Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 35 Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. ✝ Edda IngveldurVikar fæddist í Reykjavík 29. des- ember 1927. Hún lést á heimili sínu 7. febrúar síðastliðinn. Faðir hennar var Guðmundur Bjarna- son Vikar klæð- skerameistari í Reykjavík, f. 11.4. 1888, d. 24.5. 1941. Faðir Guðmundar var Bjarni Magnús- son steinsmiður í Reykjavík, f. í Suð- urkoti í Grímsnes- hreppi í Árnessýslu 2.10. 1851, d. 31.5. 1928. Foreldrar hans voru Magnús Vigfússon, bóndi, f. í Fífl- holtshjáleigu í Vestur-Landeyja- hreppi í Rangárvallasýslu 26.9. 1823, d. 19.8. 1896, og Vigdís Bjarnadóttir, f. 1815. Móðir Guð- mundar var Sólveig Sigurðardótt- ir, f. í Reykjavík 6.7. 1868, d. 3.9. 1949. Foreldrar hennar voru Sig- urður Jónsson, bóndi og sjómaður að Móakoti í Reykjavík, f. 8.1. 1824, d. 2.4. 1890, og Guðrún Jó- hannesdóttir, f. að Mosfelli í Mos- fellssveit 10.9. 1836, d. 20.3.1894. Móðir Eddu var Lilja Finnboga- dóttir Vikar, húsmóðir í Reykja- vík, f. 10.4. 1900, d. 12.4. 1988. Faðir Lilju var Finnbogi Finn- bogason, stórbóndi á Galtalæk í Landsveit á Rangárvöllum, f. 24.4. 1870, d. 25.8. 1908. Foreldrar hans voru Finnbogi Árnason, bóndi á Galtalæk, f. að Vestri-Tungu á Rangárvöllum 8.8. 1822, d. 12.5. 1976, maki Jahmel Toppin, f. 22.3. 1976, þau eru búsett í Bandaríkj- unum. Sambýliskona Guðmundar Vikar er Guðrún Garðars, deild- arstjóri, f. 10.12. 1956, sonur hennar er Guðmundur Þór Vil- hjálmsson, f. 4.3. 1984. Hinn 9.1. 1954 kvæntist Edda eftirlifandi eiginmanni sínum Sigurgísla Sig- urðssyni, húsgagna- og innanhúss- arkitekt í Reykjavík, f. í Reykjavík 16.5. 1923. Börn þeirra eru: a) Hjördís arkitekt, f. 15.10. 1956, maki Dennis Davíð Jóhannesson arkitekt, f. 29.7. 1946. Sonur Dennis er Ragnar Jón, f. 9.10. 1982. b) Hilmar rafvirki, f. 16.11. 1957, maki Ásgerður Atladóttir, f. 18.1. 1957. Synir þeirra eru Orri, f. 22.7. 1980, og Gísli, f. 22.10. 1981. c) Sjöfn, doktor í matvæla- fræði, f. 2.9. 1963. Maki Stefán Jökull Sveinsson lyfjafræðingur, f. 2.5. 1963. Börn þeirra eru Tinna, f. 25.8. 1988, og Snorri, f. 12.4. 1993. Edda ólst upp í Reykjavík en dvaldi á sumrin fram að fermingu í Sandgerði að Bæjarskerjum hjá frænku sinni, Vigdísi, og manni hennar, Theodóri. Edda lauk barnaskólaprófi og stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík. Edda nam og lagði stund á vefnað og myndvefnað. Hún vann hjá gullsmíðaverslun Magnúsar Benjamínssonar 1941-1943, var ritari hjá Samtryggingu íslenskra botnvörpunga 1944-1948, Slipp- félaginu í Reykjavík 1952-1954, hjá Kópavogsbæ 1972-1981, hjá sjávarútvegsráðuneytinu 1982 og hjá Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna 1983-1994. Edda og Sigurgísli bjuggu í Kópavogi frá árinu 1960. Útför Eddu fer fram frá Digra- neskirkju í Kópavogi í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. 1877, og Guðríður Eyjólfsdóttir frá Minnivöllum í Land- sveit, f. 9.9. 1829, d. 1912. Móðir Lilju var Margrét Jónsdóttir, f. að Hárlaugsstöðum í Rangárvallasýslu 29.10. 1873, d. 19.3. 1974. Foreldrar henn- ar voru Jón Tómas- son, bóndi í Sauðholti og síðar á Hárlaugs- stöðum, f. 23.11. 1826, d. 7.7. 