Morgunblaðið - 16.08.2001, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞETTA er 10. sumarið sem Kirkju-
miðstöð Austurlands starfrækir sum-
arbúðir fyrir börn við Eiðavatn. Þetta
forna höfuðból, Eiðar, er um 15 km
norður frá Egilsstöðum og því vel í
sveit sett hvað samgöngur varðar.
Sumarbúðastarfið á rætur í kirkju-
legri samvinnu um æskulýðsstarf á
Eiðum sem Prestsfélag Austurlands
beitti sér fyrir. Fyrst voru það ferm-
ingarbarnamót, mörg vor frá 1959 og
síðan, frá 1968, sumarbúðir fyrir börn
og fleiri hópa.
Framan af árum var þetta sumar-
búðastarf í leiguhúsnæði í barnaskól-
anum á Eiðum en það húsnæði fékkst
eftir að leitað hafði verið að slíkri að-
stöðu í nokkur ár.
Fljótlega var svo farið að huga að
eigin byggingu með drauma um
bætta aðstöðu og frekari útfærslu
þessarar sameiginlegu kirkjulegu
starfsemi á Austurlandi. Fyrirmynd-
in var ekki síst Vestmannsvatn í S-
Þingeyjarsýslu.
Vorið 1976 var svo hafist handa við
byggingarframkvæmdir við austan-
vert Eiðavatn, upp af Prestavík, sem
svo heitir frá fyrri tíð. Áfram var svo
reynt að mjaka þessum byggingum
næstu árin undir forræði Presta-
félagsins. Til ýmissa aðila var leitað
um fjárframlög og margvíslega lið-
veislu.
Eðlilegt þótti að söfnuðirnir yrðu
formlega aðilar að þessari starfsemi
og því var komið á fót sjálfseignar-
stofnuninni Kirkjumiðstöð Austur-
lands, sem tók við hálfbyggðum hús-
um, en skipulagsskrá hennar var
formlega staðfest 10. júní 1985.
Kirkjumiðstöð Austurlands er á
vegum prófastsdæmanna eystra:
Múlaprófastsdæmi og Austfjarðapró-
fastsdæmi skipa hvort um sig, á
héraðsfundi, tvo fulltrúa í stjórn
stofnunarinnar og Prestafélag Aust-
urlands skipar svo fimmta stjórnar-
fulltrúann.
Loks var byggingum lokið og húsa-
kynni Kirkjumiðstöðvar Austurlands,
sem við nefnum gjarnan Sumarbúð-
irnar við Eiðavatn, vígð 25. ágúst
1991. Um er að ræða svefnskála sem
ætlaður er 40 manns, skála sem hýsir
eldhús, sal og nokkurt gistirými fyrir
starfsfólk, og svo minni tengibygg-
ingu, alls er um nálega 700 m2 að
ræða. Þetta er timburhús á steyptum
grunni en flekana í það smíðaði Gunn-
ar Auðbergsson, trésmíðameistari á
Eskifirði.
Sumarið 1992 flutti svo sumarbúða-
starfsemin í þetta nýja húsnæði.
Mestu munaði varðandi dvalarhópa
aldraðra og fatlaðra því afar greið-
fært er innanhúss fyrir þá sem eiga
erfitt með hreyfingu. Úti eru svo stíg-
ar, lagðir slitlagi og greiðfærir hjóla-
stólum, alveg frá útidyrum og niður
að vatni og inn að litlum íþróttavelli.
Mun leitun að jafngóðri aðstöðu fyrir
hreyfihamlaða. Stígana kostuðu sam-
tökin Þroskahjálp á Austurlandi og
sáu jafnframt um gerð þeirra.
Áhersla hefur verið á gott starfs-
fólk við sumarbúðirnar sem sóttar
eru víða að þó einhver áraskipti séu
varðandi aðsókn. Þetta sumar hefur
hún verið mjög góð og um 200 börn
átt þar dvöl.
Húsakynni Sumarbúðanna hafa
svo komið í góðar þarfir, einkum
haust og vor fyrir ýmsa kirkjulega
fundi og námskeið en margvísleg
kirkjufræðsla virðist nú einn helsti
vaxtarbroddur í kirkjulegu starfi í
landi okkar.
Margir eiga nú góðar minningar
frá sumarbúðadvöl við Eiðavatn þar
sem hlúð hefur verið að trúarlegum
og félagslegum þroska í fögru um-
hverfi. Líkamshreysti og lífsgleði hef-
ur ekki síður verið efld með leikjum,
íþróttaiðkun, siglingum á vatninu og
nálægum tjörnum og glaðværum
kvöldvökum.
Þeir sem kynnst hafa kirkjulegu
sumarbúðastarfi telja það veita börn-
unum dýrmætt veganesti fyrir lífs-
gönguna og góður hugur er í fólki að
efla starfsemina við Eiðavatn enn
meir á komandi árum.
VIGFÚS INGVAR
INGVARSSON,
Laugavöllum 19, Egilsstöðum.
Sumarbúðir við
Eiðavatn í áratug
Frá Vigfúsi Ingvari Ingvarssyni:
Sumarbúðir við Eiðavatn.
FRÁ árinu 1983 hef ég búið í Mos-
fellsbæ. Strax kom í ljós að mót-
tökuskilyrðum útvarpsmerkja var
verulega ábótavant og ómögulegt
ef ekki voru notuð utanhússloftnet.
Nokkru síðar voru gerðar lagfær-
ingar svo að með utanhússloftneti
náðist ágætis útvarpsmerki svo að
vel mátti njóta tónlistar og annars
útvarpsefnis, a.m.k. frá ríkisút-
varpinu. Einungis í stofunni, við
hlið sjónvarpsins, en hvergi annars
staðar. Við vorum lengi vongóð um
að frekari lagfæringar kæmu þann-
ig að hægt yrði á auðveldan og
skýran máta að hlusta á færanleg
útvarpstæki. Það hefur enn ekki
orðið. Með full-útdregin loftnet
næst fremur léleg útvarpsmóttaka
og þarf lítið að gerast í umhverfinu
til að útsendingin falli nánast út
eða verði óskiljanleg. Þar sem við
erum miklir útvarpsunnendur á
heimilinu hefur ekki farið hjá því
að keypt hefur verið nokkurt magn
útvarpstækja, enda héldum við
fyrst að það væru léleg tæki sem
útskýrðu þessi vandkvæði. Það hef-
ur ekki leyst þennan vanda. Á
vinnustöðum okkar í borginni eru
skilyrðin allt önnur og þægilegri.
Árlega höfum við hringt ýmist í
Ríkisútvarpið eða gamla Póst og
síma og þar sagðist fólk vita af
þessu vandamáli og að hugað yrði
að lagfæringum bráðlega. Aldrei
gekk það eftir. Nú hef ég áhuga á
að vita hvort ekki stendur til að
bæta útsendingar til Mosfellsbæjar
og þá jafnframt hvort okkur Mos-
fellingum á ekki að vera gert
mögulegt að heyra fleiri stöðvar en
Ríkisútvarpið og Bylgjuna.
KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR,
Áslandi 2, Mosfellsbæ.
Móttökuskilyrði útvarps
Frá Kristínu Sigurðardóttur: