Morgunblaðið - 27.06.2001, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. Vit 234
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 4.
Íslenskt tal. Vit nr. 231
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífum þeirra að eilífu.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 236.
Sýnd kl. 8 og 10.
B. i. 16. Vit nr 238.
www.sambioin.is
Fjögur súpermódel og
ein venjuleg stúlka.
Strákurinn í
næsta húsi á
ekki möguleika.
…frá þeim sem áttu upphaflegu hugmyndina
að There Is Something About Mary
strik.is
KVIKMYNDIR.is
1/2
Hugleikur
Sá snjalli er
bxunalaus!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 242.
Nýi Stíllinn
Keisarans
Sýnd kl. 3.45.
Vit nr. 213
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 235. B.i. 12 ára
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Einlæg,
dramatísk og
bráðskemmti-
leg bresk
mynd sem
lætur engan
ósnortinn
strik.is1/2 Hugleikur
KVIKMYNDIR.is
Svikavefur
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
B. i. 16.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16
KEANU REEVES JAMES SPADER
Sýnd kl. 4.30 og 8. B. i. 12.
Sýnd kl. 10.
Síðasta sýning. B. i. 14Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6 og 8.
ÓHT Rás 2
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.
31 þúsund áhorfendur
nýjar vörur
M O G G A B Ú Ð I N Á
í Moggabúðinni
Taska, aðeins 2.400 kr.
Úr 2.500 kr. - Sportúr 1.900 kr.
Bakpoki, aðeins 1.500 kr.
EINFALT OG ÞÆGILEGT!
Í Moggabúðnni eru margar spennandi vörur.
Þú getur m.a. keypt boli, töskur, klukkur o.fl. á
einstöku verði beint af Netinu með öruggum
hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is
og færð þær sendar heim til þín eða á
vinnustað.
Þú getur líka komið við hjá
okkur í Morgunblaðshúsinu,
Kringlunni 1, og skoðað
vörurnar þar.
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
DJASSPÍANISTINN Sunna Gunn-
laugs heldur tónleika í kvöld á Múl-
anum, Húsi málarans, sem hefjast
kl. 21. Á morgun verður hún síðan
mætt í Deigluna á Akureyri kl.
21.30 og leikur á fyrsta heita
fimmtudegi Listasumarsins þar í
bæ, og opnar um leið djass-
dagskrána.
Sunna hefur með sér valda
menn. Eiginmanninn og tromm-
arann Scott McLemore og bassa-
leikarann lipra Gunnar Hrafnsson,
en Sigurður Flosason leikur einnig
með þeim á saxófón á Múlatónleik-
unum.
Frekar samtímadjass
en nútímadjass
Frá árinu 1993 hefur Sunna búið
í New York. Hún lærði djass í Will-
iam Patterson-tónlistarskólanum í
New Jersey, og byrjaði að leika
sem atvinnutónlistarmaður 1996,
og hefur síðan gefið út tvo geisla-
diska Far Far Away og Mindful.
Sunna vekur sífellt meiri athygli
innan geirans, en segir velgengn-
ina samt kosta mikið puð og fyr-
irhöfn í New York þar sem nóg er
af tónlistarmönnum og illa borgað
fyrir tónleika.
Á Íslandi ætlar hún að leika tvö
lög af seinni disknum sínum. „Síðan
leikum við nýtt efni sem er í stíl við
þann disk. Við flytjum eitt lag eftir
Scott, eitt íslenskt og einhverja
standarda líka,“ segir Sunna.
„Tónlist mín er mjög opinn djass
og lagrænn. Mér finnst hann höfða
til víðs hóps, ekki bara djassgeggj-
ara. Við erum að fá mjög góð við-
brögð úr öllum áttum. Hún er
kannski ekki nútímadjass, því það
er ekki beint nein tilraunastarfsemi
í gangi, en samt samtímadjass með
mjög evrópsku yfirbragði.“
Sunna nefnir Svíana Bobo Sten-
son píanista og bassaleikarnn And-
ers Jormin sem áhrifavalda, auk
bandaríska píanistans Keith Jarr-
ett.
„Hann var með evrópskan kvart-
ett á áttunda áratugnum. Sumum
finnst diskurinn minn Mindful
minna pínulítið á þá tónlist, hún sé í
ætt við hana þótt ég sé ekki að apa
upp eftir honum.“
Íslensk ljóð og þjóðlög
Sunna er með fleiri járn í eld-
inum, einsog íslenskt ljóðaverkefni.
„Þegar ég er að semja, finnst mér
oft að lögin ættu að vera sönglög
frekar en djass, og þar sem ég á
erfitt með að semja texta, datt mér
í hug að semja út frá íslenskum
ljóðum,“ útskýrir Sunna sem er m.a
að vinna með Tómas Guðmundsson,
Stein Steinarr og Davíð Stefánsson.
„Við héldum tónleika í desember
sl. hér á landi, lékum þrjú þessara
laga, og Kristjana Stefánsdóttir
söng þau með miklum glæsibrag,“
segir Sunna sem veit ekki alveg
hvenær von er á disknum, en hún
situr reyndar líka á upptökum á ís-
lenskum þjóðlögum. „Ég hef haft
mikið að gera, en ég stefni á disk
sem fyrst. Sem tónlistarmaður verð
ég að taka lögin upp, annars eru
þau alltaf með mér,“ útskýrir
Sunna sem ætlar að koma frá sér
mörgun góðum lögum í kvöld og
annað kvöld.
Opinn
djass og
lagrænn
Morgunblaðið/Arnaldur
Sunna er ákveðin í að gefa okkur gott í eyra.
Sunna Gunnlaugs með tvenna tónleika
Rás 1
Íslenskur djass
kl. 19.00 um helgar