1885, og Guð- rún Jónsdóttir, f. að Herriðarhóli 1836, d. 1920. Systkini Eddu eru: 1) Finn- bogi Vikar bóndi, f. 22.4. 1923, maki Þrúður Guðmundsdóttir bóndi, f. 23.11. 1924. 2) Margrét Vikar húsmóðir, f. 22.11. 1927, maki Ólafur Jónsson lögfræðing- ur, f. 17.5. 1923, d. 27.5. 1982. 3) Karl Vikar húsasmiður, f. 25.11. 1927, d. 9.3. 1984. 4) Sólveig B. Vikar húsmóðir, f. 16.8. 1931. Hinn 2.10. 1948 giftist Edda Einari Einarssyni bankamanni, f. 19.4. 1922, d. 21.10. 2001. Þau skildu 16.1. 1951. Sonur þeirra er Guð- mundur Vikar, þvagfæraskurð- læknir og dósent við Háskóla Ís- lands, f. 8.2. 1949. Guðmundur kvæntist Steinunni Guðmunds- dóttur, f. 20.10. 1950. Börn þeirra eru: a) Edda Vikar, M.A. í rétt- arsálarfræði, f. 28.8. 1970, unnusti Jón Örn Guðmundsson, f. 20.4. 1968, sonur þeirra Guðmundur Vikar, f. 19.4. 1999, og b) Þóra Vikar förðunarfræðingur, f. 30.4. Lygn og mildur síðsumardagur við Eyrarvatn síðastliðið ár. Tím- inn virðist standa kyrr. Sólin er í feluleik á bak við skýin sem varpa skuggum á silfurgráan vatnsflötinn og kjarrið græna í Vatnaskógi. Úr fjarska heyrist í lómapari sem væl- ir saman dúett en það veit á rign- ingu og gott veiðiveður. Við vatns- borðið stendur tengdamóður mín Edda, einbeitt, með stöng í hendi. Skyndilega er kippt snöggt í lín- una og nú hefst barátta sem lyktar fljótlega með sigri veiðimannsins. Á bakkanum liggur gljáandi vænn silungurinn. Hér nýtur Edda sín í félagsskap fjölskyldu, umvafin ís- lenskri náttúru. En samtímis heyr hún aðra baráttu sem er öllu lengri og harðari. Tengdamóður minni kynntist ég fyrir sjö árum um það leyti sem við Hjördís hófum að rugla saman reytum okkar. Ég fann fljótlega á viðmóti Eddu, að ég var velkominn í fjölskylduna sem var henni aug- ljóslega afar kær. Hún var sann- kölluð fjölskyldumóðir er þreyttist aldrei á að styðja sína nánustu og hvetja þá til dáða. Bar hún mikla virðingu fyrir menntun, sköpun og hvers konar þekkingarleit. Sjálf hafði hún farið á mis við lang- skólanám í umróti styrjaldarár- anna. Góð hönnun og vandað hand- verk voru henni sérstaklega hugleikin. Nútímalegt og stílhreint heimili hinna samhentu hjóna í Kópavogi er til vitnis um hagleik þeirra beggja, þar sem Sigurgísli hannaði og smíðaði innréttingarn- ar og húsgögnin en Edda óf vegg- teppin og áklæðin. Mér líkaði strax við þessa frísk- legu og framsæknu konu er virtist líta á lífsbaráttuna sem röð af verkefnum er bæri að leysa vel og vandlega af hendi. Í samskiptum sínum við umhverfið var tengda- mamma hreinlynd og kappsöm en að sama skapi sveigjanleg og um- burðarlynd. Edda hafði skoðanir á mönnun og málefnum, en hún virti jafnframt skoðanir annarra. Ill- deilur og langrækni voru henni lítt að skapi. Það var því gott að vera í návist hennar. Þessir eiginleikar hafa án efa reynst henni gott vega- nesti á leiðinni gegnum lífið, ekki síst í baráttunni við óvæginn sjúk- dóm. Aldrei fann ég fyrir vonleysi eða sjálfsvorkunn í þeirri glímu. Með bónda sinn sér við hlið tókst hún á við það sem að höndum bar, af hugrekki og æðruleysi, þar til yfir lauk. Undir það síðasta var hún enn að brýna fyrir okkur hjón- um að þroska hæfileikana og njóta lífsins sem var henni svo dýrmætt. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Eddu og hennar mannkost- um. Við hjónin munun sakna hvetj- andi nærveru hennar og glaðlyndi að ógleymdum veiði- og gönguferð- um með Eddu og Sigurgísla. Megi minningin um góða konu styrkja eftirlifandi aðstandendur hennar. Dennis Davíð Jóhannesson. Stelpa í sveit á sléttum Sand- gerðis hlaupandi létt í hreyfingum, stökkvandi á steinum, umkringd hafi og hinum fjölmörgu bláu litum himinsins. Það eru svona staðir sem móta mann og herða, hafa áhrif á mann alla tíð. Ég tók strax eftir því af kynnum mínum við Eddu tengdamóður mína hve ákveðin hún var, sterk eins og hafið en umfram allt hlý eins og himinninn í öllum sínum fjölbreytileika, sáttfús, þolinmóð, alltaf til staðar fyrir sitt fólk sem hún gaf kjark og áræði til að halda áfram, – alltaf. Geymdu ekki til morguns það sem hægt er að gera í dag var hennar lífsstíll, sem skilaði sér til barna hennar sem eru sjálfstæðir, sterkir og umfram allt frábærir einstaklingar. Í lífi manns verða atburðir sem aldrei gleymast heldur varðveitast og ylja manni þegar maður hugsar til baka. Í hugann koma atvik þeg- ar Edda með sitt glögga auga og ótrúlega fimu fingur töfraði fram tískuflíkur sem litu út nákvæmlega eins og út úr búð. Alveg ótrúlegt – og þó ekki – því Edda var klæð- skeradóttir, gædd listrænum hæfi- leikum, lærði vefnað og síðar myndvefnað sér til gleði og fékk útrás fyrir sköpunarþrá sína. Alltaf var amma tilbúin að hafa ofan af fyrir litlu ömmubörnunum sínum sem uxu svo hratt og þurftu mikla hreyfingu, alltaf með í leik, hlaupandi í fótbolta, í marki í handbolta, í badminton, útilegum og veiði. Allir nutu sín alsælir og glaðir. Í veiðiferðum var Edda í essinu sínu, las ána rétt og tældi hvern laxinn af öðrum á land. Það var unun að sjá hana að verki. Og frið- urinn og fegurðin gagntóku hug hennar. Öll hreyfing var Eddu eðlileg. Hún átti unaðsstundir í skíða- brekkum, þar sem hún sveif niður í mjúkum salsatakti. Líf Eddu og Sigurgísla var eins og litríkur vefur í vefstól, þéttofið tryggðaband umhyggju og ástar. Edda mín. Ég mun ævinlega sakna þín. Takk fyrir allt og allt. Ásgerður Atladóttir. Tengdamóðir mín, Edda Ingv- eldur Vikar, er látin eftir erfið veikindi. Það er til marks um mik- inn viljastyrk og þrek, hversu ein- beitt hún var í baráttu sinni við krabbameinið síðustu mánuðina og lét sjúkdóminn ekki trufla sig frá því njóta samvista með eiginmanni, börnum sínum og fjölskyldum þeirra að heimili sínu í Gullsmár- anum þar til hún lést 7. febrúar síðast liðinn. Heimahlynning Krabbameinsfélagsins átti mjög stóran þátt í því að þetta var mögulegt og er hér með komið á framfæri bestu þökkum til þeirra fyrir örugga og fagmannlega þjón- ustu. Við Sjöfn bjuggum á neðri hæð- inni hjá þeim Eddu og Sigurgísla í Hlégerðinu með fyrsta barn okkar áður en við héldum til framhalds- náms 1988 og var sá tími mjög ánægjulegur og hlýlegt heimili þeirra var nýfæddri dóttur okkar gott skjól. Edda og Sigurgísli heimsóttu okkur alla leið til Kan- ada þar sem við vorum við nám og áttum við saman mjög góðar stundir. Þessi heimsókn til okkar til Kanada er í raun mjög lýsandi fyrir áhuga hennar að fylgjast grannt með börnum og barnabörn- um sínum í leik og starfi. Útvist og hreyfing var stór þáttur í lífi