Vísir - 07.03.1980, Blaðsíða 12
Föstudagur 7. mars 1980
12
Föstudagur 7. mars 1980
: ■
„Mest gaman að leika
í hasaratriðum”
— Vísir ræöir við þrjá krakka, sem leika
islensku kvikmyndinni „Veiöiferö", sem frum
sýnd verður á laugardaginn
erfeomin!
°S svo allt hitt...
... Fréttaljósið/ Fréttagetraunin, Helgarpoppið,
Gagnaugað, Ertu í hringnum, Sandkassinn, Hæ
krakkar, Líf og list um helgina og margt, margt
fleira.
„Hef ekki áhuga á að
vera formaður ef ég nyt
ekki trausts til þess”
— segir Geir Hallgrimsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, i Helgarviðtalinu
„Ásgrímssafn er
eign þjóðarinnar”
segir Bjarnveig Bjarnadóttir er Vísir
heimsótti Ásgrimssafn
..Öll mín leikrit fjalla
um eitthvert fíaskó”
— Viðtal við leikritaskáldið Arnold Wesker
17
Nýlokið er fyrsta námskeiðinu i flugmódel-
smiði, sem haldið hefur verið fyrir fullorðna hér á
landi. Það var Tómstundahúsið s.em stóð fyrir
námskeiðinu en leiðbeinendur voru félagar úr
Flugmódelfélaginu Þyt.
„Þátttakendur voru tiu i þessu námskeiði sem
haldið var á mánudögum, sjö kvöld alls”, sagði
Jón Pétursson, einn leiðbeinendanna.
Jón sagöi, aö á námskeiöinu
heföi hver þátttakandi smiöaö
eitt módel, og innifaliö i nám-
skeiöinu væri kennsla i aö fljúga
vélunum. Gjaldiö fyrir nám-
skeiöiö er fimmtán þúusund
krónur og efniö i módelin kostar
frá 8-40 þúsund krónur, allt eftir
módelum. Þá kostar vélin um 30
þúsund krónur og fjarstýringin
frá 70-190 þúsund krónur.
Innifaliö i námskeiösgjaldinu
eraöstaöan, allar leiöbeiningar,
teikningar og verkfæri, og svo
útvegar Tómstundahúsiö efni-
viöinn.
— Er erfitt að fljúga þessum
módelum?
,,Já, þaö þarf vissa hæfni til
þess. Þetta er eiginlega það
sama og að fljúga venjulegri
flugvél nema hvað áhættan er
ekki eins mikil”, sagði Guðjón
Ólafsson, yfirkennari á nám-
skeiðinu.
„Viö þurfum aö hjálpa mönn-
um í fyrstu skiptin sem þeir
fljúga, fleyta þeim yfir byrjun-
aröröugleikana. Að þvi loknu
ætti mönnum aö vera nokkuð
óhætt, ef þeir fara ekki að gera
einhverjar kúnstir”.
— Eru margir flugmódel-
áhugamenn i Reykjavík?
„Þetta er frekar litill hópur
ennþá, en okkur fjölgar jafnt og
þétt. Annars á Flugmódelfélag-
ið Þytur tiu ára afm.æli á þessu
ári og við finnum aö áhugi fyrir
félaginu eykst og fyrirspurnum
fjölgar”.
Þeir Þytsmenn bentu á, að i
júli i fyrra var haldiö á Hvols-
velli Noröurlandamót i módel-
svifflugi, og var þaö fyrsta fjöl-
þjóöa flugmótiö, sem haldiö hef-
ur verið á tslandi.
I sumar er svo gert ráð fyrir
aö keppa i módelvélflugi hér á
landi. Þaö yröi fyrsta mótiö
sinnar tegundar á Islandi en
nokkrir tslendingar hafa fariö
utan á hverju ári um nokkurt
skeiö til keppni.
— Hvar fljúgið þiö þessum
vélum?
„Við höfum aðallega veriö
uppi á Sandskeiöi, en einnig viö
Korpúlfsstaöi og á Leirtjörn,
sem þornar upp á sumrin. Þaö
er mesta furöa hvað vélarnar
þola mikinn storm, því við höf-
um flogið þeim 15-6 vinstigum”.
— Hvað komast vélarnar á
mikinn hraða?
„Það er mjög misjafnt. Jón
samkennari minn Pétursson á
til dæmis vél sem kemst á 160
kílómetra hraöa i láréttu flugi.
STUKAN hans Gunnars ætti aö
komast á 130 kilómetra hraða.
