Morgunblaðið - 30.12.2001, Page 2

Morgunblaðið - 30.12.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Færri látnir eftir umferðar- slys en í fyrra TVEIR létust í flugslysi á árinu og sex banaslys urðu á sjó. Þá hafa 24 látið lífið í 19 umferðarslysum hér- lendis það sem af er árinu. Við þennan fjölda bætist maður sem lést af völd- um vélhjólaslyss rúmum mánuði eftir slysið. Samkvæmt skilgreiningu Al- þjóða heilbrigðismálastofnunarinnar telur Umferðarráð banaslys í umferð ef andlát á sér stað innan mánaðar frá slysi. Eitt dauðsfall hlaust af vinnu- slysi. Banaslys í umferðinni það sem af er árinu eru nokkru færri en á öllu árinu 2000, þegar 35 létu lífið í um- ferðarslysum, þar af tveir erlendis. Alls urðu því 33 dauðsföll af völdum slysa í ofangreindum flokkum en heildarfjöldi banaslysa hefur ekki verið tekinn saman af hálfu Slysa- varnafélagsins Landsbjargar eins og undanfarin ár, og verður það ekki gert. Því eru ótaldar drukknanir í sundlaugum og önnur banaslys sem ofangreindar stofnanir skrá ekki, s.s. upplýsingar um fjölda Íslendinga sem hafa farist erlendis. Hins vegar verða settar fram upplýsingar um banaslys á árinu 2001 á vegum Slysavarnaráðs Íslands sem upplýsingar úr sam- ræmdri slysaskrá. Banaslys á sjó eru samkvæmt upp- lýsingum frá rannsóknanefnd sjó- slysa fleiri það sem af er árinu en árið 2000. Þá létust tveir í sjóslysum á móti sex manns á þessu ári. Manntjón vegna flugslysa var meira á árinu 2000 en það sem af er árinu, en í fyrra létust 4 í flugslysi í Skerjafirði, hinn 7. ágúst 2000. Vert er að geta þess, að rannsóknanefnd flug- slysa skráir eingöngu sem látna þá sem látast innan 30 daga frá flugslysi. FLUGELDASALA hefur farið vel af stað og eru flugeldasalar bjart- sýnir á góða sölu en að venju selst mest tvo síðustu daga ársins. Valgeir Elíasson, upplýsinga- fulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að salan hafi byrjað mjög vel, en að þessu sinni hafi félagið flutt inn um 350 tonn af flugeldum og sé með um 80% markaðshlutdeild. Hann segir að félagið sé með 115 útsölustaði vítt og breitt um landið og gera megi því skóna að félagar björg- unarsveitanna vinni um 15.000 klukkustundir í sjálfboðavinnu við flugeldasöluna. „Við erum mjög bjartsýn á góða sölu enda hefur þessi siður að skjóta upp flugeldum um áramót fest sig í sessi,“ segir Valgeir Elíasson. „Salan er auk þess lífsnauðsynleg fyrir okkur en allur ágóði fer í rekstur björgunarsveitanna.“ Lúðvík S. Georgsson, fram- kvæmdastjóri KR-flugelda, segir að flugeldasalan sé með hefð- bundnum hætti. Hún aukist með hverjum degi og nái jafnan há- marki á gamlársdag. Hann segir að í fyrra hafi innflutnings- verðmæti allra flugelda til lands- ins numið rúmlega 100 milljónum króna og gera megi ráð fyrir að það sé svipað í ár. „Krepputalið í þjóðfélaginu hjaðnaði með þjóð- arsáttinni og við erum bjartsýn- ir,“ segir Lúðvík S. Georgsson. Samband dýraverndarfélaga Ís- lands beinir þeirri áskorun til landsmanna að nota ekki skotelda við gripahús eða nálægt beitar- hólfum dýra og forðast lífsvæði fugla og hreindýra, því hætta á íkveikju í skógum, lyngmóum eða viðkvæmum gróðri sé mikil og skrælþurr gróðurinn geti auð- veldlega fuðrað upp. Bjartsýni í flugeldasölunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Birgir Harðarson, starfsmaður KR-flugelda, við afgreiðslustörf í gær á einum af mörgum útsölustöðum á höfuðborgarsvæðinu. HÓPUR kylfinga á meðal frímúrara hyggst ganga í golfklúbb Bakkakots í Mosfellsbæ og hefur stjórn klúbbsins tekið vel í það enda gert ráð fyrir að félagatalan tvöfaldist, en málið verður afgreitt á aðalfundi í byrjun janúar. Gylfi Gunnarsson, varaformaður GOB, segir að kylfinga í röðum frí- múrara vanti heimavöll og því hafi þeir sýnt áhuga á að ganga í GOB. Það sé mjög jákvætt fyrir golfklúbb- inn því gera megi ráð fyrir að um sé að ræða 100 til 150 manna hóp með mökum og börnum, sem greiði þá fé- lagsgjöld eins og aðrir og muni um minna, en félagsmenn séu nú um 110. „Með þessu tryggjum við okkur fé- lagafjölda og fáum sterkan og góðan hóp til liðs við okkur,“ segir Gylfi Gunnarsson og bætir við að mikil- vægt sé að styrkja fjárhagslega stöðu klúbbsins með þessum hætti. Rætt um sameiningu Um nokkurra mánaða skeið hafa forráðamenn golfklúbbsins Bakka- kots og golfklúbbsins Kjalar í Mos- fellsbæ rætt um hugsanlega samein- ingu klúbbanna. Að sögn Gylfa Gunnarssonar gengu viðræður vel en á aðalfundi Kjalar fyrir skömmu hefði verið ákveðið að fresta viðræðum í bili vegna mismunandi skuldastöðu klúbbanna um þessar mundir. Gylfi Gunnarsson segir að vilji sé hjá báð- um aðilum að sameinast. Frímúrarar ganga í Golfklúbb Bakkakots Félaga- talan tvöfaldast Morgunblaðið/Árni Sæberg Tjón varð á rafmagnstöflu í Austurstræti 17 vegna vatnsleka í fyrrinótt. TJÓN varð á rafmagnstöflu vegna heitavatnsleka í sex hæða húsi, Aust- urstræti 17, í Reykjavík í fyrrinótt. Þar eru til húsa m.a. líkamsræktar- stöð World Class og ferðaskrifstofan Heimsklúbbur Ingólfs. