Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ RÚMLEGA 180 þúsund flöskur seldust af íslenska vodkanum Pölstar í Lundúnum á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að salan á þessu ári verði að minnsta kosti 300 þús- und flöskur. Pölstar vodki er fram- leiddur í verksmiðju Ölgerðar Eg- ils Skallagrímssonar í Borgarnesi fyrir breska fyrirtækið The Re- formed Spirits Company (RSC), sem er eigandi vörumerkisins. RSC var stofnað á árinu 1999 til þess að annast markaðssetningu og sölu á Pölstar vodka. Að fyr- irtækinu standa David Bromige, sem átti hugmyndina að Pölstar, markaðssetningarfyrirtækið Cor- omin Inc., og áhættufjárfestingar- sjóðurinn Living Capital. Auk Öl- gerðar Egils Skallagrímssonar eru tvö bresk víndreifingarfyrirtæki samstarfsaðilar RSC, en það eru fyrirtækin Coe Vintners og Venus & Co. Tengist hreinleika og náttúrufegurð Í fréttatilkynningu frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar er haft eft- ir David Lomnitz, framkvæmda- stjóra RSC, að góðan árangur Pölstar á hörðum samkeppn- ismarkaði í Lundúnum megi annars vegar þakka öflugri markaðssetningu og hins vegar því að Pölstar sé íslensk fram- leiðsla. Viðskiptavinir velji ís- lenskan Pölstar vodka vegna þess að þeir tengi hann við hreinleika, náttúrufegurð og langa hefð fyrir vodkaneyslu. David Lomnitz segir að meirihlutinn af sölu Pölstar fari fram á rúm- lega 400 börum og veit- ingastöðum í Lundúnum. Pölstar sé seldur sem fyrsta flokks vodki og sé þannig í samkeppni við mörg af þekktustu vodka- vörumerkjum heims. Hann segir að til marks um hvernig Pölstar hafi saxað á þessi þekktu vöru- merki hafi salan verið um 50% af sölu Stolychnaya og 12% af sölu Absolut í Lundúnum. Viktor Ólafsson, mark- aðsstjóri Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, segir að fimm manns starfi við framleiðslu fyrirtækisins á Pölstar vodka í Borgarnesi og að framleiddar séu 8 tegundir af Pölstar. Hann segir að á þessu ári sé ætlunin að koma Pölstar á markað víðar í Evr- ópu, eingöngu í stórborgum. Þar á meðal séu Kaupmanna- höfn, Stokkhólmur, Madríd, Malaga og Barcelona. Einnig sé í bígerð að hefja sölu á Pölstar í Reykjavík. Pölstar er einn af styrktaraðilum bresku kvikmyndahátíðarinnar BAFTA, British Aca- demy Awards, sem hald- in verður í Lundúnum sunnudaginn 24. febrúar næstkomandi. Viktor segir að í því felist mikil viðurkenning að Pölstar skyldi hafa verið valinn sem drykkur hátíðarinn- ar. Þrátt fyrir mikinn kostnað sé stuðningur- inn við BAFTA talinn geta skilað mjög góðum árangri, ekki aðeins á núverandi markaðs- svæði. Íslenskur vodki selst vel í Lundúnum GÓÐ veiði var á loðnumiðunum í gær og voru skipin að fylla sig í fáum köstum. Frysting á Japansmarkað er víða hafin, þó að afkoman af fryst- ingunni þyki með lakasta móti í ár. Hrognafylling loðnunnar sem nú veiðist fyrir austan land er nú um 15% sem er það hlutfall sem jap- anskir kaupendur miða gjarnan við þegar hefja á frystingu. Hjá Síldarvinnslunni hf. á Nes- kaupstað er nú þegar búið að frysta rúmlega 100 tonn af loðnu á Japans- markað. Að sögn Jóhannesar Páls- sonar, framkvæmdastjóra vinnslu, var þó ekki fryst loðna á Neskaup- stað í gær, þar sem mikil áta var í loðnunni sem þá barst á land og hún óhæf til vinnslu. Jóhannes segir að hinsvegar hafi komið stór og átulaus loðna um síðustu helgi og hún að mestu farið í