Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ 23 ÁRA gamall Reykvíkingur, Þór Sigurðsson, hefur játað hjá lögreglu að hafa ráðist á karlmann á Víðimel aðfaranótt mánudags, með þeim af- leiðingum að hann lést. Árásarmað- urinn var handtekinn á heimili sínu á mánudagskvöld og úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær að kröfu lögreglunnar í Reykjavík. Rannsókn hefur leitt í ljós að árásarmaðurinn var á leið heim frá innbroti í Hjólbarðaviðgerð Vestur- bæjar við Ægisíðu, þegar fórnar- lambið varð á vegi hans á Víðimeln- um fyrir tilviljun. Lögreglan segir ekki ljóst hvort hinn handtekni hafi fyrirvaralaust barið manninn niður með barefli eða hvort einhver orða- skipti hafi átt sér stað á undan. Böndin bárust að hinum grunaða eftir að lögreglan fékk tilkynningu um innbrotið á hjólbarðaverkstæðið laust eftir kl. 2 aðfaranótt mánu- dags. Rannsókn á innbrotsvettvangi leiddi til þess að grunur féll á fyrr- verandi starfsmann verkstæðisins. Þá bentu ýmis ummerki á morðvett- vangi til þess að sami maður hefði verið á ferð, bæði þar og á innbrots- vettvangi. Eftir yfirheyrslur lög- reglu og húsleit á heimili hins grunaða í Þingholtunum, þar sem hann býr einn, játaði hann á sig inn- brotið og að hafa mætt manni á Víði- mel. Sagði hann að til átaka hefði komið á milli þeirra sem enduðu með því að fórnarlambið lá hreyfingar- laust eftir. Hinn handtekni sagðist hafa haft í fórum sínum slaghamar, sveðju og kjötexi sem hann notaði við innbrotið. Grunur leikur á að eitthvert þessara vopna hafi verið notað við morðið en lögreglan segir ekki ljóst hvert þeirra. Vísaði lögreglunni á vopnin Hinn handtekni vísaði lögreglunni á vopnin sem hann hafði hent í sorp- tunnu í Melahverfinu. Þar fundust líka föt með blóði í, hugsanlega úr hinum látna, að því er lögreglan tel- ur. Lögreglan telur að hinn hand- tekni hafi verið undir áhrifum fíkni- efna, örvandi efna, en rannsókn á eftir að leiða í ljós hvaða efni það voru eða hvort um einhver efni var að ræða. Á blaðamannafundi í gær með lög- reglu sagði Hörður Jóhannesson yf- irlögregluþjónn að ekki væri unnt að greina frá því hvers konar ummerki á morðvettvangi hefðu leitt lögregl- una á slóð hins grunaða. Hann sagði hins vegar að maðurinn hefði gengið um götur með umrædd vopn í hönd- unum án þess að geyma þau í tösku eða fela með öðrum hætti. Árásarmaðurinn er fæddur 1978 og er ekki þekktur að glæpsamlegu athæfi hjá lögreglunni. Hann mun hafa verið til sjós að undanförnu. Hinn látni var fæddur 1951 og bend- ir ekkert til þess að hann hafi þekkt til banamanns síns. Krufning átti að fara fram í gær. Rannsókn málsins heldur áfram hjá lögreglunni í Reykjavík. Morðinginn var á leið heim úr innbroti þegar fórnarlambið varð á vegi hans fyrir tilviljun Morgunblaðið/Júlíus Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn á blaðamannafundi í gær ásamt Sigurbirni Víði Eggertssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni sem stýrir rann- sóknar- og tæknideild lögreglunnar í Reykjavík. Gekk um götur með sveðju, slag- hamar og kjötexi                          #$    %       $     &#$    '  (   $    ()     *       '      ! " +   , &  -    + "   .    '   ,   -$             %  ((   $    +  &  &       Sagðist hafa lent í átökum við hinn látna á Víðimel klæddir, á merktum og ómerktum bílum, en það er ljóst að lögreglan nær ekki komast yfir svæði innan síns löggæsluvæðis.“ Aðspurður hvort ástæða sé til að hafa fleiri lögreglubíla á ferð að næturlagi, segir hann að vissulega sé gott að hafa næga bíla á ferðinni en hann bendir á að morðið á Víði- mel hafi ekki verið framið vegna þess að lögreglan var illa mönnuð umrædda nótt. „Svæðið er stórt og það er ljóst allt getur gerst. Al- mennt séð eru borgarar nokkuð öruggir í Reykjavík. Helst hefur fólk fundið til óöryggis í miðborg- inni og einkum þeir sem aldrei fara GEIR Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík segir að þrátt fyr- ir atburðinn á Víðimel á mánudag, sé ekki ekki unnt að draga þá álykt- un að borgarar geti ekki lengur gengið óhultir um götur borgarinn- ar af ótta við ofbeldisbrot. „Ég vil meina að almennt getum við nokkuð frjálst um höfuð strokið í Reykjavík miðað við borgir í nágrannalöndun- um,“ segir hann. „Við getum ekki tekið undir það, að nú sé tilefni til að hræðast það að vera á ferli, vegna þess að það er ekki allt í einu núna sem hafa orðið kaflaskipti í sam- skiptum hins almenna borgara við afbrotamenn,“ segir hann og ítrekar þá afstöðu sína að það sé mjög fjarri sanni að fólk sé ekki lengur óhult á götunum. Guðmundur Arason, fram- kvæmdastjóri Securitas, segir það ömurlega stöðu fyrir fólk að lenda í því að brotist sé inn á heimili þess, ekki síst ef í ljós kemur að ofbeld- ismaður hefur gengið um