Morgunblaðið - 30.11.2001, Side 69
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 69
Lengd 120 sm.
Breidd 60 sm.
Hæð 80 sm.
Þyngd 23 kg.
Kemur ósamsett.
Góðar leiðbeiningar.
Verð 29.900.-
Heildverslun S. V. Sverrisson
Langholtsvegur 115 b - 104 Reykjavík
sími: 568 3920 - 897 1715
Stórkostlegur
leikur
fyrir alla
fjölskylduna
FÓTBOLTASPIL
UNGIR jafnaðarmenn boða til opins
fundar fullveldisdaginn 1. desember
frá kl. 14–16 á efri hæð Húss Mál-
arans í Bankastræti um Evrópusam-
bandið og fullveldi Íslands.
Fjallað verður um spurningar sem
tengjast hugsanlegri aðild Íslands að
Evrópusambandinu og hvernig full-
veldishugtakið hefur breyst undan-
farin ár og áratugi. Frummælendur
verða Valgerður Bjarnadóttir, Ög-
mundur Jónasson, Árni Páll Árna-
son og Magnús Árni Magnússon.
Fundarstjóri er Ágúst Ólafur
Ágústsson. Allir velkomnir.
ESB og fullveldi
Íslands
KONUR úr Kvennadeild Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands selja
föndurvörur í Kringlunni laugardag-
inn 1. desember frá kl. 13. Á boð-
stólum eru handunnir munir sem
tengjast jólunum.
Konurnar hittast einu sinni í viku
og föndra saman og rennur allur
ágóði af sölunni til líknarmála og
bókakaupa fyrir sjúklingabókasöfn
sjúkrahúsanna, sem Kvennadeildin
rekur, segir í fréttatilkynningu.
Kvennadeild
RKÍ selur
föndurvörur
LAUFABRAUÐSSKURÐUR verð-
ur laugardaginn 1. desember kl. 14 í
félagsheimilinu Gjábakka, Fannborg
8, Kópavogi. Kökurnar verða svo
steiktar og seldar á kostnaðarverði.
Fólk er beðið að hafa með sér skurð-
bretti og hníf.
Á sama tíma verður jólamarkaður
í Gjábakka þar sem verða til sölu
handunnar jólaskreytingar, nytja-
og gjafavara.
Jólalög verða leikin á harmonikku
og súkkulaði með rjóma og bakkelsi
verður selt á vægu verði. Allir vel-
komnir, segir í fréttatilkynningu.
Laufabrauð
og jólamarkaður
í Gjábakka
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
heldur opinn hádegisverðarfund, í
dag, föstudaginn 30. nóvember, kl.
12, í veitingahúsi Iðnó, 2. hæð, með
dr. Hannesi Hólmsteini Gissurar-
syni, prófessor í stjórnmálafræði,
sem flytur erindi er nefnist „Hvernig
getur Ísland orðið ríkasta land í
heimi?“ Allir velkomnir.
Hannes Hólmsteinn ræðir m.a.
um hvernig þjóðir verða ríkar, hvers
vegna Ísland var í þúsund ár eitt fá-
tækasta land í Evrópu, hvers vegna
landið varð ríkt þrátt fyrir fremur
slaka hagstjórn á tuttugustu öld og
hvað Ísland getur gert til þess að
verða ríkasta land í heimi. Hann
fjallar m.a. um nýjar mælingar á at-
vinnufrelsi í einstökum löndum,
kvótakerfið í sjávarútvegi, virkjanir
á hálendinu og möguleika Íslands á
að verða alþjóðleg fjármálamiðstöð,
segir í fréttatilkynningu.
SUS með hádeg-
isverðarfund
Línur féllu niður
Vegna mistaka í vinnslu féllu tvær
línur niður í minningargrein Guð-
mundar Péturssonar um Valgarð
Bjarnason á blaðsíðu 51 í Morgun-
blaðinu í gær, fimmtudaginn 29. nóv-
ember. Málsgreinin sem aflagaðist
við þetta er rétt svona: „Hann tók við
formennsku Píluvina 1996 og var
formaður í tvö ár en lét af for-
mennsku þar sem sjúkdómur sá er
nú hefur orðið honum að aldurtila
hafði gert vart við sig.“ Hlutaðeig-
endur eru beðnir afsökunar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
STARFSMANNAFÉLAG Reykja-
víkurborgar býður félagsmönnum á
menningar- og skemmtikvöld laug-
ardaginn 1. desember kl. 20.30 í Fé-
lagamiðstöðinni á Grettisgötu 89, 4.
hæð. Húsið opnað kl. 20.
