Morgunblaðið - 16.08.2001, Síða 20

Morgunblaðið - 16.08.2001, Síða 20
LANDIÐ 20 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þú getur valið námsgreinar eftir þörfum. Í MH er hægt að auka við þekkingu sína á mörgum sviðum án þess endilega að stefna að stúdentsprófi. Við skólann eru nú þrjár bóknámsbrautir: Málabraut, náttúrufræðibraut og félagsfræðabraut. Í boði er fjölbreytt nám í raungreinum, tungumálum og samfélagsgreinum. Er þetta ekki eitthvað fyrir þig? Innritun fyrir haustönn 2001 fer fram dagana 17., 20. og 21. ágúst nk. kl. 12.30-18.00 og laugardaginn 18. ágúst nk. kl. 10.00-14.00. Námsráðgjafar verða nemendum til aðstoðar og deildarstjórar verða til viðtals þriðjudaginn 21. ágúst kl. 16.30-17.30. Sjá nánar í Fréttapésa öldunga á heimasíðu okkar. Skólagjöld ber að greiða við innritun. Þá er mögulegt að innrita sig í gegnum síma. Nánari upplýsingar um símainnritunina er að finna á heimasíðu okkar. Komdu í heimsókn á heimasíðu okkar! Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar, s.s. stundatöflu haustannar, bókalista og innritunareyðublað fyrir símainnrituna og fl. Slóðin er; www.mh.is Tómstundanámskeið! Á önninni, eins og undanfarnar annir, verða haldin tómstundanámskeið fyrir almenning. Nánar auglýst síðar, m.a. á heimasíðu okkar. Rektor. Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð Er ekki kominn tími til að hefja nýtt nám, rifja upp eða bæta við fyrra nám? Það getur þú gert hjá reyndum kennurum Menntaskólans við Hamrahlíð. AÐALFUNDUR Landssamtaka skógareigenda var haldinn á Hall- ormsstað um síðustu helgi. Sam- hliða var efnt til sérstakrar hátíð- ardagskrár vegna tíu ára starfsafmælis plöntustöðvarinnar Barra á Egilsstöðum og þess að verkefnið Héraðsskógar hefur jafnframt staðið í tíu ár. Héraðsskógaverkefnið nær yfir allt Fljótsdalshérað og hefur sl. áratug verið plantað skógi á u.þ.b. 4 þúsund hektara, sem samsvarar sex Hallormsstaðarskógum. Ætl- unin er að eftir 30 ár verði þetta svæði orðið 15 þúsund hektarar að stærð. Helgin hófst með grisjunarnám- skeiði og var þar notað nýtt náms- efni sem Héraðsskógar hafa látið semja og gefið út um grisjun og skógarhögg. Fékkst styrkur til þess frá Menningarsjóði alþýðu, en Finnur Karlsson vann efnið til út- gáfu. Fyrir aðalfundinn var flutt er- indi um kolefnisbindikvóta Kyótó- samkomulagsins og hvaða þýðingu það hefur fyrir skógrækt á Íslandi. Samkvæmt Helga Gíslasyni, fram- kvæmdastjóra Héraðsskóga, er kolefnisbinding þess skógar sem búið er að gróðursetja á Héraði um 24 þúsund tonn á ári. Það sam- svarar útblæstri tæplega 5.000 bíla eða fjögurra togara af meðalstærð. Á aðalfundi Landssamtaka skóg- areigenda var m.a. samþykkt ályktun um að beina því til mennta- málaráðherra að hraðað verði skráningu menningarminja og fjárframlög ríkisins til þess verði áreiðanleg, svo að varsla slíkra minja og nýting sé tryggð. Þá fagnaði aðalfundurinn niðurstöðu loftslagsráðstefnunnar í Bonn um að ræktun nýrra skóga fær nú fulla alþjóðlega viðurkenningu sem mót- vægisaðgerð gegn uppsöfnun gróðurhúsalofttegunda í andrúms- lofti. Fundurinn hvatti stjórnvöld til að gefa gaum að tækifærum sem felast í skógrækt sem bindileið. Til þess að sú leið hljóti alþjóðlega við- urkenningu, verði skráning, söfn- un og miðlun upplýsinga um kol- efnisbindingu íslenskra skóga að standast alþjóðlegar kröfur. Verði því að tryggja fjármagn til áfram- haldandi rannsókna, vöktunar og úttektar á kolefnisbindingu ís- lenskra skóga. Var því beint til landbúnaðar- og fjármálaráðu- neytis að tillit verði tekið til þessa við samningu fjárlaga næsta árs. Landssamtökin eru regnhlíf- arsamtök yfir skógarbændafélög landsins og eru nú um 650 bændur, sem hafa atvinnu af skógrækt, inn- an þeirra vébanda. Stjórnarkjör fór fram á aðal- fundinum og hlutu kosningu Edda Björnsdóttir til formanns, Sig- urður Jónsson, Ástvaldur Magn- ússon, Árni Njálsson og Karólína Hulda Guðmundsdóttir. Að loknum aðalfundi tók við há- tíðardagskrá. Hófst hún með því að gestir kynntu sér rýmislistsýningu Skógræktarinnar og Félags ís- lenskra myndlistarmanna í Trjá- safninu á Hallormsstað. Var svo farið í Atlavík og þar um borð í ferjuna Lagarfljótsorminn, þar sem starfsemi plöntustöðvarinnar Barra var kynnt í máli og veigum. Var landtaka gerð á Húsatanga, við bæ Hákonar Aðalsteinssonar skáldbónda og var þar snæddur í forrétt grafinn fjallasilungur úr Þríhyrningsvatni. Þaðan