Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 33
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 33 KEPPNI í Meistaradeild í hesta- íþróttum hefst í annað sinn í dag, miðvikudaginn 20. febrúar, þegar keppt verður í fjórgangi í Ölf- ushöllinni á Ingólfshvoli. Margir af bestu knöpum landsins munu mæta til leiks, þar á meðal þeir átta sem urðu efstir í Meist- aradeildinni í fyrra. Nú er stefnt að því að dreifa keppninni á fjóra staði á landinu. Meistaradeildin byggist á móta- röð þar sem sömu knaparnir etja kappi í ýmsum keppnisgreinum og safna stigum til meistaratignar á sjö mótum sem haldin eru hálfs- mánaðarlega. Fyrsta mótið verður eins og áður segir í kvöld og verð- ur keppt í fjórgangi í Ölfushöll- inni á Ingólfshvoli. Sjálf keppnin hefst kl. 18.30 en reiknað er með að úrslit hefjist kl. 21.15. Annað mótið verður í Reiðhöllinni í Víði- dal í Reykjavík 5. mars en þá verður keppt í tölti. Keppt verður í fimmgangi í Reiðhöllinni Svaða- stöðum á Sauðárkróki 19. mars, hraðafimi og hraðaskeiði í Ölf- ushöllinni 2. apríl, gæðingafimi og hraðaskeiði í Reiðhöllinni í Víðidal 16. apríl, tölti í Skautahöllinni á Akureyri 30. apríl og að síðustu í gæðingaskeiði og 150 m. skeiði á Ingólfshvoli 14. maí. Örn Karlsson, talsmaður Meist- aradeildarinnar, segist ánægður með hvernig til tókst í fyrra. Hug- myndin að mótaröðinni kviknaði þegar farið var að velta fyrir sér möguleikum á að gera hesta- íþróttirnar meira spennandi fyrir áhorfendur. Það hefur valdið áhyggjum að fáir áhorfendur hafa mætt á hestaíþróttamót og því taldi hann og fleiri að nauðsynlegt væri að brydda upp á nýjungum, skapa meiri spennu og umbuna knöpum sem ná árangri. Meðal þess sem lögð er áhersla á er að keppnin byggist upp á mótaröð þar sem keppendur safna stigum til meistaratignar og sömu keppendur etja kappi alla móta- röðina. Mótin verða stutt, þ.e. um það bil 2 klst og haldin með reglu- legu millibili í 3 til 4 mánuði. Einnig njóta keppendur góðs af áhuga áhorfenda því þeir fá ákveðið hlutfall af tekjum deild- arinnar. Verðlaunafé tvöfaldað Verðlaunafé tvöfaldast nú frá því í fyrra og verður nú um 1,2 milljónir króna sem byggist á stuðningi nokkurra fyrirtækja. Til mikils er því að vinna fyrir þá 37 knapa sem skráðir eru til leiks. Þar eru fremstir í flokki þeir átta sem stóðu efstir í fyrra og tryggðu sér þar með keppnisrétt á þessu ári. Deildarmeistari var Sig- urður Sigurðarson, 2. Sigurbjörn Bárðarson, 3. Adolf Snæbjörnsson, 4. Brynjar Jón Stefánsson, 5. Sig- urður Sæmundsson, 6. Hinrik Bragason, 7. Hallgrímur Birkisson og 8. Þorvaldur Árni Þorvaldsson. Ákveðið hefur verið að skera fjölda keppenda niður í 20 eftir árangri í þremur fyrstu mótunum. Keppnisstjórn áskilur sér þó rétt til að breyta þessari tölu um einn eða tvo telji hún það styrkja deild- ina. Átta stigahæstu knaparnir að loknum öllum mótunum færast sjálfkrafa upp í Meistaradeild að ári. Þá öðlast stigahæsti knapi Ís- landsmótsins