Vísir - 30.01.1980, Síða 1

Vísir - 30.01.1980, Síða 1
r TTáTm’áTar á ðÍiérTa "gef uTlt’ régl ug er ð Tdag’" FERÐAMENH FA AB FLYTJA INN BJÚR! Fjármálaráðherra mun i dag gefa út reglugerð þess efnis, að ferðamönn- um verður heimilt að hafa með sér tólf flöskur af bjór inn i landið, auk einn- ar flösku af sterku vini. Mönnum verður sem sagt gefinn kostur á þvi að velja á milli einnar pott- flösku af léttu vini og tólf flaskna af bjór. Ekki náðist I Sighvat Björg- vinsson i morgun til aö spyrja hann um ástæðurnar fyrir þess- ari nýju reglugerð, en fullvlst má telja að blaöaskrif sem hafa veriö um þetta mál að undanförnu, hafi valdið hér nokkru um. Heimildir, eöa öllu heldur heimildaleysi ferðamanna til innflutnings á bjór við komuna til Islands, komust mjög I brennidepil fyrir skömmú, þegar Davlð Scheving Thor- steinssyni var meinaður inn- flutningur á tólf flöskum af bjór, sem hann hafði keypt I frlhöfn- inni. ,,Til þess var leikurinn gerður af minni hálfu og ég fagna þessu ákaflega”, sagði Davíð Schev- ing Thorsteinsson I samtali viö Vísi I morgun. „Mér finnst sá ráðherra sem þetta geröi eiga heiöur skilinn fyrir að hafa tekið svona rögg- samlega og skynsamlega á þessu máli”, sagöi Davlð. —P.M. Höfnin er eins konar hjarta borgarinnar, og þar var „allt á fullu” þegar ljósmyndara bar að garði. Visismynd: JA Fellaskóli i Breiöholti. Sextán rúður brotnar í Feltaskóla Mikiö tjón hefur oröið af völd- um rilðubrota i Fellaskóla aö undanförnu. I nótt voru brotnar sex rúöur 1 skólanum og um slö- ustu helgi voru brotnar einar 10 rúður, bæði stórar og smáar. Einnig var talsvert brotið af rúð- um I ölduselsskóla um helgina. Lögreglan I Reykjavlk hefur rættvið skólastjóra þessara skóla um málið og standa vonir til aö hægt sé að upplýsa hverjir voru þarna aö verki. betta eru ekki einu skiptin sem rúður hafa veriö brotnar I Fellaskóla I vetur og einnig hefur verið mikiö um rúðu- brot í verslunum og stofnunum I nágrenni skólans. —SG Ráölterraefni í utanhingsstjórn: Jóhannes, Gylfi, Jónas, Halldór? Stjórnmálamenn I öllum flokk- um eru nú mjög uggandi yfir þvi, aðforsetinn kunni innan skamms aö fela manni utan flokka stjórn- armyndun. Tallö er víst aö Jóhannesi Nor- dal, seðlabankastjóra, yrði falin sllk stjórnarmyndun, en aðrir, sem nefndir hafa verið sem hugsanleg ráöherraefni, eru þeir Halldór E. Sigurösson, Gylfi b. Gislason og JónasHaralz. Margir stjórnmálamenn telja Jón Sig- urðsson, forstjóra bjóðhagsstofn- unar, gefinn ráöherra I utan- þingsstjórn, en hann mun ekki ljá máls á sllku. —P.M. Arangurslausar viðræður við sovélmenn um sðlu á lagmetl: BJÓÐfl 9% HÆKKUN EN VIÐ ÞURFUM 30% - segir Gylfi Þór Magnusson, framkvæmdastióri Sölustofnunar lagmetis „Viðræðurnar strönduðu fyrst og fremst á þvi, að það er 20% munur á verðinu sem Sovétmenn vilja greiða og þvi sem lagmetið þarf að fá” sagði Gylfi Þór Magnússon hjá Sölustofnun lagmetisins, þegar Visir ræddi við hann i morgun. Gylfi var i sendinefnd sem kom um helgina heim frá Sovét- rikjunum eftir árangurslausar viðræður viö Sovétmenn um sölu á lagmeti. Hann sagði að viðræðum væri ekki lokið og veriö væri að undirbúa næstu umferö. bær viöræður hæfust eftir um þaö bil viku.við versl- unarfulltrúa Sovétrlkjanna hér á tslandi. bað væri ekki vafi á að Sovétmenn hefðu áhuga á þessari vöru. en þaö væri með þennan iönaö eins og annan út- flutningsiðnaö, aö hráefni heföi hækkaö um 60%, vinnulaun um 50%, og umbúðir um 40% meöan dollarinn heföi ekki lagast fyrir útflutning nema um 25% frá janúar I fyrra.þar til nú I janúar. Sovétmenn hefðu getaö fallist á hækkun um 9%, en lagmetis- iönaðurinn þyrfti um 30% hækk- un. —JM

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.