Morgunblaðið - 07.10.2001, Side 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VIÐTAL er við Ásthildi Helga-dóttur knattspyrnukonu í nýj-
asta hefti tímaritsins Nýtt líf en hún
var fyrst íslenskra fótboltakvenna til
að fá fullan skólastyrk til háskóla-
náms í Bandaríkjunum þar sem hún
hefur numið verkfræði síðustu fjög-
ur ár.
Víkverji er hrifinn af sumu sem
hún lætur þar hafa eftir sér, en ekki
öðru. Þetta getur Víkverji til að
mynda tekið heilshugar undir:
„Það er mikið talað um að stelpur
eigi ekki að vera í fótbolta, að þær
verði hjólbeinóttar og fái sver læri.
Þetta er vitleysa. Þótt kynin séu ólík,
hentar fótbolti stelpum alveg eins vel
og strákum. Kröfur sem gerðar eru
til kvenfólks í fótbolta eru þó oft
ósanngjarnar. Það er svo mikill mun-
ur á líkamsbyggingu kynjanna. Við
höfum ekki sama kraft og erum ekki
eins sterkbyggðar og strákarnir. Við
verðum varar við neikvætt viðhorf
og heyrum sagt að við séum ekki
eins góðar og þeir. Á móti kemur að
við höfum betri fínhreyfingar og
tækni heldur en þeir.“
Auðvitað er það rétt hjá Ásthildi
að stelpur eiga ekki síður að stunda
knattspyrnu en strákar og Víkverji
veit fyrir víst að þetta með sveru
lærin og að þær verði hjólbeinóttar
er tóm vitleysa. Vinkona Víkverja
stundaði lengi knattspyrnu og þessi
lýsing á a.m.k. ekki við hana.
x x x
ÁSTHILDUR er spurð að því íáðurnefndu viðtali hvort hún sé
femínisti. „Ég hef aldrei litið þannig
á. Ég er fylgin mér. Kannski gerir
það mig að kvenréttindakonu. Það er
misrétti í kvennaboltanum eins og
annars staðar. Boltaíþróttir eiga
undir högg að sækja í fjölmiðlum og
innan KSÍ. Það er sama hvað við
stelpurnar leggjum okkur mikið
fram, við höfum alltaf minni mögu-
leika en strákarnir. Okkur standa
hvorki til boða svipuð tilboð í at-
vinnumennsku né sambærileg laun.
Sumir fótboltastrákar eru með tvær
til þrjár milljónir á viku og aðrir með
enn meira.“
Þetta er vafalítið rétt hjá Ásthildi
en þarna ræður væntanlega lögmálið
um framboð og eftirspurn. Líklega
er ekki enn markaður fyrir knatt-
spyrnukonur á háum launum, hvað
sem síðar verður.
En svo segir Ásthildur, og þá varð
Víkverji undrandi: „Það er látið mik-
ið með þessa stráka og þeir gerðir að
hálfgerðum stjörnum þó að þeir séu
jafnvel ekki með stúdentspróf. Fólk
verður að hafa í huga að þótt fótbolti
sé skemmtilegur er margt annað
sem skiptir máli í lífinu, til dæmis
menntun. Stelpur gera sér oft betur
grein fyrir gildi menntunar en strák-
ar. Kannski af því að þær hafa ekki
sömu möguleika og þeir í boltanum.“
Víkverji þykir það óþarfa mennta-
hroki hjá knattspyrnukonunni ungu
að nefna það að menn séu gerðir að
hálfgerðum stjörnum þótt þeir séu
jafnvel ekki með stúdentspróf! Hvað
kemur það málinu við? Brýst þarna
fram einhvers konar menntahroki?
Eða eru ummælin bara vanhugsuð?
x x x
BANDARÍSKI ádeilugrínistinnTom Lehrer hefur verið í miklu
uppáhaldi hjá Víkverja allar götur
síðan hann kynntist tónlist háðfugls-
ins á menntaskólaárunum fyrir til-
stilli eins kennara síns. Full ástæða
er til að vekja athygli á þriggja þátta
röð Karls Th. Birgissonar á þriðju-
dögum á Rás 1, um Lehrer og tónlist
hans. Þriðjungi er að vísu lokið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Vigri
kemur í dag, Tjaldur
fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 10 boccia, kl. 14
félagsvist.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 10–
16 púttvöllurinn opinn,
kl. 16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10 sam-
verustund, kl. 13.30
söngur við píanóið, kl.