í sumar einnig þátt- tökurétt ásamt besta manni í ís- lenskri tvíkeppni og skeiðtvíkeppni. Sérstök úrtaka fer fram um önnur sæti í deildinni í upphafi næsta keppnistímabils. Keppni í Meist- aradeild- inni hefst á ný GUSTUR hélt mót í góðu veðri á laugardag í Glaðheimum þar sem keppt var í mörgum flokkum sem skiptust eftir aldri og kyni. Þátt- taka var að sögn afar góð og þá sér- staklega í yngri flokkum. Dómarar þar voru hjónin Anna Björk Ólafs- dóttir og Snorri Dal. Fáksmenn færðu sitt mót sem haldið var á Víðivöllum af laugar- degi þegar veðrið var eins og best verður á kosið yfir á sunnudag þeg- ar gekk á með éljum. Alls voru þátt- takendur 74 og sýnu best þátttaka í kvennaflokkum sem voru tveir. Það var sá kunni kappi Þórður Þor- geirsson sem dæmdi á mótinu. Ekkert varð af kappreiðum á Rauðavatni að þessu sinni eins og fyrirhugað var. Hafði loks sigur á systur sinni Faxi í Borgarfirði hélt fyrsta mótið í þriggja móta röð á Vatns- hamravatni á sunnudag og var þátt- taka þokkaleg en þó bar svo við að enginn skráði sig til leiks í ung- lingaflokki sem vissulega vekur upp spurningar. Þátttakendur voru að- eins tveir í ungmennaflokki. Hesta- kostur þótti mjög góður og fóru þar fremst í flokki Sigursteinn Sigur- steinsson á Dagrúnu frá Skjól- brekku sem var í feiknastuði á ísn- um. Einnig vakti sigurvegarinn í barnaflokki Heiðar A. Baldursson athygli en hann keppti á fyrstu verðlauna stóðhestinum Hágangi frá Sveinatungu og þótti fara vel hjá þeim stutta. Náði hann með sigrinum langþráðu markmiði sem var að sigra systur sína sem nú hafnaði í þriðja sæti að þessu sinni. Það má því segja að líf sé í tusk- unum í Múlakoti þaðan sem systk- inin eru en eldri systir þeirra Sóley hafði betur í einvígi við Vilborgu Bjarnadóttur í ungmennaflokki. Í Ölfushöllinni að Ingólfshvoli hélt Sleipnir á Selfossi og nágrenni íþróttamót sem tókst ágætlega. Upphaflega átti að halda mótið á ís við Stokkseyri en mönnum þótti ís- inn ekki nógu traustur eftir vætutíð í vikunni. Völlur félagsins á Selfossi þótti ekki í því ástandi að boðlegt væri að halda mótið þar og því var brugðið á það ráð að flytja mótið í Ölfushöllina. Keppt var í tölti með hinu hefðbundna vetrarmótssniði þar sem Erlingur Erlingsson frá Feti og Bergur Jónsson frá Ketils- stöðum sáu um dómstörfin. Afrekin í ruslið Þá héldu Sörlamenn í Hafnarfirði sitt árlega grímutölt í reiðhöll fé- lagsins að Sörlastöðum og þótti tak- ast vel til að þessu sinni. Aðsókn betri en oft áður að sögn Sigurðar Ævarssonar en ekki tókst eins vel til með úrslitablöðin því talið var að þau hefðu lent í ruslakörfunni og því ekki hægt að birta þau og reynir nú á minni þeirra Sörlamanna. Vetrarmót Fáks á Víðivöllum Pollar 1. Edda H. Hinriksdóttir á Sölku frá Litlu- Sandvík 2. Ragnar Tómasson á Óðni frá Gufunesi 3. Edda R. Guðmundsdóttir á Gullfaxa frá Svignaskarði 4. Eva M. Þorvarðardóttir á Gulbrá frá Berjanesi 5. María B. Ríkharðsdóttir á Ljóma Börn 