Vísir - 02.01.1980, Síða 8
| Miðvikudagur 2. janúar 1980.
Útgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: DavfB Guðmundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Hörður Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaðamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrín
Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guð-
vinsson.
Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V.
Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson,
Magnús Olafsson.
Auglýsing?.- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Auglýsingar og skrifstofur:
Siöumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, slmi 86611.
;Ritstjórn: Siðumúla 14, sími 86611 7 linur.
/>rentun Blaöaprent h/f
innrásln í Afganistan
Nú við upphaf níunda áratugs
tuttugustu aldarinnar eru miklir
atburðir að gerast úti í hinum
stóra heimi, sem haft geta
örlagaríkar afleiðingar fyrir
okkur Islendinga ekki síður en þá
sem nær eru staddir þessum at-
burðum í rúmi.
Ástandið í grannríkjunum Af-
ganistan og íran er það sem
mestum kvíða veldur þessa
stundina.
í Afganistan hafa þau sögu
legu tiðindi nú gerst að Sovét
herinn hef ur ráðist inn í landið og
hefur að því er virðist lagt það
undir sig og komið þar upp lepp-
stjórn sinni. Þetta er í fyrsta
skipti eftir síðari heimsstyrjöld-
ina, að Sovétmenn leggja undir
sig með hervaldi ríki utan komm-
únistablakkarinnar. Hvað eftir
annað hefur Sovétstjórnin á
þessu tímabili sent sinn Rauða
her inn í fylgiríki sín í Austup.
Evrópu til þess að treysta völd
leppstjórna sinna þar, svo sem í
Austur-Þýskalandi, Póllandi,
Ungverjalandi og Tékkóslovakíu.
Innrás Sovétríkjanna í grann-
ríki sitt Afganistan nú er enn ein
staðf estingin á þvi, að þau stef na
markvisst að heimsyfirráðum.
Engum dettur í hug, að Afganist-
ar haf i verið með áreitni við hinn
Sí okíisjMí
volduga nágranna sinn í norðri,
ekki einu sinni Tassfrétta-
stofunni eða Prövdu.
Upplausnarástandið í landinu
gaf Sovétstjórninni tækifæri,
sem hún af þolinmæði hafði beðið
eftir.
Enginn vaf i leikur á því, að inn-
rásin í Afganistan stendur í ein-
hverju sambandi við hið ótrygga
ástand í Iran, sem á austurlanda-
mæri sín að Afganistan, og við
leitni Sovétstjórnarinnar til þess
að ná tökum á olíulindum land-
anna við Persaflóann og til þess
að ná valdi á olíuf lutningaleiðun-
um þaðan til Vesturlanda og
Japans. Vesturlönd hljóta því að
endurmeta alla stöðu sína í Ijósi
atburðanna í Afganistan, sem
eru stórkostlegt áfall fyrir þau
beint ofan í það áfall, sem at-
burðirnir i íran eru fyrir þau. En
hvað geta þau gert? Standa þau
ekki enn einu sinni frammi fyrir
gerðum hlut? Varla leggja
Vesturlönd í það að koma Rauða
hernum út úr Afganistan með
hervaldi. Carter Bandaríkja-
forseti hefur að vísu sagt, að
hernaðaríhlutun Sovétrfkjanna í
íran hljóti að hafa afdrifaríkar
stjórnmálaafleiðingar. Auðvitað
mun þetta valda aukinni spennu
milli Austurs og Vesturs. Og
Vesturlönd verða kannski um
eitthvern tíma betur á verði
gagnvart Sovétrikjunum en þau
hafa um langtskeið verið. Vissu-
lega er það vel, en mestu skiptir
þd að byrgja brunninn dður en
barnið er í hann dottið. Það, sem
hef ur verið að gerast síðustu ára-
tugina, er, að Sovétstjórnin hef ur
verið að tína eitt barnið af öðru
ofan í sinn djúpa brunn.