Eddu þar sem öll tækifæri voru nýtt. Má þar telja lax- og silungsveiði í ám og vötnum, gönguferðir bæði lengri og skemmri, gönguskíðaiðk- un, svigskíðaiðkun hér heima og heiman og „pútt“ æfingar á síðari árum. Allt tvinnaðist þetta saman í lífi hennar þar sem alltaf var pláss fyrir börnin og barnabörnin. Þær voru ófáar veiðiferðirnar upp að Elliðavatni þar sem hún tók Tinnu og Snorra með sér, en þó að oft væri lítil veiði og veðrið kannski ekki það besta, náði Edda alltaf að bjarga málunum með heitu kakói og ostabrauði þannig að minningar barnanna eru ljúfar frá þessum stundum. Einnig voru þær margar veiðiferðirnar sem hún fór með okkur fjölskyldunni og var óþreyt- andi við að kenna barnabörnum sínum undirstöðuatriði veiði- mennskunnar og varla var hægt að fá betri kennara. Oft fór þó svo að Edda veiddi stærsta fiskinn og ekki skipti máli hvort við vorum að veiða í Veiðivötnum á Landmanna- afrétti eða á stórlaxaslóð í Selá í Vopnafirði. Minningarnar eru margar með barnabörnunum. Þegar þau kom- ust á skóla- og leikskólaaldur voru Edda og Sigurgísli tíðir gestir á heimili okkar eftir að skóladegi barnanna lauk. Oftar en ekki voru tekin fram spil og langa vitleysa spiluð tímunum saman. Hún taldi það ekki eftir sér að taka til skó og annað smávægilegt sem krakkarn- ir „gleymdu“ að ganga frá eftir sig sem og að gefa þeim og félögum þeirra að drekka uns foreldrarnir komu heim frá vinnu á hinum ýmsu tímum. Edda lagði mikið upp úr því að hafa snyrtilegt í kringum sig og bar húsið og garðurinn í Hlégerð- inu þess góð merki. Stór garðurinn með fallegum gróðri var henni vettvangur endalausra verkefna og barnabörnunum sömuleiðis kjörinn staður til býflugnaveiða og ann- arra ævintýra. Blessuð sé minning Eddu tengdamóðir minnar Stefán J. Sveinsson Í dag vil ég eyða nokkrum orð- um til að minnast elsku ömmu minnar Eddu Ingveldar Vikar. Þær eru margar hlýjar og góðar minningar sem ég á um hana ömmu mína Eddu. Kraftur, þekk- ingarleit og lífsgleði eru þau orð sem lýsa best þessari hæfileika- ríku konu. Hún fræddi mig um listina og trúna, kynnti mig fyrir íslenskri náttúru og hafði einstakt lag á að beina athygli minni að þeim styrkleikum sem ég bý yfir. Listhneigðin tengdi okkur ömmu saman á mikilvægan hátt, því þó svo að starfsval okkar beggja hafi þróast í aðrar áttir hefur áhugi okkar að miklu leyti beinst að sviðum myndlistar og ýmiss konar hönnunar. Næmni hennar fyrir litum og formum fann ég oft endurspeglast í sjálfri mér og var það oft eins og að bíta í sætan konfektmola þegar komið var inn á heimili ömmu og afa vegna þeirrar litadýrðar og fallegu formfestu sem í kringum þau voru. Við amma áttum mörg samtöl um væntingar mínar til lífsins og framtíðarplön. Fékk ég ávallt mik- ið hrós frá henni og áhugi hennar leyndi sér ekki. Síðastliðin ár átti hún það til að hringja í mig á kvöldin þegar ég var búin að koma litla drengnum mínum niður fyrir svefninn. Þeirra samtala verður sárt saknað því þau gáfu mér hlýju og kraft sem ég því miður náði aldrei að tjá henni. Með sannri væntumþykju náði hún að snerta líf allra fjölskyldumeðlima á mik- ilvægan hátt og skilja eftir sig visku sem mun fylgja hverjum og einum. Ég á fallega minningu frá síð- asta