Vísir - 26.06.1979, Blaðsíða 13
Texti:
Páll
Magnússon
VíSUt
KuS^£^^udagi| 26. júnl 1979. 13
Þótt rigningin sé slæm þá skemmir hún ekki matariystina. Sveinn, Aldfs, Þorbjörn og Siddý aö snæö-
ingi.
Eftir 11 mánaöa brauöstrit i sveita
sins andiits, finnst fólki fátt yndis-
legra en aö taka saman pjönkur sin-
ar og h alda út I sumariö og friiö. En
hefur nokkurn tima veriö sumar á
tslandi? Heyrsthafa þær raddir sem
segja þaö heillavænlegast fyrir þjóö-
ina aö henni væri, I eitt skipti fyrir
öll, komiö I skilning um aö hér á
landi er ekkert sumar og veröur
aldrei neitt sumar. Þaö kæmi I veg
fyrir margt þunglyndiskastiö ef fólk
hættiaðbiða eftir þeim sumrum sem
aldrei koma.
Vfcismenn brugöu sér í Munaöar-
nes einn grámyglulegan rigningar-
daginn I siöustu viku, og spuröu fólk
hvaö þaö heföi helst fyrir stafni I
sliku veöri.
í sund á hverjum morgni
Fyrst hittum viö aö máli þau hjón-
in Guömund R. Einarsson og Höllu
Kristinsdóttur Ur Reykjavlk.
,,Viö höfum veriö hérna i viku og
þaö hefur veriö skúraveöur og skýj-
aö allan timann. Viö höfum þvl ekki
veriö jafn mikiö útivið eins og við
heföum kosiö, en þó förum viö I sund
á hverjum morgni.
Einnig höfum við borið þaö viö að
leig ja okkur hesta og fara I útreiðar-
túr, annars heldur maður sig mest
inni,” sögöu hjónin.
„Þaö er mjög gott aö vera hérna I
Munaðarnesi og aöstaöan öll til fyr-
irmyndar, en þegar veðrið er svona
leiöinlegter maður búinn að fá alveg
nóg eftir vikuna,” sagði Halla, og
bætti þvl við aö hún heföi prjónaö
einhver kynstur þessa viku.
„Ég kem hingaö oft á haustin og
þykistþá veraað fara til rjúpna. Mér
finnst ágætt aö vera hérna, en þaö
vantar fleiri leikvelli og leiktæki,
bæöi fyrir börn og fullorðna. Eins
finnst mér aö samgangurinn mætti
vera meiri milli þeirra sem hér
búa,” sagði Guömundur.
Dótturdóttir þeirra h jóna kom meö
þeim I Munaöarnes, og þreyttist hún
seint á aö spyrja hvort veðriö væri
Hver var aö tala um kynslóöabil? Anna Þóra (sú yngri) og Sigrlður róla sér hinar ánægöustu, þrátt fyrir dumbungsveöur.
jafn slæmt á Islandi. Hún haföi farið
með Akraborginni yfir hafið og var
þess fullvissaðtslandværi á allt öör-
um breiddargráðum en Munaöames.
Ýmislegt til skemmtunar
Þorbjörn og Siddý frá Hafnarfirði
ætluðuséraðeyða viku, af mánaðar-
sumarfrn sinu, I Munaöarnesi.
„Við höfum gert ýmislegt okkur til
skemmtunar, m.a. fórum viö til
Borgarness á 17. júnl og fylgdumst
meö hátiöarhöldunum þar. Eins höf-
um viö heimsótt kunningja okkar á
Kleppjárnsreykjum og fengum þar
lánaöa hesta,” sagöi Þorbjörn.
,,Við förum i sundlaugina á hverj-
um degi, en annars heldur maöur sig
mest innan dyra. Þaö er óskaplega
svekkjandi þegar þaö rignir svona
dag eftir dag,” haföiSiddý um málið
að segja.
tþessuvaknaöiSveinn, 5ára sonur
þeirra hjóna, og við spuröum hann
hvernig honum líkaði Munaðarnes-
dvölin.
„Þaöer ekkerthægt aðgera hérna
og mér hundleiðist,” sagöi Sveinn og
vildi siðan ekki ræða frekar við
blaöamenn.
Foreldrar Sveins höfðu þá skýr-
ingu á önugheitum sonarins að hann
væri nývaknaður, en blaðamaður
var ekkf grunlaus um að veðrið ætti
hér einnig hlut að máli.
Ljómandi gott
Við hittum Sigrlöi Guömundsdótt-
ur frá Reykjavik þar sem hún var að
róla með barnabarni sinu. ,,Mér
finnst ljómandi gott að vera hérna,
og það væri hreint út sagt dýrlegt ef
sólin væri okkur svolitið eftírlátari.
Við höfum ferðast heilmikið um
Borgarf jörð, en ef veðrið hefði verið
betra, Jtó hefðum við sjálfsagt verið
meira heima við og sleikt sólina.
Það er alltaf hægt að finna sér eitt-
hvað til dundurs og alveg óþarfi að
láta sér leiðast, þó veðrið sé ekki sem
best.” sagði Sigrfðurog var hin kát-
asta.
P.M.
„Þaö er flnt að leika sér I rigningunni, en við viljum nú samt aö sólin fari aö koma”, sögðu þau Halla,
ólöf og Guðmundur.
Siddý tekur buxur af snúrunni, enda er lltil von til þess að rigningin þurrki þær.
„Það er hundleiðinlegt hérna”, sagði Sveinn og var
hinn snúðugasti við blaðamenn.
Guðmundur R. Einarsson og Halla Kristinsdóttir
við bústað sinn.
Myndir:
Gunnar V.
Andrésson