13 bútasaumur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 9 myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opnuð, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun og
hárgreiðslustofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
morgun félagsvist kl.
13.30. Skráning stendur
yfir í Óperuna á Töfra-
flautuna, 21. okt. Tak-
markaður miðafjöldi.
Einnig stendur yfir
skáning í glerskurð. Á
þriðjudag verða saumar
og brids. Pútt á vell-
inum við Hrafnistu kl.
14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga kl. 10–
13. Matur í hádeginu.
Sunnudagur: Félagsvist
kl. 13.30. Dansleikur kl.
20, Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Mánudagur:
Brids kl. 13. Dans-
kennsla Sigvalda kl. 19
fyrir framhald og byrj-
endur kl. 20.30. Þriðju-
dagur: Skák kl. 13 og
alkort kl. 13.30. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 17. Línu-
danskennsla Sigvalda
kl. 19.15. Brids-
námskeið kl. 19.30.
Söngvaka kl. 20.45, um-
sjón Sigurbjörg Hólm-
grímsdóttir. Skrifstofa
félagsins er flutt að
Faxafeni 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB kl. 10–16 s. 588-
2111.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Nýtt nám-
skeið. Trésmíði, gert við
gamla hluti og smíðaðir
nýir, á miðvikudögum
kl. 15.30. Innritun í
síma 565-6622 eftir há-
degi. Mánudagur kl. 9
leir, kl. 9.45 boccia, kl.
11.15 og kl. 13 leikfimi,
kl. 13 glerskurður. Les-
hringur Bókasafni
Garðabæjar kl. 10.30.
Tölvunámskeið kl.
15.10. Upplýsingar 565-
6622 e. hádegi sjá
www.fag.is.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun
kl. 9 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 14 félagsvist. Opið
alla sunnudaga frá kl.
14–16 blöðin og kaffi.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun handa-
vinnustofan opnuð kl. 9,
kl. 9.30 gler- og postu-
línsmálun, kl. 13 lomb-
er, kl. 13.30 skák, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári Gullsmára
13. Á morgun vefnaður
kl. 9, leikfimi kl. 9.05,
brids kl. 13, kl. 11
myndmennt, félagsvist
kl. 20.30.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulínsmálun
og kortagerð, kl. 10
bænastund.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og föndur, kl. 10
boccia, kl. 13 spilað.
Bingó spilað á þriðju-
daginn kl. 17–19. Allir
velkomnir á öllum aldri
og veitingar seldar á
staðnum.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 12
bókasafn.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9.15 handavinna,
kl. 10 boccia, kl. 12.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing. Fimmtudaginn
11. október verður
Þjónustumiðstöðin lok-
uð frá kl. 13. vegna
undirbúnings haust-
fagnaðar sem hefst kl.
17.30.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, sund, kl.
13 handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og
spilað.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánudaga
og fimmtudaga. Skrán-
ing kl. 12,45. Spil hefst
kl. 13.
GA-fundir spilafíkla,
eru kl. 18.15 á mánu-
dögum í Seltjarnar-
neskirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA, Síðu-
múla 3–5, og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laug-
ardögum kl. 10.30.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir alla mánudaga
kl. 20 á Sólvallagötu 12,
Reykjavík. Stuðst er við
12 spora kerfi AA-
samtakanna.
ITC deildin Harpa í
Reykjavík heldur kynn-
ingarfund í sal Flug-
virkjafélags Íslands í
Borgartúni 22, þriðju-
daginn 9. október, kl.
20–22. Upplýsingar gef-
ur Lilja í s. 581-3737.
Safnaðarfélag Áskirkju
í tilefni 25 ára afmælis
safnaðarfélag Áskirkju
verður afmælisfundur
miðvikud. 10. okt. í
safnaðarheimili Ás-
kirkju kl. 20. Þorvaldur
Halldórsson skemmtir,
happdrætti og kaffiveit-
ingar.
