Morgunblaðið - 11.09.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 21
HÓTEL OG GISTIHEIMILIÐ
HÖFÐI ÓLAFSVÍK
Frábærar aðstæður fyrir
ráðstefnur, fundi og námskeið.
Sími 436 1650
netfang; hotel.hofdi@aknet.is - www.norad.is/hotelhofdi .
LÍNA.Net tapaði 269 milljónum
króna á fyrstu sex mánuðum árs-
ins. Í fréttatilkynningu segir að
rekstrarniðurstaðan sé í fullu
samræmi við áætlanir fyrirtæk-
isins. Rekstrartekjur fyrirtækis-
ins námu 279 milljónum króna á
fyrstu sex mánuðunum og
rekstrargjöld 248 milljónum.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nam því 31 milljón
króna. Afskriftir voru 96 millj-
ónir og fjármagnsgjöld 213 millj-
ónir vegna gengisbreytinga.
Tekjufærður er tekjuskattur upp
á 89 milljónir og gjaldfærð við-
skiptavild vegna kaupa á Lands-
neti hf. nemur 80 milljónum
króna. Án síðastnefndu liðanna
nemur tap Línu.Nets 278 millj-
ónum.
Í fréttatilkynningu kemur
fram að vinna við að setja upp
IP-símakerfi fyrir Landspítala –
háskólasjúkrahús er vel á veg
komin.
Tap Línu.Nets 269
milljónir króna
NORÐLENSKA, kjötvinnslufyrir-
tæki Kaupfélags Eyfirðinga, hefur
tekið í notkun nýja sölu- og dreif-
ingarmiðstöð í 750 fermetra hús-
næði í Vatnagörðum 6 í Reykjavík.
Þaðan verður séð um sölu fyrir
Norðlenska innanlands og erlend-
is, og alla vörudreifingu á höf-
uðborgarsvæðinu, Vesturlandi og
Suðurlandi. Starfsmenn í nýju
sölu- og dreifingarmiðstöðinni
verða 15 í sölu- og markaðsdeild
ásamt dreifingarstjóra.
Nýja húsnæðið er sérhannað til
dreifingar, en það var upprunalega
smíðað sem lager- og dreifingar-
hús. Fimm bílar annast útkeyrslu
á höfuðborgarsvæðinu, en Land-
flutningar sjá um dreifinguna út á
land.
Norðlenska opnar
dreifingarmiðstöð
FRANSKUR dómstóll hefur veitt
heimilistækjaframleiðandanum
Moulinex-Brandt greiðslustöðvun
en tilraunir stjórnenda Moulinex til
þess að endurfjármagna reksturinn
fóru út um þúfur. Þeir hafa sagt op-
inberlega að farið verði fram á að
félagið verði tekið til gjaldþrota-
skipta.
Hörð samkeppni og mikil skulda-
súpa urðu Moulinex að falli og nema
heildarskuldir félagsins nær sjötíu
milljörðum króna. Starfsmenn fé-
lagsins eru um tuttugu þúsund tals-
ins en áður hafði félagið sagt upp
fjögur þúsund starfsmönnum og
gripið til harkalegra aðhaldsaðgerða
en þær báru ekki árangur.
Síðustu tíu árin hefur Moulinex
aðeins tvisvar sinnum verið rekið
með hagnaði. Sameining Moulinex
við þýska félagið Brandt virðist
heldur ekki hafa bætt stöðuna.
Fyrstu Moulinex heimilistækin
komu á markað árið 1932 og gekk
rekstur félagsins lengi mjög vel.
Moulinex veitt
greiðslustöðvun
París. AFP.
SPARISJÓÐUR Kópavogs var rek-
inn með 14,4 milljóna króna hagnaði
á fyrri hluta ársins 2001, að teknu til-
liti til reiknaðra skatta. Til saman-
burðar var hagnaðurinn rúmar 18
milljónir króna á sama tímabili árið
áður.
Heildarinnlán og útgefin verðbréf
voru samtals 6.402 milljónir og juk-
ust um 13,9% frá áramótum en heild-
arútlán voru 6.523 milljónir, 8,1%
hærri en um áramót. Hreinar rekstr-
artekjur í lok júní 2001 námu 242,1
milljón króna og hafa hækkað um
27,3 milljónir króna á milli ára.
Önnur rekstrargjöld hafa hækkað
um 23,5 milljónir króna frá júní 2000
og framlag í afskriftareikning hefur
hækkað um 4,8 milljónir króna á
milli ára en framlagið sem hlutfall af
útlánum er 3,9%. Skuldir sparisjóðs-
ins jukust um 11% frá áramótum og
eru nú tæpar 7.782 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-
reglum var 12,8% þann 30. júní 2001
en var 15,3% um síðustu áramót.
Hagnaður sparisjóðsins var heldur
minni en áætlanir gerðu ráð fyrir en
helsta skýringin á því er tap af veltu-
bók og minni tekjur af hlutdeildar-
félögum, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Áætlun gerir ráð fyrir hlutfalls-
lega betri afkomu á seinni sex mán-
uðum ársins.
Hagnaður hjá Sparisjóði Kópa-
vogs dregst saman milli ára