Morgunblaðið - 11.09.2001, Page 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 27
Innritun stendur nú yfir í
síma 588-3730, eða í skólan-
um að Síðumúla
17. Fjölbreytt nám
fyrir alla aldurs-
flokka er í boði, bæði fyrir
byrjendur og þá sem kunna
eitthvað fyrir sér.
Innritun er dag-
lega kl. 14-17.
Sendum vandaðan
upplýsingabækling
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
588-3730
HÆGT AÐ FÁ LEIGÐA
HEIMAGÍTARA
KR. 2500 Á ÖNN
FYRRVERANDI leiðtogi herfor-
ingjastjórnar í Nígeríu, Yakubu
Gowon, hafði í gær milligöngu um
viðræður milli hópa múslíma og
kristinna íbúa borgarinnar Jos þar
sem mannskæð átök geisuðu um
helgina. Að sögn borgarbúa er talið
að rúmlega 100 manns hafi beðið
bana í átökunum frá því á föstu-
dagskvöld.
Yfirvöld vildu ekki skýra frá tölu
látinna þar sem þau óttast að slíkar
upplýsingar geti magnað átökin.
Blóðsúthellingarnar hófust á
föstudagskvöld vegna deilu sem
blossaði upp þegar kristin kona
reyndi að ganga yfir götu við mosku
þar sem múslímskir karlmenn höfðu
safnast saman. Mikil ólga hefur ver-
ið í Jos síðustu vikur eftir að músl-
ími var skipaður formaður opinberr-
ar nefndar sem á að berjast gegn
fátækt í borginni. Meirihluti borg-
arbúa er kristinnar trúar.
Mikil spenna hefur verið milli
múslíma og kristinna í Nígeríu frá
því að íslömsk lög voru tekin upp í
flestum ríkjum norðurhlutans þar
sem múslímar eru í meirihluta. Tal-
ið er að allt að 3.000 manns hafi látið
lífið í óeirðum milli múslíma og
kristinna í einu ríkjanna, Kaduna, í
febrúar í fyrra og 450 manns í
hefndarárásum í suðausturhluta
Nígeríu nokkrum dögum síðar.
Til átaka kom öðru hverju í Jos í
gær þótt herinn væri með mikinn
viðbúnað í borginni. Hermt er að
kveikt hafi verið í húsum og hundr-
uðum bíla í átökunum. Um 6.000
skelfingu lostnir borgarbúar leituðu
skjóls í höfuðstöðvum lögreglunnar.
Yakubu Gowon, sem stjórnaði
Nígeríu í Biafra-stríðinu 1967-70
eftir valdarán hersins 1966, hóf í
gær viðræður við ýmsa leiðtoga
múslíma og kristinna í Jos til að
reyna að binda enda á blóðsúthell-
ingarnar. Múslímskir og kristnir
trúarleiðtogar hvöttu í útvarpi einn-
ig til friðar.
Mannskæð átök milli múslíma og kristinna í Nígeríu
Reynt að binda enda
á blóðsúthellingarnar
Jos. AP, AFP.
!
"#
$ #
% & ' ( &
)*(+%
,(%&%
%&'(
" #
$ %
-./
FYRRVERANDI öryggis-
vörður í Sacramento í Kali-
forníu, sem lögreglan leit-
aði að vegna morða á fimm
mönnum, svipti sig lífi í
fyrrinótt eftir skotbardaga
við lögregluna. Um er að
ræða önnur fjöldamorðin í
Sacramento á aðeins þrem-
ur vikum.
Talsmenn lögreglunnar
segja, að Joseph Ferguson,
sem var tvítugur að aldri,
hafi byrjað morðæðið að-
faranótt laugardagsins.
Var hann þá augljóslega að
hefna þess, að vinkona
hans hafði sagt skilið við
hann og honum verið sagt
upp störfum hjá öryggis-
gæslufyrirtækinu Burns
Security viku áður.
Þá um nóttina myrti
Ferguson fjórar manneskj-
ur, þar af þrjá fyrrverandi
samstarfsmenn sína hjá
Burns. Þær voru Nina
Susu, vinkonan, sem hafði
sagt honum upp, og önnur kona,
sem ekki hafði verið nafngreind.
Fundust þær látnar í birgðastöð á
vegum borgarinnar eftir að lög-
reglan hafði verið kvödd á vettvang
vegna skothvella. Hafði hann þá að
auki handjárnað konu og starfs-
mann hjá Burns í dýragarði borg-
arinnar og flúið burt á bílnum
hennar. Skömmu síðar fundust
tveir menn myrtir í smábátahöfn,
George Bernardino, öryggisvörður
hjá Burns, og John Derek Glim-
stad, starfsmaður hafnarinnar.
Vildi drepa fleiri en Soltys
Fimmta manninn, yfirmann hjá
Burns, myrti Ferguson aðfaranótt
sunnudagsins en áður hafði hann
haldið honum og konu hans í gísl-
ingu í hálfan sólarhring. Flýði
hann síðan burt með lögregluna á
hælunum en eftir 40 mínútna elt-
ingarleik um eitt úthverfi borgar-
innar beindi hann byssunni að
sjálfum sér. Áður hafði hann skotið
á og sært lögreglumann og vegfar-
anda. Fyrir aðeins þremur vikum
varð úkraínskur innflytjandi, Nik-
olay Soltys, sex manns að bana,
þar á meðal konu sinni og syni.
Náðist hann eftir nokkurra daga
leit.
