Morgunblaðið - 03.02.2002, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 B 15
bílar
FÁTT vakti jafn mikla athygli evr-
ópskra fjölmiðla á bílasýningunni í
Detroit og kynning á fyrsta al-
vörujeppa Volvo, XC90. Volvo
framleiðir núna sjö gerðir bíla, þ.e.
S40, V40, S60, V70, C70, Cross
Country og S80. XC90 verður því
áttunda gerðin sem Volvo fram-
leiðir. Hann verður framleiddur
jafnt fimm sæta og sjö sæta og
keppir í flokki bíla sem er nýlega
orðinn til í Evrópu, þ.e. lúxus-
jeppaflokknum.
6–7 milljóna kr. bílar
Það sem einkennir þennan nýja
flokk er fjórhjóladrifskerfið og
meiri veghæð en venjulegir lang-
bakar bjóða upp á. En framleið-
endur slíkra bíla leggja megin-
áherslu á að akstursþægindin séu
svipuð og í langbökum eða fólks-
bílum. Annað sem einkennir lúx-
usjeppana eru stórar vélar, sem er
líka þeirra helsti ókostur þar sem
vörugjöld ákvarðast af vélarstærð-
um og þar með verður verðið
hærra. Helstu keppinautar XC90
verða Audi Allroad, BMW X5, sem
kostar frá 6.150.000 kr., og
Mercedes-Benz ML, sem kostar
frá 5.380.000 kr.
Í Bandaríkjunum og Þýskalandi,
þar sem bílverð er langtum lægra
en hérlendis, er mikill áhugi fyrir
lúxusjeppum. Einmitt þessi tvö
markaðssvæði eru afar mikilvæg
fyrir Volvo. Greinilega má merkja
Volvo-svip á nýja XC90 jeppanum.
Stórt grillið, framljósin og fram-
brettin minna óneitanlega á V70
langbakinn en séður frá hlið minn-
ir hann líka talsvert á BMW X5.
Spólvörn og stöðugleikastýring
X90 er með drif á öllum hjólum
og það er tölvustýrður rafeinda-
búnaður sem deilir átakinu milli
hjólanna á hvorum öxli fyrir sig en
átakinu er dreift milli fram- og aft-
uröxuls með Haldex-kúplingu. Svo
lengi sem framhjólin hafa grip fer
næstum allt átakið til framhjól-
anna en þessi gerð drifbúnaðar
hefur þann kost að eldsneyt-
iseyðslan verður minni en ef átakið
dreifist einnig stöðugt til aftur-
öxuls. Til stuðnings við fjórhjóla-
drifið er XC90 með spólvörn sem
er hluti af DSTC-kerfi bílsins
(Dynamic Stability and Traction
Control = stöðugleikastýring og
spólvörn). Minnsta hæð undir bíln-
um er 21,8 cm og ætti hann því að
komast leiðar sinnar þótt utan
malbiksins sé.
272 hestöfl í flaggskipinu
Bíllinn verður með aflmiklum
vélum. Hægt verður að velja um
þrjár ólíkar vélar. Sú minnsta er
ný 2,4 lítra dísilvél sem skilar 163
hestöflum og 340 Nm togi við
1.750 snúninga á mínútu.
Þeir sem frekar kjósa bensín-
vélar geta valið á milli tveggja sem
báðar hafa forþjöppu. Sú minni er
byggð á 2,4 lítra fimm strokka vél
Volvo en hefur nú fengið ögn
stærri slagrými, 2,5 lítra, og skilar
210 hestöflum. En snúningsvægið
er enn eftirtektarverðara, eða 320
Nm strax við 1.500 snúninga á
mínútu. Vélin skilar því strax
miklu afli við lágan snúning.
Flaggskipið verður síðan með
2,9 lítra, sex strokka línuvél. Hann
kemur beint frá Volvo S80 T6 og
skilar 272 hestöflum. Hámarkstog
næst við 1.800 snúninga á mínútu
og er 380 Nm.
Mikið öryggi
Eins og vænta má í Volvo er ör-
yggisbúnaðurinn fyrsta flokks og
að flestu hugað. Í bílnum eru
fimmpunkta öryggisbelti með
sjálfvirkum beltastrekkjurum,
virkir hnakkapúðar sem draga úr
hættu á hálshnykkjum en jafn-
framt hefur Volvo gengið skrefi
lengra með því að taka tillit til
þeirra sem ekki hafa sjálfir ráð á
XC90. Það er nefnilega eitt af
vandamálunum með jeppana að
þeir eru svo háir að lendi þeir í
árekstri við venjulega fólksbíla er
mikil hætta á ferðum. Hætta er á
því að öryggisbúnaður venjulegra
fólksbíla, svo sem krumpusvæði
aftan við stuðara og stálbitar í
hurðum, virki ekki. Volvo hefur
hugsað fyrir þessu og komið fyrir
þverbita aftan við framstuðara
jeppans sem er í svipaðri hæð og
stuðari venjulegs fólksbíls.