var ekið í Víðivallaskóg handan Fljóts, þar sem aðalréttinum, grilluðu hrein- dýrakjöti, var sporðrennt með ís- lenskum kartöflum og salati. Vel á fjórða hundrað manna tók þátt í gleðinni, sem var ósvikin og stóð í regnmildu veðri fram á miðja nótt. Dagskrá helgarinnar lauk með gönguferð um Ranaskóg, undir einstakri leiðsögn Sigurðar Blön- dal, skógspekings og fyrrum skóg- ræktarstjóra. Ranaskógur, gisinn birkiskógur í Fljótsdal, er fyrsti eiginlegi bændaskógurinn á Ís- landi. Heimamenn sáu um kjötsúpu að hætti skógar- og timburmanna. Meðal gesta voru landbún- aðarráðherra, þingmenn og forseti Alþingis. Guðni Ágústsson, land- búnaðarráðherra, heiðraði Stein- grím J. Sigfússon fyrir að hafa ver- ið sá ráðherra sem kom Héraðsskógaverkefninu á lagg- irnar á sínum tíma. Steingrímur fékk forláta skógarhníf að gjöf og taldi hann hnífinn vera farinn að ryðga vegna þess hversu lang- orður Guðni var í ræðu sinni við þetta tilefni. Skipuleggjendur sögðu það standa upp úr eftir helgina hversu góð þátttaka var í dagskránni og sá mikli hugur sem er í skógrækt- arfólki landsins. Héraðsskógar hafa á tíu árum plantað trjám í landi sem samsvarar sex Hallormsstaðarskógum Morgunblaðið/Þorsteinn Pétursson F.v. Níels Árni Lund, Sigurður Blöndal, Guðni Ágústsson og Stein- grímur J. Sigfússon syngja í bróðerni Skógarmannaskál eftir Þorstein Valdimarsson á hátíð skógræktarbænda í Víðivallaskógi. Jón Loftsson skógræktarstjóri heldur tölu yfir skógarbændum landsins. Hugur í skógar- bændum landsins Egilsstaðir VILHJÁLMUR Vernharðsson hef- ur opnað gistiaðstöðu á neðri hæð íbúðarhússins í Möðrudal á Efra- Fjalli. Gistiherbergi eru fjögur sem taka alls tólf gesti, þrjú tveggja manna herbergi og eitt sex manna. Í gistiaðstöðunni er setustofa og eldunaraðstaða en það er nauðsyn- legt að hafa eldunaraðstöðu fyrir útlendingana segir Vilhjálmur. Að- sókn hefur verið góð og segist Vil- hjálmur vera að huga að stækkun. Verður líklega byggt gistihús við íbúðarhúsið nú í haust sem verður tilbúið næsta vor. Gisting í Möðrudal Norður-Hérað Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins Vilhjálmur Vernharðsson TVEGGJA daga kynnisferð Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra í boði Norðurlandsskóga er nýlok- ið. Með honum í för voru m.a. Guð- mundur B. Helgason, ráðuneytis- stjóri, Níels Árni Lund, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðu- neytinu, og stjórn Norðurlands- skóga. Ferðin hófst með morgunkaffi í Búgarði þar sem heilsað var upp á starfsfólk Búnaðarsambands Eyja- fjarðar og aðra þá sem þar hafa að- setur. Þá var ekið að Grundarreit í Eyjafjarðarsveit, en þar má telja upphaf skógræktar í Eyjafirði. Á Leyningshólum var skoðað sér- stakt birkiskógasvæði undir leið- sögn Hallgríms Indriðasonar, framkvæmdastjóra Skógræktar- félags Eyfirðinga, en þar gefur einnig að líta fallegasta lerki í firð- inum. Tómstundabúskapur Sigríð- ar og Brynjars í Hólsgerði var skoðaður, þar sem þau hafa komið eyðibýli í notkun, en að því loknu var snæddur hádegisverður á Öng- ulsstöðum. Eftir hádegi var farið að Espihóli og eldri bændaskóg- rækt skoðuð og síðan að Garð- yrkjustöðinni Grísará þar sem framleiddar eru skógarplöntur fyr- ir Norðurlandsskóga. Um kvöldið var svo farið austur í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem skoðuð var skógrækt í sveitinni og síðan gist á Narfastöðum. Seinni daginn var byrjað á því að kynna sér skjólbelti og landbætur á Laxamýri og síðan ekið sem leið liggur um Húsavík og austur í Ás- byrgi. Á Leifsstöðum í Öxarfirði kynnti Stefán Rögnvaldsson birki- skógrækt samhliða sauðfjárbeit en á Valþjófsstað í sömu sveit sýndi Björn Halldórsson skógarbóndi skjólbeltarækt sína og Guðríður Baldvinsdóttir kynnti áætlanagerð í skógrækt. Megintilgangur með Norður- landsskógaverkefninu er m.a að stuðla að fjölnytjaskógrækt á Norðurlandi og treysta með því byggð og atvinnulíf. Að sögn Sigrúnar Sigurjónsdótt- ur, framkvæmdastjóra Norður- landsskóga, gekk þessi kynnisferð mjög vel og var hún mjög ánægð með að geta kynnt þá miklu mögu- leika sem felast í auknum áhuga á skógræktarmálum. Búast má við að gróðursettar verði um 430 þús- und plöntur á vegum Norðurlands- skóga í ár. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, ásamt föruneyti við eitt af skjólbeltum bændanna. Ráðherra heimsótti Norðurlandsskóga Laxamýri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.