Morgunblaðið - 11.09.2001, Síða 18

Morgunblaðið - 11.09.2001, Síða 18
SUÐURNES 18 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRAMKVÆMIR eru hafnar við byggingu brimvarnargarða við innsiglinguna til Grindavíkurhafn- ar. Búið er að leggja veg úr grjót- námunni og byrjað að keyra út efni í vestari garðinn. Er þetta langþráð framkvæmd í Grindavík. Hafnamálastofnun og Grindavík- urbær standa fyrir byggingu tveggja brimvarnargarða, sitt hvorum megin við innsiglinguna til Grindavíkur, og er hvor um sig tæpir 300 metrar að lengd. Til- gangurinn er að skapa kyrrð í höfninni og auka öryggis sjófar- enda. Nýr útsýnisvegur Endurbætur á innsiglingunni hafa þegar skilað hafnarsjóði um- talsverðum tekjum og auknum verkefnum, að því er fram kom í fréttabréfi bæjarins, og með brim- varnargörðunum verður aðstaðan enn tryggari. Suðurverk hf. átti lægsta tilboð í útboði, tæplega 147 milljónir kr., og þótti það hagstætt boð. Í fyrstu var vonast til að framkvæmdir gætu hafist í maí en verktakinn var bundinn í öðrum verkefnum og hóf sprengingar grjóts í námu skammt vestan Grindavíkur og lagningu vegar fyrir til þess að flytja grjótið. Liggur hann um Bótina og með ströndinni að garð- stæðinu og tengist síðan Verbraut- inni skammt vestan húsa Þor- bjarnarins. Vegurinn verður hluti af gatnakerfi bæjarins, af honum mun sjást yfir innsiglinguna og inn á hafnarsvæðið. Áformað var að ljúka byggingu vestari garðsins á þessu ári og eru framkvæmdir við hann þegar hafn- ar, og byggja síðan þann austari á næsta ári. Suðurverk á að skila verkinu af sér í lok september á næsta ári. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Stórvirk tæki Suðurverks athafna sig á vestari brimvarnargarðinum. Bygging brimvarnar- garða hafin Grindavík í bili og taka svo aftur upp þráðinn seinna,“ segir hún. Enginn sjálfsþurftarbúskapur Valgerður hefur verið að móta starfið á þessu fyrsta ári. Hún telur að hlutverk sitt sé að ýta undir hug- myndir fólks um lista- og menning- arstarfsemi og hjálpa til við fram- kvæmd þeirra. Í bæjarfélaginu væri margs konar menningarstarfsemi og fólk sem ynni að listum sem at- vinnufólk og áhugafólk. Hún væri hins vegar ekki listfræðilegur ráð- gjafi bæjaryfirvalda og liti til menn- ingar í víðum skilningi, hvort sem í henni fælist viðurkennd list eða ekki. Hún telur að hlutvek sitt sé ekki síður að koma listafólki bæjarins á framfæri annars staðar og að fá listafólk annars staðar að til að sýna í Reykjanesbæ. „Við ætlum ekki að stunda neinn sjálfsþurftarbúskap í listunum,“ segir hún. Menningarfulltrúi heyrir undir Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar sem nú hefur feng- ið nýtt heiti, Markaðs-, atvinnu- og menningarskrifstofa. „Mér finnst ég vera á réttum stað og það var ákveðinn sigur að fá menninguna inn í heiti skrifstofunnar. Það þarf að vekja athygli á því að listirnar geta líka skilað atvinnu og tekjum, ef vel tekst til.“ Óþrjótandi verkefni Menningarfulltrúi minnist einnig á söfnin í Reykjanesbæ. Þar eru óþrjótandi verkefni að mati Val- gerðar. Hafin er endurbygging Duus-húsanna og fyrsti áfangi þeirra verður opnaður í vor með sýningu á bátaflota Gríms Karls- sonar. Hugmyndin er að koma þar einnig upp Poppminjasafni Íslands. Poppminjasafnið er í geymslu eins og er en það er eign Reykjanes- bæjar. Í því eru aðallega munir sem tengjast sögu popptónlistar á Suð- urnesjum en áhugi er á að halda áfram með söguna svo það standi undir