Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 43
✝ Júlíana HákoníaMaría Ólafsdóttir
fæddist í Innri-
Lambadal í Dýrafirði
4. mars 1918. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Kumbaravogi 9.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Málfinn-
ur Magnússon, f.
22.8. 1880, d. 21.12.
1939 og kona hans
Ingibjörg Jónatans-
dóttir, f. 1.1. 1877, d.
5.8. 1959. Systkini
hennar voru Hólm-
fríður, f. 21.11. 1911, d. 1.7. 1928,
Jónatan, f. 11.5. 1913, d. 21.11.
1929, og Þórður, f. 8.7. 1914, d.
19.1. 1968. Júlíana giftist hinn 21.
ágúst 1949 Kristjáni Sigurði Jóns-
syni, f. 28.7. 1904, d. 10.4. 1984.
Foreldrar hans voru Jón Friðrik
Arason, f. 22.6. 1880, d. 5.3. 1963,
og kona hans Ingibjörg Kristjáns-
dóttir, f. 21.5. 1880, d. 13.10. 1952.
Júlíana og Sigurður eignuðust
tvær dætur, sú eldri fæddist 23.
desember 1948 og lést óskírð sama
dag. Sú yngri er Ingibjörg Ólöf,
framhaldsskólakennari á Selfossi,
f. 16.12. 1953, Maður hennar er Sig-
mar Þór Hannesson verslunarmað-
ur, f. 11.10. 1951. Börn þeirra eru:
eyri, f. 11.11. 1942, í sambúð með
Ólöfu Björnsdóttur, f. 30.12. 1946,
og eiga þau þrjá syni: Björn Ævar
Sigurbergsson, f. 25.7. 1967, í sam-
búð með Aðalheiði Sigtryggsdóttur
og eiga þau tvö börn, Friðrik Þór
Birgisson, f. 8.6. 1972, og Valdimar
Birgisson, f. 10.4. 1981.
Júlíana ólst upp í Innri-Lamba-
dal til fimm ára aldurs en fluttist þá
til Þingeyrar til móðursystur sinn-
ar Gróu Jónatansdóttur, f. 23.7.
1875, d. 26.3. 1962, og dvaldist hjá
henni til fullorðinsára. Júlíana
gekk í barnaskóla á Þingeyri og
var auk þess einn vetur við nám í
Héraðsskólanum á Núpi. Haustið
1944 flutti hún til Patreksfjarðar
ásamt móður sinni, sem þá var orð-
in ekkja, og tók að sér ráðskonu-
stöðu hjá Sigurði sem seinna varð
eiginmaður hennar. Hann hafði þá
nýlega misst fyrri konu sína. Eftir
að börnin voru vaxin upp vann hún
við ýmis fiskvinnslustörf á Patreks-
firði. Árið 1989 fluttist hún til Þing-
eyrar og dvaldi þar á Sjúkraskýl-
inu til ársins 1995, þá flutti hún
suður á land þar sem hún dvaldi
upp frá því á elli- og dvalarheim-
ilinu Kumbaravogi á Stokkseyri
þar sem hún lést.
Útför Júlíönu fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Júlíana Gústafsdóttir
kennari, f. 10.9. 1974,
Ellert Smári Krist-
bergsson nemi, f. 22.3.
1982, Hannes Heiðar
Sigmarsson, f. 14.10.
1987, og Lilja Sigrún
Sigmarsdóttir f. 7.7.
1990. Börn Sigurðar
með fyrri konu sinni
Guðrúnu Sveinu Maríu
Lárusdóttur, f. 21.9.
1908, d. 23.2. 1944,
eru: 1) Hilmar, verk-
fræðingur í Reykjavík,
f. 7.3. 1936, kvæntur
Ragnhildi Steinbach, f.
11.2. 1939, og eiga þau þrjú börn:
Soffía, f. 17.7. 1961, gift Jóni Stein-
grímssyni og eiga þau þrjú börn;
Sveinn, f. 4.11. 1964, í sambúð með
Helen Símonardóttur og eiga þau
einn son; og Sigurður Kjartan, f.
1.9. 1976, í sambúð með Helgu
Árnadóttur. 2) Guðbjörg, f. 10.11.
