Morgunblaðið - 11.09.2001, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í LESBÓK Morgunblaðsins 2. júní
sl. var ítarleg frásögn af Síldarminja-
safninu á Siglufirði og viðtal við und-
irritaðan um uppbyggingu safnsins
þar. Bent hefur verið á að þar skorti
upplýsingar um hönnuði endurbygg-
inga Roaldsbrakka, aðal safnhússins.
Þar sem safnstjóri ber að nokkru
ábyrgð á þessu viðtali er bæði ljúft og
skylt að bæta fyrir þessi mistök og
upplýsa lesendur blaðsins um hið
rétta í málinu.
Róaldsbrakki var friðaður árið
1978 og þegar Félag áhugamanna
um minjasafn beitti sér fyrir endur-
bótum á húsinu 1990 valdi Húsafrið-
unarnefnd arkitektana Stefán Örn
Stefánsson og Grétar Markússon á
Teiknistofunni Skólavörðustíg 28 sf.
til að stjórna því verki. Teiknuðu þeir
og mældu húsið í bak og fyrir eins og
lög gera ráð fyrir og unnu síðan
vandaðar teikningar og áætlanir að
endursmíðinni og endurreisn hússins
sem safnhúss. Allt var það gert í góðu
samstarfi við safnstjóra og með sam-
þykki safnstjórnar og sömuleiðis
framkvæmdir sjálfar sem þeir fé-
lagar á Teiknistofunni stýrðu og
höfðu eftirlit með fyrir hönd Húsa-
friðunarnefnar.
Þetta samstarf stóð í a.m.k. 6 ár og
er ekki hægt að segja annað en það
hafi tekist með ágætum eins og verð-
laun og viðurkenningar sem safninu
hefur hlotnast á síðustu árum bera
með sér. Það var ekki einasta að þeir
Grétar og Stefán Örn hafi stýrt smið-
um og öðrum framkvæmdaaðilum í
stóru verkunum heldur einnig séð
um flest annað sem lýtur að umgjörð
og ytra búnaði safnsins: Hönnun skil-
rúma, litaval á veggjum, lýsingu og
einnig veittu þeir safnstjóra góð ráð
við skipulag og uppsetningu sýninga.
Safnið er þannig uppbyggt að
nokkru leyti að hver hlutur er settur
,,á sinn stað“. Reynt er að sýna þenn-
an gamla og glæsilega síldarbrakka
eins og hann var notaður í sinni fjöl-
breytilegu mynd í 60 ár. Og sann-
arlega má líta svo á að 50% af þessu
verðlaunasafni sé húsið sjálft.
Þetta er nauðsynlegt að komi
fram. Betra seint en aldrei.
ÖRLYGUR KRISTFINNSSON,
safnstjóri.
Um endurbætur á
Róaldsbrakka – hönn-
un Síldarminjasafns
Frá Örlygi Kristfinnssyni:
Roaldsbrakki, aðalsafnhúsið.
SJÚKRALIÐAR hafa verið með
lausa samninga síðan 1. nóvember
2000. Veruleg þörf er á uppstokkun í
launamálum þeirra en það virðist
sem enginn vilji semja við þessa
starfsstétt.
Það er sagt að menntun sé mátt-
ur. Falleg orð en virðast ekki passa
fyrir allar starfsstéttir, sérstaklega
þær sem eru skipaðar konum.
Kvennastéttir eiga einstaklega erf-
itt með að fá ásættanleg laun. Þó er
sem betur fer orðin breyting hjá
sumum þeirra, s.s. kennurum en
samkvæmt upplýsingum úr útvarp-
inu hækka laun þeirra um 50% á
samningstímanum. Það eru frábær-
ar fréttir enda flykkist fólk í kenn-
aranámið og þjóðin uppsker ánægða
kennara, betri kennslu og auðvitað
miklu betri nemendur.
Margt fólk verður að dvelja á
sjúkrastofnunum og elliheimilum.
Það þarf þjónustu og á hana svo
sannarlega skilið. Það hlýtur að
vera ósk hvers einasta manns að
sjúklingar og vistmenn elliheimila
séu eins ánægðir og kostur er. Þá
skiptir miklu máli að það séu ekki ör
starfsmannaskipti því það eykur
kvíða og kallar á meiri lyfjakostnað.
Ófaglært starfsfólk er oft ráðið í
sjúkraliðastöður. Það er oft ágætis
starfskraftar en auðvitað er misjafn
sauður í mörgu fé og alveg sama
hver sækir um vinnu, allir fá hana
því ekki er völ á sjúkraliðum.
Ástæðan er sú að afar fáir hafa
áhuga á að læra starf sem gefur af
sér undir 90.000 krónum í byrjunar-
laun. Það er trú mín að ef sjúkralið-
ar fengju sambærilegar kjarabætur
og kennarar eða lögreglumenn
myndi verða veruleg fjölgun í stétt-
inni, ánægðari starfskraftar,
ánægðari sjúklingar og vistmenn
elliheimila – þjóðinni til sóma.
SIGRÍÐUR KARLSDÓTTIR,
sjúkraliði á Hvammstanga.
Launamál sjúkraliða
Frá Sigríði Karlsdóttur: