Vísir - 09.10.1979, Side 15
vísm
Þriðjudagur 9. október 1979
15
Ekki Dyrlinginn
i barnatímann
3248-1248 skrifar:
Þann 27. fyrra mánaöar birt-
ist i Visi smápistill i sambandi
við sýningu á myndaflokknum
„Dýrlingurinn” i sjónvarpinu.
Bréfritari lét þá tillögu falla að
sýningartimi þáttanna væri
færður á þann tima sem ætlaöur
er börnum. Sagði hann i þvi
sambandi að þættirnir væru
bæði léttir og skemmtilegir og
hæfðu þessum aldursflokki
prýðilega.
Það er rétt, að þættirnir eru i
léttum dúr og létt efni er eftir-
sótt af yngri kynslóðinni, en
bréfritara viröist ekki vera það
ljóst, að börn á öllum aldri horfa
á barnatima sjónvarpsins, enda
er þar sýnt efni fyrir fleiri en
einn aldurshóp.. En er þó ekki
einmitt ástæöa til að börnin
horfi á sumt af þvisem er ætlað
þeim eldri? Það kemur margt
fyrir i þáttunum um Dýrlinginn
sem ég held að góðir foreldrar
mundu ekki óska eftir að til-
heyrði barnatimanum. sem
börnin þeirra horfa á. Það er
þegar búið að færa Dýrlinginn
til i sjónvarpsdagskránni á
þriöjudagskvöldum, þannig að i
stað þess að vera sýndur siðast
á dagskránni, er hann nú strax á
eftir dagskrárkynningu. Er
frekari breytinga nokkuð þörf?
Er nauðsynlegt að flytja inn i
barnatima efni þar sem börn fá
fræðslu um hvernig eigi aö kála
óvini og fleira þessháttar?
Það er nú einu sinni alþjóðlegt
barnaár og rétt að nota það til
að verja öll börn fyrir áhrifum
sem ekki teljast æskileg i upp-
eldi barna yfirleitt. Þar eru
uppbyggilegir barnatimar
mikilvægur þáttur.
Er nauðsynlegt að flytja inn I barnatlma efni, þar sem börn fá
fræðslu um hvernig eigi að kála óvini? spyr bréfritari.
NORSK STÚLKA ÓSKAR
EFTIR PENNAVINUM
Okkur hefur borist bréf frá
fimmtán ára norskri stúlku sem
óskar eftir islenskum pennavin-
um. Hún skrifar norsku og
dönsku og hefur áhuga á fri-
merkjum, tónlist, lestri, iþrótt-
um og bréfaskriftum. Hún vill
skrifast á viðstelpur og stráka á
svipuðum aldri og utanáskriftin
er:
Lise Koff
Röldalsvegen 50
5750 Odda
Norge
KEMEKALIA HF
Skipholti 27» sími 21630 P.O. Box 5036
Ert þú opinn fyrir nýjungum
Opnaðu þá munninn tvrir SrnsodviL
hoffnarbíó
’SS* 16-444
HLJOMADÆR
‘RECORD CITY’RUTH BUZZI • MICHAEL CALLAN
JACK CARTER • RICK DEES • KINKY FRIEDMAN
ALICE GHOSTLEY • FRANK GORSHIN • JOE HIGGINS
TED LANGE • LARRY STORCH • w„ttent,RON FRIEDMAN
Líf 09 fjör í „plötubranscmum"
Sýnd kl. 5-7-9 og i i
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Siðumúla 19, þingi. eign Siðumúla 9 h.f.,
fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag 11. október 1979 kl.
11.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta I Torfufelii 48, þingl. eign Guðrún-
ar Jónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag 11.
október 1979 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 178., 81. og 83. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1978 á eigninni Asbúð 105, Garöakaupstað, þingl. eign
Hrafnhildar Þórarinsdóttur fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar i Reykjavik, Garðakaupstaðar, Búnaðar-
banka tslands og Veðdeildar Landsbanka Islands á eign-
inni sjálfri föstudaginn 12. október 1979 kl. 2.00 e.h.
Bæjarfógetinn I Garöakaupstaö.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 34., 36. og 37. tölublaöi Lögbirtingablaðs-
ins 1978 á eigninni Miöbraut 4, 2.h.t.v., Seltjarnarnesi,
þingl. eign Þorgils Axelssonar, fer fram eftir kröfu Inga
R. Helgasonar, hrl. og Landsbanka íslands á eigninni
sjálfri föstudaginn 12. október 1979 kl. 3.30 e.h.
Bæjarfógetinn á Seitjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
annaö og slðasta á hluta i Kötlufelli 3, þingl. eign Stefáns
Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag 11.
október 1979 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Dugguvogi 7, talinni eign Myndiðjunn-
ar Astþór h.f. fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag 11.
október 1979 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.