Morgunblaðið - 11.09.2001, Side 35

Morgunblaðið - 11.09.2001, Side 35
svo að teymið sé vel hæft til að sinna fullorðnum líka. Í kjölfar jarðskjálftanna á Suður- landi á sl. ári sinntu sjálfboðaliðar úr áfallahjálparteymi Rauða kross Ís- lands áfallahjálp í Rangárvallasýslu í samvinnu við heimamenn og má þar nefna héraðslækni, sóknar- presta, sveitarstjórnarmenn og for- mann og sjálfboðaliða Rangárvalla- deildar Rauða krossins. Áfallahjálpin fór að mestu fram í fjöldahjálparstöð Rauða krossins á Hellu. Auk þess voru stórir fræðslu- fundir haldnir víðs vegar um svæðið. Um það bil 100 formleg viðtöl voru veitt 162 einstaklingum, 120 tóku þátt í tilfinningalegum úrvinnslu- fundum auk þeirra 570 einstaklinga sem komu á stóra fræðslufundi. Einnig fóru fram óformleg viðtöl og aðstoð í síma. Að lokinni formlegri áfallahjálp var aðstoð fram haldið fyrir þá sem á þurftu að halda á heilsugæslustöðinni á Hellu. Áfallahjálp og sálræn skyndihjálp sem fyrsta stig hennar eru í þróun innan Rauða kross Íslands. Þess vegna var mikilvægt að meta hvern- ig áfallahjálpin síðasta sumar nýttist þeim sem hennar nutu. Gallup gerði könnun fyrir Rauða kross Íslands á áfallahjálpinni í Rangárvallasýslu og fór könnunin fram í ágúst 2000. Nið- urstöður liggja fyrir og eru jákvæð- ar fyrir Rauða kross Íslands og það starf, sem unnið var við áfallahjálp. 97% þeirra sem tóku þátt í könn- uninni töldu áfallahjálp sem Rauði kross Íslands bauð fram og veitti vera til góðs. Einnig voru 88% þeirra mjög eða frekar ánægð með framgöngu Rauða kross Íslands í áfallahjálp og aðstoð þetta jarð- skjálftatímabil. Niðurstöðurnar styðja fyrirkomulag áfallahjálpar Rauða kross Íslands og nýtast til áframhaldandi þróunar hennar. Rauði kross Íslands tekur einnig þátt í alþjóðlegu samstarfi um áfallahjálp. Hann á m.a. fulltrúa í al- þjóðlegum hópi sérfræðinga um áfallahjálp, sem settur var á fót af Alþjóðasambandi Rauða krossins. Þessi hópur aðstoðar landsfélög Rauða krossins við að þjálfa leið- beinendur í sálrænni skyndihjálp innan landsfélaganna. Tveir fulltrú- ar á vegum Rauða kross Íslands eru nú á förum til Eistlands til að mennta og þjálfa leiðbeinendur í sál- rænni skyndihjálp þar. Evrópski skyndihjálpardagurinn minnir á hlutverk Rauða krossins sem unnið er á grundvelli mannúðar og kærleika, óháð landamærum, trú eða kynþætti. Rauði kross Íslands leggur aukna áherslu á mikilvægi skyndihjálpar, bæði líkamlegrar og sálrænnar, sem auðvitað tvinnast saman í eina heild. Námskeið í sál- rænni skyndihjálp búa okkur betur undir að geta stutt og hjálpað öðrum og okkur sjálfum þegar lífið er erf- itt. Höfundur er deildarstjóri í sálrænni skyndihjálp hjá Rauða krossi Íslands. Skyndihjálp Skyndihjálp getur skipt sköpum, segir Elín Jónasdóttir, um afleið- ingar og endurhæfingu eftir slys. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 35 Landsvirkjun, verktökum og hags- munaaðila þeirra fyrirtækja, rík- isstjórn Íslands að „nýta auðlind- irnar“ til virkjanagerðar, sem allir vita að hefur stóraukið ríkisskuld- irnar undanfarna áratugi, allt tal um þjóðhagslega hagkvæmni er bull. Það er stórtap á virkjununum og það sem verra er að íslenska ríkisstjórnin ásamt hagsmunaaðil- um er orðin að mestu umhverf- issóðum í Evrópu, ekki að fyrrver- andi Sovétríkjum undanskildum. Þegar núverandi ríkisstjórn hef- ur markað sér stefnu umhverfis- sóða, er ekki langt í land að farið verði að líta á þá sem velja slík fyr- irbrigði til landstjórnar sem sams- konar sóða. Það má vera að við- brögð ritstjóra National Geographic orki því að nýtingar- sinnar skilji hvað er í húfi, minnsta kosti einhverjir þeirra. En þeir stokkfreðnustu munu halda áfram að maka krókinn á kostnað Íslands Jónasar Hallgrímssonar. Vegna þess að þeirra „Dummheit ist et- was absolutes“, eins og segir í þýskum texta frá 19. öld. Höfundur er rithöfundur. Toppárangur með þakrennukerfi þakrennukerfi Fagm enns ka í fyrir rúmi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Söluaðilar um land allt textil.is Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 KUNERT WELLNESS Sokkabuxur Hnésokkar Ökklasokkar iðunn tískuverslun 2. hæð, Kringlunni, sími: 588 1680 v/ Nesveg, Seltjarnarnesi, sími: 561 1680

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.