Morgunblaðið - 11.09.2001, Qupperneq 28
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STARFSÁR Sinfóníuhljómsveitar
Íslands hefst með tónleikum í Há-
skólabíói á fimmtudaginn; 13. sept-
ember. Hljómsveitarstjóri hefur
ekki verið ráðinn í stað Ricos Sacc-
anis sem lét af störfum í vor, fyrr en
ætlað var, en að sögn Þrastar Ólafs-
sonar framkvæmdastjóra hljóm-
sveitarinnar og Helgu Hauksdóttur
tónleikastjóra, verður unnið að því í
vetur að finna nýjan aðalstjórn-
anda. Ljóst er að Rico Saccani kem-
ur ekki til að stjórna kveðju-
tónleikum með verkum eftir
Tsjaíkovskíj eins og frá var greint í
vor. Hljómsveitarstjórinn Alexand-
er Anissimov kemur þrívegis til að
stjórna hljómsveitinni í vetur, en
tónleikagestir muna nafn hans frá
því í fyrra, er hann kom með stutt-
um fyrirvara hingað til lands til að
stjórna uppfærslu Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar á Carmen í forföllum
Saccanis. Meðal annarra hljóm-
sveitarstjóra sem verða við stjórn-
völinn í vetur eru þekktir menn eins
og Philippe Entremont, Gregor
Bühl og Rumon Gamba, og gamlir
kunningjar hljómsveitarinnar
Jerzy Maksymiuk, Diego Masson,
Petri Sakari og Peter Guth sem
stjórnar Vínartónleikum.
Íslenskir einleikarar í öndvegi
Áhersla er lögð á íslenska ein-
leikara og einsöngvara, og meðal
þeirra verða Ásdís Valdimarsdóttir,
Bryndís Halla Gylfadóttir, Sigurður
I. Snorrason, Guðný Guðmunds-
dóttir, Steef van Oosterhout, Hanna
Dóra Sturludóttir og Vormenn Ís-
lands, eins og Þröstur kallar þá Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson, Ólaf
Kjartan Sigurðarson og Jón Rúnar
Arason, en þeir koma fram á óp-
erutónleikum sveitarinnar í febr-
úar. Tvennir tónleikar verða til-
einkaðir verkum Tsjaíkovskíjs og
einir tónleikar hvorum um sig Moz-
art og Brahms.
Eflaust mun mörgum þykja
spennandi að heyra aftur í Kroum-
ata slagverkssveitinni sem leikur á
tónleikum hljómsveitarinnar í nóv-
ember, en mörgum er enn í fersku
minni frábærir tónleikar Kroumata
í óperunni fyrir nokkrum árum.
Karlakórarnir tveir, Fóstbræður og
Karlakór Reykjavíkur, munu báðir
syngja með hljómsveitinni í vetur;
Karlakór Reykjavíkur á afmæl-
istónleikum nú í haust og Fóst-
bræður í janúar.
Quarashi, Botnleðja,
Björk og Queen
Tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands er enn skipt í fjórar raðir;
gul og rauð röð einkennast af sí-
gildum hljómsveitarverkum, meðan
græna röðin er sem fyrr tengd létt-
ari músík; óperettu- og óp-
erumúsík, vinsælustu verkum klass-
íkurinnar. Þar verða einnig
tónleikar með verkum hljómsveit-
arinnar Queen í flutningi West End-
hópsins, sem áður hefur glatt gesti
hljómsveitarinnar.
En Queen er ekki það nýjasta og
frumlegasta sem hljómsveitin býð-
ur upp á í vetur, því verið er að und-
irbúa tónleika þar sem hljómsveit-
irnar Quarashi og Botnleðja leika
með hljómsveitinni. „Þeir verða
ekki settir í kjól og hvítt,“ segir
Helga Hauksdóttir sem hefur haft
veg og vanda af undirbúningi þess-
ara tónleika. En stærsta nýmælið í
dagskrá hljómsveitarinnar í vetur
verða líkast til tónleikar hljómsveit-
arinnar með Björk. Að sögn Þrast-
ar Ólafssonar er enn verið að semja
um þetta og ekki fullreynt hvort af
þessu geti orðið, en vonir standi þó
til að innan hálfs mánaðar verði bú-
ið að ganga frá samningi um tvenna
tónleika Bjarkar með hljómsveit-
inni rétt fyrir jól. Ekki er ljóst hvar
tónleikarnir gætu orðið, en verið er
að vinna í því að finna hentugan
tónleikastað. Þá rennur enn upp
umræðan um Tónlistarhús, og brýn
þörf fyrir að það rísi sem fyrst, og
eru Helga og Þröstur sammála um
að það mál þoli enga bið.
