Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 40

Morgunblaðið - 16.08.2001, Page 40
MINNINGAR 40 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Bergdís RutBaldvinsdóttir fæddist í Reykjavík 10. maí 1993. Hún lést á heimili sínu 7. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Baldvin Reynis- son og Margrét Sig- urborg Gunnarsdótt- ir. Systkini hennar eru Hanna Lára, f. 28.1. 1982, Heiða Lind, f. 26.6. 1985, og Kjartan Andri, f. 6.5. 1988. Amma og afi á Laugarnesvegi eru Jóhanna Sveinsdóttir og Gunnar Jónsson og amma og afi á Fáskrúðsfirði eru Lára Hjartar- dóttir og Reynir Guðjónsson. Bergdís Rut greindist með krabbamein í mars 1995 og stóð barátt- an með hléum í rúm sex ár. Hún náði tveimur stuttum tímabilum á leik- skólanum Heiðar- borg og var búin að vera nemandi í Sel- ásskóla í tvö ár. Hún byrjaði að æfa fim- leika hjá Fylki síð- astliðið haust og stundaði æfingar eins og heilsan leyfði og náði að taka þátt í vorsýn- ingu fimleikadeildarinnar í maí síðastliðnum. Útför Bergdísar Rutar fer fram frá Árbæjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jæja, elsku litli hnoðrinn minn. Núna færðu hvíld eftir margra ára baráttu fyrir lífinu. Alltaf man ég þegar þú komst til mín í vinnuna, skælbrosandi eftir eina læknisskoðunina, þegar við héldum að allt væri í lagi og þér batnað og þú sagðir: „Hanna Lára, ég er komin með krabbamein aftur.“ Ég fór að gráta og þú sagðir bros- andi og góð: „Í alvörunni, ég er aftur með krabbamein, af hverju ertu svona leið?“ Þér leið alltaf vel á spítalanum og saknaðir alltaf „konanna á spítalan- um“ þegar þú fékkst að koma heim í smá frí. Ég er svo glöð að við áttum allar stundirnar okkar saman og þá sér- staklega þær sem við áttum í sumar þegar þú varst hjá mér í Vindáshlíð og þú lærðir um Guð. Við höldum öll að þú hafir vitað hvað var í gangi og reynt að hlífa okkur sem mest og segja okkur að Guð hjálpi okkur og sé alltaf með okkur. Elsku systir, ég sakna þín svo ótrúlega mikið. Þó að þú hafir verið litla systir mín þá varstu á einhvern hátt stóra systir mín líka. Þú komst til mín þegar mér leið illa og þú spjallaðir og gafst mér góð ráð. Því að þó að þú værir ung virtistu skilja allt eins og fullorðin manneskja. Takk æðislega fyrir allar stund- irnar sem við áttum saman. Núna sjá englar Guðs um að fylgja þér til Sveins og afa Gunnars þar sem þú getur leikið þér í fimleikum. Ég kveð þig með tárum og geymi allar góðu minningarnar í hjartanu. Þín stóra systir, Hanna Lára. Elsku litli engillinn minn. Nú ertu komin til Guðs, sem þú hefur lært svo mikið um í sumar og sagt mér svo mikið frá. Ég hugga mig við það, að ég veit að núna ertu dansandi um, glöð og kát, eins og þú hefur alltaf verið, bara núna alheilbrigð og án alls sársauka. Ég held að það sé ekki hægt að lýsa þér neitt betur en Albert Logi gerði í dag þegar hann sagði: „Ég veit af hverju Guð tók Bergdísi til sín, það er af því að hann er orðinn svo gamall og hann vantaði nýjan Guð.“ Það er satt, þú varst kannski ekki alveg Guð, þú varst lítill engill, alltaf svo góð við alla og lést öllum líða vel í kringum þig. Þó að þú værir rosalega veik kvartaðirðu aldrei, brostir bara svo að okkur liði betur. Alltaf komstu til að hugga mig, þú kunnir ráð við öllu og fannst alltaf réttu orðin til að hressa mig við. Þótt þú værir svona ung hjálpaðirðu mér svo mikið og kenndir mér margt sem er alveg ómetanlegt. Ég man eftir því þegar þú varst í einni af erfiðustu meðferðunum á spítalanum. Þú varst svona um þriggja eða fjögurra ára og hafðir verið í einangrun í nokkra daga og fékkst að fara fram í smástund. Þá klifraðirðu upp á einhverja kassa sem voru þarna og söngst Lion King-lagið: „Hakuna matata … All- ar áhyggjur eru þurrkaðar út, gleymum sorg og sút …!