kemur í dag. Sel-
foss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofan
er opin alla miðvikud.
frá kl. 14–17. S.
551 4349. Fataúthlutun
og fatamóttaka er opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. í mánuði, frá
kl. 14– 17 s. 552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040 frá kl.
15–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9-12
baðþjónusta, kl. 9-12 op-
in handavinnustofan, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13-16:30 opin smíða-
stofan, kl. 10-16 pútt-
völlurinn opinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
-13 hárgreiðsla, kl. 8-
12:30 böðun, kl. 9-16 al-
menn handavinna og
fótaaðgerð, kl. 9:30
morgunkaffi/dagblöð,
kl. 10 banki, kl. 11:15
matur, kl. 13 spiladagur,
kl. 15 kaffi. Farið verður
upp á Akranes fimmtu-
daginn 28. júní kl. 13.
Byggðasafnið skoðað og
kaffi drukkið á Dval-
arheimilinu Höfða. Ekið
verður heim um Hval-
fjörð. Upplýsingar og
skráning í síma 568-
5052 fyrir miðvikudag-
inn 27. júní.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15-
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16:30-18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting og
verslunin opin til kl. 13,
kl. 11:30 matur, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. At-
hugið! Morgungangan
fætist aftur yfir á laug-
ardag 30. júní og verður
rúta frá Firðinum kl.
9:50 og 10 frá Hraunseli.
Haustferðin 1. okt. til
Prag, Bratislava, Búda-
pest og Vínar. Kynning-
arfundur verður í dag
miðvikudaginn 27. júní
n.k. kl. 14, nokkrir mið-
ar til, og greiða þarf
staðfestingargjald. Or-
lofið að Hótel Reykholti
Borgarfirði 26. ágúst
n.k. Skráning og allar
upplýsingar í Hraunseli
sími 555-0142. Félags-
heimilið Hraunseli verð-
ur lokað vegna sum-
arleyfa starfsmanna frá
2. júlí til 12. ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10 til 13. Matur í hádeg-
inu.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara út í Viðey
með Viðeyjarferjunni.
Mæting í Klettavör
Vatnagörðum kl. 12.50
og hafa með sér nesti.
Umsjón Ingvar Björns-
son. Línudanskennsla
Sigvalda kl. 19:15.
Dagsferð 10. júlí Þórs-
mörk-Langidalur. Stutt-
ar léttar göngur. Nesti
borðað í Langadal.
Leiðsögn Þórunn Lár-
usdóttir og Pálína Jóns-
dóttir. Dagsferð 14. júlí
Gullfoss-Geysir-
Haukadalur. Fræða-
setrið skoðað. Leiðsögn
Sigurður Kristinsson og
Pálína Jónsdóttir. Eyja-
fjörður-Skagafjörður-
Þingeyjarsýslur 6 dag-
ar. 26.-31. júlí. Ekið
norður Sprengisand til
Akureyrar. Farið um
Eyjafjarðardali, Svarf-
aðardal, Hrísey, Sval-
barðsströnd og fl. Ekið
suður Kjalveg um
Hveravelli til Reykja-
víkur. Leiðsögn Þórunn
Lárusdóttir. Eigum
nokkur sæti laus. Ath:
Vegna mikillar aðsókn-
ar í hringferð um Norð-
austurland viljum við
biðja þá sem eiga pant-
að að koma og greiða
inn á ferðina sem fyrst.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10 til 16 í
síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postu-
línsmálun og fótaað-
gerð, kl. 13 böðun kl.
13:30 samverustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9 lagt af stað í ferð í
Húnaþing vestra. Frá
hádegi spilasalur opinn.
Allar veitingar í veit-
ingabúð Gerðubergs.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 10:30 boccia, kl. 13
félagsvist, kl. 17 bobb.
Gullsmári Gullsmára
13. handavinnustofan
opin kl. 9-16. Leiðbein-
andi á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9-
16:30 bútasaumur, kl. 9-
17 hárgreiðsla, kl. 11
banki, kl. 11-12 pútt, kl.
13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9-14, kl. 9-12:30 út-
skurður, kl. 9-16:45
handavinnustofurnar
opnar, kl. 13-13:30
bankinn, kl. 14 félags-
vist, kaffi og verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8:25
sund, kl. 9 dagblöð og
kaffi, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 11:45
matur, kl. 14:30 kaffi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9:30
almenn handmennt, kl.
10 morgunstund og
fótaaðgerðir, kl. 11:45
matur, kl. 13 kóræfing,
kl. 14:30 verslunarferð,
kl. 14:30 kaffi.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kredit-
kortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er op-
in miðvikud. og föstud.
kl. 16-18 en utan skrif-
stofutíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-6880
og 586-1088. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
MS-félag Íslands. Minn-
ingarkort MS-félagsins
eru afgreidd á Sléttu-
vegi 5, Rvk, og í síma
568-8620 og myndrita s.
568-8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588- 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl 13-17.
Eftir kl. 17 s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540-
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótek-
um. Gíró-og kredit-
kortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingadeildar Land-
spítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700 og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Í dag er miðvikudagur 27. júní,
178.dagur ársins 2001. Sjösof-
endadagur. Orð dagsins: Varðveit
hjarta þitt framar öllu öðru, því að
þar eru uppsprettur lífsins.
(Orðskv. 4, 23.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 auðveldur, 8 nötraði, 9
reiður, 10 greinir, 11 flýt-
irinn, 13 starfsvilji, 15
fjárreksturs, 18 lítil
tunna, 21 blekking, 22
smávaxna, 23 óþekkt, 24
þyngdareiningar.
LÓÐRÉTT:
2 óhreinkaði, 3 tilfinn-
ingalaus, 4 allmikill, 5
reyfið, 6 aldursskeið, 7
vaxa, 12 eyktamark, 14
vafa, 15 látið af hendi, 16
snauð, 17 deilur, 18
slungnu, 19 grasflötur, 20
duglega.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 flets, 4 þófar, 7 leggs, 8 örkin, 9 sýl, 11 skap, 13
saki, 14 eljan, 15 hörð, 17 Ægis, 20 æra, 22 lofað, 23
skúta, 24 sælir, 25 ausan.
Lóðrétt: 1 fólks, 2 ergja, 3 sess, 4 þjöl, 5 fokka, 6 rændi,
10 ýkjur, 12 peð, 13 snæ, 15 hælis, 16 ræfil, 18 grúts, 19
skarn, 20 æður, 21 assa.
K r o s s g á t a
KONA hafði samband við
Velvakanda og sagði hún að
nýlega hafi verið auglýsing
í DV frá Búnaðarbankan-
um. Þar var börnum boðið
upp á að koma og leggja
peninga, hámark kr. 2000,
inn á reikning og í staðinn
áttu þau að fá pappírspen-
inga sem þau gætu notað til
að taka út vörur hjá vissum
fyrirtækjum. Segir hún að
þetta sé augljóslega gert til
að fá börnin til að leggja
peninga inn á þennan
banka og finnst henni það
ámælisvert, þetta sé greini-
leg markaðssetning á börn-
um. Spyr hún hver það sé
sem græði á þessu.
Dodda-bækur
Árni Haukur hafði sam-
band við Velvakanda og er
hann að leita eftir vel með
förnum Dodda-bókum.
Þeir sem gætu hjálpað hon-
um eru vinsamlega beðnir
að hafa samband við Árna
Hauk í síma 562-9144.
Hvað er orðið um
okkar þjóð?