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins lak vatn á efstu hæð hússins og niður í kjallara en húsið er sex hæðir. Vatn komst í rafmagnstöflu og sló raf- magnið út í húsinu og í matvöru- verslun 10-11, sem er í næsta húsi. Tjón varð óverulegt. Slökkvilið lauk störfum á svæðinu rétt fyrir átta í gærmorgun en vinna þurfti áfram í rafmagnstöflunni. Að sögn slökkviliðs er talið að orsök lek- ans sé sú að krani á handlaug hafi verið opinn, hún hafi fyllst og vatn lekið um húsið í kjölfarið. Vatnstjón á rafmagnstöflu Hafíshrafl á fjörum Trékyllisvík. Morgunblaðið. TALSVERT íshrafl er komið á fjörur frá Gjögri og norður í Trékyll- isvík og eru borgarísjakabrot komin á móts við Byrgisvík. Vegna slæms skyggnis í gær sást lítið út til hafs. Reykjafjörðurinn var auður en borgarísjakabrot voru um átta km austur af Reykjaneshyrnu á reki inn flóann. Tvö borgarísjaka- brot voru út af Ávíkinni á reki inn á Trékyllisvík en annað virtist reyndar strandað í gær. Ró og friður á Hveravöllum JÓLIN hafa einkennst af miklum friði og ró hjá veðurathugunarfólk- inu á Hveravöllum, hjónunum Kristínu Björnsdóttur og Hafsteini Eiríkssyni. Fáir ferðalangar hafa lagt leið sína að Hveravöllum um hátíðarnar, enda færð slæm og skyggni afleitt. Fram að jólum var nærri snjólaust en undanfarna daga hefur verið átakaveður, hvassir vindar og skafrenningur. Þó kom hópur jeppafólks þangað í gærmorgun en sagði færðina slæma. „Hingað kom einn gestur annan í jólum, annars hefur verið lítið um mannaferðir þangað til í dag,“ sagði Kristín er Morgunblaðið spjallaði við hana í gær, en þá voru nokkrir ferðamenn til viðbótar væntanlegir seinni partinn. „Ein- hverjir þeirra ætla að vera fram á gamlársdag en enginn hefur enn ákveðið að eyða hérna áramótun- um.“ Í gærmorgun var veðrið að mestu gengið niður og áramóta- spáin þokkaleg. Kristín lætur vel af dvölinni á Hveravöllum og segir jólin hafa verið yndisleg. „Við vorum ein þar til annan í jólum, þá kom vinur okk- ar í heimsókn og er hér enn. Svo eru sonur okkar og kærastan hans væntanleg núna og munu þau verða hjá okkur yfir áramótin.“ Kristín segist ekki finna fyrir einangrun þó að lítið hafi verið um mannaferðir að undanförnu. „Ég upplifi eingöngu virkilegan frið og gleðileg jól. Hér er andrúmsloftið gott og stórkostlegt að vera.“ Þetta eru önnur jólin sem Krist- ín og Hafsteinn halda á Hveravöll- um og segir Kristín að flestar jóla- hefðirnar hafi þau flutt með sér á staðinn. „Við skreytum mjög mikið hjá okkur og með því finnst mér jólin vera komin. Svo borðum við hefðbundinn jólamat og njótum þess að vera hér í ró og friði.“ Kristín segist ekki vera hrifin af flugeldum og þess vegna verður lít- ið skotið upp frá Hveravöllum er nýja árið gengur í garð. En verði skyggni gott og heiðskírt gerist þess líka varla þörf, stjörnuher á himni mun sjá um að lýsa upp ný- ársnóttina. RÚMLEGA 46% samdráttur varð í sölu á nýjum fólksbílum á árinu sem er að líða. Alls seldust 7.244 bílar, en árið 2000 seldust 13.569 bílar. Þetta er mun meiri sölusamdrátt- ur en forsvarsmenn bifreiðaumboð- anna höfðu spáð í upphafi árs 2001. Rúmlega fjórði hver seldur fólksbíll á árinu var af Toyota-gerð og hefur Toyota yfirburðastöðu á íslenskum fólksbílamarkaði. 46% samdráttur í bílasölu  Bílasala/B54 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ TALIÐ er að farþegi hafi slasast al- varlega þegar bifreið valt á Biskups- tungnabraut skammt frá Kjóastöð- um austan við Tungufljót í gærdag. Atvikið átti sér stað um klukkan hálf tvö og héldu lögregla og sjúkra- lið þegar á slysstað frá Selfossi og læknir frá Laugarási. Þyrla Land- helgisgæslunnar var í ískönnunar- flugi fyrir norðan en henni var þegar snúið við vegna slyssins. Samkvæmt fyrstu upplýsingum lögreglunnar á Selfossi var einn far- þegi í bílnum auk ökumanns, en nán- ari upplýsingar var ekki að fá þegar Morgunblaðið fór í prentun. Alvarlegt slys í bílveltu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.