Morgunblaðið - 30.12.2001, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/RAX
ÞEIR VORU að kljást í kuldanum
hestarnir undir Eyjafjöllum er
ljósmyndara Morgunblaðsins bar
að garði. Þegar bætir í vind og
snjóinn tekur að skafa hleypur
oft leikur í skepnurnar og þær
ýmist hamast og glíma við vind-
inn eða híma. Mjólkurhvítt fjallið
veitir þeim eitthvert skjól fyrir
Kára, en sá ljósi lætur rokið ekki
á sig fá og vill fá félaga sína til
leiks en eitthvað eru undirtekt-
irnar dræmar hjá þeim blesótta.
Klárarnir
að kljást
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út
fimmtudaginn 3. janúar. Yfir ára-
mótin verður fréttaþjónusta á
Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is.
Hægt er að senda ábendingar um
fréttir á netfangið netfrett@mbl.is
eða hringja í síma 861 7970.
Fréttavakt á mbl.is
yfir áramótin
FÆRRI flugvélar og færri farþegar
fóru um Keflavíkurflugvöll á árinu
en á síðasta ári. Í heild fækkaði far-
þegum um 6–7% en þeir voru um
1.460.000 í fyrra, að sögn Höskuldar
Ásgeirssonar, forstjóra Flugstöðv-
ar Leifs Eiríkssonar. Farþegum
Flugleiða fækkaði um 4,2% fyrstu
11 mánuði ársins. Voru þeir
1.288.000 í ár en á sama tíma í fyrra
1.344.000.
Nákvæmar tölur um uppgjör á
farþegafjölda, verslunarrekstri og
flugvélafjölda og tegundir munu
liggja fyrir fljótlega upp úr áramót-
um.
Björn Ingi Knútsson flugvallar-
stjóri segir færri flugvélar hafa farið
um völlinn á árinu en í fyrra. Lend-
ingartonnum hafi fækkað um 17 til
20%. Með því er átt við hámarks-
flugtaksþunga flugvéla og eru lend-
ingargjöld reiknuð út frá honum.
Björn Ingi segir meðal skýringa þær
að Cargolux hafi hætt viðkomu á Ís-
landi, svo og flugfélagið Canada
3000, Flugfélagið Atlanta hafi farið
færri ferðir á breiðþotum sínum en í
fyrra fyrir íslenskar ferðaskrifstofur
og ferðum Flugleiðavéla hafi fækkað
í vetraráætlun. Hlut Flugleiða í
heildarlendingargjöldum segir hann
hafa verið um 68%. Björn Ingi segir
samdráttinn því bæði hafa orðið fyrir
og í kjölfar atburðanna í Bandaríkj-
unum 11. september. Þá segir hann
það jákvætt á árinu að nýtt félag,
Bláfugl, hafi hafið fraktflutninga og
lággjaldaflugfélagið Go hafi fjölgað
ferðum sínum til landsins.
Höskuldur Ásgeirsson segir að
farþegum sem fara um flugstöðina
hafi farið fjölgandi allt frá árinu
1994. Hann bendir á að síðasta ár
hafi verið metár og farþegafjöldinn í
ár sé meiri en árið 1999. Þá segir
hann verslun á fríhafnarsvæðinu
vera mjög svipaða og í fyrra. Hún
hafi þó dregist nokkuð saman í
haust. Sé það einkum vegna færri
skiptifarþega sem fara um stöðina
og vegna minni ferðalaga Íslendinga.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að fyrstu 8
mánuði ársins hafi farþegum Flug-
leiða fjölgað um 1,7%, úr 990 þús-
undum í rúmlega eina milljón. Eftir
11. september hafi þeim hins vegar
fækkað, um 16,5% miðað við sept-
ember 2000, um 20,2% í október og
um 27,7% í nóvember miðað við
sömu mánuði í fyrra. Segir Guðjón
mesta fækkun vera í hópi þeirra sem
fara um Ísland á leið sinni milli
Bandaríkjanna og Evrópu eða kring-
um 30% í október og nóvember.
Milli 6 og 7% færri farþeg-
ar um Keflavíkurflugvöll
AUKNAR aflaheimildir munu
skila nálægt sex milljörðum króna
í auknum útflutningstekjum. Þá
mun afgangur fjárlaga vegna
þeirra aukast úr þremur milljörð-
um í fimm milljarða króna á næsta
ári eða um tvo milljarða króna.
Þetta kemur fram í grein sem
Davíð Oddsson forsætisráðherra
ritar í blaðið í dag við áramót.
Aukning aflaheimilda, sem Árni
M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra kynnti fyrir skömmu, nemur
33.000 þorskígildistonnum. Í
greininni segir forsætisráðherra
að útflutningsatvinnuvegirnir
standi nú mun betur en var á fyrri
hluta ársins og þau fyrirtæki skili
miklum tekjum. Seðlabanki Ís-
lands hafi lækkað vexti um sam-
tals 1,2% frá því sem hæst var og
segir forsætisráðherra að frekari
vaxtalækkanir séu bersýnilega
skammt undan.
Davíð Oddsson segir í grein
sinni að hinn mikli hagvöxtur sem
varð á Íslandi á árunum 1995 til
2000 hafi skilað öllum almenningi
umtalsverðum kaupmáttarauka.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi
þannig aukist um 27% frá árinu
1994. Kaupmáttur þeirra sem
lægst laun höfðu hafi hækkað mest
og sé sú staðreynd til marks um
að efnahagsbatinn hafi skilað sér
best þangað sem hans var mest
þörf.
Áhrif aukinna aflaheimilda á næsta ári
Afgangur fjárlaga eykst
um tvo milljarða króna
Við áramót/18–19