Á dagskrá verður upplestur úr
nýjum jólabókum, þeir sem lesa eru
Arnaldur Indriðason og Einar Már
Guðmundsson. Ágústa Sigrún
Ágústsdóttir mun kynna geisladisk
sinn. Strætókórinn syngur og söng-
hópurinn Veirurnar flytur nokkur
lög. Í lokin mun Dúettinn 1656 sjá
um fjörið. Ögmundur Jónasson verð-
ur kynnir. Léttar veitingar verða
seldar á vægu verði, segir í frétta-
tilkynningu.
Menningar- og
skemmtikvöld
FULLTRÚI Rúmfatalagersins mun
afhenda styrk að upphæð þrjár millj-
ónir króna til starfsemi Íþróttasam-
bands fatlaðra laugardaginn 1. des-
ember 14, en Rúmfatalagerinn er
stærsti styrktaraðili Íþróttasam-
bands fatlaðra fyrir Ólympíumót
fatlaðra sem haldið verður í Aþenu
2004.
Styrkveitingin fer fram í verslun
Rúmfatalagersins á Smáratorgi.
Í tengslum við styrkveitinguna
standa Íþróttasamband fatlaðra og
Rúmfatalagerinn fyrir uppákomu á
Smáratorgi frá kl. 13.30 þar sem m.a.
hljómsveitin Buttercup mun spila lag
sitt „Desember“, frumsamið jólalag
af jólageisladiski sambandsins, „Jól-
in eru að koma“, auk fleiri laga sinna.
Jólageisladiskur þessi er gefinn út
til eflingar íþróttastarfs fatlaðra hér
á landi. Á honum er að finna gömul
og sígild jólalög í bland við nýrri auk
þess sem á honum eru tvö ný frum-
samin jólalög frá hljómsveitunum „Í
svörtum fötum“ og „Buttercup“, en
báðar hljómsveitirnar gáfu lögin og
vinnu sína til sambandsins, segir í
fréttatilkynningu.
Gefa 3 milljónir
til Íþróttasam-
bands fatlaðra
OPIÐ verður í húsakynnum Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
Hafnarstræti 20, við Lækjartorg,
laugardaginn 1. desember, kl. 11.
Þar mun Ragnar Arnalds fyrrver-
andi alþingismaður hafa framsögu
um Evrópusambandið og þróun
þess. Að framsögu lokinni verða fyr-
irspurnir og umræður.
Heitt verður á könnunni og allir
velkomnir, segir í fréttatilkynningu.
VG fundar
um Evrópu-
sambandið
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð á Vesturlandi efnir til fund-
ar á Hótel Borgarnesi laugardaginn
1. desember kl. 14. Á fundinum verða
stofnaðar tvær félagsdeildir vinstri-
grænna í héraðinu, Borgarfjarðar-
deild og Borgarbyggðardeild, segir í
frétt frá stjórn VG á Vesturlandi.
VG stofna deildir
á Vesturlandi
HIN árlega jólahlutavelta og kaffi-
sala Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu, verður laugar-
daginn 1. og sunnudaginn 2. desem-
ber í félagsheimilinu í Hátúni 12 kl.
14-17 báða dagana.
Margir góðir vinningar í boði. Allir
velkomnir.
Jólahlutavelta
Sjálfsbjargar
HIÐ íslenska biblíufélag hefur gef-
ið út jólamerki fyrir árið 2001 með
mynd eftir listakonuna Ingrid Ros-
enfeldt. Jólamerkin notar félagið til
fjáröflunar.
Í ár er safnað til styrktar Biblíu-
félaginu í Úsbekistan sem vinnur að
þýðingu Biblíunnar í fyrsta sinn og
að útgáfu barnabiblíu sem dreift
verður til barna í skólum, barna-
heimilum og sumarbúðum. Um
tvær milljónir Úsbeka eru kristnar.
Hið íslenska biblíufélag sendir
jólamerkin hverjum sem þau vilja
og ræður fólk hve mikið það gefur í
söfnunina, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Jólamerki
Biblíufélagsins
HEILBRIGÐISRÁÐHERRAR
Norðurlandanna samþykktu á fundi
sínum síðdegis á miðvikudag að þjóð-
irnar ynnu saman og aðstoðuðu
hverjar aðra ef hermdarverkamenn
beittu kjarnorku-, sýkla- eða efna-
vopnum eða öðrum stríðstólum á
Norðurlöndunum.
Heilbrigðismálaráðherrarnir sam-
þykktu sömuleiðis að efla þá sam-
vinnu sem þegar er hafin á þessum
sviðum og hjálpast að á þeim sviðum
þar sem löndin eru þegar farin að
vinna saman. Þessi samvinna gæti
tekið til: samvinnu á sviði lyfjamála,
bólusetningar, rannsókna og sér-
fræðiaðstoðar.
„Norðurlöndin vinna nú þegar
saman á þessu sviði og voru fyrstu
skrefin stigin í september þegar
Danir, Svíar og Norðmenn efndu til
óformlegra viðræðna um málið.