1938, gift Kristni G. Jóhannssyni,
listmálara og f.v. skólastjóra, f.
21.12. 1936 og eiga þau þrjú börn:
Sigurður, f. 24.11. 1963, kvæntur
Sigríði Bjarkadóttur og eiga þau
tvö börn; Brynhildur, f. 1.12. 1965,
gift Jóhanni Gunnarssyni og eiga
þau tvær dætur; og Gunnar, f. 14.3.
1967, í sambúð með Dorothee
Damm. 3) Birgir, sjómaður á Akur-
Elsku amma mín er dáin. Það er
erfitt að kveðja einhvern sem hefur
verið svo stór hluti af lífi manns. Ég
veit ekki hver fyrsta minningin um
hana er því alveg frá því ég var unga-
barn hefur hún verið til staðar fyrir
mig. Ég flutti frá Patreksfirði þegar
ég var fjögurra ára gömul en var allt-
af reglulegur gestur þar, alveg til
tólf ára aldurs. Í öllum fríum vorum
við á Patró. Oft flaug ég ein vestur
svo mamma hefði næði til að klára
prófin í háskólanum. Þá voru amma
og afi alltaf mætt út á flugvöll til að
taka á móti mér. Það var alltaf jafn-
gaman að koma til þeirra. Eitt það
fyrsta sem afi þurfti auðvitað að hafa
orð á var að ég væri að detta í sundur
og þau þyrftu nú að gefa mér eitt-
hvað almennilegt að borða svo að ég
dæi ekki úr hor. Amma lét heldur
ekki á sér standa með máltíðirnar en
þær voru fimm á hverjum degi og
auðvitað var fiskur alla daga nema
sunnudaga. Maður var nú ekkert
alltaf glaður þegar maður sá ömmu
koma út á tröppur og kalla á mann í
mat. Þetta var nú fullmikið af því
góða, gat maður ekki fengið að vera í
friði og leika sér, en auðvitað hlýddi
maður bara, skóflaði í sig matnum og
var svo rokinn út aftur. Þetta voru
dagar fullir af sólskini, leikir úti og
barbie og mömmó inni og úti og
amma og afi klettarnir sem stóðu
stöðugir og héldu heiminum og lífinu
í öruggum skorðum.
Amma var mikið fyrir útiveru og
eru þær óteljandi gönguferðirnar
sem við höfum farið saman. Amma
var svo góð og skemmtileg og hún
átti það til að gera ýmislegt sem sló í
gegn hjá nöfnunni hennar. Einu
sinni fórum við í fjallgöngu og á leið-
inni upp að fjallinu fórum við fram
hjá sjoppu sem ömmu þótti alveg til-
valið að koma við í og kaupa fullan
poka af töggum, en hún hafði áður
sagt mér að uppáhaldsnammið henn-
ar væru karamellur og ekki voru
þær síður vinsælar hjá mér. Við klif-
um svo fjallið og þegar við vorum
komnar alveg upp á topp settumst
við og hámuðum í okkur karamell-
urnar. Svona átti hún til að koma
manni á óvart, því yfirleitt fékk mað-
ur ekki mikið sælgæti og henni var
mikið í mun að maður borðaði hollan
mat. Ég man líka eftir því einu sinni
þegar ég var sex ára, þá langaði mig
þessi lifandis ósköp í bleikan sam-
festing sem var alveg eins og vin-
kona mín átti. Ég man að ég hafði
orð á þessu við ömmu en passaði mig
þó á því að vera ekkert að suða því að
ég vildi ekki gera neitt sem gat verið
ömmu til ama, en það næsta sem ég
vissi var að amma fór út í búð og
keypti samfestinginn. Svona var
amma.
Hjá ömmu fékk ég alla þá um-
hyggju sem barn þarf og meira til,
hún nærði bæði líkama og sál, en hún
gaf mér líka annað og meira og það
verð ég henni ævinlega þakklát fyrir.
Hún gaf mér trúna og bænina og
nærveru Guðs í líf mitt. Á hverju
kvöldi og alla morgna báðum við
saman. Það var notalegt að krjúpa
saman við stóra rauða stólinn og
finna nærveru Guðs á hverjum
morgni. Ég spurði hana líka mikið
um Guð og sannleikann og hún svar-
aði samviskusamlega. Amma var
trúuð og góð kona sem lét sig varða
þá sem áttu um sárt að binda. Hún
hugsaði um gamlar ekkjur og fór í
sendiferðir út í búð fyrir þá sem áttu
erfitt með það.