Það er farið að ganga fram
af mér hvernig fólk hefur
skrifað í lesendadálka
blaða. Fólk notar stór og
ljót orð og kennir öðrum
(t.d. ríkisstjórn) um ófarir
sínar. En það þarf ekki að
nota ljót orð til að koma
sínu á famfæri. Fólk skrifar
um tóma ísskápa. Ég skil
ekki hvað hefur orðið um
okkar þjóð. Getur ekki ver-
ið að þetta sé sjálfskapar-
víti hjá mörgum? Eyðir
fólk ekki í óþarfa og dauða
hluti eins og bíla, skemmt-
anir, áfengi, tóbak o.s.frv.
Ég ól ein upp þrjú börn og
þau fengu alltaf nóg að
borða og komust öll til
manns án þess ég fengi
styrki eins og fólk fær í
dag. Mér finnst að fólk ætti
að líta sér nær og athuga í
hvað það eyðir peningum
áður en það fer að kvarta í
fjölmiðlum.
Magnea.
Látum málið
niður falla
Ég get ekki skilið hvað vak-
ir fyrir fólki að saka látinn
mann, Eðvald Hinriksson,
fyrir stríðsglæpi. Að mínu
mati er þetta rógburður og
ásakanir. Mér finnst
ósennilegt að einhver
stríðsglæpamaður í fjar-
lægu landi ákveði skyndi-
lega að að fara til Íslands,
giftast góðri konu, eignast
börn og aðstoða sjúka. Veit
fólk ekki að þessi maður
rak nuddstofu í Reykjavík
ásamt konu sinni og bætti
þar með heilsu margra. Ég
var ein af þeim sem var í
nuddi hjá honum. Ein-
hverju sinni sagði hann
mér að ég ætti ekki að
þurfa að borga honum fyrir
nuddið því ég gæti fengið
vottorð frá lækni og þar
með fengið útlagðan kostn-
að endurgreiddan. Þetta
sýnir t.d. hve mikla um-
hyggju hann bar fyrir sjúk-
lingum sínum.
Þegar Eðvald lést var
gefin út yfirlýsing af ís-
lenskum stjórnvöldum um
að málið skyldi látið falla
niður. Mér finnst að það
hafi verið rétt ákvörðun og
að ættingjar hans eigi ekki
að þurfa að upplifa þessa
umræðu eina ferðina enn.
Þetta eru fremur
óskemmtilegar minningar
fyrir börn og barnabörn
látins manns sem eltur er
af dómstólum eftir að hann
er kominn í vígða mold.
Ekki vil ég svar við þessu
bréfi, nóg er kvölin samt
fyrir aðstandendur og
óþægilegt að ýfa þetta upp.
Vona ég að þessi umræða
haldi ekki áfram í fjölmiðl-
um.
Inga Ósk Guðmunds-
dóttir, Hátúni 10.
Létt og Magga V.
Ég vil koma á framfæri
ánægju minni með útvarps-
stöðina Létt 96.7 og þá sér-
staklega þáttinn hjá Möggu
V. á morgnana. Lagavalið
hjá Möggu V. er eins og
sniðið eftir mínum smekk.
Einnig er hún oft með
skemmtilega umfjöllun um
allt milli himins og jarðar.
Ég kem alltaf afslöppuð
og ánægð í vinnuna eftir að
hlusta á Möggu á leiðinni.
Kærar þakkir fyrir góðan
þátt.
Helga.
Dýrahald
Fress vantar
heimili
Vegna óviðráðanlegra or-
saka óskum við eftir góðu
heimili fyrir 1 árs gamlan
fresskött. Hann er. kol-
svartur með glansandi feld,
er geltur og kassavanur og
mjög líflegur köttur. Nán-
ari upplýsingar í síma 861-
5549.
Muggur er týndur
HVÍTUR kafloðinn köttur
er horfinn frá heimili sínu á
Seltjarnarnesi (Skerja-
braut). Hann gegnir nafn-
inu Muggur. Fjölskyldan
saknar hans sárt. Þeir sem
geta gefið upplýsingar um
Mugg hringi í síma 690-
8463, 552-9447 eða 562-
4031.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Markaðssetn-
ing á börnum
Víkverji skrifar...