Norrænu heilbrigðisráðherrarnir
telja að Norðurlöndin hafa sameig-
inlega alla burði til að tryggja öryggi
íbúa sinna svo sem best verður gert á
grundvelli þeirrar áætlunar um sam-
vinnu sem samþykkt var á fundi í
Haga Slott í Svíþjóð síðdegis.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, situr fund-
inn í Haga, en með honum í för eru
Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytis-
stjóri og Haraldur Briem sóttvarna-
læknir.
Á fundinum í dag kom fram að
dönsk heilbrigðisyfirvöld og Statens
Seruminstitut hafa í framhaldi af fyr-
irspurn frá Íslandi ákveðið að gefa
Íslendingum 10 þúsund skammta af
bóluefni við bólusótt og verður bólu-
efnið afhent strax í desember.
Á Norðurlöndum hafa framlög
vegna efna- og sýklavopnavár verið
aukin umtalsvert. Fram kom á fund-
inum að Norðmenn hyggjast auka
framlög til málaflokksins um rúmar
700 milljónir íslenskra króna til við-
bótar því fé sem þegar er varið til
efna- og sýklavarna,“ segir í frétt frá
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Norræn samvinna um
viðbúnað gegn hryðjuverkum
STOFNFUNDUR Iðnskólafélagsins
var haldinn á miðvikudag en til-
gangur þess er að vera bakhjarl
iðnmenntunar á Íslandi og iðn- og
verkmenntaskóla á Íslandi. Til-
ganginum skal náð með því að
styrkja starfsemi Iðnskólans í
Reykjavík og annara iðn- og verk-
menntaskóla og koma óskum iðn-
greina á framfæri við yfirvöld skóla
og menntamála.
Fulltrúar Félags bókagerðar-
manna, Félags íslenskra gullsmiða,
Félags meistara og sveina í fataiðn,
Iðnaðarmannafélagsins í Reykja-
vík, Iðnskólans í Reykjavík, Mál-
arameistarafélags Reykjavíkur,
Meistarafélags í hárgreiðslu, Múr-
arafélags Reykjavíkur, Múr-
arameistarafélags Reykjavíkur,
Samtaka iðnaðarins, Sveinafélags
pípulagningarmanna og Veggfóðr-
arafélags Reykjavíkur skrifuðu
undir stofnsamþykktina en Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðarráð-
herra var vottur að undirrituninni.
Morgunblaðið/Þorkell
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Vilmundur
Jósefsson, formaður Samtaka iðnaðarins, Valgerður Sverrisdóttur iðn-
aðarráðherra, Örn Guðmundsson, formaður Iðnaðarmannafélags
Reykjavíkur, og Baldur Gíslason, skólameistari Iðnskólans í Reykjavík,
virða fyrir sér stofnsamþykktina.
Iðnskólafélagið á að vera
bakhjarl iðnmenntunar
ÍSLANDSPÓSTUR hefur tekið í
notkun nýja og öfluga póstflokk-
unarvél, sem er sú fyrsta sinnar
tegundar hér á landi. Í frétta-
tilkynningu segir að póstflokk-
unarvélin, sem er 21 m að lengd og
1,5 m að breidd, geti flokkað 10
bréf á sekúndu eða 36 þúsund bréf
á klukkustund.
Hún kostar um 100 milljónir og
er gert ráð fyrir að fjárfestingin
skili sér á tveimur árum.
Markar þáttaskil
Alls fara um 250 þúsund bréf um
Póstmiðstöðina á sólarhring, en
þau eru ekki öll véltæk vegna lög-
unar. Einar Þorsteinsson forstjóri
Íslandspósts segir að póstflokk-
unarvélin marki kaflaskil í póst-
málum á Íslandi, sem líkja má við
það þegar vélknúin skip komu í stað
seglskipa. Í fréttatilkynningunni
segir ennfremur: „Með fjárfesting-
unni er Íslandspóstur að taka stórt
skref í tækniþróun fyrirtækisins.
Það er að tileinka sér nýja tækni og
fá stöðugri gæði. Áætla má að líf-
tími nýju flokkunarvélarinnar sé 7
til 10 ár. Að jafnaði má reikna með
að 3 starfsmenn vinni við vélina.“
Vélin flokkar póstinn eftir póst-
númerum í 96 hólf. Hún tekur mynd
af bréfinu, les utanáskriftina og
raðar bréfinu í hólf samkvæmt því.
Hún les aðeins vélritaðar áletranir,
ekki handskrift, og ræður við flest-
ar leturgerðir.
Morgunblaðið/Þorkell
Óskar Örn Jónsson framleiðslustjóri tók nýju vélina í notkun.
Ný póstflokkunarvél
tekin í notkun