Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 13
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 13 ÚTVARPSRÁÐ átti fund á Akur- eyri í gær þar sem fulltrúar þess skoðuðu m.a. nýtt húsnæði sem Rík- isútvarpið hefur tekið á leigu við Kaupvangsstræti 1 í miðbæ Akur- eyrar. Þangað verður öll starfsemi útvarpsins flutt þegar líður á árið. Þar verður einnig aðsetur frétta- manns Sjónvarps. Sett verður upp hljóðver fyrir útsendingar bæði fyrir Rás 1 og Rás 2. Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri sagði að einnig hefði á fundi út- varpsráðs verið fjallað um væntan- legar skipulagsbreytingar í rekstri Útvarpsins, en innan skamms verð- ur auglýst staða nýs dagskrárstjóra Rásar 2 sem hafa mun aðsetur á Ak- ureyri. Þá mun einnig verða ráðinn dagskrárstjóri Rásar 1. Setja þarf upp flókinn tæknibúað í nýjum húsa- kynnum og var farið yfir þau mál með eiganda húsnæðisins. Gert er ráð fyrir að smiðir munu innan tíðar hefjast handa um nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu. „Við stefnum að því að setja upp hljóðstofu fyrir beinar útsendingar inn á kerfi Rásar 2 hér á Akureyri, en einnig munu starfsstöðvarnar á Egilsstöðum og Ísafirði koma öflugri inn í dagskrá Rásar 2 en verið hefur. Á þessum stöðum verður tekið upp margvíslegt efni bæði fyrir Rás 1 og Rás 2,“ sagði Markús Örn. Ríkisútvarpið hefur um 20 ára skeið átt tæplega 600 fermetra hús- næði við Fjölnisgötu 3a í Glerár- hverfi á Akureyri og verður það nú sett á sölu. Markús Örn sagði það húsnæði of stórt og dýrt fyrir þá starfsemi sem þar var. Markús Örn sagði að menn ættu að sjá þess merki í vetrardagskrá næsta vetrar að breytingar hefðu verið gerðar í þá átt að efla starfemi landshlutastöðvanna. Hann sagði óánægjuraddir sem upp komu eftir að væntanlegar breytingar voru fyrst kynntar að mestu hafa hljóðn- að. „Eftir að menn kynntu sér hvað í þessum breytingum felst og þeirri hugsun sem að baki þeim er urðu menn rórri. Með þessum breyting- um mun rödd fólks um land allt verða öflugri í útvarpi allra lands- manna,“ sagði Markús Örn. Fulltrúar útvarpsráðs skoðuðu ný húsakynni RÚV Rödd fólks um land allt verði öflugri í útvarpi ÞESSA dagana er að rísa versl- unarhús í Reykjahlíð. Það eru Olíu- félagið hf., Eignarhaldsfélag KEA og Skútustaðahreppur sem eiga bygginguna. Þar verður verslað með dagvörur heimilanna, bensín og olíur og loks verður þar upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðamenn. Byggingin er finnskt stálgrind- arhús og er reist af Hornfirðingum nú í þorrablíðunni. Segja má að þessi bygging eigi sér langan aðdraganda því full 30 ár eru síðan hafinn var undirbún- ingur að byggingu þjónustumið- stöðvar í Reykjahlíð. Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og mik- ilfenglegar hugmyndir um fjölþætta þjónustumiðstöð, verið kveðnar í kútinn. Mikil þörf var eigi að síður fyrir bætt húsnæði, einkanlega fyr- ir olíuafgreiðslu og kemur sú að- staða sem nú rís til með að leysa þann vanda. Morgunblaðið/BFH Hornfirðingar reisa verslunarhús í Reykjahlíð í þorrablíðunni. Verslunarhús rís í Reykjahlíð FREYVANGSLEIKHÚSIÐ frum- sýnir á laugardagskvöld, 23. febr- úar, nýjan gleðileik með söngvum eftir Hjörleif Hjartarson frá Tjörn í