1. Sara Sigurbjörnsdóttir á Húna frá Torfunesi 2. Vigdís Matthíasdóttir á Gyðju frá Fjalli 3. Valdimar Bergstað á Sóloni frá Sauðárkróki 4. Lilja Ó. Alexandersdóttir á Krapa frá Miðhjáleigu 5. Teitur Árnason á Hrafni frá Ríp Unglingar 1. Ásdís B. Guðmundsdóttir á Straumi frá Hofsstaðaseli 2. Eyvindur H. Gunnarsson á Frama frá Auðsholtshjáleigu 3. Anna Francesca á Natan frá Hnausum 2 4. Árný Antonsdóttir á Pegasusi frá Mykjunesi 5. Björn Ástmarsson á Fjölni frá Brekkum Ungmenni 1. Þórdís E. Gunnarsdóttir á Iðunni frá Þúfu 2. Signý Á. Guðmundsdóttir á Skruggu frá Sólbakka 3. Unnur B. Vilhjálmsdóttir á Svertu Konur 2. flokkur 1. Hilda K. Garðarsdóttir á Ófeigi frá Þing- eyrum 2. Elisabet Pauser á Kólfi Grár frá Stangarholti 3. Ingibjörg Svavarsd. á Dropa frá Selfossi 4. Maria Bodenhaf á Njörvari frá Vestra- Fíflholti 5. Chris Mainka Rauðhetta Rauðskjótt 7 Hrafnkelsstöðum Konur 1. flokkur 1. Lena Zielinski á Hyllingu frá Vakurstöðum 2. Edda R. Ragnarsdóttir á Hreggi frá Sauðafelli 3. Sara Ástþórsdóttir á Þyrnirós frá Álfhólum 4. Rósa Valdimarsdóttir á Zorró frá Álfhólum 5. Ólöf Guðmundsdóttir á Fagra-Blakki frá Kanastöðum Karlar 2. flokkur 1. Árni Guðmundsson á Roða 2. Sigurþór Jóhannesson á Hrafnhildi frá Hömluholtum 3 Grétar J. Sigvaldason á Fiðlu frá Sælukoti 4. Rúnar Bragason á Hrefnu frá Ölfusholti 5. Úlfar Guðmundsson Kjarkur Brúnstjörnóttur 10 Hornafirði Karlar 1. flokkur 1. Róbert Petersen á Hrappi frá Súluholti 2. Auðunn Kristjánsson á Kviku 3. Tómas Snorrason á Skörungi frá Brattholti 4. Tómas Ragnarsson á Dreka frá Syðra-Skörðugili 5. Magnús Arngrímsson á Gaia frá Keldnakoti Vetrarleikar Gusts í Glaðheimum Pollaflokkur 1. Helena R. Leifsdóttir á Þrym frá Skáney. 2. Sigrún G. Sveinsdóttir á Pjakki frá Efsta-Dal. 3. Karen Ívarsdóttir á Björt frá Landeyjum. Börn 1. Sigrún Ý. Sigurðardóttir á Sörla frá Kálfhóli 2. Bára B. Kristjánsdóttir á Laska frá Kirkjubæ 3. Guðný B. Guðmundsdóttir á Litla-Rauð frá Svignaskarði 4. Emelía Gunnarsdóttir á Dropa frá Svínafelli 5. Guðlaug R. Þórsdóttir á Krossfara frá Syðra-Skörðugili Unglingar 1. Hrafn Norðdal á Þór frá Stóra Dal 2. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson á Væng frá Köldukinn 3. Tryggvi Þ. Tryggvason á Skrekk frá Sandfelli 4. Vala D. Birgisdóttir á Lýsingi frá Hellnatúni 5. Reynir A. Þórsson á Baldri frá Miðey Ungmenni 1. Sigvaldi L. Guðmundsson á Brynju frá Skógskoti. 2. Arndís Sveinbjörnsdóttir á Sóma frá Breið. 3. Berglind R. Guðmundsdóttir á Gerplu frá Svignaskarði. Konur 1. Oddný M. Jónsdóttir á Fjöður frá Svignaskarði 2. Helga Júlíusdóttir á Hrannari frá Skeiðháholti. 3. Birgitta D. Kristinsdóttir á Lauki frá Feti. 4. Maríanna S. Bjarnleifsdóttir á Ljúfi frá Hafnarfirði. 5. Sunna Reynisdóttir á Goða Heldri menn (50 ára og eldri) 1. Ásgeir Guðmundsson á Herkúlesi frá Glóru 2. Kristján M. Hjartarson á Brá frá Köldukinn 3. Pétur Siguroddsson á Krumma frá Vatnsleysu 4. Leifur Eiríksson á Kveik frá Miðsitju 5. Svanur Halldórsson á Gúnda frá Kópavogi. Karlar 1. Steingrímur Sigurðsson á Álu frá Blesastöðum. 