Kvenfélag Kópavogs
vinnukvöld vegna bas-
ars mánudag kl. 20 í
Hamraborg 10.
Kvenfélag Breiðholts.
Félagsfundur verður í
safnaðarheimili Breið-
holtskirkju þriðjudag-
inn 9. okt. kl. 20. Gestur
fundarins verður með
handsaum í flísvörur.
Kristniboðsfélag karla.
Fundur verður í
Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58–60.
Mánudagskvöldið 8.
október kl. 20 . Bene-
dikt Arnkelsson hefur
biblíulestur. Allir karl-
menn velkomnir. Munið
hina árlegu kaffisölu fé-
lagsins sem verður
sunnudaginn 14. okt. kl.
14.30.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund í
Safnaðarheimilinu
mánud. 8. október kl.
20. Vetrarstarfið kynnt.
Sagt frá sumarferðinni.
Upplestur.
SVDK Hraunprýði.
Fyrsti fundur vetrarins
verður haldinn í húsi fé-
lagsins, Hjallahrauni 9,
þriðjudag kl. 20. Dag-
skrá: ferðasaga, kaffi.
Konur eru beðnar að
mæta með myndir úr
ferðalaginu.
Kvenfélagið Hrönn
heldur fund mánudag-
inn 8. okt. kl. 20 í
Húnabúð, Skeifunni 11,
gestur fundarins Þór-
hallur Guðmundsson
miðill.
Kvenfélag Grens-
ássóknar
fundur mánudaginn 8.
okt. kl. 20 í safn-
aðarheimilinu. Tísku-
sýning.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl. 9–16. 30
vinnust opnar, frá há-
degi spilasalur opinn,
kl. 15. dans. Myndlist-
arsýning Valgarðs
Jörgensen opin í dag kl.
13–16 listamaðurinn á
staðnum. Þriðjud. 9.
okt. kl. 10 kynning á
samstarfi við Miðberg,
m.a. boðið upp á borð-
tennis, innipúttvöll,
snóker, stofnun tölvu-
klúbbs og aðgang að
tölvuveri o.fl. Heitt á
könnunni. Allir vel-
komnir.
Itc-deildin Íris, Hafn-
arfirði. Kynning-
arfundur mánudginn 7.
okt. kl. 20 í safn-
aðarheimili Þjóðkirkj-
unnar við Strandgötu.
Uppl. í s. 555-2821 Hel-
ena og 5650456 Auður.
Í dag er sunnudagur 7. október,
280. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Fel þú Drottni verk þín, þá mun
áformum þínum framgengt verða.
(Orðskv. 16,3.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 útlimir, 4 ánægð, 7 ekki
verandi, 8 illvirki, 9 auð,
11 fiska, 13 álka, 14
hagnast, 15 þarmur, 17
renna, 20 málmur, 22
org, 23 heiðursmerkið,
24 veggja, 25 bur.
LÓÐRÉTT:
1 jurt, 2 tipl, 3 stillt, 4
guðhrædd, 5 ljóstíra, 6
hafna, 10 skarkali, 12
beita, 13 sjór, 15 skarp-
skyggn, 16 votur, 18 fisk-
urinn, 19 mannsnafn, 20
baun, 21 storms.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 eldfjörug, 8 urmul, 9 gegna, 10 dóu, 11 dormi,
13 lurks, 15 hross, 18 firra, 21 Týr, 22 glufu, 23 álkan, 24
lundarfar.
Lóðrétt: 2 lómur, 3 fældi, 4 öngul, 5 urgur, 6 mund, 7
hass, 12 mús, 14 uni, 15 hægt, 16 otuðu, 17 stund, 18 frá-
ar, 19 rækta, 20 agna.
K r o s s g á t a
Ánægður við-
skiptavinur
MIG langar að þakka
Tryggva Jónassyni, kíró-
praktor, eða hnykklækni
eins og það heitir á ís-
lensku, fyrir frábæran ár-
angur af meðferð hans.
Ég hafði verið mjög
slæm af höfuðverk, svima
og verkjum í öxlum um
nokkurra mánaða skeið. Ég
brást við með heitum
bökstrum, teygjuæfingum
og nuddi en hafði ekki ár-
angur sem erfiði. Líðanin
var orðin verulega slæm og
ég óttaðist að geta ekki
sinnt daglegu amstri enda
orðin hálf utan við mig
vegna stöðugra verkja.
