Morgunblaðið - 30.12.2001, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 30.12.2001, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ M ANNKYNINU fleygir fram. Þekk- ing, á hverju sem vera skal, hefur aldrei verið umfangsmeiri, almenn- ari og það sem þýðingarmest er, hún hefur aldrei verið aðgengilegri en nú. Þekkingin er sameiginleg heim- inum öllum í fyrsta sinn, vegna tölvutenginga og tækniþróunar. Þessa gætir hvarvetna til góðs, en samt erum við enn sem fyrr fjarri fullkomnum heimi. Hundruð milljóna manna í þriðja heiminum líða skelfilegan skort. Þróunaraðstoð velmegandi þjóða til þeirra er lakar standa er vel meint, en kemur að tak- mörkuðu haldi ef viðtökuríkinu er illa stjórnað, ofstjórnað eða, eins og oft er, hvort tveggja. Þótt hart sé að hafa orð á því, fer drjúgur hluti af alþjóðlegu hjálparfé í hundskjaft. Sagt er í hálfkæringi að fjármunir séu teknir af fátæka fólkinu í ríku löndunum til að setja í handraðann hjá ríka fólkinu í fátæku löndunum. Slík alhæfing, þótt vel sé orðuð, segir sem betur fer ekki allan sannleikann, en það eru þó óþægilega mörg sann- leikskorn í henni. Góðviljaðir Vesturlandabúar hafa lengi hald- ið í þá von að hatur og grimmd ættu sína rót eingöngu í fátækt og fordómum og þegar sú rót hefði verið rifin upp yrði allt í heiminum gott og fegurðin ríkti ein. En málið er því miður ekki svo einfalt. Trúarofstæki og andlýðræðislegt stjórnarfar koma ásamt öðru einnig við sögu. Ekki er lengur um það deilt, að helsti heilinn á bak við voðaverkin í september, var Osama bin Laden, ágætlega menntaður auðmaður sem þótti vel í ætt skot- ið í sínu heimalandi. Hann þreifst í skjóli ógnarstjórnar, sem mötuð af mútufé hryðjuverkamanna, hélt heilli þjóð í helj- argreipum. Enn sem fyrr var það stjórnarfar, sem var örlaga- valdurinn, skjólið sem skóp hryðjuverkamanninum skilyrðin til árásanna á almenning í Bandaríkjunum. Nú verður senn fokið í það skjól. Hinn vestræni heimur lét sér lengst af fátt finnast um stjórn- arfar og aðstæður í Afganistan eða allt þar til landstjórnin þar dró að sér athyglina með ógnvænlegum og ógleymanlegum hætti. Nú hafa fjötrarnir verið leystir af þessari langhrjáðu þjóð og hún fengið nýja von um vænlegri tíð. Þeir góðu friðboð- endur, hér á landi sem annars staðar, sem í kjölfar árásanna hrópuðu á athafnaleysi og mæltu gegn aðgerðum og fyrir- byggjandi ráðstöfunum og notuðu einkum orðið hefnd í sínu hjali, virðast hafa ærna ástæðu til að hugsa sitt mál á ný. Sérfræðingar og spekingar að spjalli fylltu umræðuþættina og sögðu okkur að allt syði upp úr og óbætanlegur skaði yrði unninn, ef tekið yrði hart á móti hatursöflunum. Þeir liggja nú lágt spekingarnir um sinn, en þeir verða vísast tilbúnir í næsta leik. Það þarf enginn lengur að velkjast í vafa um að hryðjuverka- öfl munu engu eira og öll meðul nota verði þeim gefin tækifæri. Þýðingarmesta afleiðing árásanna á Bandaríkin er sú, að nú vita öll ríki heims, líka þau sem verst er stjórnað, að skjóti þau skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn og samtök þeirra verða þau sótt heim og dregin til ábyrgðar, rétt eins og skjólstæðingar þeirra. Atlantshafsbandalagið, varnarbandalag vestrænna ríkja, þekkti sinn vitjunartíma þegar ráðist var á Bandaríkin. Ísland skarst þar ekki úr leik, þótt fyrir því væri vitaskuld talað hér á landi. Fáum ríkjum er mikilvægara en okkar, að föntum, sem fara með forsjá ríkja, sé settur stóllinn fyrir dyrnar og hryðju- verkastarfsemi sem slíkir hafa stutt sé upprætt. II HINN efnahagslegi eftirleikur hryðjuverkanna varð annar og meiri en nokkur sá fyrir. Öryggi minnkaði og jafnt fólk sem fyrirtæki skutu fjárhagslegum