Morgunblaðið - 11.09.2001, Page 20
LANDIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Acidophilus
FRÁ
Apótekin
Fyrir meltinguna og maga
með GMP gæðastimpli
100% nýting
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Gullsmiðir
Stutt tungumálanámskeið fyrir eldri borgara
Um er að ræða hnitmiðuð námskeið til að gera fólki kleift að bjarga sér á tilteknu tungumáli um það nauðsynleg-
asta sem snýr að ferðamanninum s.s. ferðalög, veitingahús, búðir og heilsugæsla. Kennt verður tvisvar í viku,
klukkutíma í senn í fimm vikur. Gert er ráð fyrir að nemendafjöldi á hverju námskeiði verði um 15.
Tungumálin sem unnt er að velja um eru franska, spænska og þýska.
Framburðarnámskeið í ensku
Námskeiðið er hentugt þeim sem telja mikilvægt að framburður þeirra sé sem áheyrilegastur og þeim sem þurfa að
halda ræður eða fyrirlestra t.d. á alþjóðlegum málþingum eða ráðstefnum. Takmarkaður nemendafjöldi.
Kennt verður tvisvar í viku, tvo klukkutíma í senn í tvær vikur.
Námskeið í stærðfræði fyrir foreldra grunnskólanema
Námskeiðið er ætlað foreldrum nemenda í 9. og 10. bekk grunnskólans.
Kennarinn Jóhann Ingólfsson, sem hefur bæði kennt í efstu bekkjum grunnskólans og m.a. byrjunaráfanga í
stærðfræði við MH.
Kennt verður tvisvar í viku, klukkutíma í senn í sex vikur.
Leiklist og handritaskrif
Rætt verður um gerð dramatískra leikverka fyrir svið eða kvikmynd.
Auk þekktra leikrita verður vísað til leikverka og kvikmynda sem verið er að sýna.
Kennari Þorvarður Helgason.
Kennt verður tvisvar í viku, klukkutíma í senn í sex vikur.
Esperantó
Kynningarnámskeið í þessu alþjóðlega hjálparmáli (svokölluðu planmáli), sem var búið til af Pólverjanum
L.L. Zamenhof. Esperanto er eina tungumálið sem tryggir jafnrétti viðmælenda sem eiga mismunandi móðurmál.
Kennari Baldur Ragnarsson.
Kennt verður tvisvar í viku, klukkutíma í senn í sex vikur.
Innritað er í síma 595 5200 mánudaginn 10. september til fimmtudagsins 13. september nk.
kl. 9.00–18.00 og föstudaginn 14. september frá kl. 9.00–15.00.
Gert er ráð fyrir að námskeiðsgjald sé greitt við innritun.
Er þetta ekki eitthvað fyrir þig?
Komdu þá í heimsókn á heimasíðu okkar! Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um þessi námskeið.
Slóðin er www. mh.is.
Rektor.
Öldungadeild Menntaskólans
við Hamrahlíð
FJÖLBREYTT TÓMSTUNDANÁMSKEIÐ!
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Hluti Hraunsréttar séð frá réttarhólnum.
Margt um manninn
í Hraunsrétt
RÉTTAÐ var í Hraunsrétt um
helgina og var þar fjöldi fólks sam-
an kominn. Féð var heldur færra en
vanalega þar sem illa viðraði
smaladagana auk þess sem ekki var
farið með jafnmargt fé í afréttina
sl. vor og undanfarin ár. Hrauns-
réttardagurinn er hátíðisdagur Að-
aldælinga og margra Þingeyinga
og hefur verið það í nær 170 ár, en
svo langt er síðan réttin var reist í
skjólgóðum hraunkrika ekki langt
frá bænum Hrauni.
Í réttinni mátti sjá marga Hús-
víkinga, Reykhverfinga, Reykdæl-
inga, Keldhverfinga og Tjörnes-
inga auk margra annarra gesta
langt að kominna. Allir höfðu gam-
an af og ekki spillti veðrið þar sem
norðanáttin var gengin niður og
komin hlý sunnangola.
Réttin er úr hraungrýti og á þeim
langa tíma sem réttin hefur staðið
hafa grjóthleðslur riðlast og und-
irstöður gefið sig þó svo að alltaf
hafi verið eitthvert viðhald. Því var
það að ráðist var í að endurgera
réttina á sl. sumri og byrjað að
skipta um undirlag og endurhlaða
veggi í nýrri mynd. Haldið var
áfram við framkvæmd þessa nú í
sumar og hafa nokkrir dilkar verið
gerðir upp á nýtt, en það var Har-
aldur Karlsson hleðslumaður og að-
stoðarfólk hans sem vann það verk.
Talið er að Hraunsrétt í Aðaldal
og Stafnrétt í Svartárdal hafi verið
stærstu réttir norðanlands, en
stærð almenningsins í Hraunsrétt
er 1.800 fermetrar og dilkar alls
5.432 fermetrar. Með fækkandi
sauðfé á síðari árum kemur mun
færra fé til Hraunsréttar og verði
réttin öll endurgerð, þá er gert ráð
fyrir því að minnka hana nokkuð
frá því sem áður var. Þjóðminjasafn
Íslands hefur lýst því yfir að gildi
Hraunsréttar sé mjög mikið út frá
sjónarhóli minjavörslunnar, en bú-
ast má við því að kostnaður við að
endurgera hana alla verði mikill.
Nokkrir hafa gefið peninga til
framkvæmdanna auk þess sem
Hraunsrétt var á fjárlögum síðasta
árs og fékk þar töluverðan styrk.
Halldór Blöndal forseti Alþingis
lét sig ekki vanta en hann hefur
verið tíður gestur á Hraunsrétt.
Hér er hann í góðum félagsskap
Guðnýjar Jónsdóttur Buch frá
Einarsstöðum í Reykjahverfi.
Laxamýri
Dregið hefur verið í dilka í Hraunsrétt í 170 ár.
Ein vatnslitamynda Kolbrúnar
Lilju í Eden.
KOLBRÚN Lilja Antonsdóttir
opnar myndlistarsýningu í Eden í
Hveragerði í dag, þriðjudag kl. 18.
Þetta er hennar fyrsta einkasýn-
ing og gefur þar að líta vatns-
litamyndir, náttúrustemmur sem
og ljóðrænar myndir.
Kolbrún Lilja útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands, kennaradeild, árið 1972 og
úr frjálsri myndlist, grafík, 1975.
Hún stundaði nám í skúlptúr við
listaháskólann Accademia Di Belle
Arte Roma á Ítalíu og útskrifaðist
þaðan 1982, auk þess hefur hún
sótt fjölda námskeiða. Hún hefur
starfað við myndlistarkennslu í
Vestmannaeyjum, Reykjavík og
Kópavogi.
Sýningin stendur til 24. sept-
ember.
Ljóðræn
stemmning
í Eden
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette