Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 24
UMRÆÐAN 24 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ UNDANFARIÐ hefur mikil endur- skipulagning átt sér stað á starfsemi Land- spítala-háskólasjúkra- húss. Sameiningarferl- ið hófst fyrir alvöru með setningu reglu- gerðar um sameiningu heilbrigðisstofnanna 2. mars 2000 undir for- ystu þáverandi heil- brigðis- og trygginga- málaráðherra, Ingbjargar Pálmadótt- ur. Er nú svo komið að öll sjúkrahús höf- uðborgarsvæðisins, að St. Jósefsspítala í Hafnarfirði undanskildum, hafa verið sameinuð undir einn hatt. Verður þetta að teljast merkileg þróun undir forystu stjórnmála- flokks sem telur sig vera málssvara frjálshyggjunnar þar sem frum- kvæði, dugnaður og nýsköpun ein- staklingsins fái að njóta sín. Þrátt fyrir mikinn niðurskurð stjórnvalda á fjárveitingum til stofnunarinnar hefur almenningi verið talin trú um að sameining- arferlið gangi vel fyrir sig. Þar sé öllum landsmönnum tryggð full- komin og mannsæmandi heilbrigð- isþjónusta eins og lög kveða á um. Raunveruleikinn sem birtist lækn- um og heilbrigðisstarfsfólki bráða- þjónustu sjúkrahússins er annar og dapurlegri. Þjónusta við sjúka og aðstaða til aðhlynningar er á álags- tímum langt fyrir neðan það sem eðlilegt getur talist á háskóla- sjúkrahúsi. Enn viðgengst það að fárveikir einstaklingar verða að láta sér það lynda að liggja á göng- um spítalans. Alvarlega veiku fólki er komið fyrir á yfirfullum deildum við aðstæður sem ekki eru til þess fallnar að sinna slíkri meðferð. Við slíkar aðstæður er ekki hægt að tryggja öryggi þeirra viðunandi hátt. Ég kvíði því næstu vikum nú þegar inflúenza hefur stungið sér niður á meðal landsmanna en í kjöl- farið aukast jafnan bráðainnlagnir aldraðra einstaklinga með tæpt heilsufar. Núverandi ástand eykur stórlega hættu á mistökum við meðferð og eftirlit sjúklinga vegna skorts á legurými, læknum og hjúkrunarfólki. Starfsmönnum er boðið upp á nöturleg vinnuskilyrði þar sem boðskipti manna á milli eru að bregðast niður allt skipurit háskólasjúkrahússins. Hafa læknar ítrekað bent á að neyðarástand ríki á stofnuninni en í stað úrbóta er niðurskurður fjárveitinga til sjúkrahússins aukinn. Meðan þessu fer fram hefur gríð- arlega aukning átt sér stað á vinnu- álagi starfsmanna. Enn fjölgar ný- komum á slysa- og bráðamóttökur (orðnar um 66.000 á ári) og inn- lagnir hafa aukist um 3,5%. Legu- tími styttist og alvarleiki veikinda eykst. Þrátt fyrir þetta tryggja stjórnvöld spítalanum ekki eðlilegt rekstraröryggi. Framkvæmda- stjórn stofnunarinnar er neydd til aðhaldsaðgerða sem bitna á öryggi og gæðum þjónustu háskólasjúkra- húsins. Er raunar með ólíkindum að yfirmaður heilbrigðismála á Ís- landi skuli komast upp með að stefna þannig lífi og heilsu almenn- ings í hættu. Er ástandið það alvar- legt að starfsmannaráð LSH hefur sent frá sér ályktun þar sem það lýsir áhyggjum sínum af áframhaldandi niður- skurði á fjárveitingum til stofnunarinnar. Þar sem því verði aðeins mætt með samdrætti í starfsemi og minni á þjónustu við sjúklinga. Stjórnvöldum er skylt að tryggja almenningi aðgengi að bestu mögulegu heilbrigðis- þjónustu sem völ er á hverju sinni. Fagfólk getur veitt þessa þjón- ustu en slík umgjörð kostar fjármagn, meira fjármagn en heilbrigðisráðu- neytið ætlar stofnuninni um þessar mundir. Ef stjórnvöld geta ekki staðið betur að málum er 1.gr. laga um heilbrigðisþjónustu marklaus og breyta ætti orðalagi hennar. Þau ánægjulegu tíðindi bárust nýverið að samþykkt hefur verið að allri starfsemi sjúkrahússins verði komið fyrir á einni lóð við