Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 17 meistar inn. is GULL ER GJÖFIN FRYSTISKIPIÐ Snorri Sturluson VE kom til heimahafnar í Vest- mannaeyjum í fyrsta sinn fyrir skömmu en Ísfélag Vestmannaeyja festi kaup á skipinu í lok síðasta árs. Skipið var þá að koma úr 30 daga veiðiferð. Aflaverðmætið var 88 miljónir sem er mesta aflaverð- mæti sem skip frá Vestmannaeyjum hefur komið með að landi í einni veiðiferð. Í áhöfn skipsins eru 27 menn og í fyrstu veiðiferðinni voru fjórir Eyjamenn um borð. Skip- stjóri á Snorra Sturlusyni er Krist- inn Gestsson og Magnús Guð- mundsson skipstjóri á Bergey VE er stýrimaður en hann mun í fram- tíðinni verða afleysningarskip- stjóri. Skipið var til sýnis þegar það kom til hafnar og fjöldi bæjarbúa notaði tækifærið og skoðaði skipið. Morgunblaðið/Sigurgeir Snorri Sturluson VE kominn til Eyja STJÓRNIR Hávöxtunarfélagsins hf. og Verðbréfasjóðsins hf. hafa staðfest samruna verðbréfasjóðanna og hefur verið óskað eftir því að Verðbréfasjóðurinn hf. verði af- skráður úr hlutafélagaskrá. Frá þessu var greint í tilkynningu á Verðbréfaþingi Íslands í fyrradag. Sjóðirnir eru dótturfélög Kaup- þings banka. Verðbréfasjóðurinn hf. var dótturfélag Frjálsa fjárfesting- arbankans hf., sem Kaupþing eign- aðist nær allt hlutafé í á síðasta ári. Vegna samrunans hafa verið gerð- ar breytingar á samþykktum Há- vöxtunarfélagsins. Hlutaféð hefur verið hækkað og er nú 10,5 milljónir króna. Ákvæði samþykkta félagsins um heimild stjórnar til að hækka hlutafé hefur verið endurnýjað og hefur stjórnin heimild til að hækka það um kr. 6,0 milljónir, en heimildin gildir til 1. nóvember 2006. Nokkrar sjóðsdeildir félaganna verða samein- aðar og eru aðrar breytingar á sam- þykktum um atriði er tengjast því. Hávöxtunarfélagið og Verðbréfasjóð- urinn sameinast ● TAP hlutabréfasjóðsins Hlutabréfa- markaðurinn hf. (Hmark), sem Ís- landsbanki sér um daglegan rekstur á, var 53 milljónir króna fyrir skatta á árinu 2001. Sjóðurinn greiðir ekki tekjuskatt vegna yfirfæranlegs taps. Heildarafkoma félagsins var tap upp á 11,3 milljónir að teknu tilliti til óinn- leysts gengishagnaðar af hlutabréf- um. Hmark átti hlut í 35 félögum í lok árs 2001 og voru stærstu eignarhlut- arnir: Microsoft 20 milljónir króna, Pfizer 17 milljónir og IBM 17 milljónir. Hluthafar Hmark voru 1.458 í árslok 2001 en voru 773 í uphafi árs. Tap Hlutabréfamark- aðarins hf. 53 millj- ónir fyrir skatta ● RÍKISKAUP hafa ákveðið að ganga til samstarfs við Anza um hýsingu og rekstur á nýju landskerfi bókasafna. Markmið Landskerfis bókasafna er að tryggja landsmönnum aðgang að bókfræðilegum upplýsingum sem nýtast bæði til náms, í starfi og í leik. Áætlað er að kerfið þjóni öllum landsmönnum, hýsi allt að 2 milljónir bókfræðifærslna, 5 milljónir eintaka og ráði við allt að 5 milljón útlán á ári. Allir helstu aðilar á sviði kerfis- veitu og hýsingar gerðu tilboð í þessa þjónustu, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu. Ríkiskaup semja við Anza ● HÓPVINNUKERFI ehf. standa í dag fyrir námskeiði um ISO 15489:2001, sem er nýr alþjóðlegur staðall um upplýsinga- og heim- ildagildi skjala og skjalastjórn, í tengslum við umhverfi íslenskra stofnana og fyrirtækja. Námskeiðið hefst kl. 13:30 á Grand Hótel Reykja- vík og fyrirlesari verður Jóhanna Gunnlaugsdóttir, lektor við Háskóla Íslands og ráðgjafi hjá Gangskör sf. Í fréttatilkynningu kemur fram að námskeiðið sé ætlað stjórnendum sem bera ábyrgð á skjala- og