En flestar vélarnar fljúga mun
hægar. Byrjendavélarnar fljúga
venjulega á 10-20 kilómetra
hraða, en komast liklega mest i
60 kilómetra hraöa, ef þær eru á
niöurleiö — og fljúga beint niö-
ur!”, sagöi Guöjón Ólafsson.
Þess má geta, aö nýtt nám-
skeiö hefst á þriöjudaginn 11.
mars, ef nægileg þátttaka fæst.
Þeir sem hafa áhuga geta haft
samband við Tómstundahúsiö
hf„ Laugavegi 164, eöa i sima
21901.
—ATA
Á: ,w y>
-
Jóhann Þór Jóhannsson er hér gifurlega niöursokkinn i smfðina.
Visismyndir: JA
„Ég hef lengi haft áhuga á
flugvélum og mig langar til aö
veröa flugmaöur þegar ég er
orðinn stór”, sagöi Jóhann Þór
Jóhannsson, 12 ára gamall, en
hann var yngsti þátttakandinn I
námskeiöinu.
„Ég er aö smiöa flugvél sem
heitir WINDY. Þetta er eins
konar byrjendavél og við erum
þrir á námskeiöinu, sem erum
aö smiöa slika vél. Ég er búinn
að kaupa vél i módelið og ætla
aö fá mér fjarstýringu.
Ég ætla örugglega að taka
þátt i næsta námskeiöi, þvi
þetta er miklu skemmtilegra en
i smiöinni i skólanum. Þar fær
maöur ekki svona erfiö og
skemmtileg verkefni”, sagöi
Jóhann Þór.
Vænghafið á WINDY er um
120 sentimetrar og venjulegur
flughraöi vélarinnar er um 20
kilómetrar. Vélin lætur vel aö
stjórn og er jafnvel hægt að
láta hana fljúga á gönguhraöa.
—ATA
„Nei, heyröu! A vængurinn örugglega aö snúa svona?” Tveir þátt-
takendanna íbyggnir yfir módeli.
Guöjón ólafsson (meö gleraugu) leiðbeinir einum þátttakendanna, sem er aö smföa
módelsvifflugu.
- seoir Gunnar
Jónsson. sem er
að smlða sér
moflei af STUKA,
orrustuvéllnnl frægu
„Ég hef haft áhuga á
módelsmiði frá þvi ég
var unglingur”, sagði
Gunnar Jónsson, en
hann var elsti þátttak-
andinn i námskeiðinu.
„Ég hef smiðað nokkur módel
sjálfur, en bara til skrauts þvi
ég hef aldrei flogiö þeim. Svo
smitaðist ég aftur af syni min-
um, sem einnig er á námskeiö-
inu. Og áhuginn er svo mikill, að
ég var t.d. aö smiöa til klukkan
hálf sex I morgun. Ég var nefni-
lega svo stutt kominn, byrjaöi
ekki á námskeiöinu fyrr en I
næstsföasta tima.
Ég hef haft mikið gagn af
þessu námskeiði og fengiö ýms-
ar tæknilegar ráöleggingar,
enda hefur ýmislegt breyst á
þeim 25 árum sem liðin eru siö-
an ég gekk i flugmódelklúbbinn,
sem Ólafur Magnússon stofnaöi
á sinum tima”.
Gunnar er aö smiða módel af
kunnri þýskri orustuflugvél úr
seinni heimsstyrjöldinni. Hún
heitir Junkers JU 87D-5, betur
þekkt undir nafninu STUKA.
Sú vél geröi mikinn usla i
seinni heimsstyrjöldinni og
hræddi liftóruna úr fjölda
manns meö háskalegu ýlfrinu
sem heyrðist þegar hún steypti
sér.
„Ég klára vélina örugglega
ekki fyrr en einhvern tima á
næsta ári”, sagöi Gunnar og hló,
„en ég ætla örugglega á næsta
námskeiö til aö fá frekari ráö-
leggingar.
Þaö er maöur á námskeiöinu
sem er aö smiöa bandarisku or-
ustuvélina MUSTANG, svo hér
gæti orðiö mikill loftbardagi”.
—ATA
„HÉR GÆTI 0RBIÐ
MIKILL LOFTBARDAGI"
Fyrsta námskelðinu í
fluomédelsmíði lokið:
VAXANDI
AHUGI
FYRIR
FLUG-
Allt i röö og reglu. Teikningin fremst á boröinu, þá vængirnir og búkur inn og fyrir endanum sést flugvélin eins og hún á aö veröa.
Js aaia að verða flugmaður”
- segir Jóbann Þór Jóhannsson. yngsll bátttakandlnn I námskelðlnu