Morgunblaðið - 16.08.2001, Side 24

Morgunblaðið - 16.08.2001, Side 24
Hefja skal saft- og sultu- gerð rétt eftir berjamó Bláber innihalda B- og C-vítamín og einnig efni sem talin eru styrkja háræðar og bæta blóðrásina. Afar mikilvægt er að mati Ólafar, að hreinsa berin strax og hefja sultu- og saftgerð rétt eftir að komið er úr berjamó og gildir það um allar tegundir berja. Fersk krækiberjasaft er í sér- stöku uppáhaldi hjá Ólöfu og fylgir hér uppskrift að henni: Krækiberjasaft 3 kg krækiber 5-7 dl vatn 500 g sykur í hvern lítra af safa Berin eru þvegin og týnd og síðan látin í pott með vatninu og soðin við vægan hita í 5-10 mín þar til þau springa. Því næst eru Í BANDARÍKJUNUM eru aðal- bláber og bláber gjarnan kölluð huckleberry, og því hefði Stikils- berja-Finnur, eða Hucleberry- Finn úr sögu Mark Twain rétti- lega átt að heita Aðalbláberja- Finnur. Bláber innihalda B- og C- vítamín og einnig efni sem talin eru styrkja háræðar og bæta blóðrásina, segir í bókinni Mat- arást. Þurrkuð bláber hafa löngum þótt góð við magakveisu og segja sumar náttúrulækn- ingabækur þau innihalda efni sem séu góð fyrir sjónina sér- staklega við náttblindu og þreytu í augum. „Aðalbláberin taka auðvitað öllu fram að bragði og gæðum,“ segir Ólöf Ragnheiður Guðjóns- dóttir, húsmóðir sem bjó lengst af vestur á Ströndum. Ólöf tíndi mikið af berjum og sultaði hér áður fyrr en kveðst nú hætt að standa í berjavinnslunni enda komin yfir áttrætt. „Komnar eru svo fínar græjur, alls konar sultu- pottar og kvarnir en áður fyrr var þetta svo mikið sull að eld- húsið þurfti virkilega góða hrein- gerningu á eftir. Núna fer ég bara út í búð og kaupi sulturnar enda hægt að fá afskaplega fínar vörur í búðunum í dag.“ þau tekin upp og söxuð í berja- eða kjötkvörn og sigtuð á grisju. Safinn er mældur og látinn í pott- inn aftur með sykrinum og látið sjóða í 4-5 mín en froðan er veidd af. Gott er að láta smá dropa af vínsýru ca. 2 gr í hvern lítra til að hressa upp á litinn. Krækiberjahlaup 2 lítrar krækiberjasaft 2 bréf af hleypi 1,5 kg sykur safi úr einni til tveimur sítrónum Berin eru meðhöndluð á sama hátt og í saftinni. Allt er sett í pott og látið sjóða í eina til tvær mínútur. Því næst sett í krukkur sem er ekki mjög stór og lokað strax. Bláberjamauk 1 kg bláber 500-700 g sykur hálf tsk. rautt metalín Allt er soðið saman í eina klukkustund og síðan sett í ílát. Morgunblaðið/Árni Sæberg NEYTENDUR 24 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Kjúklingavængir steiktir 898 1.171 898 kg Kjúklingur heill steiktur 699 799 699 kg Kea rauðvínslegið lambalæri 899 1.223 899 kg Nóatún hamborgarar m/brauði, 4 st. 299 499 499 kg Argentínu kryddsmjör, 100 g 129 179 1.290 kg Maarud snakk 250 g, papriku 250 340 1.000 kg SAMKAUP Gildir til 19. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Goða pylsur, 10 st. 599 798 798 kg Goða steiktar kjötbollur 636 848 636 kg Goða dönsk lifrakæfa 164 218 432 kg Pringles, 200 g, 6 teg. 179 229 890 kg Sunlolly, 620 ml, 5 teg. 159 234 256 ltr BKI kaffi Extra, 400 g 249 279 623 kg BKI kaffi Luxus, 500 g 299 369 598 kg Fairy uppþvottalögur, 2 teg., 500 ml 189 219 378 ltr SELECT-verslanir Gildir til 29. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Maarud flögur, 100 g 149 193 1.490 kg Mónu Rex súkkulaðikex 49 65 49 pk. Nóa-kropp, 150 g 199 235 1.330 kg Maltabitar, 200 g 229 290 1.150 kg Mc Vites Homewheat kex, 300 g 179 210 600 kg Snakkfiskur, ýsa og steinbítur, 70 g 199 245 2.840 kg Blue dragon núðlur, 85 g 49 59 580 kg Oetker pitsur, 330 g 369 440 1.120 kg UPPGRIP-verslanir OLÍS Ágúst tilboð nú kr áður kr. mælie. Maarud Sprö Mix kartöfluflögur 315 415 Freyju draumur, 2 st. 149 210 Remi myntukex 129 160 Coca Cola 0,5 ltr og Freyju staur 169 210 Maryland kex, allar tegundir 109 130 871 kg Hel garTILBOÐINESSÓ-stöðvarnarGildir til 31. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Homeblest blátt, 200 g 139 155 700 kg Doritos snakk, 200 g 239 280 1.200 kg Doritos snakk, 50 gr 79 95 1.580 kg Stjörnupopp, 90 g 105 125 1.170 kg Stjörnu ostapopp, 100 g 110 130 1.100 kg Pik-nik kartöflustrá, 113 g 209 249 1.850 kg Góa Lindu buff 49 60 HAGKAUP Gildir til 22. ágúst nú kr. áður kr. mælie. Svínabógur 459 649 459 kg Svínalæri 1/1 459 649 459 kg Lærisneiðar í raspi 849 1.458 849 kg Freschetta pítsa 399 457 1.050 kg Gajol gulur, 3 saman 109 139 36 pk. Chicken Tonight sósur 319 369 638 kg Queen hvítlauksbrauð, 175 g 79 105 415 kg Aviko „spicy tex mex“ bátar, 450 g 239 279 531 kg NETTÓ Gildir á meðan birgðir endast nú kr. áður kr. mælie. Nettó grísalærisneiðar 699 979 699 kg Nettó grísakótilettur 799 898 799 kg Nettó grísakótilettur léttreyktar 1.099 1.449 1.099 kg Nettó grísahakk 599 899 599 kg Nettó grísagúllash 1.099 1.449 1.099 kg Nettó grísasnitsel 1.099 1.499 1.099 kg Ísfugl BBQ krydd hot wings 522 696 824 kg Nettó ís vanillu/súkkulaði 3ltr 349 499 116 ltr NÓATÚNSVERSLANIR Gildir á meðan birgðir endast nú kr. áður kr. mælie. Kjúklinga spare ribs 898 1.171 898 kg „KRÆKIBERJASPRETTAN gæti orðið mjög góð en fólk mun þurfa að hafa fyrir því að finna bláberin núna,“ segir Sveinn Rúnar Hauks- son, læknir og sérfræðingur í berja- tínslu. Hann segir margt spila þar inn í, m.a. hafi vorað snemma og síðan komið hörkuhret um miðjan maí sem hafði slæm áhrif á við- kvæman gróður. Þá hafi lítill snjór verið í vetur. „Til að bláberjaspretta verði góð er mikilvægt að snjóalögin haldist langt fram á vor svo þau fái að liggja sem lengst í skjóli skafl- anna. Það kann að vera ein ástæða þess að gott er að leita berja í laut- um.“ Sveinn Rúnar er bjartsýnni hvað krækiberin varðar þar sem þau eru harðgerðari, en telur þó að líklega séu tvær vikur í að þau verði full- þroskuð. „Nú skiptir hver vika máli á lokakaflanum en ef veðrið helst gott getur fólk farið að leita að góð- um löndum hvað úr hverju.“ Það er algengur misskilningur, að sögn Sveins Rúnars, að ef frost mælist á einhverjum stað séu öll ber á svæðinu ónýt, þau geti alveg verið óskemmd í hlíðunum. „Berin þurfa ekkert að skaðast þótt komnar séu ein eða tvær frostnætur. Sumir segja krækiberin jafnvel bragðast enn betur eftir eina frostnótt.“ Uppáhaldsberjalönd Sveins eru í Reykhólasveit en hann nefnir Tröllaskaga af stöðunum fyrir norð- an. „Fyrir austan er yndislegt að tína hrútaber í Hallormsstaðaskógi og á Austfjörðunum eru góð bláber og krækiber, en þar hef ég sjálfur mest tínt við Seyðisfjörð.“ Berjatíminn að hefjast um allt land Útlit fyrir gott krækiberjaár Brátt munu ungir sem aldnir halda í berjaleit vopn- aðir tínum, pokum og fötum. Spekingar segja berin seint á ferðinni í ár en tíðarfar síðustu vikna sum- arsins ræður miklu um hvort uppskeran verði góð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.