Morgunblaðið - 11.11.2001, Side 14

Morgunblaðið - 11.11.2001, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SJÚKRAHÚS var fyrst reistá Ísafirði í lok 19. aldar ogtaldist fullbúið í ársbyrjun1897. Sjúkrahúsið, sem stóðí Mánagötu 5, rúmaði 20 sjúklinga þegar best lét. Húsið var nýlega endurnýjað og er þar nú rekið Gamla gistihúsið. Vilmundur Jónsson, síðar land- læknir og alþingismaður, var héraðs- læknir í Ísafjarðarhéraði 1917-31. Hann var ekki fyrr kominn til starfa en hann bar það upp í sjúkrahúss- nefnd að sjúkrahúsið væri allt of lítið. Fyrst kynnti hann hugmyndir um viðbyggingu við gamla sjúkrahúsið en féll fljótlega frá því og lagði til að byggt yrði nýtt sjúkrahús. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, kom til Ísafjarðar í ágúst 1920 til að ræða um nýja sjúkrahússbyggingu og hvar hún yrði best staðsett. Hann lagði fyrir byggingarnefnd uppdrátt af væntanlegu ráðhúsi, sjúkrahúsi og kirkju og götuskipun á sunnanverðu Eyrartúni. Túnið var þá í útjaðri bæj- arins og ekki farið að skipuleggja byggð ofan þess. Byggingarnefndin féllst á þessar tillögur húsameistar- ans og ályktaði að leggja til við bæj- arstjórn að samþykkja þær. Í ársbyrjun 1921 sendi Guðjón upp- drátt að nýju 30 rúma sjúkrahúsi sem áætlað var að mundi kosta 360 þús- und krónur. Upphæðin óx bæjar- stjórn í augum og var leitað til sýslu- nefndar N-Ísafjarðarsýslu um þátttöku í byggingunni. Sýslunefnd samþykkti að byggja og reka sjúkra- húsið í helmingafélagi við kaupstað- inn. Einnig var leitað til ríkissjóðs um stuðning. Það gekk ekki þrautalaust að fá samþykki fyrir byggingunni. Oddviti bæjarstjórnar ógilti tvívegis sam- þykktir bæjarstjórnar um fjárfram- lög í bygginguna. Í bæði skiptin var ákvörðun oddvitans áfrýjað til stjórn- arráðs sem sagði að samþykktir bæj- arstjórnar skyldu standa. Framlag fékkst frá Alþingi 1923 og komst mál- ið þá fyrst á rekspöl. Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 21. júlí 1923 að fela fjárhagsnefnd að undirbúa bygg- ingu sjúkrahúss þannig að framlagið úr ríkissjóði fengist greitt sem fyrst. Vilmundur útvegaði lán í Landsbank- anum til byggingarinnar og bæjar- stjórnin samþykkti að hefja byggingu sjúkrahússins eftir teikningum húsa- meistara ríkisins á fundi 10. október 1923. Sérstök byggingarnefnd var skipuð undir forystu Vilmundar Jóns- sonar, héraðslæknis og bæjarfulltrúa. Honum er þakkað öðrum fremur að sjúkrahúsið reis og var aðeins tæp tvö ár í byggingu. Ásamt Vilmundi sátu í nefndinni Haraldur Guðmunds- son, bankaritari, og Jón H. Sig- mundsson, smiður. Því fer fjarri að Vilmundur hafi eignað sér einum heiðurinn af sjúkra- hússbyggingunni. Í grein í Skutli 14. september 1923 lýsir hann fylgi margra og skrifar m.a.: „Eg vil ekki láta þakka mér og mínum flokks- mönnum einum, að þetta sjúkrahús- byggingarmál er komið svo vel á veg. Pólitíska andstæðinga okkar vil eg ekki láti taka þar undan, úr því að þeir eiga þær þakkir með okkur. Þyk- ir mér sérstök ástæða til að taka þetta fram.“ Myndarlegasta sjúkrahúsið Sjúkrahús Ísfirðinga á Eyrartúni var vígt með viðhöfn 17. júní 1925 og þótti þá myndarlegasta sjúkrahúss- bygging á landinu. Það var kjallari og þrjár hæðir, samtals tæplega 1.000 m2. Við vígsluna voru m.a. Guðmund- ur Björnsson, landlæknir, sem hélt aðalræðuna, og Guðjón Samúelsson, húsameistari. Það var ekki að ástæðulausu sem 17. júní var valinn vígsludagur. Af- mælisdagur Jóns Sigurðssonar hafði þá verið haldinn sem almennur hátíð- isdagur á Ísafirði undanfarin ár. Minning Jóns var m.a. heiðruð með því að láta allan ágóða af skemmt- unum dagsins ganga til tækjakaupa fyrir nýja sjúkrahúsið. Greint er frá vígsluhátíðinni í Skutli og segir þar um ræðu landlæknis: „Vígsluræða landlæknis var að öllu hin sæmilegasta, eins og vænta mátti; bar vott um skilning hans á þessu mikla nytsemdarverki, alúð hans og hollustu því til handa. Tjáði hann húsið prýðilegt í alla staði og enga hættu á, að rekstur þess yrði bænum tilfinnanlegur út- gjaldaauki.“ Húsið var tekið í notkun 28. júlí sama ár og sjúklingar fluttir úr gamla sjúkrahúsinu. Samkvæmt upphafleg- um teikningum var gert ráð fyrir að sjúkrahúsið rúmaði 40 sjúklinga, en frá upphafi voru rúmin í reynd 50 talsins. Árið 1932 var tveimur rúmum bætt við og sjúkrarúmin talin 52 á ár- unum 1932-55. Nýjar þarfir gengu á sjúkrarýmið og frá árinu 1956 var sjúkrahúsið talið 42 rúma. Andstæðingar sjúkrahússbygging- arinnar fundu henni m.a. það til for- áttu að hún væri allt of stór. Sagan segir að einhvern tímann þegar Vil- mundur læknir var spurður hvað ætti að gera við allt þetta pláss hafi hann svarað því til að það mætti þá bara dansa í því ef það nýttist ekki til ann- ars! Sjúkrahúsið reyndist ekki of stórt. Það þjónaði ekki einungis Vestfirð- ingum heldur einnig sjómönnum frá öllum heimshornum sem stunduðu veiðar úti fyrir Vestfjörðum. Þar var að jafnaði fjöldi erlendra og innlendra skipa og oft komið með slasaða og sjúka sjómenn til Ísafjarðar. Sjúkrahús Ísfirðinga hlaut viður- kenningu ráðherra sem fjórðungs- sjúkrahús hinn 21. maí 1958 og nefnd- ist eftir það Fjórðungssjúkrahús Ísafjarðar. Gagnger endurnýjun Þar kom að þörf vaknaði fyrir nýtt sjúkrahús á Ísafirði og var það tekið í notkun 1989. Á því sama ári fagnaði Bæjar- og héraðsbókasafn Ísafjarðar 100 ára afmæli. Af því tilefni var safn- inu afhent sjúkrahúsið frá 1925, nú nefnt Gamla sjúkrahúsið, til umráða. Auk bókasafnsins fá héraðsskjala- safn, ljósmyndasafn og Listasafn Ísa- fjarðar inni í Gamla sjúkrahúsinu. Bókasafnið hefur verið til húsa á efri hæð Sundhallarinnar á Ísafirði og löngu búið að sprengja það húsnæði utan af sér. Þegar ákveðið var að fá Gamla sjúkrahúsinu nýtt hlutverk varð ljóst að gera þyrfti nokkrar breytingar auk lagfæringa á húsinu. Að sögn Jó- hanns Hinrikssonar, forstöðumanns, var ákveðið að færa útlit hússins til upprunalegrar myndar, eftir því sem kostur væri. Eins þurfti að mæta breyttum kröfum, til dæmis hvað varðaði aðgengi fatlaðra, eldvarnir, hitalagnir, raflagnir og tölvutenging- ar. Skipuð var verkefnisstjórn um endurbyggingu hússins 1997 og í hana kjörnir bæjarfulltrúarnir Jónas Ólafsson, Sigurður R. Ólafsson og Smári Haraldsson. Verkáætlun var gerð og framkvæmdum