Fimm íslensk verk
á áskriftartónleikum
Íslensk tónlist, önnur en sú sem
Botnleðja, Quarashi og Björk
skapa, er á dagskrá í öllum röðum
nema þeirri grænu. Í gulu röðinni
verða flutt verkin Sjöstrengjaljóð
eftir Jón Ásgeirsson og Norðurljós
eftir Pál Pampichler Pálsson; í
rauðu röðinni verður flutt sinfónían
Hyr eftir Áskel Másson, en verkið
er þriðji hluti stórrar sinfónískrar
trílógíu Áskels. Í bláu röðinni verða
flutt verkin Punktar eftir Magnús
Bl. Jóhannsson og De amore eftir
Finn Torfa Stefánsson, en það verk
er komið í tólf verka úrslit í Mast-
erprize tónsmíðakeppninni í Eng-
landi, og er sjálfstæður þáttur úr
sinfónísku verki.
Eitt norrænt verk er á dagskrá
hljómsveitarinnar í vetur; Fiðlu-
konsert Síbelíusar, þar sem Guðný
Guðmundsdóttir verður einleikari.
Þröstur og Helga segja þó að í ná-
inni framtíð sé stefnt að því að
fjölga bæði norrænum verkum á
efnisskránni sem og erlendum sam-
tímaverkum, en í vetur fá unnendur
þeirra eitthvað fyrir sinn snúð 1.
nóvember þegar verk eftir Tan Dun
og Toru Takemitsu hljóma með
verki Finns Torfa.
Hljómsveitin ferðast
um Austfirði
Þröstur og Helga segja að með
þátttöku Botnleðju og Quarashi í
tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
arinnar sé markvisst verið að höfða
til yngri hlustendahóps, í þeirri von
að smám saman skili nýjar kyn-
slóðir sér á almenna tónleika hljóm-
sveitarinnar. En sú vinna hefur þó
lengi staðið og stendur enn, því í
vetur jafnt sem liðin ár verður
skólafólki allt niður í leikskólabörn
boðið að koma í Háskólabíó og
hlusta á hljómsveitina. Stefnan
verður einnig tekin á landsbyggð-
ina, því í vetur verða Austfirðir
heimsóttir, og tónleikar haldnir á
Vopnafirði, Egilsstöðum, Neskaup-
stað, Djúpavogi og Höfn í Horna-
firði. Tvennir skólatónleikar verða
einnig í Austfjarðaferðinni, á
Vopnafirði og á Egilsstöðum. Þar
verður Guðni Franzson með hljóm-
sveitinni og flutt verður Ástarsaga
úr fjöllunum eftir hann sjálfan og
Guðrúnu Helgadóttur. Á Höfn í
Hornafirði bætist þriðji karlakór-
inn í söngvaralista hljómsveit-
arinnar í vetur, því þar ætlar Karla-
kórinn Jökull að stíga á svið með
hljómsveitinni.
Tónleikar utan hefðbundinna
tónleikaraða verða þónokkrir í vet-
ur, en tvímælalaust má segja að þar
veki mesta athygli þátttaka Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í Íslands-
frumflutningi á Hollendingnum
fljúgandi í samvinnu við Listahátíð í
Reykjavík og Íslensku óperuna í
vor, en ópera eftir Wagner hefur
ekki verið flutt hér áður í heild
sinni. Konsertmeistarar hljómsveit-
arinnar í vetur verða Guðný Guð-
mundsdóttir og Sigrún Eðvalds-
dóttir.
Fjölbreyttir tónleikar framundan hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á komandi starfsári
Unnið að tónleik-
um með Björk
ÞÓTT liðin sé hartnær hálf önnur
öld frá því að Gunnar Wennerberg
samdi Glúntana virðast þeir enn
höfða til fólks á öllum aldri. Á seinni
Glúntatónleikum í Salnum var pakk-
fullt hús og rífandi stemmning, og
auðheyrt að margir biðu þess
spenntir að rifja upp kynnin af þess-
um ástsælu söngvum. En hvers
vegna lifir svo glatt í sænskum stúd-
entasöngvum frá nítjándu öld, þegar
svo margt hefur breyst og heimur-
inn er orðinn allt annar? Gunnar
Wennerberg samdi sjálfur textana
að Glúntunum, og tókst vel upp. Þar
lýsir hann lífi stúdentanna, gleði og
sorgum, mistökum, breyskleika,
löngunum og þrám. Það er sá mann-
legi tónn sem þar er sleginn sem
vafalítið hefur átt sinn þátt í vin-
sældum verksins. Snilldarþýðing
Egils Bjarnasonar er heldur ekki til
að skemma fyrir; því textar hans eru
liprir og léttir og fanga andrúmsloft
og innihald ljóða Wennerbergs af-
skaplega vel. Lögin sjálf eru líka
sérdeilis ljúf og elskuleg, og sú stað-
reynd að þau eru samin fyrir tvær
karlaraddir hafa gert þau spennandi
viðfangsefni karlsöngvara víða á
Norðurlöndum. Þetta er eina verk
Wennerbergs sem lifað hefur minn-
ingu hans, og seinni tíma tilraunir
hans við smíðar kirkjutónlistar eru
flestum gleymdar.
