Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.08.2001, Blaðsíða 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 27 AUÐUGASTA konan í Hong Kong á nú í lagalegum útistöðum við tengda- föður sinn vegna eigna eiginmanns hennar, sem er týndur. Saga þessi hefur alla þá þætti sem prýða mega góða Hollywood-kvikmynd: Kynlíf, græðgi, fjárkúgun og morð. Lagaleg vandræði Nínu Wang, yf- irmanns fastaeignarisans Chinachem Group, hófust í apríl 1990, þegar eig- inmanni hennar, Teddy Wang, var rænt. Þótt fjölskyldan greiddi 33 milljónir dollara í lausnargjald sást Teddy aldrei aftur. Nokkrir meðlimir gengisins sem rændi Teddy náðust og báru að honum hafi verið haldið um borð í litlum báti og svo verið hent út- byrðis en lík hans hafi aldrei fundist. Í mörg ár hefur faðir Teddys, Wang Din-shin, reynt að fá dómstóla til að lýsa son sinn látinn svo að hann geti gert kröfu til dánarbúsins. Eig- inkona viðskiptajöfursins hefur verið jafnharðákveðin í því að maðurinn sé á lífi og muni brátt snúa aftur til henn- ar. Nína Wang er af tímaritinu Forb- es talin 156. ríkasti maður heims. Hæstiréttur í Hong Kong úrskurð- aði fyrir tveimur árum að Teddy væri lögformlega látinn, og deila faðir hans og Nína um tvær meintar erfðaskrár. Wang Din-shin segir að sonur hans hafi árið 1968 gert erfðaskrá þar sem hann hafi verið gerður að eina erfingj- anum, og nú hefur Wang bætt því við að þetta hafi gerst eftir að Nína hafi framið hjúskaparbrot. Wang gamli mætti fyrir réttinn með ljósmyndir af Nínu og meintum elskhuga hennar. Sagði gamli maður- inn að einkaspæjari, sem Teddy hafi ráðið, hefði tekið myndirnar. Nína hefur ekki brugðist beinlínis við hjú- skaparbrotsásökuninni. En hún reng- ir fullyrðingar tengdaföður síns um erfðaskrána. Segir Nína að maður sinn hafi gert aðra erfðaskrá mánuði áður en honum var rænt og sam- kvæmt þeirri skrá hefði hann arfleitt hana að öllum sínum peningum og fasteignum. Sá sem vottaði undir- skrift erfðaskrárinnar frá 1990 lést fyrir tveim árum. Málið tók undarlega stefnu í fyrra þegar í ljós kom að Nína hafði orðið fórnarlamb fjárkúgunartilrauna tveggja lögfræðinga sinna, Thomp- sons Mo og Aileys Yeungs, sem reyndu að hafa út úr henni rúmar 1,2 milljónir dollara með því að þykjast geta útvegað réttarskýrslu sem tæki af allan vafa um lögmæti síðustu erfðaskrár manns hennar. Mo og Yeung voru dæmdir í þriggja ára fangelsi. Nú hafa báðir deiluaðilar fengið fjölda rithandarsérfræðinga til að skera úr um hvort erfðaskráin frá 1990 sé ekta. Nína hefur ekki viljað láta neitt eftir sér hafa um málið, en virðist ekki kippa sér upp við athygl- ina sem það hefur vakið. Á teikni- myndasöguhátíð í Hong Kong í síð- asta mánuði kynnti hún útgáfu á sögum um persónuna Nína-nína, sem byggð er á ævi hennar sjálfrar. Nína- nína mun fræða lesendur um það hvernig „takast skal á við vandamál og vera duglegur“, sagði Nína Wang við fréttamenn. „Hún lítur sjálf út eins og gömul dúkka,“ sagði Amy Chan, 16 ára nemi. Rifist um mesta fast- eignaveldi Hong Kong Hong Kong. AP. AP Nina Wang heldur á Nína-nína-dúkku á teiknimyndasöguhátíðinni. Draumur kaffiunnenda! Veitum faglega ráðgjöf um val á kaffivélum. Fjölbreytt úrval í mörgum litum og gerðum. SAECO er stærsti framleiðandi expresso-kaffivéla á Ítalíu. Expresso- Cappuccino kaffivélar Verð frá kr. 14.915 stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.