heimilið, nýbúinn að brjótast inn annars stað- ar. Morð geta gerst þrátt fyrir nálægð lögreglu Aðspurður hvort ekki sé ástæða fyrir lögregluna að grípa til ein- hverra ráða til að tryggja öryggi borgaranna betur, í ljósi atburðar- ins á Víðimel, segir Geir Jón: „Það er ljóst að svona atburður getur gerst þótt lögreglumaður sé nánast á hverju götuhorni. Að fylla allt af lögreglumönnum leysir ekki málið eitt og sér. Þeir eru á ferðinni, bæði einkennisklæddir og óeinkennis- þangað,“ segir hann og vísar til skoðanakönnunar sem gerð var fyr- ir lögregluna fyrir nokkru. Hann segir þó ljóst að nauðsyn- legt sé fyrir fólk að gera frekari ráð- stafanir til að auka öryggi sitt á heimilum. „Við þekkjum til innbrota á heimili á meðan fólk er sofandi. Oftar en ekki er farið inn í húsnæði þar sem enginn er til staðar. Það er fátítt að farið sé inn í húseign og ráðist á fólk og það stórskaðað. Hinn almenni borgari er vel örugg- ur heima hjá sér ef hann viðhefur al- mennar varúðarráðstafanir, t.d. að loka gluggum og læsa dyrum.“ Geir Jón segir einnig að atburðurinn á Víðimelnum gefi ekki tilefni til að fólk „setji sig í sérstakar stellingar“. Innbrot inn á heimili eru hlutfalls- lega fátíð miðað aðra flokka inn- brota, s.s. bílainnbrot og innbrot í fyrirtæki og verslanir. Engu að síð- ur komu tvö þúsund heimiliseigend- ur til Securitas í fyrra til að leita ráða gegn innbrotsþjófum og segir Guðmundur Arason það vera tvöfalt á við þann fjölda sem ráðfærði sig við fyrirtækið á árinu 2000. „Vitund fólks um þessi mál hefur aukist mik- ið og uppákomur eins og sú sem varð í gærmorgun [mánudagsmorg- un, morðið á Víðimel] eru ömurleg- ar. Sem heimiliseiganda er mér ekki sama, enda leið mér betur þegar ég gat sett öryggiskerfið á vörð.“ Hann segir innbrot inn á heimili hafa breyst á allra síðustu árum. Nú sé tilviljanakenndum innbrotum sem framin eru í fíkniefnavímu að fækka, en skipulögðum innbrotum fjölgar. „Það er frekar að innbrots- þjófar skipuleggi sig og kanni allar aðstæður á staðnum áður en þeir láta til skarar skríða. Þetta er sú þróun sem við höfum séð á undan- förnum tveimur til þremur árum. Við vitum af mönnum sem hafa haft heilu göturnar kortlagðar og á þeim hafa fundist gögn um ýmis persónu- leg málefni íbúa, s.s. hvenær þeir fara í og úr vinnu, hversu margir eru í heimili, bílnúmer og fleira. Þetta segir okkur að skipulögð inn- brot eru að færast í aukana.“ Hann segir heimiliseigendur geta gert ýmislegt með sáralitlum til- kostnaði og fyrirhöfn til að verjast innbrotum, t.d. með því að ganga vel frá lýsingu á heimilum og fleira. „Eins þarf að ganga vel frá storm- og gluggajárnum svo ekki sé hægt að spenna glugga alveg upp. Það er líka nauðsynlegt að hugsa vel um læsingar á hurðum og annað slíkt enda orðið tímabært fyrir okkur hér á landi að huga betur að þessum málum en við höfum gert hingað til. Til viðbótar þessum almennu ráð- stöfunum koma öryggiskerfi til sög- unnar. Tæplega fjögur þúsund heimili í landinu eru komin með ör- yggiskerfi og fólk velur þessa leið vegna uppákomu eins og varð að- faranótt mánudags. Þarna er maður að koma úr innbroti í mjög annar- legu ástandi. Fólk hefur hvorki áhuga á því að lenda í klónum á slík- um manni við innbrot, né að vita af því að viðkomandi hafi brotist inn hjá því. Fólki líður afskaplega illa þegar það kemst að því að einhver úr flokki morðingja hefur verið inni á heimili þess.“ Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn telur öryggi borgara gott í Reykjavík Telur ekki tilefni til að hræðast ofbeldi á götum úti Tæknivinna lögreglunnar í Reykjavík skipti sköpum við rannsókn morðsins á Víðimel. Morgunblaðið/Júlíus MANNDRÁPIÐ sem framið var á Víðimel aðfaranótt mánudags, er fyrsta manndrápið sem framið er hér- lendis á þessu ári og jafnframt hið ell- efta síðastliðin 5 ár. Frá 1997–2001 hafa að meðaltali verið framin tvö manndráp á ári, en töluverðar sveifl- ur eru á milli ára. Þannig voru fimm manndráp árið 2000 en ekkert árið 1998. Tvö voru framin 1997 og 1999. Af ellefu manndrápum áttu lang- flest sér stað á höfuðborgarsvæðinu eða átta. Þau átta sem um ræðir áttu sér stað í Heiðmörk í október 1997, við Leifsgötu í júlí 1999 og við Espi- gerði í desember sama ár. Þrjú af fimm manndrápum áttu sér stað á höfuðborgarsvæðinu, þar af eitt við Engihjalla í Kópavogi í marsmánuði, annað á Leifsgötu í júlí og hið þriðja í Öskjuhlíð í nóvember. Í nóvember í fyrra var manni ráðinn bani við Bakkasel í Breiðholti og nú, þremur mánuðum seinna, lætur karlmaður lífið á Víðimel vegna árásar. Af ellefu fórnarlömbum í umrædd- um manndrápsmálum frá 1997 eru átta karlar og þrjár konur. Morðið á Víðimel Ellefta mann- drápsmálið frá 1997         

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.