Hring- braut. Hins vegar er það áhyggju- efni að áratugir kunna að líða áður en sú stefnumörkun verður að veruleika. Rekstur sameiginlegs háskólasjúkrahúss á tveimur að- skildum stöðum undir einni stjórn verður ekki áfallalaus. Því verða stjórnvöld að tryggja fjárframlög til verkefnisins til að uppbygging raunverulegs háskólasjúkrahúss verði lokið á þessum áratug. Er því mikilvægt að sem flestir tjái sig óhikað um málefni háskólasjúkra- húss á opinberum vettvangi. Þann- ig skapast frjór jarðvegur í opinni lýðræðislegri umræðu og veitir stjórnvöldum nauðsynlegt aðhald til að tryggja áframhaldandi upp- byggingu starfseminnar. Áframhaldandi fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu kemur til með að margfalda þörf fyrir legurými á hátæknisjúkrahúsi á næstu 10–20 árum, sérstaklega vegna fjölgunar aldraðra. Úrbóta er þörf. Er það með öllu ósæmandi að bráðveiku fólki sé í sífellt auknum mæli vísað á ganga, skol- og skoðunarherbergi sjúkrahússins. Mikilvægt er að íhuga hvað felst í hugtakinu há- skólasjúkrahús sé á annað borð vilji til þess að nafngiftin lýsi sam- bærilegum stofnunum erlendis. Starfsmenn slíkra stofnana hafa kennslu- og rannsóknarskyldur sem virðist lítið rými ætlað í dag. Ef háskólakennurum, sérfræðing- um og nemendum verður ekki tryggt fjármagn og aðstaða til slíkra starfa er e.t.v. heiðarlegast að leggja af viðhengið háskólaspít- ali til að minni gjá verði á milli væntinga og veruleika en nú er. Til að ná þessum markmiðum er einnig nauðsynlegt að vinna áfram mark- visst að samstarfi við einkaaðila og sjálfstætt starfandi heilbrigðis- og lækningafyrirtæki, þar sem sjálf- stæði vísindamanna til eigin rann- sókna innan LSH er tryggt. Einok- un er afar vafasamt stjórntæki og engum holl, allra síst háskóla- sjúkrahúsi. Því væri athugandi að koma upp neti sjálfstæðra háskóla- sjúkrahúsa á landinu. Myndi slíkt veita yfirstjórn LSH viðhlítandi faglega og rekstrarlega samkeppni. Er það von greinarhöfundar að stjórnvöld láti af óraunsæjum 4% niðurskurði til málaflokksins þann- ig að hægt sé að halda uppi við- unandi þjónustu, rannsóknum og kennslu á Landspítala-háskóla- sjúkrahúsi. Ella tel ég mikla hættu á að stofnunin nái sér ekki upp úr þeim öldudal sem hún er nú komin í. Eða er það vilji fjárveitingar- valdsins að tefla lífi og heilsu sjúkra í enn meiri tvísýnu á álags- tímum? Kreppa á Há- skólasjúkrahúsi Björn Rúnar Lúðvíksson Höfundur er læknir, sérfræðingur í lyflækningum og klínískri ónæmis- fræði, LSH við Hringbraut. Fjárvandi Eða er það vilji fjárveitingarvaldsins, spyr Björn Rúnar Lúðvíksson, að tefla lífi og heilsu sjúkra í enn meiri tvísýnu á álagstímum?NÝ byggðaáætlun hefur séð dagsins ljós. Byggðamálaráðherr- ann Valgerður Sverris- dóttir kynnti hana fyr- ir almenningi fyrir nokkrum dögum, og ef ég hef skilið málið rétt hefur áætlunin hlotið náð hjá ríkisstjórn. Svo einkennilega bregður við að þingmenn verða mjög tómlátir til augn- anna þegar um króg- ann er rætt og stjórn- armenn Byggða- stofnunar bregðast við eins og þeir hafi hvergi komið nærri gerð þessa plaggs. Það vekur spurningar um Byggðastofnun og stjórn hennar. Ég hef litið svo á að stofnunin væri pólitískt tæki til að vinna að tiltekn- um markmiðum, þ.e. því að treysta byggð sem víðast í landinu. Um þetta markmið eitt og sér kunna að vera deildar meiningar, en tilgang- urinn hélt ég að væri óumdeildur. Pólitískt kosin stjórn stofnunarinn- ar hlýtur síðan að endurspegla þau viðhorf sem á hverjum tíma ríkja á Alþingi. Því þykir mér það takmarkaður drengskapur sem lýsir sér í yfirlýs- ingum einstakra þingmanna, m.a. annars