Morgunblaðið - 30.12.2001, Qupperneq 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Eftirtalin samstarfsfyrirtæki Íslensku óperunnar kosta nýárstónleikana:
laugardaginn 5. janúar 2002 kl. 16.00
NÝÁRSTÓNLEIKAR
Davíð Ólafsson Tomislav Muzek
Strauss
Mozart
Puccini
Verdi
Rossini
Davíð Ólafsson bassi
Tomislav Muzek tenór
Ólafur Vignir Albertsson píanó
Kynnir: Ólafur Kjartan Sigurðarson
Veitingar í hléi
Miðasala í Íslensku óperunni frá 27. desember.
Opið kl. 15-19 alla daga nema sunnudaga, símasala kl. 10-19.
Aðgangseyrir: 2.200 kr.
Sími miðasölu: 511 4200
KARLINN Pétur og kötturinn
Brandur eru barnabókaunnendum
að góðu kunnir. Eldri bækur um þá
félaga eru Veiðiferðin og Pönnu-
kökutertan, svo dæmi séu tekin, og
á dögunum var jafnframt frumsýnd
talsett kvikmynd um ævintýri
þeirra kumpána á gamlárskvöld í
kvikmyndahúsum hérlendis.
Pétur og Brandur nefnast Patt-
son og Findus á frummálinu sænsku
og hafa notið mikilla vinsælda í
heimalandinu. Ekki að undra, þar
sem bæði textinn og teikningarnar
eru afar skemmtilegar.
Í þessari nýjustu bók um þá vin-
ina biður Brandur Pétur að segja
sér eina „þegar ég var lítill“ sögu,
klassískt viðfangsefni í sögustund
foreldra og barna.
Segðu mér söguna af því þegar ég
týndist, sagði Brandur...
Þegar ég var lítill, manstu!
Þá það. En þú kannt hana utan
að. Ég hef sagt þér hana svo oft.
Segðu mér hana samt. (1)
Í þessari frásögn fá lesendur og
litlir áheyrendur að vita hvernig
leiðir Péturs og Brands lágu saman
í upphafi og hvernig þeim líður báð-
um þegar sá síðarnefndi týnist.
Meginþráðurinn í sögunni er
tengsl þeirra lagsmanna og gleðin
sem þeir veita hvor öðrum því áður
en Brandur kom til sögunnar hafði
Pétur engan félagsskap nema hæn-
ur, sem eru svo „skelfing ruglaðar í
kollinum“ og „rjúka í burtu í miðju
samtali“ komi þær auga á maðk!
Og þegar þær voru gengnar til
náða „ríkti oft eyðileg þögn í litla
húsinu“.
Á slíkum stundum var eins og
ekkert gæti framar orðið til gamans
og gleði. (2)
Þegar Brandur kemur til skjal-
anna talar Pétur gamli meira en
hann hefur „nokkru sinni gert, með-
al annars um uppvaxtarár sín, kýr
sem hann hafði kynnst á lífsleiðinni,
hvernig kartöflur verða til, já allt
sem honum flaug í hug“.
Svo þegar Brandur litli byrjar
líka að tala og fær grænar, rönd-
óttar stuttbuxur og höfuðbúnað í stíl
er óhætt að samsinna því að Pétur
hafi eignast „þvílíkan kött“, og ekki
þarf hann framar að kvíða einver-
unni.
Auk þess að njóta framvindunnar
er mælt með því að teikningarnar
séu gaumgæfðar vel, þar sem margt
skemmtilegt ber fyrir augu í hvert
sinn sem skoðað er. Svo sem fjöl-
mörg athyglisverð portrett af kúm
og hænum við ýmsa heimilislega
iðju.
Og síðast en ekki síst, eins og seg-
ir í sögulok, lifðu þeir vinirnir svo
vel og lengi. Alveg eins og vera ber.
Saga um vin-
áttu og „þvílík-
an“ kött
BÆKUR
Börn
Saga og myndir eftir Sven Nordqvist. Ís-
lensk þýðing Þorsteinn frá Hamri. 23
blaðsíður. Mál og menning 2001.
ÞEGAR BRANDUR LITLI TÝNDIST
Helga Kr. Einarsdóttir
STUNDUM geta auglýsinga-
myndir (eða „treilerar“) kvikmynda
verið einstaklega villandi. Zoolander
er til dæmis kynnt með auglýsingu
sem gefur fyrirheit um stór-
skemmtilega gamanmynd, en þegar
sú reynist ekki raunin, verður hún
þeim mun leiðinlegri fyrir vikið,
enda hefur þegar verið ljóstrað upp
um bestu brandarana.
Um er að ræða nokkurs konar
gæluverkefni hins annars ágæta
leikara Ben Stiller sem leikstýrir,
meðframleiðir, á þátt í að skrifa
handrit og leikur aðalhlutverk. Í
myndinni segir frá óheyrilega
heimskri karlfyrirsætu, Derek Zoo-
lander að nafni. Sá hefur verið eftir-
sóttasta fyrirsæta heims í nokkur
ár, en finnur að brátt muni taka að
halla undan fæti. Sú örvænting leið-
ir Zoolander í undarleg ævintýri
tengd illskeyttri alþjóðlegri tísku-
mafíu.
Sem fyrr segir eru nokkur mynd-
skeið í þessari gamanmynd bráð-
fyndin og sú hugmynd að setja leik-
ara á borð við stubbinn Ben Stiller
og hinn nefskakka Owen Wilson í
hlutverk dáðra karlfyrirsætna er
skemmtileg. Sérstaklega kemur
Wilson vel út í sínu hlutverki, og ber
hann af Stiller hvað fyndni varðar,
en sá síðarnefndi er hreinlega of
einhæfur, og ekki nógu sterkur í
sínu hlutverki.
