Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 15
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 15 Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda 21. febrúar til 3. mars Opið alla daga 10 til 19. Einnig um helgar! Opið alla daga frá kl. 10 til 19 – einnig um helgar. Öllum fyrirspurnum verður svarað. Reykjavík: Perlan, sími 562 9701. Akureyri: Hafnarstræti 91-93, 2. hæð, símar 461 5050 og 861 1780. BESTU BÓKAKAUPIN Þú hefur aðeins nokkra daga til að nýta þér þetta einstaka tækifæri! KRÖKKUNUM í leikskól- anum Kærabæ á Fá- skrúðsfirði þótti gott að fá að vera í gamla íþrótta- salnum og slá köttinn úr tunnunni, en úti var rok og rigning á öskudaginn. Ekki vantaði tilþrifin þar eða búningana frekar en annars staðar á landinu. Morgunblaðið/Albert Kemp Krakk- ar í Kærabæ Fáskrúðsfjörður GUÐBRANDUR Sverrisson á Bassastöðum í Kaldrananeshreppi fór við fjórða mann að sækja kindur inn í svokallaðan Hvannadal sem gengur innúr Selárdal í Steingríms- firði. „Ég fór fram í Selárdal nýlega og sá þá fjórar kindur en komst ekki alveg að þeim og sá að ég þyrfti ein- hverja fótfimari með mér og fékk þá Ragnar Bragason á Heydalsá, Birki Stefánsson í Tröllatungu og Harald Guðmundsson á Stakkanesi sem all- ir eru með hraustari mönnum.“ Þrjár kindanna sem hafa verið úti í tuttugu mánuði án þess að koma í hús voru verst útleiknar og nánast í svelti. „Ég sá eina þeirra úr nokkurri fjarlægð og hélt að þarna væri stór steinn en þegar nær kom sá ég að þetta var ein kindanna, svo klaka- brynjaðar voru þær. Fyrst sá ég þær á aðfangadag fyrir rúmu ári og náði þá einu lambi en hinar voru ill- viðráðanlegar og létu sig hverfa og sáust ekki í haustsmalamennskum og voru taldar af.“ Ekki er vafi á því að ærnar hafa fengið mjög vont veður síðari hluta vetrar í fyrra og ekki var stingandi strá þar sem þær voru nú. Þær voru styggar og erfitt að ná þeim en áttu ekki margra kosta völ þar sem þær voru nánast í sjálfheldu, að sögn Guðbrandar. Sjö kindanna voru frá Kaldrana- nesi, tvílemba frá Steinstúni í Ár- neshreppi, ær og lamb frá Bassa- stöðum og eitt lamb frá Geir- mundarstöðum. Farið var á vél- sleðum og bundu þeir kindurnar á aftanísleða. „Þetta gekk nú hálf- brösuglega hjá okkur meðal annars vegna hliðarhalla og hrjóstrugs landslags en við náðum fjórum kind- um og samtals níu nú nýlega .“ Þessa má geta einn þessara ötulu smalamanna, Guðbrandur á Bassa- stöðum, gengur ekki heill til skógar þar sem hann slasaðist illa á fæti fyrir þremur árum þegar skot hljóp úr byssu þar sem hann var á refa- veiðum en hann lét það þó ekki aftra för sinni. Þrettán kind- ur fundust í Hvannadal Hólmavík Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir Lilja Jóhannsdóttir, bóndi á Bassastöðum, með kindurnar þrjár sem legið hafa úti í tuttugu mánuði. KRAKKARNIR á Selfossi létu ekki rigningu og rok aftra sér að fara um göturnar og heimsækja fyrirtæki í bænum með söng og gamanmálum. Þau fengu að vanda sætindi að launum. Búningar voru að venju með ýmsu móti og mátti sjá skrautlegar verur skjótast inn og út úr húsum, fyrir húshorn og yfir gangbrautir. Hattar þeyttust til og síðpils sviptust í vindinum. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Þau kepptust við að heimsækja fyrirtæki og taka lagið. Líflegir öskudags- krakkar Selfoss UNGT fólk á aldrinum 16-25 ára sem búsett er á Akranesi mun á næstu vikum geta notfært sér húsnæði gamla Iðnskólans, sem stendur við Skólabraut 9, fyrir hugðarefni sín. Líkt og í mörgum öðrum bæjarfélög- um hefur undanfarin ár skort að- stöðu fyrir ungt fólk sem nýtir sér ekki lengur þá möguleika sem í boði eru í félagsmiðstöðvum. Í félagsmið- stöðinni Arnardal á Akranesi er rek- ið öflugt tómstunda- og æskulýðs- starf fyrir elstu bekki grunnskól- anna og verður tómstundahúsið því hrein viðbót við þá starfsemi sem nú er í gangi. Bæjarráð Akranes samþykkti á dögunum stofnsamning þess efnis að Rauði Kross Íslands muni annast og skipuleggja rekstur hússins á yfir- standandi ári og einnig á því næsta en í byrjun ársins 2004 mun Akra- neskaupstaður taka alfarið við starf- seminni. Ekki er búið að ráða for- stöðumann í þetta verkefni en það mun gerast á næstu vikum. Lögð er áhersla að öll starfsemi í húsinu verði vímuefnalaus. Stefnt er að því að unglingarnir geti unnið að sem flestum hugðarefnum sínum í húsinu og má nefna að nettengdar tölvur verða til staðar, auk þess sem rekið verður kaffihús á svæðinu. Upplýsingar um flest það sem snýr að möguleikum ungs fólks verður hægt að nálgast með einföldum hætti í húsinu og hvert skal leita með vandamál af ýmsum toga og gerðum. Gamli Iðnskólinn mun hýsa unga fólkið Akranes Morgunblaðið/Sigurður Elvar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.