Vafasamt er, að það, sem nú
hefur drifið á daga afgönsku
þjóðarinnar, hefði yfir hana
gengið, ef Bandaríkin hefðu
haldið þeirri aðstöðu,sem þau
höfðu í Iran fyrir fall keisara-
stjórnarinnar. Svona leiðir eitt af
öðru, og þarf víst enginn að f ara í
grafgötur um, að Sovétstjórnin
beinir nú haukfránum sjónum
sínum að nágrannaríki sínu l'ran.
Þar er komið á algjört upp-
lausnarástand og núverandi
valdhafar undir forystu hins of-
stækisfulla klerks Khomeinis,
njóta sennilega hvergi samúðar.
„Eigi skal höggva", sagði
forseti okkar í áramótaávarpi
sínu og vitnaði þar til kjarnyrðis
Snorra Sturlusonar. I þessum
orðum forsetans fólst m.a. krafa
fyrir hönd íslensku þjóðarinnar
um grið til handa bandarísku
gíslunum í Teheran. Þótt rödd
okkar sé veik á hinum alþjóðlega
vettvangi ber okkur að láta hana
heyrast og gerði forseti okkar
það af þeirri alvöru og smekkvísi
sem hæfði.
Auglýsing verður sílelll mlkllvægarl I kosnlngabaráttu núlimans:
KOMU AUGLÝSINGARNAR MARGARET
THATCHER TIL VALDA?
Var það fyrst og fremst vel skipulögð auglýsinga-
herferð sem færði Margaret Thatcher völdin í Bret-
landi? Náttúrlega er erfitt að segja til um slíkt með
nokkurri vissu en stjórnmálamenn jafnt sem auglýs-
ingasérfræðingar í Bretlandi eru margir hverjir sann-
færðir um að herferðin hafi gert herslumuninn sem
dugði til að koma íhaldsmönnum til valda.
Ný tegund kosninga-
baráttu
Hér á íslandi hafa stjórn-
málaflokkarnir i vaxandi mæli
notaB auglýsingar i blöðum og
timaritum til aö koma stefnu
sinni á framfæri og i nýlokinni
kosningabaráttu var Sjálf-
stæðisflokkurinn atkvæöamest-
ur i sliku. Það væri þvi ekki
ófróölegt aö velta fyrir sér, nú
að loknum kosningum, hvað það
var sem geröi kosningarnar i
Bretlandi i mai siöastliðnum
frábrugönar heföbundnum
kosningum.
Það var meöal annars mark-
viss auglýsingaherferö íhalds-
flokksins.
Sýnishorn auglýsinganna
Mjög gott dæmi um þessa her-
ferö er tveggja siðna auglýsing i
timarit sem bar fyrirsögnina:
„Hvers vegna sérhver verka-
lýösfélagsmaöur ætti aö fhuga
aö kjósa íhaldsflokkinn.” Text-
inn er þéttritaöur á báðum siö-
um, fullur loforða um að Ihalds-
flokkurinn muni brjóta upp
vftahringinn. Undir lokin kemur
þessi bón: ,,Þó þú hafir allt þitt
lif kosið Verkamannaflokkinn
gerðu þá núna upp á milli flokk-
anna eftir verkum þeirra!”
Innflytjendavandamálið fær
einnig sinn skerf. 1 sérstökum
auglýsingum um það mál kveða
Ihaldsmenn það lýgi að þeir vilji
senda innflytjendur aftur til sins
heima. Þeir segja aftur á móti
að jafnvægiö i þjóðfélaginu
muni raskast ef ibúunum finnst
þeim ógnað af fjölda aðkomu-
manna.
Ein siða er sérstaklega ætluö
konum og vekur athygli að frú
Thatcher er þar ekki nefnd á
nafn en hins vegar bent á að það
hafi verið Ihaldsmaður sem
fyrstur barðist fyrir kosninga-
rétti kvenna, íhaldsflokkurinn
sem kom þvi máli i höfn, fyrsti
kvenþingmaðurinn hafi verið
Ihaldsmaöur, fyrsti flokksleið-
toginn sömuleiöis — þá er bara
eitt skref eftir.