EINHVERN tímann varð Vík-verji svo heppinn að komast í
kynni við fasanakjöt. Það var í út-
landinu, nánar tiltekið hjá Dönum, og
hann sér ekki eftir þeim kynnum.
Þetta rifjaðist upp nú þegar fréttir
berast af því að fasanaræktun er haf-
in hérlendis og reyndar á slóðum sem
ekki eru alveg ókunnar Víkverja eða
austur í Eiðaþinghá.
Fasanar eru nefnilega herra-
mannsmatur eins og margt annað
fuglakjöt og nægir þar að nefna
rjúpu, gæs og lunda. Er Víkverji líka
sannfærður um að þessi herra-
mannsmatur er ekki síður hollur eins
og hann er góður. (Við skulum þá
ekkert tala um rjómalagaðar eða
feitar sósur í þessu sambandi sem
eru nauðsynlegt meðlæti.) Verður
þess þá vonandi ekki langt að bíða að
hægt verður að skeiða í kjörbúðina
eftir íslenskræktaðri fasanabringu.
Ekki veit Víkverji hversu útbreitt
fasanaeldi er eða gæti orðið hérlend-
is en hann vonar bara að það verði
ekki eins og með minkaræktina að
margir stökkvi til og hyggist græða á
tá og fingri með fasanarækt og að allt
sigi svo á ógæfuhliðina af því að of
margir keppi um markaðinn. Inn-
lendur markaður þolir varla nema
fáa bændur á þessu sviði og fram að
þessu hefur okkur ekki lánast mikill
útflutningur á landbúnaðarvörum.
En hvað sem því líður er komið
vatn í munninn og ráð að rifja upp
fasanabragðið með því að kanna hvar
varan fæst.
x x x
NÚ þegar sumarið er komið vel áveg er fróðlegt að fylgjast með
hvernig fjallvegirnir eða öllu heldur
óbyggðavegirnir opnast hver á fætur
öðrum. Fært er orðið yfir Kjöl og í
Landmannalaugar og ekki líða marg-
ar vikur þar til hægt verður að gægj-
ast inn á Sprengisandsleið. Óbyggð-
irnar og hálendið bjóða uppá ótal
ferðamöguleika og á alla mögulega
vegu. Víkverji hefur helst kynnst
þessum hlutum landsins með því að
aka um hálendisvegina og dálítið með
göngum en þar vantar mikið á. Hefur
hann oftlega haft hug á að bæta þar
úr. Hann hálföfundar reyndar hesta-
menn af því að geta sest uppá jálka
sína og látið bera sig fyrirhafnarlaust
yfir landið sem skepnurnar gera víst
yfirleitt möglunarlaust. Þær fá sínar
tuggur fyrir þegar áð er og þá eru all-
ir sáttir og knaparnir ekki síst líka
því þeir hljóta að geta notað tæki-
færið og nærst líka.
Það er spurning hvort Víkverji
íhugar þennan ferðamöguleika betur
í framtíðinni en til þessa hefur hon-
um ekki dottið í hug annar ferðamáti
en akstur og ganga. Ætli það sé ekki
best að halda sig við það efni og bjóða
ekki hættunni heim með ótímabær-
um reiðtúrum. Enda á hann ekki
svona skepnur og þekkir fáa sem
stunda hestamennsku svo þessar
hugsanir eru raunar út í hött.
En það er öllu auðveldara að skella
sér í gönguferðir með Ferðafélaginu
eða Útivist eða bara með kunningj-
unum. Þá þarf ekki annan búnað en
nesti og ekki nýja skó, sæmilegan
útifatnað og kannski kort og áttavita
ef einhver kann á hann. En óbyggð-
irnar bíða og sjálfsagt að nýta helgar
og aðra frídaga til að vitja þeirra.
Gista í fjallaskálum eða gamla og
upplitaða fermingartjaldinu sem
sker sig rækilega úr í tjaldbúðunum
innan um tjaldíbúðirnar sem hinir
eru með.