Morgunblaðið - 03.02.2002, Síða 9
Í sumar bjóða þrír aðilar
flug frá Íslandi til Barcelona
Í FEBRÚAR og mars bjóða Fosshótelin rúm-
lega 40% afslátt af gistingu. Tveggja manna her-
bergi í einanótt með morgunmat kostar þá 5.980
krónur í staðinn fyrir 10.500 krónur. Eins manns
herbergi með morgunmat kostar nú 4.990 krón-
ur í staðinn fyrir 9.100 krónur.
Hótelin sem veita afslátt eru Fosshótel Lind í
Reykjavík, Foss-
hótel Reyðar-
fjörður á Reyðar-
firði, Fosshótel
Húsavík á Húsa-
vík og Fosshótel
Ingólfur á Sel-
fossi.
Fosshótel veita
40% afslátt af
gistingu
Upplýsingar og pant-
anir í síma 562 4000.
Fax: 562 4001
Netfangið er: bok-
un@fosshotel.is
Í FYRRA hóf Bergljót Leifsdóttir
Mensuali, sem hefur um árabil
verið búsett í Greve í Chianti á
Ítalíu, að sjá um útleigu sum-
arhúsa í Flórens og Greve fyrir
fasteignasöluna GEG Immobi-
liare í Flórens. Íslendingar voru
meðal gesta í fyrrasumar.
„Við erum með íbúðir til leigu
í nágrenni Greve í Chianti og í
Flórens. Á fyrri staðnum eru all-
ar íbúðir með sundlaug en ein
íbúðanna í Flórens er með sund-
laug.“ Bergljót segir að Greve í
Chianti sé í rúmlega 30 km fjar-
lægð frá járnbrautarstöðinni í
Flórens en þaðan eru rútuferðir
til Greve sem taka klukkustund.
Hún segir að Greve sé miðja
vegu á milli Flórens og Siena ef
farið er „vínveginn“ svokallaða.
Það tekur síðan um þrjár
klukkustundir að aka frá Veróna
til Greve.
„Þessar íbúðir sem við leigj-
um út eru yfirleitt hluti af ein-
býlishúsum. Við erum svo með
eina lúxusvillu á eyjunni Elbu.“
Sem dæmi um verð nefnir Berg-
ljót eignina Casa Anna í Greve.
Þetta er sextíu fermetra hús
sem hentar vel fyrir fjóra og er í
3 km fjarlægð frá Greve. Húsið
tilheyrir einbýlishúsi, það er
sundlaug í garðinum, sem leigj-
endurnir hafa aðgang að ásamt
leigjendum tveggja herbergja,
sem eru inni í einbýlishúsinu, og
einnig hafa eigendurnir aðgang
að sundlauginni.
Gengið er inn í húsið frá yf-
irbyggðri verönd, sem er borð-
stofa, og inn af henni er eldhús-
krókur.
Frá veröndinni er gengið inn í
stofu þar sem er gistirými fyrir
tvo og þar fyrir innan er hjóna-
herbergi. Einnig er baðherbergi
með sturtu. Í stofunni er sjón-
varp, sem er tengt gervihnatt-
arsjónvarpi.
Nóttin kostar 217 evrur eða
um 19.000 íslenskar krónur.
Innifalið í verðinu er vatn, raf-
magn og gas og vikuleg hrein-
gerning og rúmfataskipti.
Bergljót hefur verið leið-
sögumaður fyrir þýsku- og
enskumælandi ferðamenn í Flór-
ens, Siena og San Gimignano og
segist hlakka til að veita Íslend-
ingum leiðsögn ef þeir sækjast
eftir henni.
Leigir
út
íbúðir á
Ítalíu
Þeir sem hafa áhuga á að
fá nánari upplýsingar geta
sent tölvupóst til Bergljótar
en hann er: begga@inwind.it.
Einnig er hægt að hafa sam-
band við Bergljótu í síma:
0039 348 8716986.
Faxnúmerið er: 0039 055
8544863.
Á AUSTFJÖRÐUM er nú boðið upp
á skíðagönguferðir á hefðbundnum
sumargönguslóðum.
Það er Ferðafélag Fjarðamanna
sem býður upp á
þessar skíðagöng-
ur.
