Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 41

Morgunblaðið - 30.11.2001, Síða 41
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 41 MARGRÉT Jóelsdóttir og Steph- en Fairbairn hafa í að minnsta kosti þrjá áratugi unnið saman verk sem fjalla um sértæk sjónræn og hug- myndlæg gildi í myndlist. Með sjón- rænt er hér átt við það sem eitt sinn var nefnt optískt, eða list sem verkaði beint á sjóntaugarnar og lét þær ekki í friði meðan horft var. Æðstipáfinn í optískri tilraunastarfsemi á sjötta og sjöunda áratugnum var ungverski listmálarinn Victor Vasarely, en fast á hæla honum sem unga og efnilega blóðið í þessari augntruflandi stefnu kom breska listakonan Bridget Riley. Margrét og Stephen eru einmitt sprottin úr þessum farvegi tilrauna og vídda. Þau nýttu sér einfaldar lausnir til að komast að athyglisverðri niðurstöðu um sjónina, litina og mynsturkennd áhrif þeirra. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar og enn eru hjónin mætt til leiks með hvers kyns verk, sem snúast nú ekki síður um tímann og víddirnar en optískar myndlausnir. Flest verk þeirra hjóna byggjast á skemmtilegum og næsta heimspeki- legum vangaveltum í bland við ljóð- ræna framsetningu. En það sem mað- ur saknar eilítið frá fyrri tíð er einfaldleikinn í úrlausnunum. Flest verkin í Listasafni Kópavogs eru óþarflega flókin og fáguð – í merking- unni smáfríð – svo að hugmyndin gengur oft nærri látlausu grunnhug- mynd myndmálsins. Hér er ef til vill við óholl áhrif graf- ískrar hönnunar að sakast, þar sem aðaláherslan er fólgin í ríkulegri upp- lýsingu og fræðslu, svo sem á kynn- ingarsýningum hvers konar og kaup- stefnum. Þar þarf upplýsingaflæðið að vera óheft, skýrt og óháð inntaki myndbirtingarinnar. Munurinn á myndlist og grafískri hönnun er sá að síðarnefndu iðjunni er ekki ætlað að bregða ljósi á sjálfa sig heldur hitt sem auglýsa og skýra þarf; veiðafæri; vélar; hugbúnað eða innréttingar. Þetta er ástæðan fyrir því að kaup- stefnur og listsýningar lúta aldrei sömu lögmálum. Það er auðvelt að bæta úr þessum augljósu göllum á annars mjög svo áhugaverðum hugmyndum. Hið eina sem hjónin Margrét Jóelsdóttir og Stephen Fairbairn þurfa að gera er að leita aftur til einföldu lausnanna sem einkenndu verk þeirra forðum daga og fjölluðu um myndlist og myndrænar lausnir. MYNDLIST Listasafn Kópavogs Til 2. desember. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 11–17. BLÖNDUÐ TÆKNI MARGRÉT JÓELSDÓTTIR & STEPHEN FAIRBAIRN Hugmyndir og hönnun Halldór Björn Runólfsson AÐALHEIÐUR Valgeirsdóttir sýnir röð mynda í Listasafni Kópa- vogs sem hún nefnir Lífsmynstur. Um er að ræða olíumálverk byggð á smásæjum heimi örvera, vefja og agna sem Aðalheiður lýsir sem margvíslegu mynstri sem teygir sig yfir allan myndflötinn líkt og vegg- fóður. Þótt allt liggi nær yfirborðinu eru þau verk ófá þar sem fleiri en eitt mynstur gægist gegnum efsta lagið. Það er einmitt þessi síendurtekna mynsturgerð sem gefur verkum Að- alheiðar léttleikandi yfirbragð, laust við allar meiriháttar flækjur og til- gerð. Ef eitthvað er ónauðsynlegt og orðum aukið er það nafngiftin og áherslan á tengslin við náttúruna. Sannleikurinn er sá að mynstrin og endurtekningin fara allfjarri þeirri mynd sem við höfum af náttúrunni í smásærri gerð sinni. Það er miklu fremur hið gervilega í mynsturgerð Aðalheiðar – staðlað- ar endurtekningarnar – sem virkar heillandi. En eins og reyndar sann- ast á velheppnuðum tilraunum til að ljósmynda atóm og aðrar míkró- kosmískar formgerðir sem liggja til grundvallar náttúrunni, þá er lífið í sinni smæstu mynd ansi staðlað og gervilegt. Það skortir alla sértæka útúrdúra sem við sjáum jafnan með berum augum og eru forsendan fyrir því að við greinum svæði frá svæðum eftir ákveðnum kennileitum. Skorturinn á slíkum kennileitum í list Aðalheiðar gera náttúrumyndir hennar gjörólíkar venjulegum lands- lagsmyndum. Það sem augað ekki sér öðruvísi en um smásjá, eða örsjá, er á mörkum þess að geta talist mynd af náttúrunni þótt reyndar sé sú mynd langtum raunsærri en nokkuð það sem sýnist með berum augum. Með áleitnum spurningum um það sem við, hugsunarlaust, köll- um raunsæi, og tjáningartækni sem liggur á mörkum frelsis og stöðlun- ar, nær Aðalheiður að setja saman býsna athyglisverða sýningu. Til 2. desember. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 11–17. MÁLVERK AÐALHEIÐUR VALGEIRSDÓTTIR Halldór Björn Runólfsson Frá sýningu Aðalheiðar Valgeirsdóttur í Listasafni Kópavogs. Frá sýningunni Sjónarhorn, eftir Margréti Jóelsdóttur og Stephen Fairbairn, í Listasafni Kópavogs.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.