Morgunblaðið - 11.09.2001, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 11.09.2001, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Utanríkisráðuneytinu bár-ust síðdegis í gær frekariupplýsingar um fyrir-hugaðar æfingar rúss- neska flughersins á Norður-Atlants- hafi, en ráðgert er að æfingarnar hefjist á morgun. Stefán Skjaldar- son, skrifstofustjóri Alþjóðaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins, segist vonast eftir að alþjóðleg flugumferð á íslenska flugumferðarsvæðinu geti að mestu leyti verið með eðlilegum hætti meðan á æfingunum stendur, en til þess að svo megi verða þurfi að koma á eðlilegum samskiptum milli þeirra sem stjórna alþjóðlegri flug- umferð og þeirra sem stjórna her- æfingunum. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði að utanríkisráðuneytið hefði verið í sambandi við rússnesk stjórnvöld í gær vegna málsins. „Þeir lofuðu okkur frekari upplýs- ingum og reikna með að það verði til þess að ekki verði um verulegar truflanir á borgaralegu flugi. Við er- um ánægðir með viðbrögð rúss- neska sendiráðsins. Við teljum að þar hafi verið unnið mjög gott starf. Ég vænti þess að þetta verði til þess að koma þessum samskiptum í góð- an farveg í framtíðinni enda höfum við átt mjög vinsamleg samskipti við Rússa mjög lengi.“ Halldór sagði að upphafleg til- kynning Rússa, sem barst utanrík- isráðuneytinu sl. laugardag, hefði verið ófullnægjandi og því hefði ekki verið um annað að ræða fyrir íslensk flugmálayfirvöld en að loka svæðinu fyrir borgaralegri flugumferð. „Við teljum að það sé ekki hægt að standa að málum með þessum hætti. Mér sýnist að Rússar fallist á að það sé óþarfi að gera það með þeim hætti að til slíks þurfi að koma. Ég held að við verðum að læra af þessu og standa öðruvísi að málum í framtíðinni. Við viðurkennum þeirra rétt til að stunda æfingar en förum aðeins fram á að það sé gert með þeim hætti að við getum búið við það og flugsamgöngur yfir Ísland geti verið með eðlilegum hætti,“ sagði Halldór. Tilkynning um æfingarnar barst á laugardag Utanríkisráðuneytið fékk upplýs- ingar á laugardagsmorgun frá rúss- neska sendiráðinu í Reykjavík um að rússneski flugherinn myndi standa fyrir æfingum með flug- skeyti yfir Norður-Atlantshafi dag- ana 10.–15. september frá kl. 2 á nóttunni til kl. 15 síðdegis alla dag- ana. Í orðsendingunni var æfinga- svæðið tilgreint en ekkert kemur fram nánar um hvar og hvenær flug- vélarnar ætluðu að athafna sig. Þar sem fyrirhugaðar æfingar áttu að taka til stórs hluta íslenska flug- stjórnarsvæðisins óskaði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra eftir fundi með sendiherra Rússlands á Íslandi til að fá nánari upplýsingar um æfingarnar og lýsa áhyggjum „vegna alvarlegra afleiðinga æfing- arinnar á farþegaflug“ eins og segir í fréttatilkynningu utanríkisráðu- neytisins. Stanislav E. Pokrovsky, stað- gengill sendiherrans, ræddi þessi mál við utanríkisráðherra á sunnu- dag og kom áhyggjum íslenskra stjórnvalda áfram til Rússlands. Norsk og kanadísk stjórnvöld höfðu einnig gert athugasendir við flugið. Utanríkisráðuneytið og íslensk flugmálayfirvöld voru í sambandi við