Vísir


Vísir - 02.01.1980, Qupperneq 11

Vísir - 02.01.1980, Qupperneq 11
VÍSIR Mi&vikudagur 2. janúar 1980. FAKAR: Texti: Siguröur A. Magnússon Myndir: Guömundur Ingdlfsson o.n. Útgefandi: Bókaforlagiö Saga 190V. Hestaferð um söouna 95 blaösiöur. Bók þessi mun fyrst og fremst hafa veriö gerö meö þaö i huga aö kynna islenska hestinn erlendis. Samkvæmt upplýsingum frá út- gefanda mun hún vera gefin út f rúmlega 40 þúsund eintökum, samtals. Þar af er aöeins tæpur tfundi hluti á islensku. Bókin er nokkuö áferöarfalleg og kunn- áttusamlega unnin, enda mun hún hafa fengiö ágætar viötökur erlendis. Hún kom út á islensku, dönsku og ensku fyrir jólin 1978, en nú hafa bæst viö sænskog þýsk útgáfa. Texti Siguröur A. Magnússon rekur sögu hestsins I trúarbrögöum og sögu og kemur viöa viö, I fyrri hluta textans. Frásögnin er lif- andi og læsileg, krydduö frásögn- um úr goöafræöi og sögu, Is- lenskri og erlendri, sem gefa skemmtilegan blæ. Undirritaöur hefur ekki þekkingu til aö meta hversu rétt er fariö meö söguleg- ar heimildir i þessum hluta text- ans.geröi ráö fyrir aö þar væri allt i besta lagi og las sér til óbland- innar ánægju. SAM á aö baki margra ;ára reynslu sem blaöamaöur, Viö lestur seinni hluta textans, fékk ég á tilf inninguna aö hann heföi veriö skrifaöur við þær aðstæöur, sem blaöamönn- um á tslandi eru búnar, mik- bókmenntir Sigurjón Valdimars- son skrifar iö álag og engan tima til um- hugsunar.þvi siöur tilyfirlesturs, leiöréttinga og lagfæringa. Höf- undi nýtist þar reynsla og hæfni, stillinn er sem fyrr llflegur og hann hefur nokkur tök á lesand- anum, en frásögnin losnar f reip- unum, skipulag raskast, og ekki er rétt meö fariö I öllum atriöum. Dæmi: I lok kaflans um hestamót og kappreiöar koma eins og skrattinn úr sauöarleggnum frá- sagnir af Gunnari á Hliöarenda, Þóröi Andréssyni, Gretti As- mundssyni og Fjalla-Eyvindi, alls óviökomandiefni þessa kafla, Sparið hundruð þúsunda með endurryðvörn á 2ja ára fresti Sparið tugþúsundir með mótor- og hjólastillingu einu sinni ó úri \B(L G4 BÍLASKOÐUN &STILLING f S 13-10 Manni finnst aö þessar frásagnir eigi betur heima f þeim hluta textans, þar sem sagt er frá hest- inum I Islendingasögum. Upplýs- ingar um hvaö mörg kynbóta- hross hafa veriö skráö á Islandi er ekki aö finna I kaflanum um hrossarækt, heldur I miöjum kafla um félög og hestamót i Evrópu. Dæmi um rangar upplýsingar: Á bls. 49 er útskýrt dómkerfi gæö- inga, sem var lagt niöur fýrir mörgum árum, og þaö sagt vera I gildi. Annars staöar segir aö reglur og mat á islenskum gæö- ingum séu alþjóölegar og gildi þær sömu i öllum aöildarlöndum FEIF, þarmeö taliö Island. Þetta er rangt. Dómreglur Landssam- bands hestamannafélaga eru aör- ar en reglur FEIF, en aö vfsu hafa íþróttadeildir hestamanna- félaga gert reglur FEIF aö sin- um, meö lítilsháttar breytingum og viðaukum. Orlitlu skakkar líka um stofnun L.H., þaö