þingmanna ríkisstjórnar- flokkanna, þegar þeir sverja af sér alla ábyrgð á áætluninni. Gagnrýni á þessa áætlun er skilj- anleg, ekki síst á þá stefnubreytingu sem hefur orðið, að í stað þess að leggja áherslu á nokkur vaxtarsvæði í landinu skuli nú allt lagt á Akur- eyri. Með tilliti til fyrri umræðu krefst þetta skýringa, ekki frá byggðamálaráðherranum einum heldur þingmönnum almennt og þá ekki síst þeim sem sitja í stjórn Byggðastofnunar. Það að nauðsynlegt sé að mynda mótvægi við Reykjavík með því að efla eitt byggðarlag ut- an suðvesturhornsins er undarleg pólitík og byggist á þeirri hug- myndafræði að lands- byggðin og Reykjavík séu ósættanlegar and- stæður. Að mínum dómi er þetta rangt og skiptir afskaplega litlu fyrir þá sem búa utan Akureyrar. Það breyt- ir engu í byggðamálum hvort eyðibyggðirnar eru einni fleiri eða færri. Hvort heldur sem er er gert ráð fyrir að meginhluti landsins fari í eyði. Að ýmsu leyti kemur byggðaáætl- unin á mjög heppilegum tíma, í að- draganda sveitarstjórnarkosninga. Það er komið að því að almennir kjósendur geri kröfu til væntan- legra sveitarstjórnarmanna um að þeir svari spurningunni hvernig á að gera byggðirnar lífvænlegar? Mér duga engan veginn svör á borð við að ríkið níðist á sveitarfélögunum og svelti þau um tekjustofna um leið og verkefnin eru aukin. Þetta kann að eiga sér einhverja stoð en er ekki einhlít skýring. Ég tel að ekki hafi verið gripið til þeirra varna sem eru nærtækastar og eðlilegastar, en það er að efla samstöðu almennings í hinum dreifðu byggðum. Ég bý í litlu sveitarfélagi þar sem sveitarstjórnin hefur af miklum metnaði reynt að byggja upp góða þjónustu við almenning, með þeim afleiðingum að fjárhagslegri stöðu er teflt í tvísýnu. Þetta er það sama og sveitarfélögin í kring eru að gera af sama góða viljanum en án þess að fjárhagsleg geta sé fyrir hendi. Það er skoðun mín að með skyn- samlegri skipan sveitarstjórnar- mála sé hægt að leggja niður stofn- un á borð við Byggðastofnun. Það væri trúlega eitt farsælasta skrefið sem hægt væri að stíga í byggða- málum. Á síðasta hausti voru kynntar til- lögur sem sveitarstjórnarmenn á norðanverðum Austfjörðum höfðu unnið að um sameiningu sveitarfé- laganna frá Seyðisfirði til Bakka- fjarðar, að undanskildum Borgar- firði eystra, sem einu sveitarfélagi? Markmiðið er metnaðarfullt og tillögurnar voru vel unnar, niður- staðan sýndi svo ekki varð um villst að það var ekki aðeins skynsamlegt, heldur óafsakanlegt að gera þetta ekki. Af einhverri ástæðu hefur ekkert verið rætt um þetta nauðsynjamál. Ég tel að sveitarstjórnarkosning- arnar á vori komanda eigi hér á norðanverðu Austurlandi að snúast um þessar tillögur. Þarna eru lausn- ir sem við ráðum yfir sjálf. Við þurf- um ekki að leita eftir opinberum lausnum. Í þessu máli sannast að vilji er allt sem þarf. Höfnum for- sjárhyggjunni sem er innbyggð í stofnun á borð við Byggðastofnun, leysum málin heima í héraði og tök- um sjálf ábyrgð á tilveru okkar. Það er hvort eð er löngu ljóst að fyrir þeim sem þessum málum ráða erum við íbúar landsbyggðarinnar aðeins tölur í hagspám og reiknilíkönum. Er vilji allt sem þarf? Hrafnkell A. Jónsson Byggðaáætlun Höfnum forsjárhyggj- unni, sem er innbyggð í stofnun á borð við Byggðastofnun, segir Hrafnkell A. Jónsson, leysum málin heima í héraði. Höfundur er héraðsskjalavörður í Fellabæ. JÖFNUN lífeyris- réttinda er mál sem íslensk stjórnvöld hafa vísvitandi dregið á langinn og er þeim það ekki til sóma. Á liðnum áratugum hafa allar ríkisstjórnir, bæði hægri stjórnir og svokallaðar vinstri stjórnir, sýnt þessu