2. Ríkarður F. Jensen á Mózart frá Selfossi. 3. Hlynur Þórisson á Krumma frá Vindheimum. 4. Þorvaldur Gíslason á Klið frá Hrafnagili. 5. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, jr. á Óra frá Fjalli. Stigamót Faxa á Vatns- hamravatni við Hvanneyri Börn 1. Heiðar A. Baldursson á Hágangi frá Sveintaungu 2. Helga Jónsdóttir á Korgi frá Kópareykjum 3. Anna H. Baldursdóttir Skáley frá Múlakoti Ungmenni 1. Sóley B. Baldursdóttir á Snerpu frá Múlakoti 2. Vilborg Bjarnadóttir á Mími frá Skáney Konur 1.vHeiða D. Fjeldsteð á Háfeta frá Múlakoti 2. Elísabet Jansen á Feng frá Sauðárkróki 3. Monika Kempfler á Sleipni frá Hrafnkelsstöðum 4. Björg M. Þórsdóttir á Reyk frá Hesti 5. Katrín Ólafsdóttir á Rosa.is frá Skjólbrekku Karlar 1. Sigursteinn Sigursteinsson á Dagrúnu frá Skjólbrekku 2. Hrafn Þ. Hákonarson á Gyrði frá Akranesi 3. Viggó Sigursteinsson á Þulu frá Skjólbrekku 4. Þorkell Þórðarson á Forki Djúpfara frá Hvanneyri 5. Jakob Sigurðsson á Þorra frá Eyri Íþróttamót Sleipnis í Ölfushöllinni Börn 1. Guðjón S. Sigurðsson á Skjanna frá Kolsholti 2. Ástgeir Sigmarsson á Goða frá Sandhólaferju 3. Sandra D. Garðarsdóttir á Þór 4. Guðlaugur Þórðarsson á Sjóði frá Hreiðurborg 5. Sigurður O. Karlsson á Brandi Unglingar 1. Freyja A. Gísladóttir á Muggi frá Stang- arholti 2. Sandra Hróbjartsdóttir á Verðanda frá Grund 3. Sigrún A. Brynjarsdóttir á Orku frá Selfossi 4. Emil Þ. Guðjónsson á Gunndísi frá Strönd 5. Ármann Sverrisson á Tígli frá Selfossi. Ungmenni 1. Kristinn E. Loftsson á Jarli frá Efri-Gegnishólum 2. Daníel I. Larsen á Sokka frá Herríðarhóli 3. Suvi á Reyk frá Minni-Borg Áhugamenn 1. Bjarne Fossan á Tindi frá Vallanesi 2. Haraldur Arngrímsson á Víði frá Þjóðólfshaga 3. Ólafur Jósepsson á Kviku frá Syðri-Gegnishólum 4. Davíð Sigmarsson á Þokkadís 5. Þórður Stefánsson á Þrótti frá Voðmúlastöðum Atvinnumannaflokkur/ Opinn fl. 1. Leifur Helgason á Geisla frá Ljónstöðum 2. Sævar Ö. Sigurvinsson á Rökkva frá Skarði 3. Hermann Karlsson á Prins frá Ytri-Bægisá 4. Hugrún Jóhannsdóttir á Mósart frá Sigluvík 5. Sigríður Pjétursdóttir á Gormi frá Brennigerði. Edda Rún Ragnarsdóttir veitti Lenu harða keppni á öðru ungu hrossi, Hregg frá Sauðafelli, sem þykir afar efnilegur. Morgunblaðið/Valdimar Lena Zielenski hafði sigur í flokki atvinnukvenna á ungri hryssu, Hyllingu frá Vakurstöðum, en hún er aðeins fimm vetra gömul. Vetrarmót á ís, í höllum og úti á völlum Í hinum harða kjarna atvinnu- manna sigraði Róbert Petersen á Hrappi frá Súluholti. Fimm mót voru haldin um helgina víða um land. Greina má mikinn keppnishug í hestamönnum strax í upphafi keppnis- tímabilsins og víst að mikið verður lagt undir til að komast á landsmót í sumar. Valdimar Kristinsson tók saman úrslit mótanna og myndaði nokkra af verðlaunahöfum helgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.