flugmálayfirvöld í Noregi og Kanada og Alþjóðaflugmálastofn- unina vegna málsins um helgina. Halldór sagði að flugmálayfirvöld í Kanada og Noregi hefðu metið málið með sama hætti og Íslend- ingar, þ.e. að nauðsynlegt væri að Rússar gæfu upp meiri upplýsingar um æfingarnar því annars væri ör- yggi farþegaflugs stefnt í hættu. Flugmálayfirvöld lokuðu svæðinu í fyrrakvöld Utanríkisráðherra óskaði eins og áður segir eftir nánari upplýsing- um frá Rússum áður en æfingarnar hæfust. Þegar engin svör höfðu borist frá Rússum síðdegis á sunnudag tóku íslensk flugmálayf- irvöld ákvörðun um að loka þeim hluta íslenska flugumsjónarsvæðis- ins þar sem Rússar höfðu tilkynnt um að þeir yrðu með flugheræfing- ar. Kanadísk flugmálayfirvöld tóku einnig sams konar ákvörðun, en Norðmenn höfðu hins vegar ekki lokað sínu svæði þegar ákvörðun Íslands var tilkynnt flugrekendum. Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, sagði að viðbrögð Rússa við at- hugasemdum íslenskra stjórnvalda hefðu ekki gefið tilefni til annars en að loka svæðinu af öryggisástæð- um. Ekki hefðu fengist upplýsingar um hvar eða hvenær á svæðinu æf- ingarnar yrðu í hvert sinn svo hægt væri að beina flugvélum frá þeim blettum. Um tveimur tímum eftir að ákveðið hafi verið að loka svæðinu barst utanríkisráðuneytinu til- kynning frá Rússum um að æfing- um rússneska flughersins hefði verið frestað um tvo daga. Eftir að Flugmálastjórn ákvað að loka fyrir flugumferð á æfings- væðinu á íslenska flugstjórnar- svæðinu, gerðu flugáætlanir flestra flugvéla sem ætluðu yfir svæðið um nóttina ráð fyrir að fljúga suður fyrir æfingasvæðið. Nokkrar flug- vélar ætluðu hins vegar að fljúga undir æfingasvæðið í eða undir 19 þúsund fetum. Heimir Már sagði að undanfarn- ar þrjár nætur hefði umferð um ís- lenska flugstjórnarsvæðið verið 150–190 flugvélar. Seinnipartinn á sunnudag höfðu hins vegar aðeins 62 flugvélar boðað komu sína um svæðið. Vegna þess að hætt var við að loka flugumferð um æfingar- svæðið urðu flugvélarnar heldur fleiri eða um 90. Hann sagði að Flugmálastjórn hefði óskað eftir að farið væri eftir þeim leiðbeiningum sem Alþjóðaflugmálastofnu ur gefið út um samskipt tengslum við heræfingar mætti koma í veg fyrir að truflaði almannaflug yfir hafið. Var ekki um anna að ræða en loka svæ Benedikt Jónsson, se Íslands í Rússlandi, átt í g með yfirmanni Evrópudeil neska utanríkisráðun Hann sagði að þetta he góður fundur og Rússa komið vel undirbúnir til ha sagðist hafa komið svörun lenska utanríkisráðuneytis „Æfingin átti að fara mjög stóru svæði. Í uppha kynningu rússneska send var ekkert skilgreint hvar f myndu vera á hverjum sta Af öryggisástæðum var annað að ræða en að loka þjóðlega flugumferð um Það er að sjálfsögðu mjög aðgerð en um annað var ræða þar sem upplýsingar sagði Stefán Skjaldarson stofustjóri Alþjóðaskrifsto ríkisráðuneytisins. Stefán tók fram að íslens ríkisráðuneytið væri ekk fengja rétt Rússa til að v æfingar á þessu svæði, en u æfingar giltu ákveðnar reg „Í sáttmála Alþjóðaf stofnunarinnar, sem Rússa ilar að, er gert ráð fyrir að verði um heræfingar með fyrirvara og það er einnig Umfangsmiklar æfingar rússneska