Morgunblaðið - 16.08.2001, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.08.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ árin og kostnað við þær. Er tekið fram að unnið sé að því að meta fjárþörf framkvæmda, sem kostuð séu af Endurbótasjóði menningar- bygginga, og telji ráðuneytið nauð- synlegt að óska eftir nýrri áætlun frá byggingarnefndinni vegna þessa mats. Óskað er eftir því að Fram- kvæmdasýsla ríkisins komi að þess- ari áætlanagerð þannig að gætt sé krafna um opinberar framkvæmdir. Í apríl 1999 skilaði byggingar- nefnd Þjóðleikhússins menntamála- ráðherra ,,Greinargerð um kostn- aðaráætlun og lúkningu endur- reisnar Þjóðleikhússins.“ Var grein- argerðin kynnt fyrir stjórn Endur- bótasjóðs menningarbygginga. Þar kemur fram að gert sé ráð fyrir að áætlaðar framkvæmdir taki til sex ára tímabils og verði unnar í sam- fellu. Greinargerðin og meðfylgj- andi kostnaðaráætlun var unnin af Verkfræðistofu Gunnars Torfason- ar ehf. Um afskipti annarra starfsmanna ráðuneytisins af málefnum bygging- arnefndarinnar er það að segja að skrifstofustjóri fjármálasviðs ráðu- neytisins hafði á sínum tíma einkum samskipti við fyrrverandi forstjóra FSR og þáverandi nefndarmann. Í tengslum við athugun þessa bar skrifstofustjóri fjármálasviðs að af- skipti hans hafi aldrei lotið að því að samþykkja eða synja útgjöldum í tengslum við framkvæmdir á vegum nefndarinnar, enda hafi hann talið að slíkt hafi verið í umsjón og undir eftirliti FSR. Hann hafi á hinn bóg- inn haft afskipti af málum er lutu að þóknunum og umbun til formanns- ins fyrir störf á vegum nefndarinn- ar. Hann gat þess þó að þegar nýr forstjóri hafi tekið við forstjóra- stöðu hjá FSR á árinu 1999 hafi hann leitað til ráðuneytisins eftir leiðsögn og stuðningi við afgreiðslu með ýmsa reikninga er tengdust byggingarnefnd Þjóðleikhússins, sem hann hafi óskað eftir leiðbein- ingum um hvernig afgreiða bæri. Leiðbeining skrifstofustjórans hafi fyrst og fremst falist í því að hvetja forstjórann til þess að óska eftir skriflegum skýringum formanns byggingarnefndar, teldi hann reikn- ing vafasaman. Almennt væri það hans mat að ef reikningar væru eðlilegir að formi og efni og uppá- skrifaðir af réttum aðila væri lítið hægt að gera annað en að sam- þykkja reikning. Um störf nefndarinnar í ljósi laga um skipan opin- berra framkvæmda o.fl. Um framkvæmdir, endurbætur og viðhald í Þjóðleikhúsinu s.l. ára- tug hafa að meginstefnu til gilt lög- in um skipan opinberra fram- kvæmda nr. 63/1970. Þau féllu úr gildi hinn 15. júlí s.l. er lög nr. 94/ 2001 um opinber innkaup leystu þau af hólmi, en ákvæði þeirra eru efn- islega sambærileg að því er þessa þætti varðar. Samkvæmt fyrr- greindu lögunum flokkaðist viðhald fasteigna í eigu ríkisins sem opinber framkvæmd. Þessi skipan er árétt- uð í nýju lögunum. Samkvæmt framansögðu bar bæði byggingarnefndinni og FSR eftir atvikum að sjá til þess að fyr- irmæli laganna um skipan opin- berra framkvæmda um frumathug- un, áætlunargerð, verklega framkvæmd, þ.m.t. útboð verka, og skilamat væru virt eftir því sem við gat átt í tengslum við öll meirihátt- ar verkefni í Þjóðleikhúsinu á veg- um nefndarinnar. Því er skemmst frá að segja að í starfi bygging- arnefndarinnar var ofangreindum fyrirmælum ekki fylgt sem skyldi. Þannig var t.d. ekkert hinna stærri verkefna boðið út heldur var samið við sama verktaka og annast hafði 1. áfanga endurbótanna á Þjóðleik- húsinu á árunum 1990 og 1991. Gildir það um öll veigameiri verk á vegum byggingarnefndarinnar. Ekki verður séð að FSR eða aðrir hafi gert formlegar athugasemdir við að þessi háttur væri á hafður. Sjónarmið formanns byggingar- nefndar í þessu efni voru þau að miðað við að vinna þurfti hin um- fangsmeiri viðhaldsverkefni þegar leikhúsið starfaði ekki, þ.e. að sum- arlagi, hafi verið lang heppilegast að hafa þennan háttinn á, enda væri verktakinn öllum hnútum kunnugur frá fyrri tíð í húsinu. Jafnframt væri þess að gæta að verkefni þessi voru hvorki umfangsmikil né kostn- aðarsöm samanborið við t.d. 1. áfanga endurbótanna á Þjóðleikhús- inu. Því hafi eins og á stóð verið af- ar hæpinn ávinningur af útboði. Af bókhaldinu má ráða að u.