degi sem ég eyddi með ömmu minni. Þrátt fyrir mikil veikindi ræddum við eins og svo oft áður um listina, fjölskylduna og fram- tíðina. Aftur tókst henni að telja mér trú um að ég væri einstaklega hæfileikarík manneskja og þegar ég kvaddi hana var ég í anda höfð- inu hærri en fyrir heimsóknina. Ég kveð þig, amma mín, með miklum söknuði en einnig trú um að kær- leikur þinn muni lifa á öðrum stig- um tilverunnar og vaka yfir okkur. Elsku afi, pabbi, Sjöfn, Hjördís og Hilmar, megi Guð styrkja ykk- ur í gegnum þessi tímamót. Edda. Þetta er ekki það sem ég sá fyr- ir mér, ég var viss um að amma mín myndi alltaf vera hjá mér, en nú er hún dáin. Ég sakna hennar mikið, því það var svo gott að vera með henni. Amma var alltaf kát og lífsglöð kona og hvatti aðra til dáða. Við spilaborðið áttum við margar góðar stundir. Og allar sögurnar sem hún sagði okkur bræðrum. Gönguferðir með afa og ömmu í Heiðmörk, á Búrfell, Helgafell og mörg önnur ónefnd fjöll, veiðiferðir í Veiðivötn og El- liðavatn sem eru mér ógleyman- legar. Í Hlégerði, heima hjá ömmu og afa, var fallegur garður sem amma hafði dálæti á. Þar var gott leiksvæði og amma var alltaf með okkur bræðrum í leik, kunni lagið á að sætta og halda athyglinni vak- andi. Þetta var minn ævintýra- heimur. Amma mín, ég vil þakka þér fyr- ir að vekja athygli mína á fjöl- breytileika lífsins. Afi minn, Guð styðji þig og styrki, því missir þinn er mikill. Orri Hilmarsson. Elsku amma. Við erum þakklát fyrir allar samverustundirnar sem við áttum saman. Það var alltaf jafn gaman þegar þið afi fóruð með okkur að veiða í Elliðavatni eða pútta. Okkur fannst alltaf gaman að koma til ykkar, til að spila eða horfa á teiknimyndir, borða pönnukökur og snúða, og hlaupa niður alla stigana í blokk- inni. Við viljum kveðja þig með fal- legum sálmi: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Tinna og Snorri. Það eru margar góðar minning- ar sem koma upp í hugann þegar við kveðjum móðursystur okkar Eddu Vikar. Í uppvexti okkar leið vart sá dagur að móðir okkar og Edda töluðu ekki saman. Skoðanir Eddu og umhyggja hennar fyrir fjölskyldu sinni og ættmennum voru því hluti af umhverfi okkar. Öll verk Eddu og athafnir, heim- ili hennar og útivist báru alltaf vott um mikinn dugnað og þær kröfur sem hún gerði til sjálfrar sín og annarra. Örlögin höfðu hag- að því þannig að hún þurfti að hætta í skóla á unglingsaldri til að vinna fyrir sér. Þessar aðstæður höfðu mikil áhrif á Eddu. Hún hafði óþreytandi áhuga á að bæta við sig þekkingu og lagði jafnframt stund á vefnað og saum sem fórst henni vel úr hendi. Edda lagði mikinn metnað í að skapa börnum sínum góðar aðstæður til náms og hvatti þau til dáða jafnt í skóla- starfi sem á sviði íþrótta. Síðustu þrjú ár ævi sinnar glímdi Edda við krabbameinssjúk- dóm. Fundir okkar urðu færri hin seinni ár, en þegar við hittum hana eftir að veikindin herjuðu á hana bar hún sig alltaf vel og með reisn, umvafin ást og hlýju eiginmanns síns og barna. Hún var ánægð með ævistarf sitt. Hún var óhrædd og hafði fundið frið. Kæra fjölskylda, við vottum ykkur innilega samúð. Lilja, Jón Yngvi og Guðmundur Birgir. EDDA INGVELDUR VIKAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.