Mér til happs komst ég í
hendurnar á Tryggva sem
„hnykkti“ mér til meðvit-
undar og lífs aftur og er ég
ekki lítið undrandi yfir ár-
angri þessarar meðferðar
sem lætur svo lítið yfir sér.
Ég vona að þessar línur
geti orðið til þess að hinir
fjölmörgu sem þjást af
langvinnum verkjum í stoð-
kerfi eins og ég gerði eygi
von um bata.
Halldóra.
Eyðum í annað
HVERNIG stendur á því
að ríkisstjórnin eyðir 700
milljónum í nýtt sendiráð í
Japan? Væri ekki hægt að
hafa einfalda skrifstofu í
mörgum löndum þar sem
við höfum sendiráð? Ég er
ekki viss um að það sé vilji
þjóðarinnar að peningum
hennar sé eytt í svona
óþarfa, sendiráð, risnu
o.s.frv.
Væri ekki nær að pen-
ingunum yrði varið í heil-
brigðismál, í málefni geð-
fatlaðra og bætt kjör
sjúkraliða?
310129-4619.
Góð þjónusta í
Aðalskoðun
ÉG vil þakka fyrir góða
þjónustu hjá Aðalskoðun í
Hafnarfirði. Vil ég benda
fólki á að nýta sér þjónustu
þeirra, þar er almennilegt
starfsfólk með gott viðmót.
Ánægður
viðskiptavinur.
Fyrirspurn
SIGURÐUR spyr hvort
ekki sé hægt að hafa sam-
eiginlegan fréttapakka hjá
ríkisútvarpinu/sjónvarpi,
svipað og Stöð2 og Bylgjan
eru með.
Þakklæti
ÉG vil koma á framfæri
þakklæti mínu til verslun-
arinnar Betra bak. Við
hjónin keyptum hjá þeim
rúm og erum öll önnur á
eftir, okkur líður mikið bet-
ur. Vil ég benda fólki sem á
við bakerfiðleika að etja að
versla hjá þeim. Sérstakar
þakkir til Gauta og annarra
starfsmanna.
Ragnheiður Garðarsd.,
Hrísmóum 4, Gbæ.
Tapað/fundið
Silfurkross í óskilum
SILFURKROSS, gamall,
fannst í Kirkjugarðinum í
Fossvogi. Upplýsingar í
síma 692-0123.
Dýrahald
Pési er týndur
PÉSI pjakkur, blíðlyndur
og geltur fress, hvítur á
kvið og afturfótum en
bröndóttur á baki, týndist í
Þverbrekku í Kópavogi.
Pési er nýfluttur í Kópavog
og er því líklega villtur.
Hann er ómerktur. Þeir
sem hafa orðið hans varir
hafi samband í síma 554-
2163 eða 690-5292.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
GARÐBÆINGUR skrifar
í Velvakanda 4. október
og spyrt hvar græna
kortið fáist í Garðabæ.
Því miður kom upp sú
staða að miðasalan hjá
Bitabæ stöðvaðist um
tíma, vegna óviðráð-
anlegra ástæðna. Nú hafa
mál fengið farsæla úr-
lausn, svo sala farmiða er
hafin að nýju hjá Bitabæ.
Garðbæingar geta því
aftur keypt græna kortið,
gula kortið og afslátt-
armiða í Bitabæ.
Það er rétt munað hjá
Garðbæingi að meðal
markmiða með stofnun
Strætó bs. var að efla al-
menningssamgöngur og
bæta þjónustuna. Með því
að sameina SVR og AV í
Strætó bs. sköpuðust
möguleikar á að ná þess-
um markmiðum. Það er
ásetningur okkar hjá
Strætó bs. að vinna að því
að efla almennings-
samgöngur og bæta þjón-
ustuna, og von okkar er
að það takist bæði fljótt
og vel.
Bestu kveðjur frá
Strætó,
Ásgeir Eiríksson,
framkvæmdastjóri.
Svar frá Strætó bs.