Japansfrystingu. „Verðið fyrir Japansloðnuna er þannig að við frystum ekki á Japan nema loðnan sé stór og alveg átu- laus,“ sagði Jóhannes. Vegna þessa hafa nokkur fyrir- tæki ákveðið að frysta ekki loðnu á Japan á þessari vertíð. Verð á loðnunni þykir of lágt, auk þess sem sala hefur gengið erfiðlega, einkum á smærri loðnu. Þannig verður engin loðna fryst hjá Hraðfrystihúsi Eski- fjarðar. Að sögn Benedikts Jóhanns- sonar, framleiðslustjóra á Eskifirði, þykir afkoman af frystingunni í ár ekki nógu spennandi og því hafi ver- ið ákveðið að hefja ekki loðnufryst- ingu. Gengur hratt á kvótann Það gengur hratt á loðnukvótann þessa dagana, veðurguðirnir hafa verið hliðhollir sjómönnum síðustu daga og loðnan veiðist nú aðeins um 5 sjómílur undan Stokksnesi og því stutt til löndunarhafna á Austfjörð- um. Mikið magn berst nú af loðnu á hafnir austanlands og þurfa því mörg skipanna að sigla langt með aflann til löndunar. Veður var farið að versna á miðunum í gær og flestin skipin því farin í land. Loðnuaflinn er kominn í 335 þúsund tonn á vetrar- vertíðinni, samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva. Frá því á mánudag hefur verið til- kynnt um tæpra 20 þúsund tonna loðnuafla. Mestu hefur verið landað á Eskifirði, rúmlega 49 þúsund tonn- um, rúmlega 42 þúsund tonnum á Seyðisfirði og 41 þúsund tonnum á Neskaupstað. Heildarkvótinn á ver- tíðinni er 968 þúsund tonn og á því eftir að veiða um 485 þúsund tonn af kvótanum. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Loðnu landað úr Hólmaborg SU í heimahöfn á Eskifirði á mánudag, rúmum sólarhring eftir síðustu löndun. Léleg afkoma í loðnufrystingunni HEILDARAFLI fullvinnsluskipa og annarra skipa sem vinna afla um borð varð á fiskveiðiárinu 2000–2001 alls 157.819 tonn. Talið er að þar af hafi um 63.302 tonn ekki nýst til vinnslu í skipunum og verið hent fyrir borð, sam- kvæmt svari sjávarútvegsráð- herra á Alþingi við fyrirspurn Kristjáns Pálssonar. Í svarinu kemur fram að heild- arafli svokallaðra fullvinnsluskipa var á síðasta fiskveiðiári 131.709 tonn en þessi afli er bakreiknaður frá meginafurðum skipanna sam- kvæmt reglugerðum um vigtun sjávarafla og mælingar á vinnsl- unýtingu um borð í skipum sem vinna aflann um borð. Þar af var þorskafli vinnsluskipanna 40.713 tonn og úthafskarfaaflinn 28.907 tonn. Þá kemur einnig fram að unn- inn afli annarra skipa sem vinna aflann um borð, s.s. rækjufrysti- skipa og uppsjávarvinnsluskipa, var 26.110 tonn á sama tímabili. Þar af var rækjuaflinn 10.526 tonn og síldaraflinn 8.271 tonn. Samtals var því heildarafli full- vinnsluskipa og annarra skipa sem vinna aflann um borð 157.819 tonn á síðasta fiskveiðiári. Sam- kvæmt svari ráðherra lönduðu umrædd skip um 92.424 tonnum af afurðum á tímabilinu sem er um 58,6% nýting. Þar af er nýting á þorski um 44%. Til samanburð- ar yrði meðalnýting þorskafla skipa sem slægja aflann um borð í landað magn því 84%. Mismunur þess sem skipin veiða og þess sem þau landa er því ríflega 63.300 tonn sem gera má ráð fyrir að hent sé fyrir borð. Í svari ráð- herra segir að líklega sé hægt að nýta það sem fleygt er af vinnslu- skipum til mjölvinnslu. Hins veg- ar hafi útgerðir þessara skipa í vaxandi mæli landað hinum svo- kallaði úrgangi og nýtt í verð- mætari afurðir sem ekki hafi jafn mikinn kostnað í för með sér og bræðsla um borð. 63.300 tonnum fleygt af