Morgunblaðið - 30.11.2001, Blaðsíða 78
FÓLK Í FRÉTTUM
78 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 15
Eltingarleikurinn við hættulegasta glæpamann
alheimsins er hafinn.
l i l i i i l l
l i i i .
E.P.Ó.
Kvikmyndir.com
Empire
SV Mbl
Rás 2
MOULIN
ROUGE!
Hausverkur
DV
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni.
Bardagasnillingurinn Jet Li fer hér á kostum í frábærri hasarmynd sem inniheldur
stórkostlegar tæknibrellur og mögnuðustu bardagaatriði sem sést hafa.
1/2
Ungfrú Skandinavía
Íris Björk
Ljóskur
landsins
sameinist!
Reese Witherspoon
fer á kostum sem
ljóska sem sannar
hvað í ljóskum býr
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 4. Með íslensku tali.
Endalaust fyndin mynd frá framleiðendum Big Daddy og
Wedding Singer og snillingurinn David Spade (Just Shoot
Me) er súper-lúðinn!
Á NÆSTUNNI verða Mosfellsbær,
Hvalfjörður og Reykjavík helstu
upptökustaðir fyrir bíómynd sem
breskir og íslenskir kvikmyndafram-
leiðendur og -gerðarmenn hafa tekið
höndum saman um að gera. Útitökur
eru þegar hafnar, en leiknar tökur
hefjast á morgun.
Stelur skipi fyrir elskuna
Einar Þór Gunnlaugsson er höf-
undur handritsins og hann mun
einnig stýra verkinu sem nefnist
Þriðja nafnið. Þar segir frá ungum
Breta með vafasama fortíð sem kem-
ur til Íslands. Hann verður að vonum
ástfanginn af íslenskri stúlku og til
að vinna hjarta hennar stelur hann
skipi til að flytja hana á suðrænar
slóðir. Segja aðstandendur myndina
blöndu af spennu og ást með húmor í
bland.
Margir góðir leikarar hafa tekið
að sér hlutverk í myndinni. Breski
leikarinn Moses Rockman leikur
skipaþjófinn. Hann hefur starfað við
hin ýmsu bresku leikhús, auk þess að
leika hjá breskum sjónvarpsstöðv-
um, t.d. BBC, í nokkrum þáttum og
þáttaröðum. Hann hefur einnig leik-
ið í fjölda breskra kvikmynda. Elma
Lísa Gunnarsdóttir leikur íslensku
blómarósina. Hjalti Rögnvaldsson
leikur líka stórt hlutverk, sveitar-
stjórann Hákon í bænum þar sem
skipið er í höfn. Bandaríski leikarinn
Glenn Conroy leikur lögreglumann
sem fylgist með. Hann er kvik-
myndaleikari sem starfað hefur víða,
en hin síðari ár mestmegnis í Bret-
landi við leik í fjölda breskra sjón-
varpsþátta og kvikmynda, auk þess
að reyna fyrir sér á sviði hjá ýmsum
óháðum leikfélögum.
Fínir leikarar á uppleið
„Þetta er kvikmynd sem verður á
tveimur tungumálum,“ segir fram-
kvæmdastjórinn Guðjón Sigvalda-
son. „Íslendingarnir tala íslensku sín
á milli en Rockman og Conroy tala
ensku. Í bíó verður enskan textuð
hér á landi og öfugt í Englandi.
Conroy á að vera bandarísk persóna,
en Rockman er af óljósum uppruna.
Þetta er mjög myndarlegur maður,
hann er dökkur yfirlitum og var m.a.
stoppaður bæði í tollinum í Englandi
og aftur við komuna hingað. Þetta
eru báðir fínir leikarar, sem eru ekki
orðnir mjög þekktir en eru á upp-
leið.“
Þegar um samframleiðslu tveggja
landa er að ræða er starfsliðið yf-
irleitt einnig af báðum þjóðernum.
Nú er einn breskur tæknimaður
starfandi við myndina, auk þess sem
öll eftirvinnsla mun fara fram í Bret-
landi.
Áætlað er að myndin verði tilbúin í
apríl eða maí á næsta ári.
Spenna,
ást og
húmor
Einar Þór Gunnlaugsson leik-
stýrir sinni fyrstu bíómynd í
fullri lengd.
Þriðja nafnið í upptökur
ÞAÐ ríkti fádæma eftirvænting í Sam-
bíóunum í Kringlunni á miðvikudags-
kvöldið þar sem fram fór formleg Ís-
landsforsýning á Harry Potter og
viskusteininum.
Þessi fjölskyldumynd sem gerð er
eftir fyrstu bókinni um strákinn göldr-
ótta og vini hans fer sigurför um heim-
inn þessa dagana og hefur þegar slegið
hvert aðsóknarmetið á fætur öðru.
Myndin verður frumsýnd í dag í
kvikmyndahúsum um land allt, öllum
Sambíóunum, í Reykjavík, Keflavík og
á Akureyri, í Háskólabíói og á Ísafirði.
Alls verða þannig í boði 37.229 sæti yf-
ir frumsýningarhelgina sem, að sögn
Sambíósmanna, eru fleiri sæti en
nokkru sinni áður hafa verið í boði hér
á landi á eina mynd. Nú þegar hafa
selst yfir 5.000 miðar í forsölu og upp-
selt er á sýningu kl. 18 í dag.
Íslandsforsýning á Harry Potter
Harry heilsar landanum
Morgunblaðið/Golli
Alfreð Árnason, Þorvaldur Árnason og Róbert Wesley frá Sambíóunum standa stoltir við
skreytingu í anddyri Kringlubíósins en þar má m.a. sjá uppstoppuðu ugluna Hedwig og
sjálfan Harry Potter gægjast gegnum pottablómin.
Morgunblaðið/Golli
Þeir Erlingur Gunnarsson og Óskar Örn Ey-
þórsson voru komnir með nammið og tilbúnir að
kynnast Harry Potter.