er stofnað 1949, en ekki á öndveröum sjötta áratugnum. Ýmsar fleiri skekkj- ur er aö finna i bókinni, en hér veröur látiö staöar numið I upp- talningunni, Missagnir þessar varpa skugga á annars skemmtilegan texta. Myndir Bókin er öörum þræöi mynda- bók og er engin opna svo i henni að ekki sé þar mynd, en tvær myndir þekja heila opnu hvor, og heföu mátt vera fleiri. Allar myndirnar eru litprentaöar og vitöist mér aö, a.m.k. sumar myndanna hafi varla prentast nógu vel, séu fulldaufar. Mjög mismunandi finnst mér hafa tekist i myndavali. Margar myndanna eru góöar og sumar frábærar, t.d. litil mynd á bls. 40, þar sem ljósiö leikur á mjög skemmtilegan hátt um myndflöt- inn, myndir á bls. 41-42, 70, 74, 75, 79 og 80. Flestum þessum mynd- um heföi mátt gefa meira rúm, kannski helst þeirri siöast töldu, sem er afbragös góö. Aftur á móti eru aörar myndir I bókinni, sem ósköplitiö er variö i og vart sjáanlegt erindi þeirra I bókaf þessarigerö. Svo einhverj- ar þeirra séu einnig tilnefndar, mábenda ámyndirábls.9, 18,44, 46, 55, 62, 76 og litla mynd á bls. 86. Auk þíess eru flestar myndirn- ar i kaflanum um félög og hesta- mót i Evrópu lélegar, en þær hafa þó þaö hlutverk aö sýna íslenska hestinn á erlendri grund. Verst hefúr myndamönnum þó tekist upp meö mynd á bls. 20, þar sem falleg mynd er eyöilögö meö af- leitum skuröi. Myndatexti Myndatextar eru þriöji þáttur þessarar bókar og sá sisti. Þeir eru yfirleitt meö nokkuö hátt stemmdu orðalagi, án töfra . . - . 4 i.' 4 *. *. > \ V n skáldlistarinnar. Textarnir veröa þá stundum hálf broslegt oröa- gjálfur, í litlu samhengi viö myndina. Gleggsta dæmiö um slikt er á bls. 11. Myndin er nokkuö falleg og yfir henni hvilir ró og friöur. Hestur stendur I kaf- grasi I haustbirtu. Skuggi er á haus hans og mótar ekki fýrir augunum. Myndflöturinn er fylltur af litlu landsvæöi og sér hvorki I hæö né himinn. I bak- grunni er hitaveitustokkur og sér móta fyrir vegi. Textinn er lang- ur, um lif meö höfuöskepnunum, horftaf háum fjallshryggjum yfir djúpa dali o.s.frv. og augun spegla hitt og annaö merkilegt. Mér er sagt aö útlendingar meti texta af þessari gerö meira en Is- lendingar. Þaö réttlætir sjálfsagt gerð þeirra i bók, sem þeim út- lendu er ætluö. 1 heild kemur þessi bók mér þannig fyrir sjónir aö fariö hafi veriðaf staötilaö skapa listaverk um islenska hestinn — sem sjálf- ur er eitt af fegurstu Kstaverkum almættisins — og á köflum tekist allvel, en er dregin niður i meöal- góöan afrakstur iönaöar meö gloppóttum vinnubrögöum. S.V. Sendum áskrifendum og öðrum lesendum VISIS bestu óskir GLEÐILEGT ÁR Þökkum ánægjuleg samskipti á liðnu ári Umboðsmenn VISIS um land allt um VESTURLAND - VESTFIRÐIR AKRANES Stella Bergsdóttir, Höföabraut 16, simi 93-1683 BORGANES Guösteinn Sigurjónsson, Kjartansgötu 12, simi 93-7395 STYKKISHÓLMUR Siguröur Kristjánsson, Langholti 21, simi 93-8179. BUÐARDALUR Sigriöur