nafni. Telur Valgerður að aðstaðan í Duus-húsunum muni skapa ný tæki- færi sem mikilvægt sé að nýta vel. Hlutverkið að kynna menninguna Reykjanesbær „ÉG þurfti að kynna mig og þetta nýja starf þegar ég var ráðin menn- ingarfulltrúi. Leit svo á að hlutverk mitt væri að kynna menningar- starfsemina í bænum en ekki finna hana upp,“ segir Valgerður Guð- mundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar. Hún hefur staðið fyrir kynningu á myndlist- armönnum bæjarins í heilt ár. Töluvert fjölbreytt menningar- og listalíf er í Reykjanesbæ. Kom það vel fram á Ljósanótt, menning- arhátíð Reykjanesbæjar, sem haldin var fyrir skömmu. Valgerður lýsir ánægju sinni með Ljósanóttina og vekur sérstaka athygli á því hvað menningaratriðin voru mörg og fjölbreytileg. „Þetta er að verða al- vöru menningarnótt hjá okkur. Við þurfum bara að hafa allt opið lengur næsta ár,“ segir hún. Valgerður var ráðin menningarfulltrúi Reykjanesbæjar 1. sept- ember í fyrra. Eitt af hennar fyrstu verk- efnum var að hefja um- rædda kynningu á myndlist og myndlist- armönnum. Einn af myndlistarmönnum bæj- arins kom fram með hugmynd sem þróaðist í þetta verkefni. Kynningin felst í því að mánaðarlega er valin mynd eftir einhvern af fjölmörgum myndlistarmönnum bæjarins og hengd upp í Kjarna við Hafnargötu ásamt kynningartexta á íslensku og ensku. Þar er myndin í mánuð og annan mánuð í Hótel Keflavík en ný mynd sett upp í Kjarna. Vill kynna tónlistina Valgerður kveðst ánægð með hvernig til hafi tekist með kynn- inguna. Myndlistin hafi orðið sýni- legri sem og einstakir listamenn og verkefnið hafi einnig orðið til að hressa upp á félagslíf myndlist- armanna. Hún vinnur að kynning- unni í samvinnu við Félag myndlist- armanna í Reykjanesbæ. Nú er að verða komið ár frá því kynningin hófst, ellefta myndin hangir uppi, og segist Valgerður vera að velta framhaldinu fyrir sér. Hún vildi gjarnan snúa sér að öðru, til dæmis að koma tónlistinni á framfæri næsta árið en tónlistarlíf væri einnig blómlegt í bænum, ekki síður en myndlistin. „Við val á listamönnum mánaðar- ins hef ég haft það að leiðarljósi að hópurinn væri sem breiðastur. Það skemmtilegasta við þetta er að ég næ aldrei að ljúka verkefninu, það kemur alltaf nýtt fólk til sögunnar og ég get haldið áfram endalaust. Ef til vill er þó ágætt að hvíla verkefnið Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Valgerður Guðmundsdóttir er að móta starf menningarfulltrúa. MYNDLISTAR- og ljósmynda- sýningar verða meðal dagskrár- atriða á Sandgerðisdögum, menningardögum Sandgerðinga, sem haldnir verða næstkomandi föstudag og laugardag, 14. og 15. september. Sandgerðisdagar hefjast á föstudagskvöld með opnun sýn- ingar á listaverkum frá Listasafni ASÍ og verkum heimamanna í nýjum sölum Fræðasetursins. Einnig verður ný heimasíða Sandgerðisbæjar opnuð og eitt- hvað til gamans gert. Aðalhátíðin er á laugardag. Þá verður dagskrá frá klukkan tíu um morguninn og fram á nótt. Meðal atriða er kraftakeppni á Vitatorgi þar sem tíu sterkustu menn landsins reyna með sér, meðal annars með því að draga slökkvibílinn. Um kvöldið verður skemmtidagskrá í Safnaðarheim- ilinu, við tekur brekkusöngur og flugeldasýning og dagskránni lýkur með dansleik. Á laugardag og sunnudag verður sýning á gömlum mynd- um úr öðru bindi af sögu Sand- gerðis sem til stendur að gefa út. Menning og skemmtun á Sandgerð- isdögum Sandgerði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.