Síðustu árin hefur amma þurft að
lifa með hvert heilsufarsáfallið á fæt-
ur öðru. Hún fékk tvisvar heilablóð-
fall sem tók sinn toll, hún beinbrotn-
aði og sjóninni hrakaði. Síðustu sex
árin bjó hún hér fyrir sunnan, á
Stokkseyri þannig að auðveldara var
fyrir okkur að heimsækja hana og
það var gott að hún var svona nálægt
okkur. Hún var meðvitundarlaus í
nokkra daga áður en hún dó en ég
man að í næstsíðustu heimsókn
minni til hennar, sem var aðeins ör-
fáum dögum áður en hún varð alger-
lega meðvitundarlaus, gat ég enn
fengið hana til að hlæja að vitleys-
unni í mér. Það var gott að sjá að hún
hafði ekki tapað húmornum þótt
máttfarin væri.
Elsku amma, ég elska þig svo mik-
ið og söknuðurinn er stundum
óbærilegur, en það huggar mig að
vita að nú líður þér vel, þú ert hjá
Jesú og ég á eftir að hitta þig þar. Þú
varst besta amma sem nokkur getur
hugsað sér, þú varst einn af klett-
unum í lífi mínu en þú skildir eftir
þann klett sem aldrei haggast, Jesú
Krist. Takk fyrir allt.
Þín dótturdóttir,
Júlíana.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Elsku amma, þetta vers verður
okkar hinsta kveðja til þín, sem nú
loksins hefur fengið hvíldina og ert
laus undan öllum veikindum og þján-
ingum. Við eigum eftir að sakna þín
en vitum að þú ert komin þangað
sem þér líður eflaust miklu betur.
Við viljum þakka þér fyrir alla elsku
þína til okkar og allar samverustund-
irnar sem við áttum með þér og þá
sérstaklega um hver einustu jól. Þótt
þú værir oft mjög veik þá fundum við
að þér þótti vænt um okkur og vildir
okkur allt hið besta. Þú vildir gleðj-
ast með okkur á hátíðarstundum
þótt mátturinn væri oft af skornum
skammti. Það má segja að þú hafir
neytt síðustu kraftanna til að koma í
fermingarveisluna hans Hannesar í
vor. Fyrir allt þetta viljum við þakka
þér og biðjum góðan Guð að vaka yf-
ir þér og taka vel á móti þér.
Smári, Hannes og
Lilja Sigrún.
JÚLÍANA HÁKONÍA MARÍA
ÓLAFSDÓTTIR
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja: Hádegistónleikar
kl. 12-12:30. Pálína Árnadóttir, fiðla
og Árni Arinbjarnarson, orgel.
Háteigskirkja: Foreldramorgunn kl.
10:00. Taizé-messa kl. 21:00. Þangað
sækir maður frið og kyrrð, staldrar
við í asa lífsins, tekur andartak frá til
þess að eiga stund með Guði. Lifandi
ljós og reykelsi bjóða mann velkom-
inn. Tónlistin fallin til að leiða mann í
íhugun og bæn. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja: Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12:00. Fyrsta kyrrðar-
stund á nýju starfsári. Sr. Bjarni
Karlsson þjónar. Gunnar Gunnars-
son leikur á orgel kirkjunnar kl. 12-
12:10. Að stundinni lokinni er léttur
málsverður í safnaðarheimili.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 17. Fyrirbænaefnum
má koma til sóknarprests eða kirkju-
varðar.
Vídalínskirkja. Nú er biblíu- og
fræðsluhópurinn hættur fram á
haust en bæna- og kyrrðarstundirn-
ar verða áfram í sumar kl. 22 í
Vídalínskirkju. Hressing á eftir.
Landakirkja Vestamannaeyjum
Fimmtudagur 16. ágúst: Kl. 14:30.
Helgistund á Heilbrigðisstofnuninni,
dagstofu 3. hæð.
Heimsóknargestir hjartanlega
velkomnir.
