Morgunblaðið - 27.06.2001, Side 52

Morgunblaðið - 27.06.2001, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. ÁKVEÐIÐ var á fundi ríkisstjórnarinnar í gær- morgun að selja umtalsverðan hlut, þriðjung eða meira, í Landsbanka Íslands hf. Gert er ráð fyrir að kaupandi verði erlendur kjölfestufjárfestir og standa vonir til þess að gengið verði frá sölunni fyr- ir lok ársins. Í tilkynningu vegna sölunnar segir: „Viðskipta- ráðherra hefur ákveðið að hafinn verði undirbún- ingur á sölu á umtalsverðum hlut af eignarhlut rík- isins í Landsbanka Íslands hf. til kjölfestufjárfestis. Með umtalsverðum hlut er átt við ráðandi hlut eða að minnsta kosti þriðjung hlutafjár í félaginu. Ráð- gert er að salan fari fram fyrir árslok 2001. Skilyrði samkvæmt ákvörðun ráðherra er að sala á slíkum hlut leiði til aukinnar samkeppni á íslenskum fjár- magnsmarkaði og auki samkeppnishæfni hans.“ Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið að mjög góð samstaða hafi verið í ríkisstjórn um þessa nið- urstöðu og hún sé mjög ánægð með hana. „Miðað við skilyrðin sem sett eru, sem eru þau að salan auki samkeppnishæfni félagsins og einnig samkeppnis- hæfni íslensks fjármagnsmarkaðar, erum við að tala um erlendan kaupanda,“ sagði Valgerður. Hún sagði að það væri jákvætt vegna þess að það yki erlenda fjárfestingu í landinu, sem ekki væri vanþörf á, auk þess sem það yki alþjóðavæðingu at- vinnulífsins. Þá mætti einnig gera ráð fyrir því að það myndi bæta lánshæfismat bankans. Hún sagði að allur alþjóðamarkaðurinn kæmi til álita í þessum efnum. Flestir litu hins vegar fyrst til Norðurlandanna og Norður-Evrópu, en auðvitað kæmu Bandaríkin og aðir aðilar til greina. „Þetta skref sem við stígum núna með því að gefa kost á ráðandi hlut í bankanum breytir mjög stöð- unni og gerir bankann áhugaverðari,“ sagði Val- gerður. Samrýmist markmiðum um dreifða eignaraðild Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbank- ans, segir að sala á þriðjungshlut samrýmist því markmiði sem sett var í upphafi um dreifða eign- araðild. „Ég tel hins vegar brýnt að gerður sé grein- armunur á óbeinni fjárfestingu, innlendri eða er- lendri, sem samkvæmt lögum er skilgreind sem öll fjárfesting sem er minni en 10% í bankanum og hins vegar þegar virkur eignarhlutur er keyptur en það er samkvæmt lögum eignarhlutur sem er meiri en 10% en ekki ráðandi, þ.e. 50% eða meira. Með kjöl- festufjárfesti í almennri umræðu er átt við aðila sem á umtalsverðan virkan eignarhlut í banka en ekki ráðandi hlut. Þannig samrýmist slík aðild markmiðinu um dreifða eignaraðild.“ Ákveðið að selja þriðjung eða meira í Landsbanka Halldór J. Kristjánsson bankastjóri segir fyrirhugaða sölu samrýmast markmiðum um dreifða eignaraðild  Leitað tilboða/6 ORKUVEITA Reykjavíkur hefur til skoðunar möguleika á að end- urnýta raforku þá sem fellur til í stóriðjum álversins og járnblendi- verksmiðjunnar á Grundartanga með byggingu gufuaflsstöðvar á svæðinu. Framleiðslugeta slíkrar stöðvar gæti orðið allt að 60 MW á ári. Borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórinn á Akranesi undirrit- uðu í gær viljayfirlýsingu um að sameina Orkuveitu Reykjavíkur og Akranesveitu, Andakílsárvirkjun og eignarhlut Akraneskaupstaðar í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð- ar. Kom fram á fundinum að Orku- veita Reykjavíkur sér talsverða vaxtarmöguleika á Akranesi og raunar Vesturlandi öllu, ekki síst stóriðjusvæðinu á Grundartanga og hinum miklu sumarhúsabyggðum á Vesturlandi, þar sem eru hundruð sumarhúsa. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ánægður með sameiningaráformin, enda stækk- uðu þau athafnasvæði fyrirtækisins og þar með vaxtarmöguleika þess. „Við höfum verið að horfa til þess að það eru ákveðnir möguleikar í stóru iðjuverunum á Grundartanga til endurnýtingar á þeirri orku sem þar þarf til framleiðslunnar,“ segir Guðmundur. „Þar er mjög mikil varmaorka og talsverðir möguleikar á rafmagnsframleiðslu.“ Að sögn Guðmundar standa yfir viðræður við Norðurál um sölu á raforku beint til fyrirtækisins vegna frekari stækkunar álversins á Grundartanga og ekki síst af þeim sökum sjái Orkuveitan mikla mögu- leika í uppbyggingu á stóriðjusvæð- inu þar. „Í dag stígur gríðarlegur af- gangsvarmi upp í loftið á þessu svæði. Með því að breyta honum í gufu og taka hana gegnum túrbínur má framleiða rafmagn, rétt eins og gert er á Nesjavöllum.“ Guðmundur telur að framleiðslu- geta slíkrar stöðvar geti numið 30 til 60 MW á ári, eða svipað og fram- leitt er af raforku á Nesjavöllum í dag. Til samanburðar má geta þess að áætlað er að fyrirhugað Norð- lingaöldulón gefi 100 MW af sér og fyrirhuguð jarðvarmavirkjun í Bjarnarflagi á að gefa 20 MW af raforku. Áform um gufuaflsstöð til endurnýtingar raforku úr stóriðju á Grundartanga Sambærileg framleiðslu- geta og í Nesjavallavirkjun  Frumkvæðið/26 KRÍURNAR eru í miklum ham þessa dagana við að verja varp- lönd sín. Það fékk ljósmyndarinn að reyna í kríuvarpi nálægt Vík í Mýrdal í gær. Þær bæði görguðu og gogguðu og létu öllum illum látum. Morgunblaðið/RAX Kríuárás í Mýrdalnum FERJUFLUGVÉL frá Írlandi, sem hvorki gat lent í Keflavík né á Reykjavíkurflugvelli vegna þoku í gærkvöldi, lenti á Sandskeiði. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi sköpuðust engin vandræði vegna þessa og gekk lendingin á Sand- skeiði vel. Ferjuflugvél lenti á Sand- skeiði Í ENDURSKOÐUÐUM áætlunum Flugleiða er gert ráð fyrir að við óbreyttar aðstæður verði tap af rekstri félagsins á árinu. Rekstur Flugleiða gekk þokkalega framan af ári en versnaði í apríl og í maí fækkaði farþegum í bæði milli- landa- og innanlandsflugi og sam- dráttur varð í fraktflutningum félagsins. Flugleiðir ætla í ljósi þessarar stöðu að minnka framboð í áætl- unarflugi milli landa um 5% og þá mun félagið hætta að fljúga milli Keflavíkur og Halifax í haust en það er sú áætlunarleið sem minnst hef- ur gefið af sér. Þá verður og dregið úr framboði hjá dótturfyrirtækjun- um Flugleiðum-Frakt, Flugfélagi Íslands og Ferðaskrifstofu Íslands. Gengi bréfa Flugleiða lækkaði um 4,8% í gær og er nú 2,0. Útlit fyrir rekstrartap hjá Flugleiðum Hætt að fljúga til Halifax  Horfur á taprekstri/18 PÉTUR Pétursson sagði starfi sínu lausu sem þjálfari karla- liðs KR í gær en undir hans stjórn hömpuðu KR-ingar Ís- landsmeistaratitlinum á síð- ustu leiktíð og báru sigur úr býtum í deildabikarkeppninni í vor. KR-liðinu hefur ekki gengið sem skyldi á Íslandsmótinu í ár og eftir tapleik á móti Val í fyrrakvöld tók Pétur þá ákvörðun að láta staðar numið en meistararnir eru í áttunda sæti deildarinnar, með sjö stig eftir sjö leiki. Við starfi Péturs tekur væntanlega Skotinn Dav- id Winnie sem hefur verið að- stoðarþjálfari KR-inga á yfir- standandi tímabili. Pétur hættur með meist- arana  Sagði upp/B1 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.