Kostir jeppa eru m.a. mikil veg-
hæð og þar með mikil yfirsýn á
veginn. En ókosturinn er hár
þyngdarpunktur sem gerir jepp-
ann óstöðugri en venjulegan fólks-
bíl. Volvo hefur tekið á þessu
vandamáli með tækninni. Í fyrsta
lagi er þyngdarpunkturinn hafður
eins neðarlega og hægt er en að
auki hefur Volvo þróað kerfi sem
kallast RSC (Roll Stability Cont-
rol). Í RSC er m.a. hreyfiskynj-
arar sem skynja afstöðu bílsins á
vegi. Skynji kerfið að bíllinn halli
of mikið virkjar það stöðugleika-
stýringuna sem dregur úr afli til
hjólanna og beitir hemlun á eitt
eða fleiri hjól. Þetta er þó engin
trygging fyrir því að bíllinn velti
ekki og fari svo eru farþegarnir
vel varðir því þakið er úr sér-
staklega styrktu Boron-stáli, sem
er fjórum sinnum sterkara en
venjulegt stál. Auk þess eru stærri
hliðarloftbelgir (gardínur) í X90 en
í öðrum Volvo bílum.
Volvo er framleiðandi lúxusbíla
og býður því upp á langan lista af
aukabúnaði sem gæti freistað
margra. Þar má nefna hluti eins
og leiðsögukerfi, Dolby Pro Logic
II hljómtækjakerfi, 13 hátalara,
sérstakt hljóðtækjakerfi fyrir aft-
ursætisfarþega, sjónvarpsskjá í
loftinu, DVD-spilara og fleira.
Night Vision er einnig aukabún-
aður en það er innrauð myndavél á
stuðara sem varpar upp á skjá
mynd af fyrirstöðu á vegi löngu
áður en hún sést með berum aug-
um.
XC90 kemur á markað hérlendis
næsta haust en ekki hefur fengist
uppgefið hvað bíllinn mun kosta.
En ljóst er að helsti keppinaut-
urinn er BMW X5. Hann kostar
frá 6.150.000 kr.
Bíllinn verður framleiddur fimm og sjö sæta.
Öryggi, afl og þægindi í XC90
Volvo XC90 kemur á markað næsta haust.
Volvo-ættarsvipurinn leynir sér ekki.
árið 2002
Málningarstyrkur
HÖRPU SJAFNAR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skilafrestur er til 3. apríl nk.
Harpa Sjöfn hf. veitir á næstunni styrki í formi
málningar til góðra verkefna á vegum líknar-
félaga, sjálfboðaliða, þjónustufélaga, menningar-
samtaka og annarra sem vilja hafa forystu um að
fegra og prýða umhverfi sitt.
Síðustu fjögur ár hafa verið veittir samtals 60 til
70 málningarstyrkir, 2500 lítrar af málningu að
verðmæti um ein milljón króna á ári. Mikill fjöldi
umsókna hefur borist og voru undirtektir svo
góðar að ákveðið hefur verið að veita málningar-
styrki að nýju vorið 2002, enda hefur óspart verið
hvatt til þess.
Víða um land starfa margs konar félög og félaga-
samtök sem jafnan leita verðugra verkefna til að
láta gott af sér leiða fyrir samfélagið, t.d. með því
að mála og fegra mannvirki. Verkefnin geta falist
í endurbótum á sögufrægum húsum, kirkjum,
byggðasöfnum, sæluhúsum, björgunarskýlum,
íþróttamannvirkjum, elliheimilum og barna-
heimilum, svo eitthvað sé nefnt.
Harpa Sjöfn hf. ver að þessu sinni einni milljón
króna til málningarstyrkja sem verða á bilinu 50
til 300 þúsund krónur hver, eftir verkefnum. Þeir
sem hyggjast leita eftir styrkjum eru beðnir um að
skila umsóknum eigi síðar en 3. apríl nk. til Hörpu
Sjafnar hf., Austursíðu 2, 601 Akureyri eða
Stórhöfða 44, 110 Reykjavík. Gera þarf grein fyrir
verkefnum, senda mynd af því mannvirki sem
ætlunin er að mála og gefa upp áætlað magn
Hörpu Sjafnar málningar vegna verksins.
Dómnefnd velur úr umsóknum. Í dómnefndinni
eru: Formaður, Baldur Guðnason, stjórnar-
formaður Hörpu Sjafnar hf., Vigfús Gíslason
sölustjóri, Kristinn Sigurharðarson sölustjóri og
Helgi Magnússon framkvæmdastjóri. Móttakendur
styrksins sjá alfarið um kostnað við framkvæmd
verkefna. Tilkynnt verður um niðurstöður í maí.