máli tómlæti og jafn- vel lagt sig fram við að sporna gegn smá- leiðréttingum á rétti þeirra sem minnsta lífeyrisréttinn hafa. Það er alveg ótrúlegt að sjálft íslenska ríkið skuli hafa mismunað þegnum sín- um á þennan hátt og voga sér að halda því áfram enn þann dag í dag, þrátt fyrir betri vitund. Já, það er ótrúlegt að þingmenn og ráðherrar skuli standa fyrir því að fólki sem vinnur hjá ríkinu sé mismunað eftir félagsaðild á þann siðlausa hátt, að þeir sem eru í fé- lögum innan Alþýðusambands Ís- lands fá verulega lægra mótfram- lag í sinn lífeyrisjóð en það fólk sem er í félögum opinberra starfs- manna. Úrelt viðhorf Stjórnvöld hanga þarna í göml- um gildum og viðhorfum sem tíðk- uðust á fyrri hluta síðustu aldar þegar vel launaðir embættismenn ríkis og bæja fengu greidd svoköll- uð eftirlaun að starfi sínu loknu en sauðsvartur almúginn mátti lepja dauðann úr skel. Í stað þess að gera ráðstafanir sem stuðla að því að gera öllum lands- mönnum jafn hátt undir höfði í öflun líf- eyrisréttinda hefur hver ríkisstjórnin á fætur annarri, allt frá því að lýðveldi var stofnað á Íslandi, ein- ungis hugsað um sjálfa sig og takmark- aðan fjölda opinberra starfsmanna, hvað þetta snertir. Þessu óréttlæti verður að linna. Stjórnvöld verða að gera sér grein fyrir að þau eru að misnota skattpeninga lands- manna, sem fólk innan Alþýðusam- bands Íslands greiðir engu síður en opinberir starfsmenn. Spor í rétta átt Inn í kjarasamningana, sem verkalýðsfélög innan Starfsgreina- sambands Íslands gerðu við Launa- nefnd sveitarfélaga veturinn 2001, komu ný ákvæði um innvinnslu líf- eyrisréttinda til jafns við opinbera starfsmenn. Inn í sömu samninga komu einnig ný ákvæði um réttindi í veikinda- og slysatilfellum. Í báð- um þessum tilfellum er um að ræða umtalsverða aukningu á fyrr- greindum réttindum, sem nú eru sambærileg við réttindi opinberra starfsmanna er vinna hjá sveitar- félögum vítt og breitt um landið. Þetta tvennt eru merkir áfangar á lengri leið til að ná fullu jafnrétti fyrir allt verkafólk á almennum markaði til jafns við ýmsa hópa op- inberra starfsmanna. En það er erfið brekka eftir. Við eigum eftir að semja við stjórnvöld sem hafa sýnt það í gegnum árin að þau víla ekki fyrir sér að mismuna lands- mönnum og skara jafnframt eld að sinni eigin köku í leiðinni. Ríkið situr eftir Ef einhver áhugi er til staðar hjá stjórnvöldum þá er einmitt nú á þessum vetri kjörið tækifæri fyrir stjórnvöld að leiðrétta þennan mun og sýna því fólki sem skar upp her- ör gegn verðbólgu að það á skilið að njóta sömu lífeyriskjara og op- inberir starfsmenn. Það var jú fólk innan Alþýðusambands Íslands sem frestaði því að segja upp launaliðum kjarasamninga sinna til þess að stöðva verðbólguna, sem farin var úr böndunum, og ná henni niður aftur. Þakklæti stjórnvalda til þessa fólks má síst af öllu felast í áframhaldandi misrétti á inn- vinnslu lífeyrisréttinda heldur ætti ríkisstjórnin að ganga til samninga við fyrrgreind verkalýðsfélög um aukin rétt félagsmanna þeirra til innvinnslu lífeyrisréttinda. Þetta fólk á allt annað skilið af hálfu stjórnvalda en að þau haldi áfram að mismuna því í lífeyrismálum. Al- þingi og ríkisstjórn verður að gera sér grein fyrir því að engum sátt- um verður náð við launafólk á al- mennum markaði á meðan stjórn- völd hlunnfara það á þennan hátt. Jöfnun líf- eyrisréttinda Sigurður T. Sigurðsson Lífeyrir Það er ótrúlegt, segir Sigurður T. Sigurðsson, að íslenska ríkið skuli hafa mismunað þegnum sínum á þennan hátt. Höfundur er formaður Vmf. Hlífar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.