Fáránlega spennufléttu atburða-
rásarinnar mætti ef til vill afsaka
með tilliti til þess að myndin er aug-
ljóslega gerð í ýktum anda gam-
anmynda á borð við „Dumb Dumb-
er“. En í þessu tilfelli er skotið langt
yfir markið. Það eru því eingöngu
stöku atriði sem halda manni við
efnið, en Zoolander er engan veginn
þess virði að kaupa sig inn á.
Langt yfir markið
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Sam-bíóin
Álfabakka
Leikstjóri: Ben Stiller. Handrit: Drake
Sather, Ben Stiller og John Hamburg.
Kvikmyndataka: Barry Peterson. Aðal-
hlutverk: Ben Stiller, Owen Wilson,
Christine Taylor. Sýningartími: 85 mín.
Bandaríkin. Paramount Pictures, 2001.
ZOOLANDER Heiða Jóhannsdóttir
TÓLF tónleikar verða Saln-
um í Kópavogi í janúar. M.a.
verður flutt kammertónlist,
söngtónlist, kínversk þjóð-
lagatónlist og einleiksverk.
Fyrst ber að nefna að tón-
leikar í Tíbrár-röðinni,
Kaldalónskvöld, eru end-
urfluttir 4. janúar. Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Jóhann
Friðgeir Valdimarsson flytja
þekktustu söngperlur Sig-
valda Kaldalóns við undir-
leik Jónasar Ingimund-
arsonar píanóleikara.
Mánudaginn 7. janúar kl. 20
verða söngtónleikar. Þar
kemur fram sönghópurinn
Vocal group Ars Nova. 8.
janúar kl. 20 verða flutt einleiks-
og kammerverk fyrir víólu. Flytj-
endur eru Jónína Hilmarsdóttir
víóla, Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir píanó og Ásgerður Jún-
íusdóttir, söngur. Á efnisskránni
eru verk eftir Bach, Vieuxtemp,
Hindemith, K Koscar, Brahms og
Enescu.
Rússnesk tónlist verður flutt af
Kammerhópi Salarins 13. janúar
kl. 16.30. Þeir eru í Tíbrá, röð 5.
Þá mun Atli Heimir Sveinsson
fjalla um Tschaikowsky í Tón-
leikaspjalli.
Hátíðartónleikar
Mánudaginn 14. janúar kl. 20
verða söngtónleikar í Tíbrárröð 4.
Þar koma fram Hanna Dóra
Sturludóttir, sópran, Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir, píanó og Jónas
Ingimundarson, píanó. Þriðjudag-
inn 15. janúar kl. 20 munu sex
meðlimir úr þjóðlagasveit Kvik-
myndaversins í Peking flytja nýja
og forna kínverska þjóðlaga-
tónlist á gömul kínversk
hljóðfæri. Einleiks- og
kammerverk fyrir víólu
verða á tónleikum 16. janúar
kl. 20. Flytjendur eru Jónína
Hilmarsdóttir víóla, Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir pí-
anó og Ásgerður Júníusdótt-
ir, söngur. Á efnisskránni
eru verk eftir Karólínu Ei-
ríksdóttur, Henri Vieux-
temp, Paul Hindemith, Bach
og Brahms. Söngkeppni fé-
lagsmiðstöðva í Kópavogi
verður 17. janúar kl. 20.
Sérstakir hátíðartónleikar
verða í Tíbrárröð 22. janúar
kl. 20. Þar kemur fram pí-
anóleikarinn og stjórnandi Vlad-
imir Ashkenazy ásamt Kamm-
ersveit Reykjavíkur. Á efnis-
skránni eru verk eftir Mozart.
Þjóðlög á Þorra er yfirskrift
tónleika á Þúsundþjalakvöldi 25.
janúar kl. 21. Flutt verða þjóðlög,
þjóðvísur og kvæði í ýmsum bún-
ingi. Síðustu tónleikar janúar-
mánaðar verða 27. janúar kl. 20
þá leikur Miklós Dalmay píanó-
leikari verk eftir Mozart, Kurtág
og Moussorgsky.
Salurinn, Tónlistarhús Kópavogs, í janúar
Ashkenazy meðal gesta
Vladimir
Ashkenazy
Hanna Dóra
Sturludóttir
SVEINN Björnsson 2002
listaverkadagatal er komið
út.
Með hverri mánaðarmynd
dagatalsins fylgja skýring-
artextar eins og áður og því
má segja að hleypt hafi verið
af stokkunum reglubundinni
kynningu á list Sveins Björns-
sonar í þessu dagatalsformi.
Að þessu sinni eru myndir dagatals-
ins sóttar í yfirlitssýninguna „Krýsu-
víkin mín“, sem haldin var í febrúar og
mars sl. í Hafnarborg. Þar gat að líta
yfirlit yfir allan listferil Sveins Björns-
sonar í tímaröð, en þó þannig að
hann var takmarkaður við Krýsuvík-
urmyndir hans. Við uppröðun mynda
dagatalsins hefur verið haft í
huga að þær féllu sem best
að hverjum mánuði ársins.
Eftir sem áður spanna þær
allt þróunarsvið listar Sveins
Björnssonar.
Ensk þýðing megintextans
getur fylgt með dagatalinu ef
þess er óskað en stefnt er
að erlendri útgáfu þess í
framtíðinni.
Útgefandi er Sveinssafn. Prentun
fór fram hjá Prisma/Prentco, prent-
smiðju Magnúsar Ólafssonar í Hafn-
arfirði. Erlendur Sveinsson annaðist
hönnun og textagerð en ljósmyndun
var að mestu í höndum Árna Sæ-
bergs. Verð: 2.615 kr.
Listaverkadagatal