vinnsluskipum EINS og greint hefur verið frá lauk nýverið þriggja ára samningi OZ og Ericsson um þróun iPulse sam- skiptalausnarinnar, nánar tiltekið í janúar sl. Á samningstímabilinu hef- ur OZ einbeitt sér að þróun iPulse og fengið greiðslur fyrir það frá Erics- son en sala á búnaðinum er nú hafin. Fyrri samningur OZ og Ericsson kvað á um að OZ fengi 15% hlutdeild í sölutekjum Ericsson af iPulse þeg- ar þróun væri lokið. Samningur sem fyrirtækin hafa nú gert með sér kveður á um að OZ verður ekki leng- ur háð árangri Ericsson, en mun standa sjálfstætt að markaðssetn- ingu á iPulse undir nafninu OZ ICS. OZ kynnir búnaðinn m.a. um þess- ar mundir á sýningu í Cannes í Frakklandi. Einnig standa yfir við- ræður við fjarskiptafyrirtæki um hugsanleg kaup á OZ ICS. Salan á iPulse eða ICS að hefjast GENGI krónunnar styrktist um 0,26% í tæplega tveggja milljarða króna viðskiptum á millibankamarkaði í gær, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Landsbank- ans. Lokagildi gengisvísitöl- unnar í gær var 136,80 stig, en var 137,15 stig við opnun í gærmorgun. Gengi krónunnar hefur ekki verið sterkara frá því 20. ágúst á síðasta ári. Gengi Bandaríkjadals var skráð 100,17 krónur í lok gærdagsins en var 100,95 krónur í byrjun dags. Gengi evrunnar var skráð 87,72 krónur. Gengi krón- unnar ekki sterkara í sex mánuði DAUÐUR nílarkarfi flýtur nú í stórum stíl á yfirborði Viktoríu- vatns í Afríku. Talið er súrefn- isskortur valdi fiskdauðanum. Fiskimenn í vatninu segja að allt upp í 10% aflans á dag sé dauður fiskur. Svo virðist sem súrefnis- skorturinn hafi ekki áhrif á aðrar tegundir í vatninu, s.s. beitarfisk (tilapiu). Fiskifræðingar segja að nílarkarfi þurfi mikið súrefni. Hann haldi sig einkum í dýpri svæðum vatnsins en þar hafi orðið vart við súrefnisskort að undan- förnu. Þeir segja að súrefnissnauð lög vatnsins stigi sífellt hærra frá botninum og þar af leiðandi minnki nægilega súrefnisrík svæði fyrir nílarkarfann. Vísindamenn halda því fram að óheft brennsla á gróðri á vatnasvæðinu og stjórn- laus notkun skordýraeiturs valdi því að magn fosfats og köfnunar- efnis í vatninu auki frjósemi þess til muna. Mikill gróður sé nú í vatninu sem þær fiskitegundir, sem lifa á gróðri, ráði ekki við að éta í nægilega miklu magni. Nílarkarfi er ein helsta útflutn- ingsvara landanna sem liggja að vatninu en hann er aðallega seldur ferskur til landa Evrópusambands- ins. Nílarkarfi drepst í Viktoríuvatni STJÓRNVÖLD í Namibíu munu ekki gefa út ný veiðileyfi næstu 6 árin, nema til veiða á hrossamakríl. Sjávarútvegsráðherra Namibíu, Abraham Iyambo, segir að fiski- stofnarnir séu dýrmæt en ekki ótakmörkuð auðlind. Víða um heim séu of margir fiskimenn að eltast við of fáa fiska og það megi ekki verða raunin við Namibíu. Í Nam- ibíu er veiðileyfum úthlutað til fyr- irtækja og munu upprunalegu leyf- ishafarnir halda réttindum sínum. Þeir sem hinsvegar ætluðu að hagnast á skömmum tíma með því að selja aðgang að kvóta munu væntanlega hverfa úr greininni með þessum aðgerðum stjórnvalda. Alls hafa 152 fyrirtæki veiðileyfi í Namibíu og eru gefin út leyfi til veiða á einstökum tegundum. Leyf- um til veiða á hrossamakríl verður þó væntanlega fjölgað. Þrátt fyrir að stofninn sé í góðu ástandi hefur aldrei tekist að veiða heildarkvóta ársins. Engin ný veiðileyfi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.