þ.b. þriðjungur þeirra verkefna, sem nefndin hafði umsjón með, verði að teljast til hefðbundins rekstrarvið- halds og ættu því að tilheyra rekstri leikhússins en ekki nefndinni. Jafn- framt verður ekki hjá því komist að gagnrýna forsvarsmenn Þjóðleik- hússins fyrir að aðhafast ekki þótt á byggingarnefndina félli kostnaður, sem þeim mátti vera ljóst að til- heyrði venjubundnum rekstri leik- hússins. Eftirlit FSR með framkvæmdum og störfum nefndarinnar var alger- lega ófullnægjandi. Þrátt fyrir að ýmsar vísbendingar væru um að ekki væri staðið faglega að málum greip stofnunin aldrei í taumana. Viðurkenna má að staða stofnunar- innar gagnvart byggingarnefndum með umboð á borð við það, sem byggingarnefnd Þjóðleikhússins hefur, er nokkuð óljós. Eftir sem áður eru fyrirmæli laga, reglna og erindisbréfa er tengjast FSR, skýr varðandi eftirlitshlutverk stofnun- arinnar. Stofnuninni er að lögum m.a. ætlað að fara með stjórn verk- legra framkvæmda af hálfu ríkisins og stuðla að skilvirkni og faglegum vinnubrögðum í tengslum við verk- legar framkvæmdir. Hún annaðist m.a. reikningshald og greiðslur vegna verka á vegum byggingar- nefndarinnar og var í tengslum við bæði nefndarmenn og menntamála- ráðuneytið. Á sama hátt má gagnrýna ráðu- neytið fyrir að halda ekki vöku sinni nægjanlega, því það fékk oftar en einu sinni ábendingar um að ekki væri nægilega faglega að verki staðið af hálfu nefndarinnar og að umdeilanlegt væri hvort að störf hennar væru í samræmi við það um- boð, sem hún hafði fengið. Eins og oft áður þegar opinberar framkvæmdir eru annars vegar var umboð og verkaskipting aðila, er að verkefninu komu, bæði ónákvæm og óljós. Þessi atriði leiða m.a. til óvissu um ábyrgð auk þess sem eft- irlit verður örðugra og tilviljana- kenndara. T.d. skorti mjög á að ýmsar formreglur væru virtar, auk þess sem mjög þykir hafa skort á samráð og upplýsingagjöf í tengslum við störf byggingarnefnd- ar Þjóðleikhússins. Loks verður að setja spurningarmerki við þá tilhög- un að sérstök byggingarnefnd skuli annast og hafa umsjón með viðhaldi og endurbótum sem ekki eru um- fangsmeiri en raun var í Þjóðleik- húsinu eftir að 1. áfanga fram- kvæmda þar lauk 1991. Endurskoðun á kostnaði, sem byggingarnefnd Þjóðleikhússins stofnaði til hefur á nefndu tímabili ekki farið fram nema að því leyti er varðar tilfærslu Endurbótasjóðs menningarstofnana til FSR og þá sem hluti af endurskoðun á fjár- reiðum FSR sem fjárvörsluaðila byggingarnefndarinnar. Kostnaður byggingarnefndarinnar hefur aldrei verið færður eins og vera ber í reikningsskilum Þjóðleikhússins, sem er B-hluta stofnun. Þá hafa hvorki FSR né menntamálaráðu- neyti vakið athygli Ríkisendurskoð- unar á þeim vandamálum og áhyggjum, sem ýmsir hjá bæði FSR, Þjóðleikhúsinu og mennta- málaráðuneytinu höfðu af málefnum nefndarinnar. Ljóst er að mál þetta kallar á breytt verklag við eftirlit Ríkisendurskoðunar til að girða fyr- ir að slíkt endurtaki sig og mun verða unnið að þeim breytingum á næstunni. Skipan og verklag Brattahlíðarverkefnisins Verkefni þetta á rætur að rekja til þess að á aðalfundi Vestnorræna ráðsins 1993 kom fram tillaga um byggingu Þjóðhildarkirkju