flug Rússar gáfu lýsingar um Íslensk stjórnvöld hafa lýst óánægju sinni með hvernig Rússar stóðu að tilkynningu um fyrirhugaða æfingu rússneska flughersins á N-Atlantshafi. Rússar gáfu síðdegis í gær frekari upplýsingar um æfingarnar sem eiga að hefjast á morgun. Egill Ólafsson ræddi við málsaðila um æfingarnar. Á sama tíma og Rússar t '  6 '   GLÆSILEGUR ÁRANGUR EN DAPURLEG AUGLÝSING HERÆFINGAR RÚSSA Flugheræfingar Rússa yfir haf-svæðinu umhverfis Ísland, semeiga að hefjast aðfaranótt mið- vikudags, hafa komið stjórnvöldum í ríkjunum við Norður-Atlantshaf veru- lega á óvart. Upphaflega var áformað að æfingarnar hæfust í gær, en íslenzk stjórnvöld fengu fyrst tilkynningu um þær á laugardag. Allar nánari upplýs- ingar um umfang og tilhögun æfing- anna skorti þá og taldi Flugmálastjórn ekki á annað hættandi en að loka þeim hluta íslenzka flugstjórnarsvæðisins, sem heræfingarnar eiga að ná til, á meðan á þeim stendur. Slíkt veldur óhjákvæmilega röskun á almennu far- þegaflugi, bæði til og frá Íslandi og yf- ir Atlantshafið milli meginlands Evr- ópu og Ameríku. Eftir að stjórnvöld á Íslandi, í Nor- egi og Kanada báru fram mótmæli við rússnesk yfirvöld og óskuðu frekari upplýsinga var ákveðið að fresta upp- hafi æfingarinnar um tvo sólarhringa. Enn er þó óljóst hvaða áhrif æfingin hefur á borgaralegt flug. Það er tæplega tilviljun að heræfing Rússa fer fram á þessu svæði og á þessum tíma. Nú í vikunni fara fram tvær stórar heræfingar Atlantshafs- bandalagsins (NATO), annars vegar umfangsmesta flugheræfing á vegum bandalagsins á þessu ári í og við Noreg og hins vegar viðamikil kafbátaleit- aræfing sunnan Íslands. Líklegt verð- ur að telja að með æfingunni nú vilji Rússar sýna NATO að þeir búi enn yfir umtalsverðum styrk í lofthernaði, auk þess sem þeir kunna að vilja fylgjast með æfingum NATO. Ýmis teikn eru um að rússneski flugherinn hafi heldur sótt í sig veðrið að undanförnu eftir nokkurra ára hnignunarskeið og um- svif hans fara vaxandi, m.a. æfingar af ýmsu tagi. Rússar leggja ekki sízt áherzlu á að styrkja flota sinn af lang- drægum sprengjuflugvélum, en all- margar slíkar taka þátt í æfingunni nú. Enginn hefur vefengt rétt Rússa að alþjóðalögum til að gangast fyrir her- æfingunni. Hins vegar var hin síðbúna tilkynning og skortur á upplýsingum til íslenzkra stjórnvalda algerlega óviðunandi og til þess eins fallinn að skapa óvissu og tortryggni í samskipt- um stjórnvalda ríkjanna, auk þess sem málið snertir almenning með beinum hætti vegna áhrifa á borgaralegt flug. Það er engan veginn hægt að leggja þetta að jöfnu við heræfingar NATO, sem Ísland á aðild að, og eru skipu- lagðar í nánu samstarfi við íslenzk stjórnvöld þannig að röskun af þeirra völdum verði sem minnst. Það er vissulega jákvætt að Rússar hafa tekið mark á andmælum og ábendingum Íslands og annarra NATO-ríkja og vonandi verður þetta atvik til þess að skýrar samskiptaregl- ur verði í heiðri hafðar við sambæri- legar aðstæður í framtíðinni. En því má heldur ekki gleyma, að með heræfingum þessum eru Rússar vafalítið að minna á hernaðarmátt sinn og að ástæða sé til að taka hann alvar- lega. Menn verða