upplýs- ingamálum stofnana og fyrirtækja, skjalastjórum sem eiga að koma á skjalastjórn og fylgja eftir einstökum þáttum skjalastjórnar, kerfisfræð- ingum sem vinna við þróun rafrænna skjala- og upplýsingakerfa, tölvu- kennurum sem kenna á rafræn skjala- og upplýsingakerfi og starfs- mönnum sem bera ábyrgð á og varð- veita heildstæð skjalasöfn um störf sín. Námskeið um staðal í skjalastjórn TAP Íslenskra verðbréfa hf. á árinu 2001 nam 131 milljón króna eftir skatta. Árið áður var tap félagsins 51 milljón. Eignir Íslenskra verðbréfa í árs- lok 2001 voru 1.127 milljónir króna en 1.408 milljónir í árslok 2000. Eig- ið fé félagsins nam 113 milljónum króna í árslok 2001. Eiginfjárhlut- fall félagsins í árslok var 25,5% en hlutfallið má ekki vera lægra en 8%. Í tilkynningu Íslenskra verðbréfa á Verðbréfaþingi Íslands í gær segir að félagið hafi verið að auka umsvif á sviði eignastýringar verulega. Markvisst sé unnið að því að minnka efnahagsreikning félagsins. Þessar aðgerðir hafi skilað sér í verulega bættri afkomu félagsins síðastliðna mánuði og horfurnar fyr- ir árið 2002 séu góðar að mati stjórnenda félagsins. Á árinu 2002 er gert ráð fyrir að félagið verði rekið með hagnaði. Heildarfjárhæð viðskiptamanna í fjárvörslu nam tæpum 15 milljörðum króna í árslok 2001. Meðalfjöldi starfsmanna hjá Ís- lenskum verðbréfum hf. var 16 manns á árinu 2001. Tap Íslenskra verð- bréfa hf. 131 milljón ÍSLAND er í öðru sæti á lista yfir 75 ríki sem raðað er eftir hæfni íbúa þeirra til að nýta möguleika upplýsingatækni (Networked Readiness Index NRI). Bandarík- in eru í efsta sæti. Þetta kem- ur fram í skýrslu um stöðu upplýs- ingatækni í heiminum, út- gefinni af Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Það er Alþjóðaþróunarmiðstöð Harvard sem hefur þróað mæli- kvarðann á hæfni ríkja til að nýta möguleika upplýsingatækninnar (NRI) og í einum kafla skýrsl- unnar fjalla þeir Geoffrey Kirk- man, Carlos Osorio og Jeffrey Sachs frá Alþjóðaþróunarmið- stöðinni um NRI og niðurstöð- urnar sem birtar eru í umrædd- um lista. Norðurlöndin eru á meðal tíu efstu ríkja. Í þriðja sæti er Finn- land, Svíþjóð í því fjórða, Nor- egur í því fimmta og Danmörk í sjöunda. Holland er í sjötta sæti, Singapúr í áttunda, Austurríki í níunda og Bretland í tíunda sæti. Íslendingar nýta mögu- leika upplýs- ingatækni vel ● Í ERINDI sem einn af forsvars- mönnum SAS-flugfélagsins, Lars Lindgren, hélt hér á landi í vikunni kom m.a. fram að öll hefðbundin flugfélög þyrftu að mæta væntingum almennings um lág flugfargjöld. Í til- raun sinni til að gera þetta hefur SAS uppskorið háðsglósur frá lágfar- gjaldaflugfélaginu Ryanair sem í gær sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem SAS er kallað „háfargjaldaflug- félag Skandinavíu“. Frá þessu er greint á fréttavef Dagens Næringsliv. Ryanair hefur náð hluta af heima- markaði SAS og býður ódýrt flug á milli Skandinavíu og Bretlands. Í næstu viku mun SAS lækka fargjöld á milli Lundúna annars vegar og Kaupmannahafnar, Óslóar og Stokk- hólms hins vegar. Síðar koma tilboð á milli höfuðborga Norðurlandanna. Sölustjóri Ryanair á Norðurlönd- unum segir í Dagens Næringsliv að lægsta fargjald SAS sé tvöfalt hærra en hjá Ryanair. „Ef SAS vill í rauninni keppa við Ryanair er kominn tími til að bjóða raunverulega lægri fargjöld eins og Ryanair og hætta að krefja farþega um svo háar fjárhæðir.“ „Háfargjaldaflugfélag Skandinavíu“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.