ákvörðunum á frest um lengri tíma. Þessari óöryggisöldu skolaði einnig á okkar fjörur og hef- ur hún orðið til töluverðs tjóns. Bein áhrif sjást greinilega í ferðaiðnaðinum, en þar hafa fyr- irtæki tekið á sig mikil áföll og margir starfsmenn hafa misst vinnuna. Sem betur fer hafa almenn skilyrði í greininni þó farið batnandi. Ísland þykir spennandi ferðamannastaður um þessar mundir og gengisskráningin er atvinnugreininni hagstæð og olíuverð hefur farið lækkandi. Hér hafa öryggismál verið tekin föstum tökum, með ærnum kostnaði, og hefur það ekki farið fram hjá alþjóðlegum öryggisyfirvöldum. Atburðirnir í Banda- ríkjunum og eftirleikurinn skullu inn í efnahagsumræðu sem fram hafði farið hér á landi, stundum undir dálítið skrýtnum formerkjum síðustu misseri. Furðu margir höfðu tekið þátt í barlómskór, sem var ekki í neinum takti við efnahagslegar staðreyndir, né þær undirstöður sem hið íslenska atvinnulíf hvílir á. Meginskýringin mun sú, að ýmsir urðu illa úti vegna geng- isbreytinga, sem urðu mun meiri en nokkur vænti, og eru þær stofnanir og sérfræðingar sem mest um slík mál fjalla ekki undanskilin. Gengislækkun krónunnar tók um sinn að lifa eigin lífi utan efnhagslegra staðreynda og fékk fóður annars vegar í gáleysislegum yfirlýsingum um framþróun efnahagslífsins og hins vegar í neikvæðum atburðum, auk óvissunnar eftir 11. september. Þar má nefna langt sjómannaverkfall, úrskurð Skipulagsstofnunar um Kárahnjúka og vaxandi ótta við upp- sögn kjarasamninga og stórátök á vinnumarkaði í kjölfarið. Sömu þættir höfðu einnig neikvæð áhrif á framgang einkavæð- ingaráforma. Nú vísa á hinn bóginn flest teikn í aðra átt. Árangur bandamanna í Afganistan er mjög trúverðugur og mun þegar frá líður fylla menn öryggi og auka á ný traust og tiltrú á flugið, sem ferðamáta nútímans. Myntvæðing evrunnar ætti í bráð að minnsta kosti að auka trú á þeim gjaldmiðli. Margt bendir til að efnahagslífið í Bandaríkjunum muni taka fyrr við sér en spáð hefur verið. Hér heima liggur fyrir jákvæð- ur úrskurður Skipulagsstofnunar um álver við Reyðarfjörð og vel rökstuddur úrskurður umhverfisráðherra um Kárahnjúka. Þá eru viðræður um virkjunarmál í góðum farvegi, þótt loka- niðurstaða liggi ekki fyrir. Sjávarútvegsráðherra var kleift að auka mjög verulega aflaheimildir í mikilvægum stofnum. Aukningin nemur um 33.000 þorskígildistonnum, sem skila munu nálægt sex milljörðum króna í auknum útflutnings- tekjum. Þær ákvarðanir einar munu auka afgang fjárlaga úr þremur í fimm milljarða króna, á næsta ári. Engu er líkara en þessar breytingar og hin miklu áhrif þeirra hafi farið framhjá allri umræðu og jafnvel mörgum þeim sem hafa atvinnu af því að fylgjast með helstu hagstærðum. Útflutningsatvinnuvegir standa nú mun betur en var á fyrri hluta ársins og eru þau fyrirtæki að skila miklum tekjum. Seðlabanki Íslands hefur þegar lækkað vexti um samtals 1,2% frá því sem hæst var og bersýnilega eru frekari lækkanir skammt undan. Óvissu á vinnumarkaði hefur verið eytt í bráð og ef fer sem horfir, út samningstímann. Forsendur efnahags- lífsins eru því allgóðar, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Aug- ljóst er að þær skattkerfisbreytingar sem ákveðnar hafa verið munu mjög styrkja þessa jákvæðu þróun, ekki síst þegar horft er til lengri tíma. Hinn mikli hagvöxtur sem varð á Íslandi á árunum 1995 til 2000 skilaði öllum almenningi umtalsverðum kaupmáttarauka. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur þannig aukist um 27% frá árinu 1994. Kaupmáttur þeirra sem lægst höfðu launin hækk- aði þó mest og er sú staðreynd til marks um að efnahagsbatinn skilaði sér best þangað sem hans var mest þörf. Ör vöxtur þjóðarbúsins leiddi vissulega til nokkurrar þenslu, sem nauðsynlegt var að spyrna á móti, til að tryggja að lífs- kjarabatinn yrði ekki að lokum að veislukosti fyrir verðbólgu- drauginn einan. Ríkisstjórnin greip til markvissra aðgerða til að varðveita stöðugleikann í efnahagslífinu. Þess var þó gætt að hvika ekki frá þeirri stefnu að beita fremur almennum hag- stjórnaraðferðum en sértækum lausnum. Ákveðið var að setja íslensku krónuna á markað og falla þar með frá þeim mörkum sem Seðlabankinn hafði sett myntinni. Á sama tíma var sjálf- stæði bankans aukið og honum veitt forræði yfir vaxtaákvörð- unum og bankanum jafnframt sett langtíma verðbólgumark- mið. Ríkisstjórnin sýndi með því einbeittan vilja sinn til að koma í veg fyrir að verðbólgan færi aftur af stað hér á landi. Í kjölfar þessara breytinga hefur verið nokkur órói á gjaldeyr- ismarkaði. Það þarf ekki að koma á óvart að markaðurinn þurfi nokkurn tíma til að fóta sig við breyttar aðstæður og laga sig að nýju umhverfi. Fyrirsjáanlegt var að gengi íslensku krónunnar myndi endurspegla þá aðlögun. Þessar hræringar hafa óum- flýjanlega leitt til tímabundins verðbólguskots en á móti kemur að á sama tíma hefur viðskiptahallinn dregist mjög hratt sam- an. Það er mikið þroskamerki á íslensku þjóðlífi að nú þykir tímabundin 8% verðbólga alvarleg ógn við efnahagslífið. Sú tíð er í fersku minni að margfalt hærri verðbólgutölur þóttu merki um vel lukkaða hagstjórn. En þó að 8% verðbólga sé ekki há í sögulegu samhengi séð, þá er hún samt sem áður tilræði við traustan kaupmátt þjóðarinnar, nái hún að búa um sig. Þess vegna skipti miklu að vel tækist að koma böndum á þensluna og tryggja að kaupmátturinn rýrnaði ekki. Efnahagsstefna rík- isstjórnar og vaxtastýring Seðlabankans eru seinvirkandi með- ul, sem hafa aukaverkanir, en þau gera að lokum sitt gagn ef menn hafa úthald til að þola meðferðina til enda. Það er nú að koma í ljós. Samkomulagið, sem náðist nú á dögunum á milli aðila vinnu- markaðarins, um að fresta endurskoðun launaliðs kjarasamn- inganna, ber vott um ábyrga afstöðu og traust á langtíma- árangri efnahagsstefnunnar. Að baki því liggur sá skilningur að hagsmunir launafólks og fyrirtækja fari saman og að verð- bólga sé sú óvættur, sem verst leikur kjörin. Á það beinast við um kjör hinna lægst launuðu, sem eiga færri leiðir en hinir til að bregðast við lakari aðstæðum. Jafnframt staðfestir sam- komulagið þá skoðun að verðbólgan nú sé tímabundið vanda- mál og öll rök hnígi til þess að hún fari hratt lækkandi á næsta ári. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem gefin var út í tilefni samkomulagsins, var skýrt kveðið á um að aðhalds yrði gætt í ríkisfjármálum og þannig tryggður grunnur að stöðugu efna- hagsumhverfi. Þetta samkomulag hefur eflt traust á íslensku efnahagslífi og dregið mjög úr ótta um að á þjóðinni dynji víxl- verkan launa og verðlags öllum til skaða. Lækkandi verðbólga og stöðugleiki, stöndugur ríkissjóður og fjölbreytt atvinnulíf eru forsendur áframhaldandi hagvaxtar og kaupmáttaraukn- ingar. III SJÁVARÚTVEGURINN er enn sem áður mikilvægasta at- vinnugrein þjóðarinnar, þótt aðrar stoðir styrkist og séu fleiri en áður. Það er því mikilvægt að atvinnugreinin búi við sem best skilyrði af hálfu stjórnvalda. Nóg er óvissan sem náttúran ákveður. Hafrannsóknir eru okkur Íslendingum mikilvægari en flest- um öðrum þjóðum. Miklu skiptir fyrir velferð þjóðarinnar í bráð og lengd að fiskveiðiráðgjöfin sé byggð á traustum grunni. Davíð Oddsson forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins VIÐ ÁRAMÓT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.