Morgunblaðið - 03.02.2002, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 B 17
bílar
AUDI A8 er orðinn átta ára gamall
bíll og næsta haust verður arftakinn
settur á markað. Audi ætlar sér að
gera A8 að öruggasta bíl heims í sín-
um verð- og stærðarflokki.
Nýlega náðust myndir þar sem
frumgerðin var prófuð í Norður-
Finnlandi. Sjá má af myndum Auto-
media að bíllinn er allur nýr að sjá.
Þakið er bogadregnara, komnar eru
nýjar framlugtir og framendinn er
skiptur upp með stuðaranum í tvo
hluta. Þá er aftasti gluggapósturinn
orðinn minni og meiri sveigja í honum.
Þá er rísandi hliðarlína í bílnum sem
gefur honum sportlegri svip.
En það sem Audi leggur áherslu á
og ætlar að nýta sér við markaðs-
setningu á bílnum er öryggi. Fjöldinn
allur af líknarbelgjum verður í bílnum,
bæði fyrir farþega í framsætum og
aftursætisfarþega. Skynjarar við
hvert sæti mæla stærð þess sem í
sætinu situr og öryggispúðarnir blása
út í samræmi við stærð farþega ef til
áreksturs kemur.
Grunngerð bílsins verður með 3,0
lítra, V6 vél sem skilar 210 hest-
öflum. Að auki verður bíllinn boðinn
með 3,7 og 4,2 lítra V8 vélum, 260
og 310 hestafla.
S8, sportútfærslan af A8, verður
áfram með 4,2 lítra, V8 vél sem að-
eins aflmeiri, eða 360 hestafla. Með
þeirri vél nær S8 hröðun í 100 km
hraða á 5,5 sekúndum. Hann er því
hraðskreiðari í upptakinu en Merce-
des-Benz S AMG. En Audi ætlar engu
að síður að gera enn betur með RS8
með 4,5 lítra V8 vél. Samkvæmt
Automedia skilar sú vél 500 hest-
öflum.
Tölvugerð mynd af nýjum Audi A8 sem kemur á markað í
haust.
Nýr Audi A8
Afturendinn er gjörbreyttur eins og sjá má.
FYRIRTÆKIÐ bk BilBoX hefur
hafið innflutning á litlum ventli,
CB-26P, sem settur er á sogleiðslu
að soggrein, á bremsurörið eða
skrúfað beint á soggreinina.
CB-26P stendur fyrir Clean Burn,
(hreinn bruni), 2,6 Petrol (bensín).
Fyrir vélar sem eru stærri en 2,6
lítrar þarf tvo ventla. CB-26P pass-
ar fyrir flestar bensínvélar með
blöndung, rafeindastýrða inn-
sprautun og forþjöppuvélar. Vent-
illinn er hannaður og framleiddur í
Englandi af fyrirtækinu Ecotek.
CB-26P er settur á sogleiðslu að
soggrein, á bremsusogrörið eða er
skrúfað beint á soggreinina. Vent-
illinn hleypir litlu loftmagni inn á
soggreinina í lausagangi sem bætir
útblásturinn án þess að hafa áhrif á
mjúkan gang.
Á miðlungssnúningshraða sveifl-
ast lokinn og myndar loftslátt sem
myndar hringiðu í soggreininni og
að endingu veldur ventillinn því að
það myndast hvirfill í bensínblönd-
unni á háum snúningi.
Heildaráhrifin af þessu eru betri
blöndun á eldsneytiseiningunum
sem skapar meiri afköst og hreinni
bruna. Samkvæmt rannsóknum sem
umboðsaðilinn hér á landi vitnar til
veldur þetta minna magni mengandi
efna í útblæstri og jafnframt rúm-
lega fimmtungi minni eldsneyt-
iseyðslu.
Ventill á soggrein dregur úr mengun
SUZUKI ætlar að gera al-
vöru úr því að setja smábílinn
Lapin á markað, sem fyr-
irtækið frumsýndi á bílasýning-
unni í Tókýó sl. haust. Bíllinn er
byggður á Alto sem er á mark-
aði í Japan en kassalaga hönn-
un bílsins er óvenjuleg og þykir
til marks um að með þessari
hönnun hafi sparast umtals-
verðar upphæðir við fram-
leiðslu bílsins en um leið mörk-
uð sú stefna að nýta sem
mest af innanrýminu.
Margir bílar sem hafa verið
að koma á markaðinn, eins og
Mini og Volkswagen Bjalla,
sækja línur sínar til fortíð-
arinnar. Það gerir Lapin einnig
en hann þykir líkur Mini
Clubman sem var á markaði á
áttunda áratugnum í Bretlandi.
Bíllinn er með stórum gluggum
og því bjartur að innan. Búið
er að taka úr honum sæt-
isbekkina sem hann var frum-
sýndur með og setja sæti í
staðinn en gírstöngin er sem
fyrr í stýrinu. Ljóst er að bíll-
inn verður þægilegur í um-
gengni vegna mikillar lofthæð-
ar. Lapin verður framleiddur
bæði framhjóla- og fjór-
hjóladrifinn. Grunngerðin verð-
ur með 660 rúmsentimetra
vél en líklegt er að í Evrópu
verði hann helst boðinn með
1,3 lítra vél, þeirri sömu og í
Suzuki Wagon R+.
Suzuki Lapin kemur á markað í Evrópu.
Óvíst er hvort Lapin verði í boði hérlendis.
Kassalaga
Lapin á
markað í
Evrópu
...ferskir vindar í umhirðu húðar
Loksins kom krem
þar sem virknin
finnst þegar það er
borið á húðina og
jafnframt sjáanlegur
munur! Ég mæli
eindregið með
Silhouette fyrir
konur á öllum aldri
og eftir barnsburð
er það alveg
nauðsynlegt.
Nýja Body scrubið
er kærkomin viðbót
og tvöfaldar virkni
Silhouette kremsins
á húðina.“
Dísa í World Class segir:
„Loksins sýnilegur árangur!“
Dísa í World Class
Heimsferðir bjóða í sumar dvöl á hinum geysivinsæla
strandstað Rimini á Ítalíu. Rimini við Adríahafið er
einn stærsti og vinsælasti sumarleyfisstaður í Evrópu
enda sækja hingað ferðamenn alls staðar að úr heim-
inum til að njóta þess sem staðurinn hefur að bjóða.
Heimsferðir bjóða þér vinsælustu gististaðina á Rim-
ini, frábærlega staðsetta við ströndina og örugga þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða, sem bjóða þér spennandi
kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Fyrstu 300
farþegarnir tryggja sér ótrúleg kjör á ferðinni til Rim-
ini og stórlækkun á verði ferðar frá því í fyrra.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.805
M.v. hjón með 2 börn, 23. maí,
Auriga Apartments, 5 nætur með
8.000 kr. afslætti.
Verð kr. 58.950
M.v. 2 í stúdíó, Auriga, 12 nætur,
20. júní, með 8.000 kr. afslætti.
Vikulegt flug til
Rimini
í sumar
frá 39.805*
fyrstu 300 sætin
Beint flug alla fimmtudaga
Brottför frá Keflavík kl. 17.30
Flug heim á þriðjudagsmorgnum
Heimsferðir stórlækka verðið til Rimini
Yfir 20.000 kr. verðlækkun á mann frá því í fyrra
Fyrstu 300 sætin á sértilboði
Opið í dag frá kl. 13–16
Rimini
Perlan við Adríahafið
Kynntu þér Ítalíubækling
Heimsferða
Frábærir gististaðir
Heimsferðir bjóða þér topp gististaði í hjarta Rimini,
rétt við fallega ströndina.