Bergþór Pálsson og Ólafur Kjart-
an Sigurðarson eru sem sniðnir í
hlutverk Magistersins og Glúntsins.
Þessir félagar í blíðu og stríðu voru
ljóslifandi í túlkun þeirra. Þeir völdu
að flytja verkið á leikrænan hátt;
ferðuðust um sviðið og gerðu tals-
vert hvor úr sínum karakter. Lýsing
var notuð til að skapa stemmningu
og andblæ dags og nætur og styrkti
það heildarsvip þessarar leikrænu
útfærslu. Bergþór og Ólafur Kjart-
an voru klæddir í viðeigandi föt –
skyrtur og vesti sem verið gætu frá
19. öld. Jónas Ingimundarson var
bara Jónas, en var engu að síður
þátttakandi í framvindu verksins –
sem píanóleikari vitaskuld en einnig
sem þriðji maðurinn; kannski pró-
fessorinn, þriðji stúdentinn, eða
bara hver sem er. Hann skipti sér af
framvindunni þegar við átti með
söng og sprelli. Það er ekki að orð-
lengja það að flutningur þremenn-
inganna á Glúntunum var skemmti-
legur og snilldarvel útfærður, þar
sem gleði og húmor réðu ferð. Í leik-
rænum tilburðum var engu ofgert,
og í tónlistarflutningnum var engu
ábótavant. Söngur Bergþórs og
Ólafs Kjartans var feiknargóður og
raddir þeirra féllu vel saman. Píanó-
leikur Jónasar á nýja flygilinn í
Salnum var skínandi og fylgdi
söngvurunum vel. Kvöldstemmning
og Næturgöltur í Eiríksgötu voru
feiknarvel flutt lög, og Misheppn-
aður ástaróður var glimrandi fínn
þar sem Don Giovanni bauð sjálfan
sig velkominn, þar til Jónas rak
hann af sviðinu. Bergþór átti frá-
bært sóló í Ástarsorgum Magisters-
ins, en stærsta og jafnframt besta
atriðið var Próffagnaður í Eikilundi,
þar sem þeir félagar fóru á kostum í
söng og leik. Dúettinn sem hér á
landi hefur fest sig í sessi sem
sálmalag var frábærlega sunginn,
sömuleiðis söngurinn um Hallar-
klukkuna. Björt barítonrödd Berg-
þórs var hrífandi í Saknaðaróði
Magistersins. Töfrar Bergþórs fel-
ast ekki síst í því hve auðvelt hann á
með að ná fólki með einstaklega góð-
um og skiljanlegum framburði og
miklum sjarma. Það sama á við um
Ólaf Kjartan, hann hefur ekki eins
skýra framsögn og Bergþór, en rödd
hans er hlý og sérstaklega falleg og
persónutöfrar hans á sviðinu miklir.
Eftir tvenna tónleika í fullu húsi
hlýtur að vera ástæða til að þeir fé-
lagar flytji Glúntana oftar og gefi
fleirum tækifæri til að heyra og sjá
þessa skemmtilegu útfærslu þeirra
á verkinu. Það var klapp og stapp í
Salnum eftir flutninginn og vafalítið
hafa margir átt hjartnæma og
ánægjulega endurfundi við Glúnt-
ana.
Gamlir kunningjar
gleðja á nýjan leik
TÓNLIST
S a l u r i n n
Bergþór Pálsson baríton, Ólafur
Kjartan Sigurðarson bassi og Jónas
Ingimundarson píanóleikari fluttu
Glúntana eftir Gunnar Wennerberg
í íslenskri þýðingu Egils Bjarnason-
ar. Sunnudag kl. 20.
SÖNGTÓNLEIKAR
Bergþóra Jónsdótt ir
FLYTJENDUR á September-
tónleikaröð í Selfosskirkju í
kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20.30, eru Margrét Bóasdóttir,
sópran, Sig-
urður Hall-
dórsson, selló
og Björn Stein-
ar Sólbergs-
son, orgel.
Á efnisskrá
þeirra er ein-
göngu íslensk
tónlist; frum-
fluttar verða
útsetningar á fornum sálmalög-
um eftir Elínu Gunnlaugsdótt-
ur og Mist Þorkelsdóttur, einn-
ig flytja þau útsetningar eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson
og ,,Lysting er sæt að söng“,
fyrir sópran og selló eftir
Snorra Sigfús Birgisson. Björn
Steinar Sólbergsson leikur
Rímnadansa eftir Jón Leifs og
tilbrigði um þjóðlagið Kvölda
tekur sest er sól, í eigin umrit-
un fyrir orgel.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Íslensk
tónlist í
Selfoss-
kirkju
Margrét
Bóasdóttir
SÖNGVARARNIR Bergþór Páls-
son og Ólafur Kjartan Sigurðarson
og Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari endurflytja Glúntana eftir Gunn-
ar Wennerberg í Salnum þriðjudag-
inn 25. september kl. 20.
Meiri Glúntar