Morgunblaðið - 11.09.2001, Qupperneq 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 37
Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:
10.00 Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri - Setning ráðstefnunnar.
10.15 Colin Michael Hall, University of Otago, Nýja Sjálandi - Rural Tourism: Finding ways of
making it work.
11.00 Kaffihlé.
11.20 Ögmundur Knútsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og starfsþróunar við Háskólann á
Akureyri - Hvað þarf til að samstarf gangi upp?
11.50 Runólfur Smári Steinþórsson, dósent við Háskóla Íslands - Ferðaþjónusta og stefnumótun.
12.20 Fyrirspurnir.
12.30 Hádegisverðarhlé.
14.00 Greg Headley, Leeds Metropolitan University, Bretlandi - Tourism Development and
Marketing in Rural Areas - A Practical Approach.
14.45 Garðar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Íslenskra ævintýraferða - Reynslan af sameiningar-
ferli, hvað ber að varast.
15.15 Ásgeir Magnússon, formaður bæjarráðs Akureyrar - Ferðaþjónusta og sveitarfélög.
15.40 Fyrirspurnir.
15.50 Ingjaldur Hannibalsson, prófessor við Háskóla Íslands - Samantekt og niðurstöður.
Ráðstefnustjóri - Anna Sverrisdóttir, rekstrarstjóri Bláa lónsins.
Þátttökugjald er kr. 8.000 (kr. 4.000 fyrir nemendur). Innifaldar eru kaffiveitingar ásamt
ráðstefnuriti sem gefið verður út eftir ráðstefnuna.
Skráning fer fram hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, sími 511 8000, tölvupóstur: info@saf.is,
og Ferðamálasetri Íslands, sími 463 0959, tölvupóstur: arnar@unak.is
Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasetur Íslands
efna til ráðstefnu í húsakynnum Háskólans á Akureyri á
Sólborg, föstudaginn 14. september kl. 10-16.
Markmiðið með ráðstefnunni er að varpa ljósi á mikilvægi samstarfs fyrirtækja
í ferðaþjónustu. Leitast verður eftir því að greina þau vandamál sem
tengjast slíku samstarfi og benda á hugsanlegar lausnir.
Samstarf fyrirtækja
í ferðaþjónustu
- fræði og framkvæmd -
UM þessar mundir
eru um 2000 nýir
nemendur að hefja
nám við Háskóla Ís-
lands í hinum ýmsu
deildum hans. Há-
skólanám er krefjandi
nám og uppbygging
þess að mörgu leyti
ólík því sem nemend-
ur eru vanir úr fram-
haldsskólum. Háskóli
Íslands er mjög stór
vinnustaður og margt
nýtt sem þarf að
temja sér og læra á
við upphaf náms.
Vegna þessa hefur
Stúdentaráð Háskóla
Íslands í samvinnu við nemenda-
félög deilda skólans ákveðið að
bjóða uppá nýnemaviku 10.–14.
september og er þetta í fyrsta sinn
sem þessi vika er haldin. Mark-
miðið með svona kynningu er fyrst
og fremst að nemendur sem lengra
eru komnir í námi miðli til þeirra
sem eru að hefja nám upplýsingum
um ýmislegt sem nauðsynlegt er
að vita og þekkja til að námið sæk-
ist sem best. Ekki er þó síður mik-
ilvægt að efla hópinn og þjappa
fólki saman í byrjun og mynda
góða samkennd háskólanema.
Fjölbreytt
dagskrá
Dagskrá vikunnar er fjölbreytt
og miðar bæði að því að miðla upp-
lýsingum og eins að taka vel á
móti nýnemum og koma þeim inn í
háskólasamfélagið strax.
Mánudaginn 10. september
stendur Stúdentaráð fyrir hádeg-
iskynningarfundi fyrir nýnema í
sal tvö í Háskólabíói. Þar verður
starfsemi Stúdentaráðs, miðlana
þess, Stúdentablaðsins og fleira
kynnt auk þess sem ýmiss fyr-
irtæki og þjónustustofnanir kynna
starfsemi sína fyrir utan salinn.
Þriðjudag til fimmtudags verður
fjölbreytt kynningar- og skemmti-
dagskrá innan deildanna sem nem-
endafélögin standa fyrir og verða
þeir viðburðir aug-
lýstir sérstaklega inn-
an deildanna. Auk
þess stendur Stúd-
entaráð fyrir „ör-
tölvunámskeiði“ á
fimmtudeginum. Þar
verður farið yfir
grunnatriði þess að
nota internetið og
tölvupóstforrit. Nám-
skeiðið tekur um eina
klukkustund og er
nemendum að kostn-
aðarlausu.
Skemmtanir
vikunnar
Stúdentaráð stend-
ur fyrir alþjóðakvöldi þriðjudags-
kvöldið 11. september í Stúdenta-
kjallaranum til að bjóða erlenda
nema sérstaklega velkomna í skól-
ann, en fjöldi þeirra skiptir nú
hundruðum, íslenskir nemendur
eru að sjálfsögðu einnig hvattir til
að mæta og eru þessi kvöld alltaf
mjög skemmtileg. Félagsstofnun
stúdenta heldur skemmtikvöld
fimmtudaginn 13. einnig í Stúd-
entakjallaranum.
Föstudagurinn verður á léttu
nótunum og verður ýmislegt
skemmtilegt um að vera úti í skóla
yfir daginn í hinum ýmsu bygg-
ingum. Nýnemavikunni lýkur svo
með háskólaballi á Broadway um
kvöldið, þar sem hljómsveitin Tvö
dónaleg haust leikur fyrir dansi.
Tökum öll þátt!
Allir háskólanemar eru hvattir
til að kynna sér dagskrá vikunnar
og fjölmenna á þá viðburði sem í
boði eru og eru nýnemar sérstak-
lega boðnir velkomir. Dagskrá ný-
nemavikunnar hefur verið dreift
um skólann í sérstökum bæklingi
og nánari dagskrá er að finna á
vefsíðu Stúdentaráðs og nemenda-
félagnanna, www.student.is. Einn-
ig hvet ég þig til að líta sem oftast
við á skrifstofu Stúdentaráðs með
það fjölmarga sem upp kann að
koma.
Nýnemavika
í Háskóla Íslands
Kolbrún
Benediktsdóttir
Nýnemar
Allir háskólanemar eru
hvattir til að kynna sér
dagskrá vikunnar, segir
Kolbrún Benedikts-
dóttir, og fjölmenna á
þá viðburði sem í boði
eru og eru nýnemar
sérstaklega boðnir
velkomnir.
Höfundur er í stúdentaráðsliði
Röskvu og formaður
Nýnemavikuhóps.