Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 35
sjá hversu augljós tilraun til útúr-
snúninga það er hjá Halldóri að
reyna að tengja þessi orð úr mín-
um munni við niðurstöðu Skipu-
lagsstofnunar, en Halldór talar
reyndar ýmist um Samkeppnis-
stofnun eða Skipulagsstofnun í
grein sinni.
3. Næst stekkur Halldór áratug aftur
í tímann og sakarefnið er tillaga til
þingsályktunar um langtímaáætl-
un í vegagerð frá vordögum 1991.
Þar, fullyrðir Halldór, „var ekki
gert ráð fyrir að bæta samgöngur
milli Norður- og Austurlands það
sem eftir lifði aldarinnar“. Þetta er
hreinn og klár þvættingur eða
ósannindi því Halldór hlýtur að
vita betur. Bæði í langtímaáætlun
og vegaáætlun vorið 1991 (sjá
þingskjöl 408 og 398 á 113. löggjaf-
arþingi og tilheyrandi nefndarálit)
er gert ráð fyrir miklum fram-
kvæmdum sem tengja Norður- og
Austurland. Uppbygging vegar frá
sýslumörkum á Biskupshálsi og
niður á Hérað ásamt nýrri brú á
Jökulsá á Dal, uppbygging vegar
að vestan um Fljótsheiði, Mývatns-
heiði og austur á Mývatnsöræfi og
síðast en ekki síst öll tengingin
með ströndinni frá Húsavík um
Norður-Þingeyjarsýslu til Vopna-
fjarðar eru inni á tólf ára tímabili
nefndrar tillögu að langtímaáætlun
(sjá þingskjal 961, 113. löggjafar-
þing). Það sem á vantaði sam-
kvæmt tillögunni að ljúka að fullu
báðum leiðunum sem tengja Norð-
ur- og Austurland með ströndinni
og yfir öræfin rúmaðist einfaldlega
ekki innan fjárhagsrammans. Að
lesa út úr slíku andstöðu við, eða
áhugaleysi á, viðkomandi fram-
kvæmdum er einfaldlega ómerki-
legt. Eða er t.d. Sturla Böðvarsson
andvígur þeim mörgu verkefnum
sem hann, sökum takmarkaðra
fjármuna, kemur ekki inn í tillögur
sínar nú um stundir?
Það fer illa á því að Halldór
Blöndal, sem skar niður fyrirhug-
aðar framkvæmdir á Norðaustur-
vegi og gekk sem ráðherra fram
fyrir skjöldu í að svíkja Austfirð-
inga um að halda sínu sæti í fram-
kvæmdaröð jarðganga í beinu
framhaldi af Vestfjörðum, reyni nú
að gera hlut annarra stjórnmála-
manna tortryggilegan í þessum
efnum.
4. Halldór Blöndal étur upp hræðslu-
áróður um að úrskurður Skipu-
lagsstofnunar jafngildi engum
virkjunum norðan Vatnajökuls.
Þessu hefur stofnunin þegar vísað
frá sem fjarstæðu enda eingöngu
felldur úrskurður um þennan til-
tekna virkjunarkost. Halldór reyn-
ir því miður eins og fleiri að gera
úrskurð Skipulagsstofnunar tor-
tryggilegan og notar til þess þau
ummæli mín að úrskurðurinn hafi
verið afdráttarlausari eða meira af-
gerandi en ég átti von á. „Eykur
(það) satt að segja ekki traust
manna á réttmæti hans“ (úrskurð-
arins) segir hann.
Ofangreindir og aðrir ryðbrandar
Halldórs Blöndals bíta lítt þegar til
málefnalegra skoðanaskipta um um-
hverfisvernd og stóriðju- og virkjana-
mál kemur. Mín vegna má Halldór
Blöndal halda áfram að gengisfella
sjálfan sig með skrifum af þessu tagi.
Slíkt er miklu mun skaðlegra honum
sjálfum en þeim sem hann ætlar sér
af einhverjum hvötum að koma sér-
staklega höggi á.
Höf. er formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, þingmað-
ur Norðurlandskjördæmis eystra og
fyrrv. samgönguráðherra.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 35