Áhugi lesenda
önnur gerö af auglýsingum
reynir aö vekja áhuga lesenda. I
nokkurs konar spurningakeppni
er löng röð krossaspurninga og
eru þrjú möguleg svör við
hverri spurningu. Siðasta
spurningin er:
,,Hver af neðanrituðum per-
sónum finnst þér liklegust til aö
geta keypt i matinn fyrir fjöl-
skylduna?”
a) James Callaghan
b) maðurinn þinn
c) Margaret Thatcher
Annars staðar eru birtir lang-
ir listar yfir verðhækkanir á
matvöru og endar auglýsingin á
þessu: „Aður en þú ákveður
hvað þú ætlar að kjósa — gáöu
þá i budduna!”
Vísaðtil framboðsfunda í
sjónvarpi
Með stórum fyrirsögnum i
blöðum eru kjósendur hvattir til
að fylgjast með framboðsfund-
um thaldsflokksins i sjónvarp-
inu. Verkalýðsfélagsmeðlimir
eru sérstaklega hvattir til þess i
von um að lokka þá frá Vefka-
mannaflokknum. öðrum kjós-
endum er sagt: „Ef þú horfir
ekki á sjónvarpið klukkan 9 i
kvöld, þá séröu eftir þvi næstu
fimm árin.
Gamlar blaöafréttir eru einn-
ig notaðar. I einni auglýsingu
eru birtar nokkrar úrklippur úr
blöðum undir fyrirsögninni:
„Fyrst viö getum lækkað tekju-
skatt, meöan viö erum i
stjórnarandstöðu, hugsaðu þér
þá bara hvað við getum gert ef
við komumst i stjórn.”
Hvort það megi teljast æski-
legt að auglýsingafyrirtæki séu
notuð i kosningabaráttu er enn
deilt um.
Ihaldsmenn réðu sér i siðustu
kosningum eina nútimalegustu
og frumlegustu auglýsingastofu
Bretlands, Saatchi & Saatchi.
Fram til ársins 1959 voru aug-
lýsingar litið eða ekki notaðar i
breskum stjórnmálum. Menn
gátu þó leyft sér að nýta starfs-
krafta áhugasamra atvinnu-
manna, en auglýsingastofur —
nei takk!
Það ár braut thaldsflokkurinn
hefðina, og réði auglýsingastofu
til að sjá um kosningabaráttu
sina. Viðbrögðin urðu margvis-
leg, t.d. sagði yfirmaður kosn-
ingabaráttu Verkamanna-
flokksins: „Með þvi að fela
óviðkomandi aðilum á auglýs-
ingastofu kosningabaráttu sina
hefur Ihaldsflokkurinn gert
nokkuð sem er framandi okkar
ágæta breska lýðræði.”
Tveimur árum siðar réði
Verkamannaflokkurinn sér
einnig auglýsingastofu.
.... ‘ '
*%£££>*•** "•*■**"'*
MUGGING UP204%
CRIMINAL DAMAGE UP135%
ROBBERY UP 88%
o»Má uo ctat»>
Ci*M «■»(•><*»** :»•»>*» X. Brtwio rt»x »
-----------------------------
rti>jrv<x.pj:í iL ixy xóshi *»»» ««
»JÍ «\ n« »»tvf •*« )X4x»w:«
1 •* i»«Ul«
tt A' ts* 4«1 'xJ<c 6>ý»s«:
» K*» M»úkcn vt.
fe»S .to»t «ot »»v rtrv <» mkc É*
wvhttuo)'Jxrt jíiRrti
tM'. 4««'t ty tor.wt rtK *«*
iSiTSAFETO
VOTEFOH
ANOTHER LABOUR
GOVERNMENT?
VO«{CO*«WWWWEj5Ö
Sýnishorn af auglýsingum Ihaldsflokksins.