skipt í tvo megin áfanga. Teiknistofa Knúts Jeppesen og Pétur Örn Björnsson, arkitekt í Reykjavík, önnuðust hönn- un breytinga á húsinu en samið var um hönnun hita- og þrifakerfa við Tækniþjónustu Vestfjarða hf. á Ísa- firði um raf- og fjarskiptalagnir við Verkfræðistofuna Teru sf. í Reykja- vík og um hönnun og ráðgjöf vegna burðarvirkja, ásamt ráðgjöf við steypuviðgerðir við Fjarhitun hf. í Reykjavík. Kostnaðaráætlun í sept- ember 1997 gerði ráð fyrir að end- urbygging hússins, ásamt innrétting- um, myndi kosta 99 milljónir. Fyrsti áfangi var boðinn út og til- boð opnuð 6. janúar 1998. Gengið var að lægsta tilboði frá Eiríki og Einari Val hf. Síðari áfangi hefur ekki enn verið boðinn út vegna skorts á fjár- magni. Jóhann sagðist vonast til að það fengist á næsta ári. Byrjað var á að endurnýja húsið að utan og gluggar og útihurðir smíð- aðar eftir upphaflegum teikningum Guðjóns Samúelssonar. Eini munur- inn er að glerið er nú haft tvöfalt og öryggisgler sett í glugga jarðhæðar. Herbergjaskipan verður að mestu upprunaleg. Búið er að saga hurðaop á milli gömlu stofanna á 1. hæð til að auðvelda umferð um húsið. Aðalinn- gangur verður að sunnanverðu, eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Við inngang að norðanverðu hefur verið steyptur rampur fyrir hjólastóla og þar sett hjólastólalyfta upp á 1. hæð. Þaðan er auðvelt að að komast að lyftu sem gengur milli hæða hússins. Sambýli safna Í kjallara verður héraðsskjalasafn- ið og hluti af því þegar kominn þar inn. Jóna Símonía Bjarnadóttir, sagn- fræðingur og skjalavörður, hefur vinnuaðstöðu í stofu sem í upphafi var ætluð fyrir geðsjúka. Hún segir að flokkuð skjöl fylli nú 700 skjalaöskjur og aðfanganúmer safnsins séu rúm- lega 3.600 talsins. Óflokkuð skjöl fylla 30 vörubretti. Reikna má með að eftir flokkun endi fimmtungur af því í skjalasafninu. Í öðru kjallaraherbergi er einnig geymt safn 120 þúsund ljósmynda, ýmist á filmum, glerplötum eða papp- ír. Langmest er af mannamyndum. Uppistaðan eru myndir ljósmyndara sem starfað hafa á Ísafirði allt frá árinu 1889. Þeirra á meðal eru Björn Pálsson, M. Simson, Jón Aðalbjörn Bjarnason og Leó Jóhannsson. Einn- ig eru í safninu ljósmyndir frá Vest- firska fréttablaðinu og myndasöfn frá einstaklingum. Myndir atvinnumanna eru allar skráðar í þeirra kladda, en eftir er að tölvuskrá safnið sem mun auðvelda leit. Að sögn Jóhanns og Jónu berst mikið af fyrirspurnum um myndir í safninu. Gjarnan koma þær í tölvu- pósti og erlendis frá, einkum frá Kan- ada og Bandaríkjunum. Þá eru af- komendur fólks sem flutti vestur um haf að verða sér úti um myndir af for- feðrunum. Oftast er hægt að verða við óskum um myndir. „Hér er líka Gamla sjúkrahúsið mun hýsa bókasafn, skjalasafn, ljósmyndasafn og listasafn Ísfirðinga. Edinborgarhús er menningarmiðstöð sem m.a. hýsir Listaskóla Rögn Menningar- húsin á Ísafirði Búið er að fylla kjallara sjúkrahússins af b Jóhann virðir fyrir sér hluta bókasafnsins Myndin sýnir útför erlends sjómanns á Ísa Sniðmyndin sýnir herbergjaskipan í Gamla sjúkrahúsinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.