og bæjar Eiríks rauða í Brattahlíð á Græn- landi. Skipuð var sérstök nefnd til að vinna að framgangi málsins und- ir forystu Árna Johnsen, þáverandi alþingismanns. Snemma árs 1997 skipuðu Vestnorræna ráðið og grænlenska landsstjórnin bygging- arnefnd, sem hafa átti yfirumsjón með framkvæmd verkefnisins. For- maður byggingarnefndar var Árni Johnsen. Í byggingarnefndinni sátu auk Árna Thue Christianssen, skrif- stofustjóri í grænlenska mennta- málaráðuneytinu, Carl Fredrikssen, forseti bæjarráðs í Brattahlid/ Oassiarsuk og Rie Oldenburg, safn- vörður í Narsaq. Rétt er að geta þess að Árni hef- ur á þessu tímabili jafnframt setið í stjórn Vestnorræna ráðsins og stjórn Grænlandssjóðs en sá sjóður er á forræði forsætisráðuneytisins. Hann sinnti ekki að séð verður neinni fjárhagslegri umsýslu fyrir þessa aðila, þ.e. hvorki ráðið né sjóðinn. Þá hefur hann setið í stjórn Norrænu stofnunarinnar á Græn- landi um árabil og ekki heldur haft að gera með fjárreiður hennar. Á árinu 1998 var gerður samn- ingur, án útboðs, við Ístak hf. um að annast byggingu húsanna fyrir fast verð skv. tilboði. Verkið hófst á árinu 1999 og lauk því ári síðar en húsin voru vígð í júlí 2000 og afhent landstjórninni í Grænlandi og sveit- arstjórninni í Narsaq. Af gögnum málsins verður ekki ráðið hvernig starfi byggingar- nefndarinnar var háttað. Fundar- gerðir er þar ekki að finna og helst verður ráðið að formlegir fundir hafi ekki verið haldnir í nefndinni heldur hafi starf hennar að lang- mestu leyti hvílt á herðum Árna. M.a. hrinti hann af stokkunum nauðsynlegri undirbúningsvinnu, tók virkan þátt í að afla fjár til verk- efnisins og gekk frá verksamning- um við Ístak hf, sem annaðist lang- stærstan hluta verksins fyrir fast verð. Jafnframt sinnti hann verkeft- irliti og fjármálaumsýslu f. h. nefnd- arinnar. Honum til aðstoðar var Páll S. Brynjarsson, ritari Vestnor- ræna ráðsins. Ekkert af fyrirliggj- andi gögnum eða upplýsingum benda til þess að athugasemdir hafi verið gerðar við þetta verklag. Skipan og verklag stafkirkju í Vestmannaeyjum Kirkjan var gjöf norsku þjóðar- innar til Íslands í tilefni þúsund ára afmælis kristni í landinu. Kirkjan sjálf var smíðuð í Noregi en und- irstöður og fleira smíðað hérlendis. Kirkjunni var valinn staður í Vest- mannaeyjum og fól forsætisráð- herra þjóðkirkjunni og Vestmanna- eyjabæ af þessu tilefni umsjón hennar og umráð. Af sömu ástæð- um skipaði hann hinn 8. mars 1999 sérstaka byggingarnefnd er hafa skyldi stjórn og yfirumsjón með framkvæmdum og öðru er laut að móttöku gjafarinnar. Árni Johnsen, þáverandi alþingismaður, var skip- aður formaður nefndarinnar. Með honum í nefndinni sátu Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri Vest- mannaeyja, Skarphéðinn B. Stein- arsson, skrifstofustjóri í forsætis- ráðuneytinu, Ármann Höskuldsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suður- lands, og Kristján Björnsson, sókn- arprestur. Í skipunarbréfi nefndar- manna var greint frá því að kostnaðaráætlun vegna verkefnis- ins hljóðaði upp á 38 milljónir kr. og jafnframt bent á það að ákvæði laga nr. 63/1970 giltu um verkið. Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að byggingarnefndin hafi haldið a.m.k. 6 formlega fundi, þar sem ritaðar voru fundargerðir, á tímabilinu 24. mars til 24. nóvember 1999. Á árinu 2000 voru fundir nefndarinnar óformlegri og engar fundargerðir haldnar, enda oftar en ekki um samtöl og samráð í síma að ræða. Ástæðan var sú að allar ákvarðanir, sem máli skiptu, höfðu í raun verið teknar á árinu 1999. Bókhald og fjárvarsla vegna starfsemi byggingarnefndarinnar var í umsjón starfsmanna forsæt- isráðuneytisins auk ríkisbókhalds og ríkisféhirðis. Sá háttur var á hafður að Ólafur Ólafsson, bæjar- tæknifræðingur, sem hafði umsjón og eftirlit með byggingunni f.h. byggingarnefndarinnar, áritaði reikninga tengda henni og sendi til samþykktar í forsætisráðuneytið og til greiðslu hjá ríkisféhirði og bók- unar hjá ríkisbókhaldi. FRÉTTIR Á FUNDI borgarráðs á þriðjudag lagði Stefán Hermannsson, borg- arverkfræðingur, fram minnis- blað vegna þess sem hann kallar villandi og rangar upplýsingar í dagblaðsfréttum að undanförnu um lagningu tveggja akreina Hallsveg í Grafarvogi. Skipulagsstofnun féllst á lagn- ingu vegarins þann 3. ágúst sl. en Íbúasamtök Grafarvogs og LOGOS lögmannaþjónusta, fyrir hönd húseigenda, hafa m.a. lagst gegn fyrirhuguðum framkvæmd- um. Málflutningurinn ekki á rökum reistur „Talsmenn ýmissa húseigenda hafa verið að reka áróður fyrir sínu máli í DV. Til dæmis hefur því verið haldið fram að úrskurði umhverfisráðherra, sem féll 22. desember 2000, hafi verið stungið undir stól. Það er ekki rétt þar sem hann var strax lagður fram í borgarráði. Þessi áróður er ekki á rökum reistur,“ sagði Stefán í samtali við Morgunblaðið. Vegurinn alltaf verið á skipulagi Kærufrestur vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar er til 12. sept- ember nk. og telur Stefán ekki ólíklegt að einhverjir muni kæra. „Þó hafa þessir húseigendur alla tíð mátt búast við að þarna kæmi umferðarmikil gata norðan lóðanna þar sem vegurinn hefur alltaf verið á skipulagi. Eina breytingin sem átti sér stað var sú að í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1990-2010 var skilgreiningu veg- arins breytt úr tengibraut í stofn- braut. Það er skipulagsbreyting í sjálfu sér en það skiptir ekki máli þegar umhverfisáhrif eru metin. Þá skal taka fram að á þessu svæði eru færri íbúðir og færri íbúar heldur en við Gagnveg þar sem umferðin fer í dag. Sá vegur fer í gegnum skólahverfi og er mun verr í stakk búinn til að taka umferð á sig heldur en Hallsveg- ur,“ sagði Stefán. Borgarverkfræðingur um fjölmiðlaumræðu „Villandi og rang- ar upplýsingar“ Grafarvogur BÓKABÚÐ Lárusar Blöndal mun flytja af Skólavörðustígnum í List- húsið í Laugardalnum þann 30. ágúst nk. Guðjón Smári Agnarsson, eigandi verslunarinnar, segir ástæður fyrir flutningnum vera meðal annars mikil hækkun á leigu- verði og skortur á bílastæðum í miðbænum. „Bókabúð Lárusar Blöndal hefur verið hérna í þessu sama húsnæði á Skólavörðustígn- um síðastliðin 50 til 60 ár. Ég met það hins vegar þannig að það sé betra að flytja. Þar skiptir hækkun á leigu aðallega máli en þetta svæði er orðið ansi dýrt.“ Hann segist vera bjartsýnn á að reksturinn muni ganga betur í List- húsinu. „Þar er leiguverð mun lægra. Þá er meira af bílastæðum þar en skortur á þeim hefur verið vanda- mál hér og ég er ekki í vafa um að það hefur dregið úr viðskiptum hjá okkur.“ Fákeppni í bóksölu Spurður hvort það væri erfitt að reka bókabúð í dag sagði Guðjón: „Það er fákeppni í sumum grein- um verslunar og það stefnir í fá- keppni í bóksölu. Það munu verða til tvær blokkir að mér sýnist, Mál og Menning og Penninn, en ég ætla að reyna að halda áfram, ásamt ör- fáum öðrum.“ Eins og áður greinir mun Bóka- búð Lárusar Blöndal flytja í List- húsið í Laugardal, Engjateigi 17– 19. Segir Guðjón að þar muni versl- unin leggja höfuðáherslu á góðar bækur til gjafa. Morgunblaðið/Golli Guðjón Smári í verslun sinni á Skólavörðustíg. Bókabúð Lárusar Blöndal flytur Of hátt leiguverð í miðbænum Morgunblaðið/Golli Bókabúð Lárusar Blöndal mun flytja 30. ágúst næstkomandi en búðin hefur verið á Skólavörðu- stígnum sl. 50–60 ár. Miðborg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.