Laugarneskirkja
Það hafa verið marg-
ar víkur, vogar og flóar
og auk þess tröllaukin
fjöll milli okkar um
langa tíð. Það er meðal
annars af þeim orsökum að ég komst
ekki til að fylgja þér síðasta spölinn,
frá fallega húsinu þínu nýja, efst í
túninu. Við förum niður hjá gamla
bænum sem þú bjóst lengi í, lengra
og áfram þar til kemur að sjálfu
musterinu, Viðvíkurkirkju. Þeirri
einu kirkju sem þú hefur farið hönd-
um um og haldið við svo vel að betra
verður ekki á kosið. Í þessum helgi-
dómi varst þú kvaddur hinstu
OTTÓ GEIR
ÞORVALDSSON
✝ Ottó Geir Þor-valdsson, bóndi í
Víðimýrarseli og
Viðvík í Skagafirði,
fæddist á Sauðár-
króki 18. febrúar
1922. Hann lést 5.
ágúst síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Viðvíkurkirkju
11. ágúst.
kveðju. Samferða-
mennirnir hafa margs
að minnast, svo sem
gott viðmót, gleði á
hverju sem gekk, dug-
legur maður til allra
verka. Það var sama
hvort var bíll eða hest-
ur, allt var eins og
glúpnaði við handtök
þinna mjúku handa.
Umgengnin við fólk var
arfur þinn frá Skagfirð-
ingum, upphaflega
kominn frá kennimönn-
um þeim sem gerðu
Hóla í Hjaltadal að einu
mesta frægðarsetri þessa lands.
Biskupar og prestar mótuðu Skaga-
fjörð svo vel að þess gætir enn og
mun gera lengi áfram.
Nú er öllum þyngslum og mótlæti
lokið, þú ert kominn til elskulegrar
konu þinnar Erlu. Hún tók á móti
þér við brúarendann. Kannski hefur
þú verið ríðandi á honum Blika, það
færi vel á því að hann bæri þig síð-
asta spottann. Hafi það verið um
nóttu þarftu samt engu að kvíða.
Brúin upplýsir himin og jörð með því
gulli sem í hana er lagt. Þá er komið
að endalokum, ég sé þig líða frá
brúnni með konu þína á hægri hönd
og hestinn á þá vinstri. Inn í eilífðina
þar sem ekkert grandar þér og þið
fáið að vera aftur saman.
Við endum þetta fátæklega grein-
arkorn á hlaðinu í Viðvík. Sjóndeild-
arhringurinn hefur ekki breyst frá
því fyrir hart nær þrjátíu árum þeg-
ar Ottó keypti jörðina.
Lágsléttan breiðir sig til norðaust-
urs, í nærsýn höfum við stórbýlið
Sleitustaði, næst inni fjöll er Helj-
ardalsheiði, þar sem unghross Skag-
firðinga eiga góða sumardvöl. Í suð-
ur er menntasetrið og hinn gamli
biskupsstóll þar sem Skagfirðingar
hafa í gegnum tíðina sótt sinn and-
lega mátt.
Þótt Víkurfjall skyggi á mesta
undirlendi Skagafjarðar erum við
samt í Skagafirði. Í vestri er þétt-
byggðin Sauðárkrókur, byggður rétt
upp að Stólnum. Allt þetta hafði Ottó
fyrir augum daglega í um 30 ár. Það
er svo skrítið að þetta er ekki hans
heima, aðeins stopp á langri leið.
Heima er ekki fyrr en hann finnur
Erlu sína og þau leiðast út í alheims-
djúpið.
Sigurgeir Magnússon.
KIRKJUSTARF
9% !%
%
3F<5 */*)<
+) %:A "7&%
!
+
:
..*
$4)4%
!""
- &&
-
&&
.!
" B.
$4
!""
(&" *3. &&
6
&&
)4%6$4 &!""
4 *
"
%
%
/ 5 =?< =AN=
+)
>!&"'98
:77
!
5
% !
(
)
'& ">- ! !""
A0"A0"&&
(&"'
*>- ! !""
> &&($ " &&
>- ! !""
'-A:- &
4 4 *
! !! "
#$% !! "
"& ' ! !! "
"" ! (" !! "
"#$% !! "
)* !" !! "
* +,+- !! ".