Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 30
ERLENT
30 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á horni Laugavegs og Klapparstígs, sími 552 2515.
Sprengitilboð á
laugardegi
Kristalsvasar og
-skálar í mörgum litum
2 fyir 1
Laugavegi 25, sími 533 5500
Paris
Langur laugardagur
20% afsláttur
af silkiblússum
Laugavegi 25,
sími 551 1135.
ÞAR SEM
LEIKFÖNGIN FÁST
Slagtré, formakassi,
talnagrind og púsluspil.
Brunabíll
og torfærubíll.
Brúðarpar og terta, bangsi
í stól og bollastell.
og önnur farartæki,
mikið úrval.
Leikföng fyrir yngstu börnin
Falleg leikföng
Snúrustýrðir bílar
Bangsafjölskyldan
Bílar, bílar, bílar
Bangsar, kisur
og mjúk dýr
Formvagn, sjónvarp/spiladós
og álfur m/ljósi.
Tréleikföng
KNICKERBOX
Laugavegi 62, sími 551 5444
KNICKERBOX
Kringlunni, sími 533 4555
K N I C K E R B O X
Flíssloppur (þessir hlýlegu)
Langerma toppur og
síðar buxur í stíl
Mikið úrval af nærfatnaði,
náttfötum og náttkjólum
Munið gjafabréfinSendum í póstkröfu
HÆTTA er á, að japanskt efnahags-
líf sé að sigla inn í meiri kreppu en
sögur fara af síðan um og eftir 1930, í
Kreppunni miklu, sem kölluð er.
Kom þetta fram hjá kunnum, banda-
rískum hagfræðingi á miðvikudag.
Paul Krugman, prófessor í hag-
fræði og alþjóðamálum við Prince-
ton-háskóla, sagði á fundi hjá sam-
starfsráði Kyrrahafsríkja í Hong
Kong í gær, að ástæða væri til að ótt-
ast, að mikill, fyrirsjáanlegur sam-
dráttur í japanskri iðnframleiðslu og
verðhjöðnunin í landinu leiddu til al-
varlegrar efnahagskreppu. Sagði
hann, að stjórnvöld í Japan hefðu
hummað fram af sér óhjákvæmilegar
aðgerðir og væru nú að tapa á tíma.
„Ég veit ekki hve hratt þetta mun
ganga fyrir sig en ástandið minnir
ekki á neitt meira en atburði ársins
1931,“ sagði Krugman og benti á, að
þjóðarframleiðslan í Japan hefði ver-
ið að minnka um 2% á ári. Þar við
bættist vaxandi skuldasöfnun vegna
verðhjöðnunarinnar.
Fjármálasérfræðingar segja, að
mjög alvarleg kreppa sé þegar skoll-
in á í japanska bankakerfinu. Glímir
það við töpuð útlán, sem nema gíf-
urlegum upphæðum, og bankarnir
verða fyrir nýjum áföllum af því tagi
daglega.
Djúp
kreppa í
Japan?
Hong Kong, Tókýó. AFP.
BRESKA lögreglan ætlar að vera
með mikinn viðbúnað í umferðinni í
næsta mánuði enda er jafnan meira
um ölvun við akstur í kringum jól og
áramót en í annan tíma. Hvetur hún
fólk til að hringja og láta vita af því
ef einhver er drukkinn undir stýri
og heitir jafnvel ríflegum verðlaun-
um fyrir.
Þeim, sem vara lögregluna við,
verður umbunað með allt að 75.000
ísl. kr. en þá að því tilskildu, að söku-
dólgurinn náist og verði dæmdur.
Eru dómar fyrir ölvun við akstur
miklu þyngri nú en á árum áður og
algengast, að menn missi prófið í eitt
ár að minnsta kosti fyrir fyrsta brot.
Ef brotið er endurtekið eða er mjög
alvarlegt eru menn dæmdir í fang-
elsi. Sagði frá þessu í BBC, breska
ríkisútvarpinu, í gær.
Í Bretlandi er um að ræða sér-
stakt símanúmer, sem unnt er að
hringja í til að koma upp um af-
brotamenn eða vara við fyrirhug-
uðum afbrotum, og peningarnir,
sem greiddir eru fyrir upplýsing-
arnar, koma úr sjóði, sem sér-
staklega var stofnaður í því skyni.
Greitt fyrir
upplýsingar
Róðurinn gegn
ölvunarakstri hertur
PÖNTUNUM á varanlegum neyslu-
vörum hjá bandarískum verksmiðjum
fjölgaði um 12,8% í október, sem end-
urspeglar aukna eftirspurn eftir
vörum á borð við bíla og tölvur. Aukn-
ingin er sú mesta sem orðið hefur frá
því að yfirvöld hófu að fylgjast með
pöntunum skv. núverandi kerfi í mars
1992. Þetta er jafnframt fyrsta aukn-
ingin sem orðið hefur frá því í maí.
Þessar tölur eru góðar fréttir fyrir
iðnað í Bandaríkjunum, sem hefur
farið illa út úr samdrættinum í efna-
hagslífinu en margar verksmiðjur
hafa þurft að grípa til uppsagna.
Gengi hlutabréfa mjakaðist jafnframt
upp á við í kauphöllum í New York.
Hafði Dow Jones-vísitalan um miðjan
dag hækkað um 16 punkta eða 0,16%.
Mjakast upp
á við í Banda-
ríkjunum
New York. AFP.
♦ ♦ ♦
FRÉTTIR
mbl.is
FJÓRIR hvítir lögreglumenn voru í
gær dæmdir í fimm ára fangelsi í
S-Afríku fyrir að hafa sigað hundum
sínum að þremur blökkumönnum í
janúar 1998. Lögreglumennirnir
festu atburðinn á filmu og komst
sjónvarpsstöð í fyrra yfir mynd-
bandið og sýndi opinberlega. Vakti
það sterk viðbrögð og varð til þess
að lögreglumennirnir voru ákærðir.
Reuters
Dæmdir í fimm ára fangelsi
♦ ♦ ♦