auðvitað að draga sínar ályktanir af því. Ef það liggur fyrir að umsvif rússneskra herflugvéla á Norður-Atlantshafi fara vaxandi á ný verður sú spurning til að mynda áleitin, hvort eitthvert vit væri í því að draga úr viðbúnaði í varnarstöðinni í Keflavík og hætta að hafa þar orrustu- þotur, eins og hugmyndir hafa verið uppi um innan bandaríska stjórnkerf- isins við og við á undanförnum árum. Vera orrustuþotna í Keflavík er for- senda þess að hægt sé að fylgjast með æfingum sem þessum úr návígi. Bandaríski hershöfðinginn Gregory S. Martin, yfirmaður flugherja NATO í Norður-Evrópu, sagði í viðtali við norska blaðið Aftenposten í síðustu viku að ástandið í Rússlandi væri enn svo óvisst að full ástæða væri til þess fyrir NATO að vera á varðbergi og hafa viðeigandi varnarviðbúnað. Það eru orð að sönnu og hlýtur að verða horft til slíkra sjónarmiða þegar við- ræður Íslands og Bandaríkjanna um fyrirkomulag í Keflavíkurstöðinni næstu árin hefjast. Íslenska kvennalandsliðið í knatt-spyrnu náði glæsilegum sigri, 2:1, í landsleik gegn ítalska kvennalands- liðinu síðastliðinn laugardag. Stúlk- urnar léku hreint ágætlega saman, Olga Færseth, markaskorarinn mikli, skoraði bæði íslensku mörkin í þess- um leik af stöku öryggi, Þóra Helga- dóttir sýndi afbragðsgóða markvörslu allan leikinn og liðið var heilsteypt og gott. Full ástæða er því til þess að óska íslenska kvennalandsliðinu til hamingju með þennan árangur. En jafnframt er ástæða til þess að fjalla um þá aðferðafræði sem stúlk- urnar í landsliðinu völdu sjálfar að beita í auglýsingum fyrir leikinn, til þess að vekja athygli á honum og laða að fleiri áhorfendur en þær eiga að venjast að sæki völlinn þegar kvenna- landsleikir fara fram. Það er dapurlegt til þess að vita, að stúlkurnar skuli komast að þeirri nið- urstöðu, að vænlegasta leiðin til þess að ná athygli sé sú að birta auglýs- ingu með mynd af öllum liðskonunum á baðfötum einum klæða og kalla knattspyrnuleik stelpuslag. Hvaða tenging er á milli baðfata og knatt- spyrnuleiks? Valgerður Bjarnadóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, sagði hér í Morgunblaðinu á laugar- dag að sér þætti þessi auglýsing með kynferðislegum undirtóni og það væri sorglegt að stúlkurnar hefðu látið undan kröfu markaðsaflanna, „að ekkert sé spennandi nema í því sé of- beldi og kynlíf, þar sem kvennaknatt- spyrna snúist um allt annað“. Þetta er einmitt mergurinn máls- ins. Kvennaknattspyrna snýst hvorki um kynlíf né ofbeldi. Kvennalandsliðið státar af stúlkum, sem ljóma af hreysti, ferskleika og lífsgleði. Auðvitað eiga þær að aug- lýsa sjálfar sig sem slíkar, klæddar fallegum landsliðsbúningum. Þær eiga ekki að skilja á milli sín og íþróttar sinnar, til þess að þjónka markaðsöflunum. Ef markaðurinn hefur ekki þroska til þess að taka slík- um auglýsingum er spurning hvort kvennalandsliðið og íslensk kvenna- knattspyrna yfirleitt er þá ekki bara betur sett með þá 500 áhorfendur, sem sækja kvennalandsleiki að með- altali, heldur en þá 1.200 sem fóru á völlinn á laugardag, í kjölfar auglýs- ingarinnar um stelpuslaginn og bað- fötin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.