“ Þetta söngstu aftur og aftur, fyrir öll veiku börnin og foreldra þeirra. Þetta er samt bara lítið dæmi um hvað þú varst alltaf kát og reyndir að hressa aðra í kringum þig. Alls staðar sem þú komst líkaði öllum vel við þig, bæði fólki og dýrum, enda varstu alltaf svo mikill dýravinur og hafðir miklar áhyggjur af því hvort það væri sérhimnaríki fyrir fólk og ann- að fyrir dýr. Ég vona því innilega að þú hafir nóg af dýrum í kringum þig núna ástin mín, sérstaklega hann Lassa vin þinn sem þú talaðir alltaf svo mikið um. Frá því þú varst lítil varstu alltaf alveg óð í að spila á spil og seinustu stundirnar okkar saman vorum við einmitt að spila, sem betur fór vannstu! Því þótt þú værir yfirleitt í góðu skapi varstu svo ótrúlega tap- sár að stundum þegar þú varst yngri varð ég að leyfa þér að vinna svo að það yrði líft í kringum þig! Elsku Bergdís mín, ég sakna þín svo ótrúlega mikið. Mig langar svo mikið að taka þig í fangið og knúsa þig eins fast og ég get, eins og við vorum alltaf vanar að gera. En þótt það sé margs að sakna er ég svo þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og minning- arnar sem ég mun alltaf geyma í hjartanu. Takk fyrir allt, elsku litla systir mín. Þín litla stóra systir, Heiða Lind. „Allar áhyggjur eru þurrkaðar út, gleymum sorg og sút.“ Þessi orð úr Konungi ljónanna lýsa þér svo vel, Bergdís mín, því þú varst alltaf svo hress og kát þó að þú værir veik. Nú ertu komin til afa Gunnars því að þið voruð alltaf svo góðir vinir. Ekki hafa áhyggjur af Kólumbusi Kára því að ég skal passa hann vel. Vertu sæl, elsku systir. Þinn bróðir, Kjartan Andri. Þriðjudaginn 7. ágúst lést elsku- lega litla sonardóttir mín Bergdís Rut. Með örfáum orðum langar mig að minnast hennar. Þegar hún var aðeins að verða tveggja ára uppgötvaðist að hún var með krabbamein í nýra. Varð hún að ganga í gegnum þá erfiðu aðgerð að láta fjarlægja nýrað. Eftir það tóku við erfiðar lyfjameðferðir en alltaf var hún svo dugleg og björt að hún hjálpaði okkur öllum með dugnaði sínum. Við vonuðum alltaf að hún kæmist yfir þessi veikindi en alltaf tók sjúkdómurinn sig upp aftur og er hún varð fjögurra ára fundust blettir í lungunum. Þá var okkur sagt að nú væri ekki hægt að gera meira. Hún þyldi ekki fleiri lyfjameðferðir, mergurinn væri ekki búinn að jafna sig eftir mergflutningana. En til allr- ar hamingju komst hún til Svíþjóðar í svokallaðan geislahníf sem enginn Íslendingur hafði farið í áður. Ferð- irnar til Svíþjóðar urðu alls átta tals- ins. En því miður dugði þessi með- ferð ekki, en gaf henni og fjölskyldunni hins vegar þrjú yndis- leg ár í viðbót. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera hjá Bergdísi oftast þegar hún átti erfiðast í henn- ar erfiðu meðferðum á Landspítalan- um. Þriðjudaginn 7. ágúst fór ég í morgunflug til að hitta hana og fjöl- skylduna hennar. Þá var hún búin að vera nokkuð slöpp og var komin með súrefni sér til hjálpar. En hún treysti sér samt til að fara í göngutúr í kerru með okkur, ömmunum sínum, mömmu sinni, og bróður, Hjördísi frænku sinni og börnum hennar, Unnari Heimi, Alberti Loga og Láru Karólínu. Ég fékk að keyra hana í kerrunni en við fórum í Elliðaárdalinn með nesti í yndislegu veðri og hún var svo glöð. Síðan komum við heim, þá varð hún allt í einu svo svöng og langaði svo mikið í kjúklingabita frá Ken- tucky Fried en það var besti matur sem hún fékk. Ég og Hjördís fórum auðvitað og keyptum kjúklingabita sem Bergdís borðaði svo með bestu lyst. Seinna um daginn fórum við að spila á spil sem henni þótti