Morgunblaðið - 11.11.2001, Page 17

Morgunblaðið - 11.11.2001, Page 17
Nýr Polo frum- kynntur á Sardiníu Stærri og betur búinn en á svip- uðu verði.  BUGATTI Type 41 Royale Kellner Coach árgerð 1930 er dýrasti bíll sem selst hefur á uppboði. Árið 1987 fengust fyrir hann 5,5 milljónir sterlings- punda, um 830 milljónir ÍSK. Nú er allt útlit fyrir að þetta met verði slegið og það af sama bílnum, því til stendur að bíllinn verði boðinn upp af Bonhams & Brooks í London. Bíllinn var í eigu Ettore Bugatti og aðeins sex slíkir bílar voru smíðaðir. Hann er sex metra langur og fílamerkið á vélarhlífinni er í axl- arhæð meðalmanns. Undirvagninn var smíðaður í verksmiðju Bugatti í Molsheim en bílasmiðurinn Kellner smíðaði yfirbygginguna. Búist er við að bíll- inn seljist á um 7 milljónir sterlingspunda, um 1.060 milljónir ÍSK. Dýrasti bíll heims?  SKÖMMU áður en blaðamannafundur Nissan hófst á bílasýningunni í Tókýó var afhjúpaður splunkunýr GT-R sportbíll, sem enginn, nema inn- vígðir Nissan-menn, vissi að til stóð að frumsýna á sýningunni. Carlos Ghosn, stjórnarformaður Niss- an, afhjúpaði bílinn sem er í hugmyndaútfærslu enn sem komið er. Öruggt er að bíllinn verður smíðaður og hann verður líklega fáanlegur í Evrópu innan tveggja ára. Eins og fyrri gerðir GT-R er bíllinn með stórum loftinntökum að framan og stóru grilli og afturljós sem minna mest á Ferrari. Nissan gaf ekki mikið upp um hvaða búnaður væri í bílnum. Heyrst hefur að Nissan hafi uppi áform um að hafa auk afl- mikillar bensínvélar í bílnum litla og létta rafmótora við hvert hjól, sem auka enn frekar á aflið og bæta auk þess veggripið. Með þessu móti kemst Nissan ennfremur framhjá japönskum reglugerðum sem kveða á um hámarksafl frá bensínvélum. Hugs- anlegt er talið að GT-R verði með aflmeiri útgáfu af 3,6 lítra V6 vélinni í Z-bílnum, með tveimur for- þjöppum og yfir 400 hestafla. Bíllinn verður með tölvustýrðu fjórhjóladrifi eins og núverandi gerð og ráðgert er að hann verði með sjö hraða CVT- reimskiptingu. Nýr GT-R afhjúpaður í Tókýó  ELYSIUM er svar Honda við BMW C1. Þetta nýja vélhjól er með 750 rúmsenti- metra vél og var hannað með það í huga að veita alla kosti vélhjóls- ins í þungri borgarumferðinni en um leið öryggi fólksbílsins. Aftasta hluta þaksins er hægt að fella niður í þar til gerða rauf aftan við farþegasætið. Þar er einnig að finna hirslu sem tekur tvo örygg- ishjálma. Elysium er með cvt-reimskiptingu. Svar Honda við BMW C1 LAND Rover hefur sent frá sér fyrstu mynd- irnar af nýjum Range Rover sem kemur á markað í Bretlandi í febrúar á næsta ári. Þeg- ar hafa borist pantanir í bílinn hér á landi en velbúinn bíll með V8 vél mun líklega kosta á bilinu 12-13 milljónir kr. Meðan BMW hélt um stjórnartauma hjá Land Rover hófst endurhönnun flaggskipsins Range Rover. Þegar Ford síðan keypti Land Rover á síðasta ári var gerður samningur um að BMW lyki hönnun bílsins. Hann verður boðinn með tveimur nýjum BMW-vélum, þ.e. 3ja lítra, sex strokka dísilvél með forþjöppu, 184 hestafla, og 4,4 lítra V8 bensínvél, 288 hestafla með 440 Nm togi, þeirri sömu og í BMW X5. Ford hefur lagt á hilluna áform um fleiri vélarkosti frá BMW og ætlar sér þess í stað að þróa sínar eigin vélar fyrir bílinn. Þeirra er þó ekki að vænta í nánustu framtíð. Bíllinn er sjálfskiptur og með millikassa, sem gerir hann betur í stakk búinn að kljást við vegleysur og þungan drátt. Sjálfskiptingin er með steptronic-handskiptingu og HDC- búnaði sem kallaður hefur verið hallaviðhald. Einnig er í bílnum stöðugleikastýring sem hægt er að taka úr sambandi. Athygli vekur að bíllinn er ekki byggður á sjálfstæðri grind en tilgangurinn er líklega fyrst og fremst sá að að halda niðri þyngdinni og auka fólksbílaeigin- leikana. Loftpúðafjöðrunin er eitt af stóru trompum þessa bíls. Hún gefur bílnum mjúka og þægilega fjöðrun eins og í dýrustu lúxus- fólksbílum en um leið er hægt að hækka bílinn svo hann getur betur tekist á við vegleysur. Fjöðrunin lækkar sig sjálfkrafa þegar bíllinn kemst á þjóðvegahraða. Sömuleiðis lækkar bíllinn sig sjálfkrafa þegar dyr eru opnaðar sem auðveldar allan umgang um hann. Meðal búnaðar er t.d. upphitun í stýri. Bob Dover, aðalframkvæmdastjóri Land Rover, segir að nýi bíllinn verði einhver magn- aðasti fólksbíll sem um getur þar sem mætast góðir eiginleikar í utanvegaakstri og fólks- bílaeiginleikar í borgarakstri. Lengri, þyngri og aflmeiri Nýr Ranger Rover er einungis þriðja kynslóðin í 31 árs sögu bílsins. Að utanverðu minnir hann í einu og öllu á fyrri gerðir þrátt fyrir að allir hlutir yfirbygg- ingar séu nýir. Hann er 4,95 m á lengd, 291 mm lengri en fyrri gerð, 46 mm hærri en nokkru mjórri, sem ætti að gera hann þægilegri í borgarumferðinni. Bíllinn er sömuleiðis þyngri en áður. V8-gerðin, sem áður var 2.220 kg, fer upp í 2.440 kg. Sömuleiðis er hjólhafið meira en áður, 2.880 mm í stað 2.745 mm. Fyrir vikið er innanrýmið meira, sérstaklega í aftur- sætum og farangursrýmið er einnig stærra en áður. Nýr Range Rover verður þó seint valkostur venju- legra launþega því búist er við að verðið verði a.m.k. 40 þúsund pund fyrir grunngerðina, sem er jafngildi um sex milljóna ÍSK. Með fullum búnaði og V8 vélinni get- ur verðið hæglega farið upp í 15 milljónir kr. Nýr Range Rover – jeppi og lúxusbíll Nýr Range Rover er ekki á grind en er með háu og lágu drifi. Öllu hefur verið breytt í innanrýminu. Hönnuðir höfðu upprunalega bílinn til hlið- sjónar þegar þeir teiknuðu þriðju kynslóðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.