BjörgGuömundsdóttir, Sunnubraut 21, simi 95-2172 ÍSAFJÖRÐUR Guömundur Helgi Jensson, Sundastræti 30, simi 94-3855 BOLUNGARVÍ K Björg Kristjánsdóttir, Höföastig 8, simi 94-7333 GRUNDARFJÖRÐUR PATREKSFJÖRÐUR Þórunn Kristjánsdóttir, Grundargötu 45, simi 93-8733 ÓLAFSVÍK Anna Ingvarsdóttir, Skipholti, simi 93-6345 HELLISSANDUR Þórarinn Steingrimsson, Naustabúö 11, simi 93-6673 SUÐURLAND- REYKJANES Björg Bjarnadóttir, Sigtúni 11, simi 94-1230 BÍLDUDALUR Salome Högnadóttir, Dalbraut 34, simi 94-2180. HAFNARFJÖRÐUR Guörún Asgeirsdóttir, Garöavegi 9, simi 50641 KEFLAVÍK Agústa Randrup, Ishússtig 3, simi 92-3466 GRINDAVÍK Bjarnhildur Jónsdóttir, Staðarvör 9, simi 92-8212 I SANDGERÐI Sesselia Jóhannsdóttir, Brekkustig 20, | simi 92-7484 GERÐAR-GARÐI. Katrin Eiriksdóttir, Garöabraut 70, simi 92-7116 MOSFELLSSVEIT. Sigurveig Júliusdóttir, Arnartangi 19, simi 66479. SELFOSS Báröur Guömundsson, Fossheiöi 54, simi 99-1335, -1955, -1425. HVERAGERÐI Sigriöur Guöbergsdóttir, Þelamörk 34, simi 99-4552 ÞORLÁKSHÖFN Franklín Benediktsson, Veitingastofan, simi 99-3636 EYRABAKKI Eygeröur Tómasdóttir, Litlu-Háeyri, simi 99-3361 STOKKSEYRI: Pétur Birkisson, Heimakletti, simi 99-3241 HVOLSVÖLLUR Magnús Kristjánsson, Hvolsvegi 28, simi 99-5137 HELLA Auöur Einarsdóttir, Laufskálum 1, simi 99-5043 VESTMANNAEYJAR. Helgi Sigurlásson, Sóleyjagötu 4, slmi 98-1456. NORÐURLAND HVAMMSTANGI Hólmfriöur Bjarnadóttir, Brekkugötu 9, simi 95-1394 BLÖNDUÓS Siguröur Jóhannesson, Brekkubyggö 14, slmi 95-4350 SKAGASTRÖND Hallveig Ingimarsdóttir, Fellsbraut 4, simi 95-4679 HOFSÓS Jón Guömundsson, Suöurbraut 2, simi 95-6328 SIGLUF JÖRÐUR Matthias Jóhannsson, Aöalgötu 5, ' simi 96-71489 SAUÐÁRKRÓKUR Gunnar Guöjónsson, Grundarstlg 5, simi 95-5383 AUSTURLAND DJUPIVOGUR Bjarni Þór Hjartarson, Kambi, simi 97-8886. VOPNAFJÖRÐUR Jens Sigurjónsson, Hamrahlfö 21a, simi 97-3167 EGILSSTAÐIR PáH Pétursson, Arskógum 13, simi 97-1350 SEYÐISFJÖRÐUR Sveinn Valgarðsson, Baugsvegi 4, simi 97-2458 REYÐARFJÖRÐUR Dagmar Einarsdóttir, Mánagötu 12 simi 97-4213 ESKIFJÖRÐUR Elin Kristin Hjaltadóttir, Steinsholtsvegi 13, simi 97-6137 AKUREYRI Dóróthea Eyland, Viöimýri 8 Simi 96-23628 DALVÍK Sigrún Friöriksdóttir, Svarfaöarbraut 3, simi 96-61258 ÓLAFSFJÖRÐUR Jóhann Helgason, Aöalgötu 29, simi 96-62300 HUSAVÍK Ólafur Jónsson, Baughóli 1, simi 96-41603 RAUFARHÖFN Sigrún Siguröardóttir, Aöalbraut 45, simi 96-51259 NESKAUPSSTAÐUR Þorleifur G. Jónsson, Melabraut 8, simi 97-7672 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR Guöriður Bergkvistsdóttir, Hliðargötu 16, simi 97-5259 STÖÐVARFJÖRÐUR Sigurrós Björnsdóttir, Simstööinni, simi 97-5810 BREIÐDALSVÍK Jónina Björg Birgisdóttir, Hamri, simi 97-5618 HÖFN HORNAFIRÐI Guörún Hilmarsdóttir, Silfurbraut 37, simi 97-8337. Reykjavik: Aðalafgreiðsla, Stakkholti 2*4. — Simi 8-66-11 HÁTÚN 2A.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.