alltaf svo gaman. Hana langaði í heimatilbúna pítsu í kvöldmatinn og svo settumst við svo öll við að borða kvöldmatinn. Hún virtist ekki vera neitt verri, frekar virtist hún hressast. Hún kláraði að borða pítsuna og stóð svo upp frá borðinu en augnabliki síðar var hún dáin. Þetta var mjög erfitt fyrir alla. Hún var alltaf einstaklega glöð og listræn í sér. Margar fallegar mynd- ir á ég eftir hana og ljóð sem hún hef- ur samið handa okkur. Hún var ein- stakt barn, því er missir okkar mikill, sérstaklega foreldrum og systkinum sem hún var svo kær. Ég vil votta ykkur, elsku Baldi, Magga, Hanna Lára, Heiða Lind, Kjartan Andri og amma Jóhanna, mína dýpstu samúð og megi Guð og gæfan fylgja ykkur um ókomna tíma. Elsku Bergdís mín, ég lifi með þig í huga alla tíð. Amma Lára. Elsku dísin mín. Ég sakna þín svo mikið og ég á alltaf eftir að sakna þín svo sárt, en ég veit að þú átt alltaf eftir að vera svo nálægt okkur öllum og senda okkur hlýju straumana þína þegar við eigum bágt. Þú áttir alltaf svo margt fallegt að gefa, bæði með nærveru þinni og líka þessum ótrúlegu listrænu hæfileik- um, það var alveg sama hvað þú hafðir stuttan tíma til að föndra eitt- hvað þá var alltaf komið annaðhvort frábært ljóð eða gullfallegt listaverk áður en að maður vissi af. Ég á svo margar skemmtilegar minningar um þig og mig langar að nefna nokkrar þeirra, það er erfitt að velja úr en þetta er það sem mér í fljótu bragði dettur í hug. Mér er minnisstæður gleðisvipur- inn á andlitinu á þér þegar þú varst rúmlega eins árs og ég kom með Unnar Heimir í burðarrúminu ný- fæddan, þú varst nýkomin úr baði og vildir alls ekki víkja þér frá litla barninu til að fara í fötin þín þannig að þú sast innvafin í handklæði og straukst höfuðið á litla frænda þín- um og ljóminn í augunum þínum sagði meira en nokkur orð. Svo þegar þú veiktist og þurftir að vera í einangrun þá sendi ég þér myndir af Unnari og myndbands- upptöku af skírninni hans og það fannst þér gaman að horfa á og þú varst síðast að tala við mig um þessa spólu um daginn. Það var líka svo gaman þegar við fluttum suður því að þá gátum við verið svo mikið saman, þú og Unnar Heimir urðuð svo góðir vinir og þú varst svo dugleg að passa og leika við Albert Loga og eftir því sem tíminn leið og þið stækkuðuð þá vilduð þið Unnar Heimir fara að gista saman og fenguð þið þá yfirleitt að taka spólu á leigu og kaupa ykkur stjörnusnakk og það var nú ekki svo sjaldan sem þið fenguð að gista sam- an. Síðan þegar að þið voruð að leika ykkur saman þá fóruð þið í göngu- túra skoðuðuð hestana og funduð ykkur alltaf eitthvað til að rannsaka því að þegar þú gafst hugmyndaflug- inu lausan tauminn þá voru ævintýr- in ekki lengi að verða til og alltaf gast þú töfrað Unnar Heimi með þér BERGDÍS RUT BALDVINSDÓTTIR                               !   "# $%  !& "#! !'    ( )**     !"" #$% %&&   '  !"" (&"' &!"" ) %$ "&& # *&& +  , %&!"" (  &!""  - !  && .!*&!"" /  &&& / 0"  &!"" 1&& 2&  *&& !""   && + &3 &!""   &!""    - !&&   4        *  % %    %    #  %     )+5  63  +) 677&89 #7$ '7 : '  ;  ! %      +    ,     !     $   ! ' - ..* /   !  $  0      (&"'  '-&!"" (&"' <$   !"" 2  && $4  !"" /  &/: - !&&  $4  $4 && *   4      4 * "      %    %     =63> 5?= =?/= + +) .&-  >1   &&" .@@          0' %   1    !   / #  !   ( )** *3 && 3 * &&   !&!"" ' 6* &!"" )&7  *AB.  2&!'& &!""  - !3* && /*  !"" +4%  &!""  % && *#$%&& &  * !""   4      4 * 2   3   %  %    3) 5 6((   +) C 5 < %:& 9E #7$ '7            %    .  4 '    3  &" 6-  *6-  $4   $4 && 77  -  $4 &!""*         =?=/  F 2% &7 GE  % %          ,   /  &!"" 4    4 *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.