Leiðsögumenn
eru vanir skíða-
menn og vel stað-
kunnugir. Meðal
slíkra gönguferða
er þriggja daga
skíðagönguferð frá
Neskaupstað með
tveim gistinóttum í
Viðfirði og siglt er
til baka. Einnig
býður Ferðafélagið
upp á léttari gönguferðir á skíðum
ásamt hinni hefðbundnu morgun-
göngu í Páskahelli og fuglaskoðun á
Leirunni á Reyðarfirði, sem orðin er
árviss. Þá mun einnig verða boðið
upp á skíðagönguferð yfir hin feiki-
háu Smjörfjöll milli Héraðs og
Vopnafjarðar.
Gönguferðir á
Austurlandi
verða æ vinsælli
og að sögn Jó-
hönnu Gísladótt-
ur hjá markaðs-
stofu
Austurlands er
enda hvergi jafn
mikið af stiku-
merktum og
kortlögðum
gönguleiðum og
þar. Hún segir að
nú sé verið að
opna skíðasvæði Austfirðinga í Odds-
skarði og Stafdal, enda gleðjast
margir yfir langþráðum snjónum
sem loksins þekur skíðabrekkurnar.
Ljósmynd/ Þór Vilmundarson
Skíðasvæðið í Oddsskarði.
Skipulagðar stuttar og langar skíðagönguferðir á vegum Ferðafélags Fjarðamanna á Austfjörðum
Á skíðum um
fjöll og firnindi
Frekari upplýsingar um
gönguleiðir og aðra afþreyingu
á Austurlandi eru veittar hjá
Markaðsstofu Austurlands í
síma 472-1750 og hjá Upplýs-
ingamiðstöð Austurlands í síma
471-2320.
Netfangið er east@east.is. Skrá
yfir gönguferðirnar og aðra við-
burði á Austurlandi má einnig
finna á vefslóðinni www.east.is.
NÝLEGA var aðalefni ferðablaðs þýska
dagblaðsins Die Zeit um Ísland og fjallaði
greinin að megninu til um íslenskt næturlíf.
Páll Óskar og vinkona hans Berglind
Ágústsdóttir sýndu blaðamönnum dag-
blaðsins hvað Reykjavík hefur upp á að
bjóða þegar skyggja tekur. Reyndar hefst
greinin á því að upplýsa lesendur um að
náttúra landsins og hús séu hulin myrkri 20
klukkstundir á sólarhring yfir vetrartímann
og þá leiki lausum hala tröll og álfar sem Ís-
lendingar trúi á eins og Guð almáttugan.
Helstu kaffihús og skemmtistaðir eru síð-
an þræddir og ekki þótti blaðamönnunum
nú verra að rekast á Björk á Kaffibarnum
eftir að hafa verið fyrr um kvöldið á tón-
leikum með henni í Laugardalshöllinni.
Íslenskt næturlíf
í þýsku dagblaði
FLUGFÉLAGIÐ Lufthansa kynnti
nýlega aðstöðu á flugvellinum í
Frankfurt sem er eingöngu ætluð
börnum sem eru að ferðast ein,
þ.e.a.s. án fullorðinna. Aðstaðan
skiptist í tvennt, fyrir smábörn og
eldri börn. Þarna er boðið upp á
alla mögulega þjónustu fyrir börn-
in, leiktæki, leikföng og veitingar,
Reuters
Lufthansa með að-
stöðu fyrir börn
Í VIKUNNI sem leið var
opnað nýtt lúxushótel á
Manhattan í New York , hót-
el Ritz-Carlton.
Hótelið er með 298 her-
bergi og þar er marmari á
baðherbergisgólfum, kodd-
arnir eru með gæsadúni og
gestir fá að gæða sér á
frelsisstyttunni úr súkkulaði.
Mörg herbergjanna eru
með útsýni yfir höfnina og í
þeim tilfellum er sjónauki á
herbergjunum og síðan eru
á öllum herbergjum DVD
spilarar og stór sjónvarps-
tæki.
Hótelið er á fyrstu 14
hæðum 39 hæða byggingar
neðarlega á Manhattan.
Gistinóttin kostar frá um
það bil 45.000 íslenskum
krónum og kaffibollinn er
seldur á 600 krónur.
Morgunblaðið/Ásdís
Nýtt lúxushót-
el á Manhattan