Talsmaður lögreglunnar í Sacra-
mento segir, að Ferguson hafi
hringt í kunningja sína meðan á
morðæðinu stóð og sagt þeim, að
hann ætlaði sér að fremja glæp,
sem væri enn hryllilegri en Soltys.
Joseph Ferguson bjó með föður
sínum og hafði ekki komist í kast
við lögin áður. Var hann vel vopn-
aður er hann myrti fólkið en við
leit á heimili hans fundust auk þess
tvær haglabyssur, tveir árásarriffl-
ar, tvær skammbyssur og fleira
tengt vopnaburði. Þar fundust líka
áróðursbæklingar frá samtökum
kynþáttahatara og talið er hugs-
anlegt, að þau mál hafi eitthvað
komið við sögu í morðæði Fergu-
sons. Einn mannanna, sem hann
myrti, var blökkumaður og annar
af asískum ættum.
Önnur fjöldamorðin í Sacramento
á aðeins þremur vikum
Kona og ættingi eins þeirra, sem féllu í
morðæði Fergusons, á tali við lögregluna.
Myrti fimm
manns og skaut
síðan sjálfan sig
Sacramento. AP.
AP
BRESKI stórmeistarinn Nigel Short kveðst
sannfærður um að skáksnillingurinn sér-
lundaði, Bobby Fischer, sé tekinn að tefla á
ný – á Netinu.
Short segir í grein í The Sunday Tele-
graph um helgina að hann sé mjög spennt-
ur sökum þessa. „Ég er 99% viss um að ég
hef verið að tefla við lifandi goðsögn í skák-
heiminum,“ sagði Short.
Fischer, sem er Bandaríkjamaður, sigr-
aði rússneska stórmeistarann Borís Spass-
kíj í heimsmeistaraeinvíginu í Reykjavík ár-
ið 1972. Hann þótti jafnan sérvitur og
undarlegur í framgöngu og fór svo að hann
sagði skilið við skákheiminn allt til ársins
1992 þegar hann telfldi á ný einvígi við
Spasskíj í Júgóslavíu. Fischer vann þá við-
ureign en hvarf á ný eftir að stjórnvöld í
Bandaríkjunum höfðu sakað hann um að
brjóta gegn samskiptabanni því, sem þá var
í gildi gagnvart Júgóslavíu.
Frá því þetta gerðist hefur Fischer ekki
sést opinberlega. Vitað var að hann átti
unnustu í Ungverjalandi og er talið að hann
hafi dvalist þar um tíma, hið minnsta. Í
Sunday Telegraph er þeim möguleika velt
upp að hann búi nú í Japan. Short segist
Fischer á Netinu?Breski stórmeistarinn NigelShort kveðst sannfærður um
að skáksnillingurinn Bobby
Fischer hafi gjörsigrað hann
í hraðskák á Netinu.
ekki vita hvar Fischer heldur sig.
Að sögn Shorts tóku þær sögusagnir að
ganga í fyrra að Fischer væri að tefla á
Netinu. Hefði hann verið á ferðinni á vef-
setrinu Internet Chess Club og teflt þar
snarpar skákir með þriggja mínútna um-
hugsunartíma. Short segist hafa tekið þess-
um sögusögnum með fyrirvara og hafi litlu
breytt þegar vinur hans, gríski stórmeist-
arinn Ioannis Papaioannou, hélt því fram
að hann hefði mætt Fischer á Netinu. „Ég
skellti upp úr – gat ekki annað – líkt og vin-
ur minn hefði sagt mér að hann hefði séð
Loch Ness-skrímslið,“ segir Short.
Nokkrum vikum síðar kom óþekktur
maður að máli við Short og sagðist vera
fulltrúi „mjög sterks skákmanns“, sem vildi
að „nafnleyndar yrði gætt“. Milligöngumað-
urinn lét Short fá aðgangsorð og ákveðið
var að hann og huldumaðurinn myndu tefla
á Netinu á tilteknum tíma. „Ég taldi að
milligöngumaðurinn væri ábyggilega að
blekkja mig en ég ákvað að láta slag standa
ef svo skyldi fara að mér auðnaðist að mæta
Loch Ness-skrímsli skákheimsins,“ segir
Short. Þegar stundin rann upp bað dul-
arfulli skákmaðurinn Short að skrá sig sem
gest til að tryggja að enginn vissi að þar
væri sjálfur Short á ferðinni. Þeir tefldu
síðan átta þriggja mínútna skákir.
Dularfulli skákmeistarinn gjörsigraði
Short.
Short segir í grein sinni að hann hafi
aldrei spurt andstæðing sinn hvort þar færi
Bobby Fischer. Hann segist hins vegar hafa
spurt ýmissa spurninga og svörin hafi verið
á þann veg að þau hafi aðeins getað komið
frá Fischer. „Þessi maður þekkti greinilega
vel til skákheimsins á sjöunda áratugnum,
hann var kurteis, bráðfyndinn og greini-
lega Bandaríkjamaður.“
Short segist sannfærður um að hann hafi
teflt við Bobby Fischer og kveðst ætíð
munu hafa þessar hraðskákir þeirra í há-
vegum. „Í mínum huga líkjast þessar skákir
því sem áður óþekkt sinfónía eftir Mozart
væri fyrir áhugamenn um klassíska tón-
list,“ segir Short.
London. AP.
Bobby Fischer (t.h.) teflir við Boris Spassky í Júgóslavíu árið 1992.