Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 29
NOKKUR af ástsælustu lögunum
sem komu úr smiðju íslenskra tón-
skálda á síðustu öld hljóma á há-
degistónleikum í Hallgrímskirkju í
dag kl. 12.00–12.30. Hulda Guðrún
Geirsdóttir sópran og Douglas A.
Brotchie organisti flytja þar perlur
á borð við Hvert örstutt spor, Ís-
lenskt vögguljóð á hörpu og Englar
hæstir, andar stærstir. Douglas
mun einnig leika nokkur stutt org-
elverk, m.a. Forleik um sálm sem
aldrei var sunginn eftir Jón Nordal.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röðinni Sumarkvöld við orgelið, sem
nú er haldin í níunda sinn. Á
fimmtudagstónleikunum koma jafn-
an fram organistar úr Félagi ís-
lenskra organleikara ásamt gesti,
söngvara eða hljóðfæraleikara.
Mótettukór Hallgrímskirkju rek-
ur Klukkukaffi Guðríðar í turni
Hallgrímskirkju og að tónleikum
loknum geta gestir snætt léttan
málsverð og notið um leið útsýn-
isins úr turninum.
Söngperlur fyrir
sópran og orgel
Morgunblaðið/Jim Smart
Douglas Brotchie organisti og Hulda Guðrún Geirsdóttir söngkona.
Laugardagur
Kl. 17: Orgeltónleikar Steingríms
Þórhallssonar, organista hátíðarinn-
ar. Kl. 18: Aftansöngur (Vesper).
Sungið verður úr Þorlákstíðum. Kl.
20: Prófessor Sigvald Tveit flytur fyr-
irlestur í Skálholtsskóla sem hann
nefnir Nýir tónar í kirkjunni. Inn-
gangur að vorinu. Kl. 21: Skálholtshá-
tíðarkórinn syngur við undirleik
hljómsveitar Carls Möllers verkið
Víst mun vorið koma. Einsöngvarar
eru Páll Rósenkrans og Maríanna
Másdóttir. Stjórnandi er Hilmar Örn
Agnarsson, dómorganisti í Skálholti.
Sunnudagur
Kl. 10: Morgunsöngur í kirkjunni.
Kl. 13.30: Messa. Séra Kristinn Ágúst
Friðfinnsson, séra Guðmundur Óli
Ólafsson og dr. Pétur Pétursson
þjóna að messunni ásamt séra Sig-
urði Sigurðarsyni vígslubiskupi sem
predikar. Meðhjálpari er Guttormur
Bjarnason og organisti Hilmar Örn
Agnarsson. Kl. 16.30: Haukur Guð-
laugsson, fv. söngmálastjóri þjóð-
kirkjunnar, leikur á orgel og Guðrún
Ása Grímsdóttir flytur erindi.
Dagskrá Skálholtshátíðar
Hulda Guðrún Geirsdóttir og
Douglas Brotchie í Hallgrímskirkju
Á ÞORLÁKSMESSU á sumri,
sem er um helgina, er Skálholtshá-
tíð og að þessu sinni verður frum-
flutt á Íslandi kirkjukantata fyrir
kór, hljómsveit og einsöngvara eft-
ir norska tónskáldið Sigvald Tveit
sem verður gestur á Skálholtshá-
tíð og flytur þar erindi.
Sigvald Tveit er meðal fremstu
núlifandi tónskálda Norðmanna og
prófessor í tónlistarfræðum við
Tónlistarháskólann í Ósló. Að sögn
Péturs Pétursson rektors Skál-
holtsskóla er kantatan eitt kunn-
asta nútíma kirkjutónlistarverk
Norðmanna og er til í sænskum og
enskum búningi. Hún ber heitið
Víst mun vorið koma og saman-
stendur af 13 söngvum út frá
Opinberunarbók Jóhannesar.
„Séra Tómas Guðmundsson,
fyrrum prestur í Hveragerði,
hlustaði á hana á sínum tíma á
ferð sinni í Noregi og hreifst svo
af verkinu að hann fékk séra Áre-
líus heitinn Níelsson til að þýða
textana sem eru eftir Eyvind
Skeie og Jan Arvid Hellström. Í
verkinu er dramatísk spenna milli
afla myrkurs og eyðingar annars
vegar og uppbyggjandi játningar
til lífsins sem hinnar góðu sköp-
unar Guðs hins vegar. Undirtónn
verksins er trúarstyrkur kristn-
innar og vonin sem mætir framtíð-
inni í fullu trausti til skaparans og
endurlausnarans. Textarnir segja
frá Jóhannesi og sýnum hans í
fangelsinu á grísku eyjunni Pat-
mos. Verkið er í þjóðlagastíl með
djassívafi en tónskáldið lætur
gríska tóna leika um það til að
undirstrika uppruna textans,“ seg-
ir Pétur.
Sigvald Tveit fæddist árið 1945.
Hann hefur stundað nám í tón-
smíðum og hljómsveitarstjórn víðs
vegar um heim og hefur samið um
1100 verk af ýmsu tagi, allt frá
barnaþulum og tónlist við kvik-
myndir upp í stór kirkjuleg verk.
Hann starfaði um árabil sem tón-
skáld og stjórnandi við norska rík-
isútvarpið. Hann hefur starfað í
fleiri löndum við tónsmíðar,
kennslu, stjórn og upptökur og
m.a. verið gistiprófessor við rík-
isháskólann á Long Beach og
Northridge í Kaliforníu.
Hann sótti Skálholt tvisvar heim
síðastliðið sumar. Í fyrra skiptið
hélt hann fyrirlestur um danska
sálmaskáldið Kingo á ráðstefnu
um íslenskan tónlistararf og í síð-
ara skiptið var hann gestur á
djasshelgi í Skálholti og flutti þar
fyrirlestur um djasstónlist og
messuna.
Nýr söngur á Skálholtshátíð
Sigvald Tveit tónskáld.
OPIÐ hús verður á Moldnúpi und-
ir Eyjafjöllum á laugardag. Fyr-
irlestrar ásamt upplestri og söng
um rithöfundinn og listvefarann
Önnu frá Moldnúpi.
Anna skrifaði sjö bækur auk
fjölda greina. Einna kunnust er
bókin Fjósakonan fer út í heim en
Anna skrifaði nokkrar bækur um
ferðalög sín til meginlands Evr-
ópu.
Einnig er til sýnis handverk og
munir úr eigu Önnu.
Menningardag-
ur Önnuhúss