Vísir - 30.01.1980, Side 9
Miövikudagur 30. janúar 1980
9
HfSISSl
I
N"X v s 's^< s %''
■V':
•{: -N s°'x'
: ■ '
«v| <r**
~4Tkjuu&a*.
. x\ -4
•• •*•;• **
Verkamennirnir eru renn-
sveittir þar sem þeir vinna viö
borinn, sem étur sig hægt en
ákveðið i gegnum bergið meö
ógnvekjandi hávaða. Hitinn er
26 stig og rakastig loftsins hátt.
En 240 metra fyrir ofan verka-
mennina blæs svalur vindurinn
yfir Kyrrahafið.
Þessir menn eru að vinna viö
við Seikangönginundir Tsugaru
sundinu, sem er milli Hokkaido
og Honshu, sem er stærst
japönsku eyjanna.
Aætlað er að göngin verði til-
búin árið 1982 og verða þau þá
lengstu jarðgöng, sem gerð hafa
verið undir yfirborði sjávar, eða
54kilómetra löng. Þetta er svip-
uð vegalengd og er frá Reykja-
vik til Selfoss. Þau verða jafnvel
lengri en „Chunnel” (Channel
tunnel), sem áætlað er að grafa
undir Ermarsundið milli
Englands og Frakklands.
Seikan-göngin verða lestar-
göng og mun það taka hraðlest
13 minútur að bruna i gegnum
þau og þar með að stytta ferða-
lagið frá Tokyó til Sapporo (höf-
uðborgin á Hokkaido) úr 20
klukkustundum i tæpar sex
klukkustundir.
Göngin verða 9.6 metrar á
breidd og heildarkostnaðurinn
við þau verður nálægt átta
hundruð milljörðum króna
(800.000.000 krónur). Fram-
kvæmdir hófustárið 1965 og sem
fyrr sagði er áætlað að þeim
ljúki árið 1982.
Hugmyndinni um gerð þess-
A þessum fimmtán árum, sem liðin eru siðan framkvæmdir hófust við Seikan göngin, hefur veriö lokið viö sjö tiundu hluta verksins, svo
enn er mikið verk óunnið.
ara ganga skaut fyrst upp fyrir
siðari heimstyrjöldina, en var
þá ýtt til hliðar og sagt aö hún
væri óframkvæmanleg. Með
aukinni tækniþróun leystust þó
vandamálin smám saman og
hafist var handa.
vegna reynslunnar og þekking-
arinnar, sem þeir hafa öðlast á
þessu sviði. Og þá eru sam-
göngubæturnar ekki einu sinni
teknar með i dæmið.
— ATA
Lengstu neöansjávargöng (helml:
JAFHLðNG SPOTTANUM FRA
REYKJAVÍK TIL SELF0SS!
Framkvæmdirnar hafa þó ekki
gengið átakalaust. Ógnarþrýst-
ingur er á göngunum, enda er
dýpi hafsins fyrir ofan þau allt
að hundrað metrar. Arið 1969
munaði minnstu að hætta yrði
við gerö gangnanna þar sem
þau brustu á einum stað og
vinna lá niðri I sjö mánuði. 12
tonn af vatni þrýstust inn i
göngin á minútu og verkfræð-
ingarnir stóðu uppi ráöalausir.
Óhemjumagni af steypu var dælt
Isprunguna og að endingu tókst
að loka henni.
Enn stærri sprunga myndað-
ist árið 1976, en þá streymdu 40
tonn af vatni inn i göngin á
minútu. Reynslunni rlkari frá ó-
happinu ’69 tókst verkfræðing-
um nú að loka sprungunni á
tveimur mánuöum.
Japanir sjálfir telja, aö þó
kostnaðurinn við Seikan-göngin
sé stjarnfræðilegur, þá hafi
framkvæmdirnar borgað sig