Svarfaðardal. Verkið fjallar á gamansaman eða öllu heldur kaldhæðinn hátt um útihátíðina Halló Akureyri. Um það hvernig bæjarbúar ætla sér að verða ríkir á einni helgi, hvernig gestirnir ætla að sameina fjölskyldur, finna ástina og skemmta sér sem aldrei fyrr og þá er miskunnarlaust skopast að fjölmiðlum, stórpoppurum, grúppíum og tískumógúlum landsins eins og það er orðað í frétt um leikritið. Hjörleifur samdi mest alla tón- list í verkinu en hljómveit sýning- arinnar, Helgi og hljóðfæraleik- ararnir, útsettu tónlistina og flytja ásamt leikhúskórnum. Hátt í 30 manns koma fram og er ann- ar eins fjöldi að tjaldabaki við ýmis verkefni. Oddur Bjarni Þor- kelsson er leikstjóri og er þetta í annað sinn sem hann leikstýrir í Freyvangi. Hann hefur lokið námi í leikstjórn í Bretlandi. Oddur Bjarni Þorkelsson leik- stjóri og Hjörleifur Hjartarson, höfundur gleðileiksins. Halló Akureyri Freyvangsleikhúsið frumsýnir gleðileik SIGURÐUR J. Sigurðsson stýrði síðasta fundi sínum sem forseti bæjarstjórar Akureyrar í gær. Sig- urður tekur nú við nýju starfi deildarstjóra fjármálasviðs Norðurorku. Sigurður var fyrst kjörinn í bæjarstjórn Ak- ureyrar árið 1974, þá 28 ára gamall og hefur hann setið í bæj- arstjórn óslitið síðan eða í 28 ár, fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Aðeins Jón G. Sólnes, fyrrverandi alþingismaður, hefur setið lengur en sjö kjörtímabil í bæjarstjórn Akureyrar, en hann var í bæjarstjórn frá 1942 til 1970 og aftur 1982 til 1986. Jakob Frí- mannsson fyrrverandi kaupfélags- stjóri átti einnig sæti í bæjarstjórn Akureyrar í sjö kjörtímabil, frá 1942 til 1970. Sigurður hefur starfað með sex bæjarstjórum þessi kjörtímabil, þeim Bjarna Einarssyni, Helga Bergs, Sigfúsi Jónssyni, Halldóri Jónssyni, Jakobi Björnssyni og Kristjáni Þór Júlíussyni. Sigurður J. hættir í bæjarstjórn eftir 28 ár Sigurður J. Sigurðsson ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða út ófyrirséð viðhald og minni háttar viðhald, sem ekki verður boðið út í sérstökum útboðum á vegum Fast- eigna Akureyrarbæjar. Byggingum Fasteigna Akureyr- arbæjar er skipt upp í sex tilboðs- liði og er það gert með það í huga að gefa sem flestum verktökum færi á að bjóða í verkin. Tilgangur útboðsins er að ná fram hag- kvæmni og auka um leið möguleika fyrirtækja eða einstaklinga á að vinna að verkum hjá Akureyrarbæ. Fasteignir Akureyrar hafa á sinni könnu rekstur og umsýslu með öll- um fasteignum í eigu bæjarins. Markmiðið með stofnun félagsins var að færa umsjón með fasteign- um bæjarins á eina hendi og koma á samræmdu skipulagi á viðhaldi eignanna. Viðhald boðið út Fasteignir Akureyrarbæjar SKRÍN ehf. hefur tekið við net- þjónustu Anza á Akureyri, þ.e. innhringiaðgang einstaklinga, lén, netföng tengd nett.is, aey.is og nest.is en breytingarnar taka gildi 1. mars næstkomandi. Við- skiptahópur Skríns mun við þessar breytingar stækka og reksturinn styrkjast í kjölfarið. Skrín verður í kjölfar breyting- anna stærsta netþjónustufyrir- tæki utan höfuðborgarsvæðis- ins. Fyrirtækið tók til starfa sumarið 2000 og hefur öflugur tölvusalur verið byggður við Glerárgötu á Akureyri. Skrín tekur við netþjón- ustu Anza ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.